Vísir - 10.12.1962, Qupperneq 16

Vísir - 10.12.1962, Qupperneq 16
VISIR Mánudagur 10. desember 1962. Brezka hafrannsóknarskipinu Cook hafa fundið meira dýpi á Kyrrahafi, en þar hefir mælzt áö- ur. Skipið var á siglingu frá Singa pore tii Gilbert-eyja, þegar á því mældist 11,515 metra dýpi í Mind anao-„gryfjunni“ svonefndu fyrir austan Filippseyjar. Bílar i erfíðleikum vegna hríðarsorta Akureyri í morgun. Vonzkuveður gerði um allan Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur síð- degis á laugardag og áttu bifreiðir í miklum erfiðleikum að komast leiðar sinnar úti á Iandsbyggðinni sökum hríðarsortans. Verst var veðrið á Vaðlaheiði og þar dró saman í höft, svo að veg- urinn var illfær bifreiðum um skeið. Annars var snjókoman ekki svo ýkja mikil, en veðurhæðin þeim mun meiri. Það orsakaði enn- fremur að víða fennti inn á bílana Flugfélag íslands mun nú í ár eins og að undanförnu veita af- slátt á fargjöldum fyrir skólafólk, sem óskar að ferðast með flug- vélum félagsins í jólafríinu, eða á tímabilinu frá 15. desember 1962 Andleg orkustöð á íslandi? Maður að nafni Jóhann M. Kristjánsson gefur í dag út rit þar sem hann leggur til að á ís- Iandi verði stofnuð alþjóðleg vísinda- og menningarmiðstöð. Einnig verði stofnuð hér á landi mjög öflug útvarpsstöð. Út- varpi hún á megin þjóðtungum siðfræði andlegrar menningar og tæknilegri fræðslu. Markmið þessara stofnana yrði að hefja mannkynið á æðra þroskastig setja niður deilur og efla eilífan frið á jörðu. Höfundur segir: „Hér er loftslagið tært og svalt, en það er nauðsynlegt skilyrði fyrir andlega orkustöð — og kar- miskar aðstæður hagstæðar, þar sem blóðfórnir og blóð- hefnd skyggja ekki Iengur heiði hinnar íslenzku þjóðar“. Ritlingurinn heitir Sameinað mannkyn. Margir þarfnast Vetrar- Á skrifstofu Vetrarhjálparinn- ar er verið að taka móti um- sóknum um jólaaðstoð, safnað er fatnaði og undirbúin alls- herjarfjársöfnun í Reykjavík. Skátar munu fara um borgina á fimmtudag og föstudag. — Fréttamaður og Ijósmyndari Vís is hittu Magnús Þorsteinsson, framkvæmdastjóra Vetrarhjálp- svo þeir drápu á sér. Ekki hlutust samt neinir verulegir erfiðleikar af þessum sökum, og allir komust bílarnir með góðra manna aðstoð til skila áður en lauk. En sem dæmi um það hve akstursskilyrði voru slæm, má benda á það, að áætl- unarbíllinn milli Húsavíkur og Ak- ureyrar var 8 klukkustundir á leið inni. í gær var Vaðlaheiðin rudd og er nú aftur fær flestum eða öllum bílum. Aðrar ieiðir eru einnig fær- ar hér norðanlands. Fargjaldaafsláttur fyrir skélafólk til 15. janúar 1963, og nemur af- slátturinn 25% frá núverandi tví- miðafargjaldi. Gildir þetta á öllum flugleiðum félagsins innanlands. Afsláttur þessi er háður eftir- Frh. á bls. 5. Magnús Þorsteinsson, frkvstj. Vetrarhjálparinnar, á skrifstofu sinni. arinnar, f húsi Rauða krossins við Thorvaldsensstræti. Hann var þar að vinna úr spjaldskrá Vetrarhjálparinnar, en nú hafa sótt um aðstoð milii 700 og 800 manns. — Þetta verður auðvitað eng- inn styrkur, sagði Magnús, held ur eins konar jólaglaðningur, hæst upp í fimm hundruð krón- ur, geri ég ráð fyrir. Við af- hendum enga peninga, aðeins ávísanir fyrir matvælum til verzlana, sem síðan innheimta borgunina hjá okkur. Látum við fólkið fá einhvern fatnað, ef það þarf þess með. Við kaup- um nærföt, og fáum gjafir nýrra nærfata. Þetta er það eina, sem við kaupum af nýjum fatnaði. Hitt er gefið af einstaklingum og verzlunum. — Eru margir á skrá ykkar ár eftir ár? — Já, það er mikið sama fólk ið hjá okkur. Við endurskoð- um þó spjaldskrána á hverju ári, reynum að kynna okkur hagi fólksins sem bezt til að ganga úr skugga um að þeir njóti, sem þess þurfa. Auðvit- að getur alltaf einhver slæðzt með, sem kannske ætti ekki að fá neitt, en það er hreinasta undantekning. — Vitið þið um marga, sem koma ekki þótt þeir þarfnist aðstoðar? — Já, það er einkum gamalt fólk, sem er tregt til að þiggja nokkuð hjá okkur. Það man hvað það þótti niðurlægjandi að „vera á sveitinni" og finnst þetta eitthvað líkt. En þessi hugsunarháttur er ekki réttur. Þetta er oft fólkið, sem einmitt þarfnast þess að við getum veitt Framh. á bls. 5. 49 ker steypt í Þorlákshöfn Hafnleysið hefur löngum háð blómlegasta og byggilegasta héraði Islands, Suðurlandsundirlendinu. En nú eru þau sögulegu umskipti að gerast, að hafin er þar ein mesta hafnargerð landsins, sem eigi mun aðeins gerbreyta útgerð- arskilyrðum til batnaðar við feng- sælustu fiskimið landsins, heldur Laumufarþegi fluttur heim í gær þegar togarinn Þormóður goði kom úr söluferð til Englands, hafðl hann innanborðs laumufar- þega, sem komizt hafði um borð í m.s. Tröliafoss fyrir nokkru aust ur á Austfjörðum. Maður þessi mun hafa ætlað sér að strjúka úr landi m. a. vegna þess að hann átti óuppgerðar sakir við rannsóknarlögregluna og fyrir- tæki einhver hér í Reykjavík. Hafði maðurinn, einhvern tíma í sumar eða haust, tekið út vöru- birgðir fyrir andvirði að upphæð nokkur hiíhdruð þúsund krónur hjá fyrirtæki eða heildverzlun hér í Reykjavík, en ekki sýnt neinn lit á að gera skil á tilsettum greiðslu- tíma. Var mál þetta kært til rannsókn- arlögreglunnar og við yfirheyrslu viðurkenndi maðurinn að hafa selt talsvert af varningnum, annað hafði hann veðsett og enn annað var óselt hjá honum. Lofaði sak- borningurinn að gera skil á þessu I an þær upplýsingar, að þessi sami á tilteknum degi, en þegar sá til- maður hafi fundizt sem Iaumufar- teknir dagur rann upp, var mað- þegi um borð í m.s. Tröllafossi á urinn kominn í söluferð austur á leið frá Austfjörðum til Englands land. Skömmu seinna fékk lögregl-' Frh, á bls. 5. ; og verða lyftistöng fyrir hin frjó- i sömu og víðlendu landbúnaðarhér- ; uð á Suðurlandi og greiða götu stór | iðnaðar þar. ! Hér er vitaskuld rætt uih hafn- argerðina í Þorlákshöfn. Þar er nú verið að reisa vinnuskála, sem verð ur tilbúinn í febrúarmánuði, og í þessum skála á að vinna sleitu- laust að því að steypa ker til leng- ingar hafnargarðanna, unz höfnin er fullgerð. Alls verða steypt 49 ker í þess- um skála. 15 þeirra eiga að lengja aðalhafnargarðinn um samtals 75 metra og verður væntanlega hægt að ganga frá flestum þeirra fyrir næsta haust. Þau verða 14.5 metra breið hvert um sig. Ennfremur verða steypt 34 ker í svonefndan norðurgarð og garð, Munaði enguað iæristíeldi sem kemur hornrétt á hann, og verða þeir garðar samtals 170 metr Framh. á bls. 5. Litlu sem engu mátti muna að maður færist i eldi og reyk, er kviknaði í fötum hans í gær. Mað- urinn liggur nú í brunasárum í sjúkrahúsi Hvítabandsins. I kjallaraíbúð á Langholtsvegi 56 hér í Reykjavík býr Eiríkur Þor- steinsson, 69 ára gamall, áamt fjöl skyldu sinni. Að loknum hádegis- verði í gær kvaðst Eiríkur ætla að leggja sig til svefns stundarkorn, fór inn í norðurherbrgi íbúðarinn- ar, klæddi sig úr jakka, kveikti sér í vindli og hallaði sér út af á legu- bekk. Klukkan var langt gengin þrjú, þegar heimilisfólkið sér Eirík koma æðandi og logandi út úr herbergi sínu og hrópa á hjálp. Loguðu þá föt hans að framanverðu, en reykj- armökk mikinn lagði inn í íbúðina út úr herberginu. Slökkt var strax í fötum Eiríks, en síðan var slökkvi lið og sjúkrabifreið kvatt á vett- vang. Eiríkur var þegar í stað flutt ur í Slysavarðstofuna og þaðan svo í sjúkrahús Hvítabandsins. Hann hlaut allmikil brunasár, einna mest á brjósti. Þegar slökkviliðið kom á vett- vang, var legubekkurinn, sem Ei- rikur hafði iagt sig á, alelda og eldurinn einnig að breiðast eitt- hvað út um herbergið. Urðu tals- verðar brunaskemmdir á því, en ^rh. á bís 5. 1 v , 1 i - ! , ' bi, / Farþegi númer 100 þusund Hundrað þúsundasti farþeg- inn með Flugfélagi tslands á þessu ári kom á Reykjavíkur- flugvöll frá Vestmannaeyjum f morgun. Þetta var sjö ðra göm- ul stúlka, Guðrún Arnardóttir, sem var á ferð með móður sinni og systrum. Guðrúnu var afhentur blómvöndur og vegg- ! skjöldur frá Flugfélaginu til minningar um ferð hennar.! Þetta er í fyrsta sinn að Flug- f lelagið flytur yfir 100 þúsund farþega á einu ári. Flestir hafa farþegamir verið áður, árið , 1960, þá rúmlega 81 þúsund talsins. i -» DAGAR TIL JOLA i M'i* 1 f*'| f-M-é ♦ 1 (i1'*'’-j

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.