Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 23
T O L V U
M Á L
agent og avatar. Um er að ræða
forrit eða forritsbúta sem koma
fram sem persónur í sýndarveru-
leika. Orðið avatar er komið úr
sanskrít þar sem það merkir ein-
hvers konar guð sem stígur niður
til jarðar og holdgast. Orðanefnd
lagði til þessi heiti:
intelligent agent vitvera
avatar gengill
Orðið vitvera er gefið í ís-
lenskri orðabók en gengill ein-
göngu sem síðari liður orðs, sbr.
staðgengill og svefngengill.
Stefán Briem er ritstjóri
Tölvuorðasafns og starfs-
maður orðanefiidar Skýrslu-
tæknifélags íslands.
Netfang: stefan @ ismal. hi. is
Veffang Tölvuorðasafns:
http.V/www. ismal. hi. is/to/
Punktar...
Windows fon'itari gaf upp
öndina og fór á fund Lykla-
Péturs. Hann fór í gagna-
grunninn og sagði: „Ég sé hér
að þú mátt velja hvort þú farir
til himnaríkis eða helvítis og
þessi engill ætlar að fara með
þig og sýna þér“.
Og af stað fóru þeir. Á fyrri
staðnum sá fomtarinn enda-
lausar hvítar sandstrendur,
blátt haf og sól á himni. Fullt
af glaðværum sálum var þar
að leik, hljómsveit að spila og
ókeypis á barnum. „Það er
greinilega alveg frábært hér í
himnaríki". „Himnaríki?“
sagði engillinn. „Þetta er
helvíti“. „Ertu að meina þetta?
Ótrúlegt! Hvernig er þá í
himnaríki?"
Og svo fóru þeir þangað.
Þegar þangað var komið var
öðruvísi um að litast. Það var
skýjað og heldur svalt í veðri.
Fáeinar sálir voru að vafra þar
um og barinn lokaður. „Jæja?“
segir engillinn. „Hvað segirþú
þá? Þú verður að velja.“ „Já.
Ég held að það sé engin spurn-
ing. Ég vil fara til helvítis“.
„Ertu viss?“. „Já, ég er alveg
viss“. Púff!
Þeir voru komnir til helvítis
en núna voru engar strendur
lengur eða blátt haf, bara
fordæmdar sálir sem orguðu í
angist í vítislogum. „Hva!
Hvar eru strendumar? Hvar er
hafið!!?“ hrópaði forritarinn.
„Já, það“ sagði engillinn,
þegar hann flögraði í burtu
„það var bara „demo“...“
vefsíóugeró
vistun heimasíóna
i..
oruggar netfengingar
eigið svæðisnafn
t.d. http://www.svf.is
jon.jonsson@svf.is
cc:Mail
DaVinci
Lotus Notes
MHS
MS Mail
Open Mail
http://www.skima.is
Lágmúla8 • 108 Reykjavík • Sími 588 3338 • Fax 588 3332
mmm
MS Exchange
GroupWise
MARS 1997 - 23