Tölvumál - 01.03.1997, Page 14
TÖLVUMÁL
Baldur Jónsson
heiðursfélagi í SÍ
Baldur Jónsson, prófessor og
forstöðumaður íslenskrar mál-
stöðvar, var gerður að heiðurs-
félaga í Skýrslutæknifélagi
Islands á aðalfundi félagsins í
janúar 1997. Baldur hefur átt
sæti í orðanefnd Skýrslutækni-
félagsins í rúm tuttugu ár eða frá
árinu 1976.
Baldur tók stúdentspróf frá
M A 1949 og lauk meistaraprófi
í íslenskum fræðum frá Háskóla
íslands 1958. Hann stundaði
nám í germönskum málvísindum
í University of Michigan í Ann
Arbor, Bandaríkjunum 1959.
Baldur sótti máltölvunarnám-
skeið í Svíþjóð 1972, Noregi
1973 og Danmörku 1974, enn
fremur alþjóðlegan sumarskóla
í máltölvun í Pisa á Ítalíu 1972.
Hann var lektor í íslensku og
íslenskum bókmenntum í háskól-
unum í Gautaborg og Lundi 1960
til 1963, séifræðingur á Orðabók
Háskólans 1963-1965, lektor í HÍ
1965-1977 og dósent1977-1984.
Baldur hefur verið forstöðu-
maður íslenskrar málstöðvar og
prófessor í íslenskri málfræði við
HÍ frá 1985.
Auk fastra starfa hefur Baldur
sinnt margvíslegum aukastörfum
og félagsstörfum. Má þar m.a.
nefna að hann var málfarslegur
ráðunautur á fréttastofu Ríkisút-
varpsins 1970 til 1984, stóð fyrir
námskeiði máltölvunarsérfræðinga
á vegum Norrænu rannsóknar-
námskeiðanna og HI sumarið
1981, sat í ráðgjafarnefnd Reikni-
stofu Raunvísindastofnunar HI
1973 til 1976, var formaður
Islenskrar málnefndar 1978 til
1988, sat í stjórnarnefnd Nord-
term, samtaka norrænna íðorða-
stofnana, 1986 til 1990 og var í
nefnd skipaðri af samgönguráð-
herra til að undirbúa útgáfu ný-
yrðasafns úr flugmáli frá 1987 til
1992. Þá var Baldur í fulltrúaráði
Association for Literary and Lin-
guistic Computing 1975 til 1985.
Stjórnarformaður Málræktarsjóðs
var hann frá 1991 - 1994. Einnig
má geta þess að hann stjórnaði
fyrstu máltölvunarrannsóknum hér
á landi 1973 til 1980. Baldur var
kjörinn í Vísindafélag Islendinga
1974 og sæmdur riddarakrossi
Hinnar íslensku fálkaorðu 1991.
Meðal ritstarfa Baldurs má
nefna Tíðni orða í Hreiðrinu,
Tilraunaverkefni í máltölvun,
1975, Mályrkju Guðmundar
Finnbogasonar, 1976, og Orð-
stöðulykil að Hreiðrinu 1978.
Orðanefnd hefur starfað á
vegum Skýrslutæknifélagsins frá
því fljótlega eftir stofnun þess árið
1968. Árið 1974 gaf nefndin út
sem handrit tölvuprentaðan orða-
lista, Skrá yfir orð og liugtök
varðandi gagnavinnslu, en hafði
áður sent frá sér stutta orðaskrá.
Árið 1983 sendi orðanefndin frá
sér fyrstu útgáfu Tölvuorðasafns,
sem jafnframt var fyrsta ritið í
ritröð Islenskrar málnefndar.
Tölvuorðasafnið var gefið út
aukið og endurbætt 1986 og fylgdu
þá skilgreiningar heitum hugtaka.
Nú er unnið að undirbúningi þriðju
útgáfu Tölvuorðasafnsins og er
það væntanlegt haustið 1997. Þeir
sem nú eiga sæti í orðanefndinni
hafa starfað saman síðan 1978 en
Baldur hefur átt sæti í nefndinni
lengst eða frá 1976 eins og áður
er getið.
14 - MARS 1997