Tölvumál - 01.05.1998, Page 18

Tölvumál - 01.05.1998, Page 18
TÖLVUMÁL Neteftirlit með Open View tir He qa He qason í dag eru upplýsingakerfin ómiss- andi þáttur í starfsemi fyrirtækja og stofnana, afkoma þeirra bygg- ist að meira eða rninna leyti á þessum kerfurn og fjölmörg vandamál þeim tengd blasa við stjórnendum fyrirtækja og stofn- ana. Flækjustig kerfanna er að aukast, fyrirtæki og stofnanir sem áður ráku lokuð staðarnetskerfi eru nú með víðnets- og inter- nettengingar í gengnum leigulín- ur, háhraðanet og ISDN. Að auki er umhverfið orðið meira og minna blandað NT, Nowell, Unix og hvað þetta nú heitir allt saman og ofan á allt hafa „forsjálir" tölvu- og hugbúnaðarhönnuðir fortíðarinnar byggt inní kerfin tímasprengju sem framlag til at- vinnuöryggis tölvumanna. Það er því auðsætt að það er auðvelt að missa yfirsýnina og rekstrarleg vandamál virðast á stundum ill viðráðanleg. Flókinn búnaður krefst mikillar sérfræðiþekkingar og ekki er á valdi neins eins starfsmanns að halda öllum þráð- um og þar við bætist að hæfir starfsmenn virðast ekki á hverju strái. Það má því fullyrða að það er ekki á færi nema stærstu fyrir- tækja og stofnana að hafa yfir að ráða þeim mannafla sem getur þjónustað öll þeirra upplýsinga- kerfi. Og þá kemur upp spurning- in, því ættu þessi fyrirtæki og stofnanir að standa í því að reka 18- MAÍ 1998 sínar eigin tölvudeildir, þegar það blasir við að oft á tíðum er það gert af vanmætti og sífellt er þörf fyrir aðkeypta utanaðkomandi vinnu. Svarið virðist blasa við, því ekki að fela rekstur upplýs- ingakerfanna í hendur fyrirtækja sem hafa yfir að ráða sérhæfðum mannafla til að þjónusta upplýs- ingakerfin. Hluti af því að veita slíka rekstrarþjónustu felst í því að fylgjast með kerfunum og bregð- ast við, þegar ástand kerfanna gef- ur tilefni til, helst áður en notend- ur verða fyrir töfum eða óþæging- um. Við hjá Skýrr hf. höfum nú í nokkur ár notast við neteftirlits- kerfið OpenView frá Hewlett Packard. Eftirlit og vöktun með OpenView byggir á svokölluðu SNMP (Simple Network Mana- gement Protocol). OpenView get- ur vaktað bæði IP og IPX net en sem stendur hefur áhugi okkar eingöngu beinst að IP neturn af ástæðum sem flestir skilja. SNMP er í grundvallaratriðum staðall sem lýsir því hvernig hægt er að nálgast kerfisupplýsingar, og telj- ara, svokallaðar SNMP uppsprett- ur, sem gefa til kynna ástand og virkni búnaðar, frá miðlægri stjórnstöð (Network Node Mana- ger), OpenView er einmitt slíkt kerfi. Eftirlit sem hér um ræðir á við bæði um vél- og hugbúnað, oftast er uppbyggingin þ.a. það stýrikerfi sem búnaðurinn keyrir á veitir ákveðna grunnþjónustu svokallaðan aðalútsendara (Mast- er Agent), framleiðendur annars búnaðar s.s. hugbúnaðarpakka srníða svokallaða aukaútsendara (Extension Agent) sem nýtir sér grunnþjónustu aðalútsendarans til þess að veita stjórnstöð aðgang að ástandsupplýsingum urn virkni búnaðarins. Eftirlit er framkvæmt á tvennan hátt, ann- arsvegar er skilgreint í stjórnstöð reglubundið eftirlit (polling) með tilteknum ástandsbreytum og telj- urum, skilgreind eru þröskulds- gildi þ.a. sjálfvirk viðbrögð fara í gang ef tilefni er til, hinsvegar get- ur útsendari gert viðvart, sent við- vörun (trap), til stjórnstöðvar um tiltekið ástand sem upp er komið þ.a. sjálfvirk viðbrögð fari af stað. Nú hafa mörg stýrikerfi í þó nokk- ur ár haft uppá að bjóða aðalút- sendara með tiltækum SNMP uppsprettum og sörnu sögu er að segja um ýmsan netbúnað s.s. beina, meginbreytingin að undan- förnu er sú að framleiðendur staðlaðra hugbúnaðarlausna eru í síauknum mæli farnir að innifela SNMP uppsprettur sem hluta af umhverfinu. Meðal þeirra eru framleiðendur gagnagrunna eins og Oracle og Microsoft, hóp- vinnukerfið Lotus Notes og íleira mætti vafalaust tína til. En það er eitt að framkvæma eftirlit og vökt- 4

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.