Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Qupperneq 31

Tölvumál - 01.03.1997, Qupperneq 31
Næstu skref T O L V U M Á L vægt að vera vakandi fyrir tæki- færum og vera vandvirkir við val- ið. Að hika er sama og að tapa er orðtak, sem vel á við í hugbúnað- argeiranum. Hraðinn er mikill og við vegarkantinn liggja mörg hug- búnaðarfyrirtæki sem gert hafa lítil mistök og hafa ekki haft fjárhags- legt bolmagn til að leiðrétta þau né úthald til að bíða. Hér er vand- rataður meðalvegur, því kapp er best með forsjá. Margt fleira verður að huga að þegar um útflutning er að ræða. T.d. handbækur, notendaleiðbein- ingar, útgáfustýring, samningar, þjónusta, viðbragðsflýtir, hver er markaðs- og tækniþróun á mark- aðsvæðinu. Hver er staðan? Reynslan af breska markaðn- um sýnir að þar er mikill slagur í hugbúnaðargeiranum. Svo virðist sem evrópsk fyrirtæki noti breska markaðinn sem prufu áður en þau halda vestur og norður-amerísk fyrirtæki sem prufu fyrir Evrópska markaðinn. Það fæst því góð yfir- sýn yfir það besta á markaðnum. Enn er sala afgreiðslukerfanna mest bundin einum vélbúnaðarsala í Bretlandi. Markaðshlutdeild okkar í Bretlandi teljum við vera um 2% í verslunargeiranum. Þó fótfestan sé ekki mikii í Bretlandi þá hefur hún stutt okkur við sókn inn í önnur lönd þar sem okkur hefur tekist að ná mun betri mark- aðsstöðu. Bresku tengslin hafa einnig komið á öðrum mikilvægum tengslum eins og til Japan. Gott traust skapast, svo bæði breska fyrirtækið og "japanska móður- fyrirtækið er tilbúið að leggja vinnu, þekkingu og fjármuni í nýjar útgáfur. Góð tengsl við vél- búnaðarframleiðendur eru nauð- synleg. Sérstaklega þarf að komast framarlega í þróunarröðina þannig að nýr tækjabúnaður komi strax inn á borð hjá okkur. Þessu mark- miði hefur verið náð, þannig að við fáum tæki áður en þau eru sýnd öðrum dreifiaðilum. Það gefur okkur síðan allt að 3 til 6 mánaða forskot á ýmsa samkeppnisaðila. Þó við séum ekki enn orðnir stórir þá reynum við strax að hafa áhrif á leikinn t.d. með tillögum til véla- framleiðenda og virkri þátttöku í alþjóðasamtökum eins og ARTS (The Association forRetail Tech- nology Standards). Þó við séum enn ekki orðnir gjaldgengir leik- menn í Bretlandi (með 26% mark- aðshlutdeild) þá er því marki náð í Danmörku og nálgast óðfluga í fleiri löndum. Reynslan sýnir einnig að þó fyrsta lota hafi tapast í Bretlandi þá unnust næstu tvær í leik þar sem reglur og umhverfi breytist stöðugt og leikurinn mun standa í það minnsta 15 ár í viðbót. Þolgæði er því nauðsynlegt. Leikreglur Ég ætla ekki að skýra allar reglur í leiknum, en þeim sem fly tja út hugbúnað er hollt að hafa í huga að það gilda ekki sömu reglur um útflutning á öllum hugbúnaði. Það að selja ráðgjöf og forritunarvinnu, er ólíkt sölu á samskiptakerfum (HBX-PAD), sem er ólíkt sölu á afgreiðslukerfum, o.s.frv. Regl- urnar breytast líka eftir markaðs- svæðum og ekki er víst að það sé heppilegt að spila eftir sömu regl- um á öllum mörkuðum. Þó að þol- gæði sé nauðsynlegur kostur þá er einnig mikilvægt að vita hvenær við stöndum halloka í leiknum til að meta hvort og hvernig leiknum skuli haldið áfram. Þátttaka í leiknum í Bretlandi hefur því reynst okkur happadrjúg ekki síst vegna leikja sem er verið að spila á öðrum mörkuðum. Auð- vitað mætti fjárhagsleg útkoma úr breska leiknum vera hagstæðari, en reynsla og viðskiptavinir eins og Arsenal Football Club, þar sem kerfið þarf að standast mikið álag á örskömmum tíma, hefur góð áhrif um allan heim. Næstu skref fela meðal annars í sér, athugun á stofnun fyritækis í Bretlandi til að sinna markaðnum betur og minnka ferðakostnað, öflugri sölustarfsemi og sala á nýjum afurðum eins og sérhönn- uðu kerfi fyrir veitingahús. Barist verður af öllu afli til að ná 50% árlegri söluaukningu næstu árin. Páll Hjaltason er fram- kvœmdastjóri Hugbúnaðar hf. Punktar... Nýr biðill fyrir hljóð og mynd Nýverið setti fyrirtækið Progressive Networks á Netið nýjan biðil fyrir hljóð og mynd. Með honum má tengja við hljóðmiðlara, til dæmis hjá RÚV og við myndmiðlara og skoða myndir sem eru vistaðar sem skrár eða í beinni útsend- ingu. Gæðin eru afar mismun- andi en við bestu aðstæður um ISDN línur má fá sömu hljóð- gæði og á geislaplötum en þá er hraðinn 80.000 bitar/sek. og alveg ágæt myndgæði eru þegar hraðinn er 45.000 bitar/ sek. Slóðinn er www.real.com og þangað má sækja að auki miðlara til reynslu í 30 daga en höfundur þessara lína setti einn slíkan upp og það tók ekki nema eina klukkustund að koma honum í gang (þrátt fyrir nánast engar leiðbeiningaid). MARS 1997 - 31

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.