Tölvumál - 01.05.1998, Qupperneq 7

Tölvumál - 01.05.1998, Qupperneq 7
TÖLVUMÁL Framkvæmd stefnu ríkisstjórnar íslands um upplýsingasamfélagið Siaurðardóttur í október 1996 gaf ríkisstjórn ís- lands út ritið „Framtíðarsýn ríkis- stjórnar íslands um upplýsinga- samfélagið". í ritinu kemur fram sá ásetningur að tæknin verði sem best nýtt til að tryggja vaxandi hagsæld í landinu svo unnt verði að halda uppi velferðarkerfi og menningarstigi eins og best gerist. Þessi ásetningur kemur vel fram í yfirmarkmiði framtíðarsýnarinnar sem hljóðar svo: íslendingar verði í fararbroddi þjóða heims við nýtingu upplýs- ingatækni í þágu bætts mann- lífs og aukinnar hagsældar. í framhaldi af birtingu stefnunn- ar var mótaður farvegur fyrir fram- kvæmd hennar. í maí 1997 ákvað ríkisstjórnin að setja á stohi þróun- arverkefni um íslenska upplýsinga- samfélagið. Verkefnið stendur yfir í 5 ár, frá 1. september 1997 til 1. september 2002 og miðar að því að koma stefnu og framtíðarsýn ríkis- stjórnar íslands um upplýsinga- samfélagið í framkvæmd. Verkefnisstjórn Skipuð hefur verið verkefnis- stjórn sem er ráðgefandi fyrir for- sætisráðuneyti og stýrir, fyrir þess hönd, víðtæku samráði ráðuneyta, sveitarfélaga, fulltrúa atvinnurek- enda, launþega o.fl. um málefni upplýsingasamfélagsins. Verkefn- isstjórn er skipuð fulltrúum ráðu- neyta fjármála, menntamála, sam- göngumála, iðnaðar og viðskipta, auk fulltrúa forsætisráðuneytis sem er formaður verkefnisstjórnar. Verkefnisstjórn fjallar um fram- kvæmd verkefna sem krefjast sam- ræmingar milli ráðuneyta eða varða samfélagið í heild. Verkefn- isstjórn ber ábyrgð á reglulegri heildarendurskoðun stefnunnar og metur árlega þann árangur sem náðst hefur. Helstu verkefni verkefnisstjórn- ar eru eftirfarandi: • Að fylgja eftir þeirri heildar- stefnumótun sem fram hefur farið á vegum ríkisstjórnarinn- ar um málefni upplýsingasam- félagsins og vinna að reglu- bundinni endurskoðun hennar. • Að stuðla að því að íslensk stjórnvöld, atvinnulíf og al- menningur hagnýti sér kosti sem leiða af örri framþróun á sviði upplýsinga- og fjarskipta- tækni. • Að vera vettvangur fyrir og leiða samstarf ráðuneytanna á sviði upplýsinga- og fjarskipta- tækni. • Að leita eftir samstarfi við aðila utan ríkiskerfisins, einkum sveitarfélög, fyrirtæki og fé- lagasamtök um málefni upp- lýsingasamfélagsins. • Að fylgja eftir sérstökum áhersl- um ríkisstjórnar á þessu sviði. • Að vera ráðgefandi fyrir ríkis- stjórn um fjárveitingar til þess- ara mála. • Annast f.h. íslenskra stjórn- valda þátttöku í 5 ára samstarfs- verkefni Evrópuríkja um fram- kvæmd stefnu í málefnum upp- lýsingasamfélagsins. Stærstu verkefnin nú varða fjárlagagerðina og skipulag þróun- arverkefnisins auk ýrnissa verkefna á sviði menntamála sem verkefn- isstjórn kemur að. Ekki er rúm til að skýra frá þessum verkefnum hér en nefna má dæmi um önnur verkefni sem unnið er að: Upplýsingamiðlun Upplýsingamiðlun er mikil- vægur þáttur í starfi verkefnis- stjórnar. Frá september 1997 hef- ur íslenska upplýsingasamfélag- ið, stefna ríkisstjórnar og fram- kvæmd hennar á ólíkum sviðurn verið kynnt á tugurn funda og ráð- stefna. Á slíkum fundum koma gjarnan fram áhersluatriði mis- munandi fag- eða þjóðfélagshópa sem nauðsynlegt er að taka tillit til við framkvæmd stefnunnar. Könnun á tölvunotkun Mat á þróun upplýsingasam- félagsins þarf að byggja á töluleg- um upplýsingum um tölvunotkun sem aflað er með reglubundnum hætti. Ráðgert er að gera slíkar kannanir tvisvar á ári. Verkefnis- stjórn og RUT-nefnd stóðu að könnun sem framkvæmd var nú í febrúar 1998. Þar kemur fram að rúmlega 60% íslenskra heimila er með tölvu og á rúmlega 34% MAÍ 1998 - 7

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.