Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 14

Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 14
TÖLVUMÁL Baldur Jónsson heiðursfélagi í SÍ Baldur Jónsson, prófessor og forstöðumaður íslenskrar mál- stöðvar, var gerður að heiðurs- félaga í Skýrslutæknifélagi Islands á aðalfundi félagsins í janúar 1997. Baldur hefur átt sæti í orðanefnd Skýrslutækni- félagsins í rúm tuttugu ár eða frá árinu 1976. Baldur tók stúdentspróf frá M A 1949 og lauk meistaraprófi í íslenskum fræðum frá Háskóla íslands 1958. Hann stundaði nám í germönskum málvísindum í University of Michigan í Ann Arbor, Bandaríkjunum 1959. Baldur sótti máltölvunarnám- skeið í Svíþjóð 1972, Noregi 1973 og Danmörku 1974, enn fremur alþjóðlegan sumarskóla í máltölvun í Pisa á Ítalíu 1972. Hann var lektor í íslensku og íslenskum bókmenntum í háskól- unum í Gautaborg og Lundi 1960 til 1963, séifræðingur á Orðabók Háskólans 1963-1965, lektor í HÍ 1965-1977 og dósent1977-1984. Baldur hefur verið forstöðu- maður íslenskrar málstöðvar og prófessor í íslenskri málfræði við HÍ frá 1985. Auk fastra starfa hefur Baldur sinnt margvíslegum aukastörfum og félagsstörfum. Má þar m.a. nefna að hann var málfarslegur ráðunautur á fréttastofu Ríkisút- varpsins 1970 til 1984, stóð fyrir námskeiði máltölvunarsérfræðinga á vegum Norrænu rannsóknar- námskeiðanna og HI sumarið 1981, sat í ráðgjafarnefnd Reikni- stofu Raunvísindastofnunar HI 1973 til 1976, var formaður Islenskrar málnefndar 1978 til 1988, sat í stjórnarnefnd Nord- term, samtaka norrænna íðorða- stofnana, 1986 til 1990 og var í nefnd skipaðri af samgönguráð- herra til að undirbúa útgáfu ný- yrðasafns úr flugmáli frá 1987 til 1992. Þá var Baldur í fulltrúaráði Association for Literary and Lin- guistic Computing 1975 til 1985. Stjórnarformaður Málræktarsjóðs var hann frá 1991 - 1994. Einnig má geta þess að hann stjórnaði fyrstu máltölvunarrannsóknum hér á landi 1973 til 1980. Baldur var kjörinn í Vísindafélag Islendinga 1974 og sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1991. Meðal ritstarfa Baldurs má nefna Tíðni orða í Hreiðrinu, Tilraunaverkefni í máltölvun, 1975, Mályrkju Guðmundar Finnbogasonar, 1976, og Orð- stöðulykil að Hreiðrinu 1978. Orðanefnd hefur starfað á vegum Skýrslutæknifélagsins frá því fljótlega eftir stofnun þess árið 1968. Árið 1974 gaf nefndin út sem handrit tölvuprentaðan orða- lista, Skrá yfir orð og liugtök varðandi gagnavinnslu, en hafði áður sent frá sér stutta orðaskrá. Árið 1983 sendi orðanefndin frá sér fyrstu útgáfu Tölvuorðasafns, sem jafnframt var fyrsta ritið í ritröð Islenskrar málnefndar. Tölvuorðasafnið var gefið út aukið og endurbætt 1986 og fylgdu þá skilgreiningar heitum hugtaka. Nú er unnið að undirbúningi þriðju útgáfu Tölvuorðasafnsins og er það væntanlegt haustið 1997. Þeir sem nú eiga sæti í orðanefndinni hafa starfað saman síðan 1978 en Baldur hefur átt sæti í nefndinni lengst eða frá 1976 eins og áður er getið. 14 - MARS 1997

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.