Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 15
TOLVUMÁL
Útflutningur hjá Kerfi hf.
Effr Bon Z Ásgrnsson
Inngangur
Kerfi hf. er eitt elsta hugbún-
aðarfyrirtæki landsins stofnað
1954 af Bjama P. Jónassyni fyrsta
forstjóra Skýrr. Fyrstu árin var
starfssemin frekar smá í sniðum en
upp úr 1970 hóf það reglulega
starfsemi í hugbúnaðargerð og þá
aðallega í þjónustu við þáverandi
viðskiptavini Skýrr. Árið 1984 var
starfssemin útvíkkuð og hafist var
handa við gerð staðlaðs hugbún-
aðar fyrir íslenskt atvinnulíf. Hug-
búnaðurinn var hannaður fyrir S/
36 tölvur IBM og fékk nafnið
Alvís. Með tilkomu AS/400 á
markaðinn á miðju ári 1988 þurfti
að taka ákvörðun um þróunar-
stefnu Alvís fyrir AS/400. Ákveð-
ið var að endurskrifa allan hug-
búnaðinn fyrir svokallaðan
„Native Mode“ en það þýddi að
öll forrit voru sérstaklega hönnuð
fyrir innbyggðan vensla gagna-
grunn tölvunnar. Þetta var nýjung
á þeim tíma, og því um braut-
ryðjendastarf að ræða hér á landi.
Flest önnur fyrirtæki völdu auð-
veldari leið þ.e að flytja forritin sín
af S/36 beint yfir í S/36 hermi á
AS/400
Þremur árum síðar voru allar
vinnuaðferðir fyrirtækisins við
hugbúnaðargerð endurskoðaðar,
eftir ítarlega skoðun á erlendum
viðskiptahugbúnaði og þróunar-
verkfærum sem í boði voru. I ljósi
þeirrar framtíðarsýnar, sem stjóm-
endur fyrirtækisins höfðu var sett
á fót hugbúnaðarverksmiðja til
framleiðslu og þróunar á eigin
hugbúnaði, sem innifól m.a. öfluga
verkefnis- og útgáfustjórn (project
management, change management
and version control).
Þetta var gert til að auka fram-
leiðni við hugbúnaðargerðina, en
það var nauðsynlegt til að standast
samkeppni við erlenda hugbún-
aðamsa, er hófu innrás á innlenda
markaðinn í samstarfi við íslensk
fyrirtæki. Þau töldu vænlegra til
árangurs að flytja inn og aðlaga
erlendan hugbúnað fremur en að
þróa hann frá grunni hér landi.
Hugbúnaðarverksmiðjan, sem
reynst hefur frábærlega vel heitir
Smiðjanog hefur verið í stöðugri
þróun undanfarin ár. Allt hugbún-
aðarstarf hjá Kerfi hf. byggist á
smiðjunni og er hún nú grundvöll-
ur útrásar fyrirtækisins á erlendum
markaði. Hjá Kerfi starfa nú 20
manns þar af 16 kerfisfræðingar
og af þeim vinna 10 manns að
þróun og framleiðslu hugbúnaðar
en 6 í þjónustu.
Forsendur útflutnings
Það gildir jafnt hjá hugbúnað-
arfyrirtækjum og iðnfyrirtækjum
að til að ná árangri í útflutningi er
nauðsynlegt að hafa náð árangri á
öflugum heimamarkaði. Markaður
hér á landi fyrir vörur og þjónustu
tengdum sjávarútvegi er nokkuð
stór í alþjóðlegum samanburði,
þess vegna er eðlilegt að áætla að
helstu útflutningstækifæri
framtíðarinnar liggi á þessu sviði.
Kerfi hf. hefur þróað heilsteypt
upplýsingakerfi fyrir sjávarútveg
sem ber nafnið Seascape (sjá
mynd) og hefur það reynst mjög
vel í alla staði. Meðal helstu við-
skiptavina hér á landi eru leiðandi
fyrirtæki í sjávarútvegi, svo sem
Samherji, ÚA, HB og Hraðfrysti-
húsið Hnífsdal. Þessi fyrirtæki eru
verðugir fulltrúar íslensks sjávar-
útvegs í alþjóðlegum samanburði,
sem sífellt leita nýrra leiða í upp-
byggingu tæknibúnaðar og upplýs-
ingakerfa fyrir sinn fjölþætta
rekstur. Með þennan öfluga heima-
markað sem kjölfestu hafa starfs-
menn Kerfis hf. getað þróað Sea-
scape sem er einstakur í sinni röð
hvort sem er í heild eða í hlutum.
Hugbúnaðurinn hefur verið kynnt-
ur erlendum aðilum og hafa við-
tökur verið mjög góðar og hafa
ýmsir hlutar hans verið seldir. Það
hefur komið í ljós að hugbúnaður
sem leysir jafn víðtækar þarfir og
Seascape hefur ekki verið á
boðstólum á alþjóðamarkaði.
Stjórnendur Kerfis hf. hafa
einnig gert sér grein fyrir því að
reynslan sem skapaðist af hinni
miklu þróunarvinnu við Seascape
er einnig að verða mikilvæg út-
flutningsvara, en það er það sem
á góðu máli nefnist „Data Ware-
housing“. Á þessu sviði teljum við
vera mikla vaxtarmöguleika
erlendis ekki eingöngu meðal fyrir-
tækja í sjávarútvegi, heldur einnig
í matvælavinnslu ýmiskonar. Við
teljum að matvælafyrirtæki í ná-
lægum löndum standi ekki mjög
framarlega í tölvuvæðingu og upp-
MARS 1997 - 15