Vísir - 05.01.1963, Qupperneq 5
V í SIR . Laugardagur 5. janúar 1963.
5
#®3r ip
Gerði lið iam. þ/oðanna i
Kongo,einskonar byltingu'?
Nýir bardagar brutust út í gær
milli liðs Sameinuðu þjóðanna
miiii Jodotville og Kohvezi, sein-
asta bæjarins á valdi Tsjonibe.
f framhaldsfréttum um töku
Jadotville i Katanga og erfiðleika
21 millj. —
Framh. af 1. síðu
lögum, ekki vænzt þess að þau
komi til frádráttar á álagningu yf-
irstandandi árs.
Ýmsir gjaldenda greiddu gjöld
sín upp að fullu, en aðrir töldu sér
þó ekki fært að ljúka greiðslu og
borguðu aðeins að nokkru leyti.
Ekki er á þessu stigi málsins
unnt að segja neitt um samanburð
á gjaldgréiðslu við fyrri ár, enda
allt annað fyrirkomulag á innheimt
unni heldur en áður var.
BSRB —
Framh. af bls. 1.
skýrði Vísi svo frá í gærkvöldi, að
búast mætti við að gagntillögur
myndu berast frá samninganefnd
hins opinbera nú upp úr miðjum
mánuðinum við þeim tilögum, sem
opinberir starfsmenn hafa þegar
sett fram. í tillögum þeirra er gert
ráð fyrir 32 launaflokkum og skal
hinn efsti flokkur draga laun að
upphæð um 32.000 krónur á mán-
uði.
í samninganefnd fjármálaráðu-
neytisins eru þessir menn: Sig-
tryggur Klemenzson ráðuneytisstj.
formaður, Gunnlaugur Briem ráðu-
neytisstj. og Jón Þorsteinsson
aiþm. í samninganefnd B. S. R. B.
eru: Kristján Thorlacius fulltrúi
formaður, Guðjón B. Baldvinsson
fulltrúi, Inga Jóhannesdóttir,
Magnús Torfason prófessor og Teit
ur Þorleifsson.
U* Thants (sbr. Vísi í gær) segir,
að talsmaður Sameinuðu þjóðanna
í New York hafi sagt, að ekkert
benti til, að taka Katanga hafi
verið tengd „eins konar byltingu
liðs Sameinuðu þjóðanna" eða að
taka bæjarins hafi átt sér stað
„gegn fyrirskipunum frá aðal-
stöðvunum" (í New York) en
taka bæjarins hafi spillt aðstöðu
Sameinuðu þjóðanna gagnvart
Belgíu. U Thant er sagður
hafa fullvissað fulltrúa Belgíu-
stjórnar um, að sóknin til Jado-
ville yrði stöðvuð við Lufira-
brúna.
í framhaldsfréttum um bardag-
ana milli Jodotville og Kolwezi
segir, að á leiðinni hafi tvær mik-
ilvægar býr verið sprengdar í loft
upp.
Námufélagið Union Miniere
er sagt hafa fengið Katangaliðið
í Jodotville til að hörfa undan til
þess að forða bænum og fyrir-
tækjum stórtjóni á mannvirkj-
um.
Jarðhifi —
Framhald af bls 16
um jarðhita í Norður-Múlasýslu
nema þá norður í Vopnafirði
eða lengst inn í dölum, svo sem
Jökuldal og Hrafnkelsdal, þar
sem volgrur hafa fundizt á
nokkrum stöðum.
Verði vatnið ekki þurrkað upp
er sá möguleiki fyrir hendi til
að bora eftir jarðhita að hlaða
hólma upp í vatninu þar sem
jarðhitinn er í því og bora síð-
an niður í hólmann. Sú aðferð
var viðhöfð i svokölluðu Áshild-
arholtsvatni í Skagaf., sem gaf
seinna þá ágætu raun að Sauð-
kræklingar hafa nú ágæta hita-
veitu.
Möguleikar fyrir nýtingu heita
vatnsins í botni Urriðavatns eru
ýmsir, en þó fyrst og fremst
til að hita upp byggðina, sem
myndazt hefur við norðursporð
Lagarfljótsbrúar. Sé þarna um
mikið vatnsmagn eða mikinn
hita að ræða er hugsanlegur
möguleiki að hita með því upp
Egilsstaðaþorpið, sem er á að
gizka í 4—5 km. fjarlægð. Ann-
ars er öll rannsókn á þvílíku
frumstigi í þessu efni, að ekk
er unnt að segja neitt ákveðið
eins og sakir standa.
Húsmæðurog unglingar
til bjargar framleiðslu
r Súrsaða, flakaða síldin
er útfíutningsverzlun ís-
lendinga, segja nú fróðustu
nienn. En því miður geng-
ur framleiðsla hennar ekki
eins vel og æskilegt væri
vegna þess, að vinnuafl
skortir. /
Nú síðustu vikur hefur það bjarg
að miklu að skólabörn hafa verið
Kjölfesto
Framhald áf bis. 16
Kjölfestumál skipanna eru
vissuiega allflókin ef farið er
ofan í smáatriðin. Þessum mál-
um er nú svo háttað, að skip-
stjórarnir verða sjálfir hver um
sig að finna út með reynslunni
sjóhæfni skipa sinna. Skipaeftir-
lit hér á landi fylgist nákvæm-
lega með ýmsum öryggisreglum,
sem skipta þó miklu minna máli
en kjölfestan. Þar telur eftirlitið
sig ekki hafa tæki til að sann-
prófa hlutföllin.
NÝ SKIP —
KOSTNAÐARSAMAR
BREYTINGAR
Eitt það alvarlegasta í þessum
málum er það, að því er sjó-
menn herma, að jafnvel þó fiski-
skip séu fjöldaframleidderlend-
is, oft þrjú til fimm skip af
sömu gerð, er ekki gengið nægi
lega úr skugga um hin réttu
þyngdarhlutföll. Og einhvern
veginn virðast teikningar sumra
skipa erlendis smíðaðra vera
svo ófullkomnar, að eftir að
skipi hefur verið skilað, hefur
útgerð þeirra þurft að gera
, margs konar breytingar á skip-
unum, auka stóriega kjölfestu,
sem er ýmist steypt í, hrájárn
sett í botninn eða jafnvel sett
salt í botninn. Hefur verið mjög
mikið um það í vetur að var-
kárir skipstjórar hafa látið auka
, kjölfestuna. En menn spyrja
hvers vegna ekki sé hægt að
reikna út og gera ráð fyrir
bessu í byrjun á teikningum
skipanna.
Eitt er þó gott við þetta. Skip
stjórar hafa nú greinilega meiri
og almennari skilning á þessum
málum en áður, e. t. v. vegna
þeirra óhappa, sem komið hafa
fyrir. Eins og reglum og tækj-
um er tv' '•'Ttfað stendur a'F
og fellur rne*
anna sjálfra á sjóhæfn’ skir
anna.
í jólafríi og með hjálp þeirra tókst
Bæjarútgerðinni í Reykjavík að
salta og skipa út 1682 tunnum af
súrsaðri síld í Laxá sitt hvoru meg
in við áramótin og með hjálp þeirra
hefur verið unnið að því að ganga
frá farmi í Brúarfoss.
Bæjarútgerðin mun framleiða
nærri 60% af þeirri súrsuðu síld,
sem hér hefur verið framleidd í
sumar. Næst henni kemur Har-
aldur Böðvarsson á Akranesi en þar
er svo mikil vöntun á vinnukrafti,
að þær sex flökunarvélar, sem hann
á, hafa ekki getað verið í gangi
allar.
Það hjálpar stórlega, hvað ungl-
ingarnir hafa verið duglegir og
menn spyrja hvort ekki væri nær
að veita skólabörnum t. d. úr verk-
námsskólum oftar frí þegar um það
er að tefla að halda uppi fram-
leiðslu á svo þýðingarmikilli út-
flutningsvöru og síldin hleðst á
Iand.
Nú vantar mjög fólk til vinnu
hjá Bæjarútgerðinni til hvers kon-
ar fiskvinnslu. Hefur Vísir frétt, að
þess sé m. a. óskað að húsmæður
vildu koma og hjálpa til síðdegis,
þegar þær hafa lokið matarstörfum
og hafa tíma aflögu.
Töluverðar
skemmdir
Við árekstur m.s. Lagarfoss á
bryggjuna á Flateyri í fyrrakvöld,
en Vísir skýrði lítillega frá þeim
árekstri 'í gær, ufðu meiri
skemmdir á bryggjunni en talið
var við fyrstu sýn.
Samkvæmt upplýsingum frá
vitamálastjóra, Aðalsteini Júlíus-
syni, í gærkveldi, losnuðu nokk-
ur járn á innra bryggjuhorninu
við áreksturinn. Þessi járn, sem
losnuðu, skaga út og geta verið
hættuieg bátum sem renna fram
með bryggjunni. Sennilega þó
hættulegust um flóð því þá ber
minna á þeim.
Vitamálastjóri kvaðst ekki vita
gerla hvað þessar skemmdir væru
rhiklar né heldur hvað viðgerð
væri torveld á beim. Það færi
verulega eftir því hvort skemmd-
irnar ná niður fyrir festingarnar
eða ekki. Ef skemmdirnar ná nið-
ur fyrir þær getur verið næsta
erfitt að fást við viðgerð, ekki
sízt í vondum veðrum, sem jafnan
má búast við um þetta leyti árs
Annars kvaðst vitamálastjóri
lundu senda mann vestur á
iæstunni tii að kanna kemtndirt,
ir og gefa ráð um viðgerð brygg.,
unnar.
NONNI LEITAR
EFTIR LOFTINU
Vísir hefur frétt að leitarhund-
ur sá, sem Hjálparsveit skáta
í Hafnarfirði hefur nú fengið
með aðstoð Gottfred Bernhöft
stórkaupmanns, hafi áður en
hann kom hingað sýnt sérstaka
hæfileika sem lögregluhundur í
Idaho í Bandaríkjunum. Þar hét
hundurinn Sailor eða „sjómað-
ur“, en nú er verið að venja
hann við íslenzka heitið Nonni.
Meðan hann starfaði hjá lög-
reglunni í Idaho var hann ótal
sinnum kallaður út til leitar t.
d. eftir týndu fólki og börnum
og fann jafnan það sem leitað
var að.
Þá ber þess að geta, að Nonni
hefur hæfileika sem nokkrum,
en þó fremur fáum leitarhund-
um er gefið, að geta leitað eftir
loftinu. Það þýðir, að næmleik-
inn er svo mikill, að hann þarf
ekki slóð til að leita. Hefur það
m. a. komið fyrir að Nonni fann
lík vestur í Idaho, sem morðingi-
hafði flutt í bifreið um 20 mílna
Ieið og grafið niður. Byggðist
þetta á þess konar loft-leitar-
skyni.
Það er sannarlega mikið nauð-
synjaverk, sem Hjálparsveit
skáta í Hafnarfirði tekur að sér
að hafa slíkan leitarhund til
taks, sem alltaf verður hægt
jafnt að nótt sem degi að flytja
á staðinn hvar sem er á Iandinu.
En þetta er kostnaðarsamara en
margur hyggur. Hundurinn sjálf
ur er dýr og uppeldi hans og
þjálfun kostnaðarsöm. Leitaræf-
ingar þarf t. d. að hafa á hálfs-
mánaðarfresti Hjálparsveitinni
væri mikill stuðningur að því
ef fólk, sem skilur þýðingu leit-
arhunda, vildi styðja hana; í
öðrum löndum þykir það mjög
gott að heita á leitarhunda. —
Væri skemmtilegt ef sá siður
kæmist á hér sem meðal ann-
arra menningarþjóða. Nonni,
sem menn vonast til að geti
orðið bjargvættur í neyðartilfell
um, hefur, ef einhverjum kæmi
siíkt til hugar pósthólf nr. 100
í Hafnarfirði.
Tveir skúrar brenna
Síðdegis í gær brann vinnuskúr
í Iíópavogi, ásamt þeim verðmæt-
um sem í honum voru geymd.
Samkvæmt uppiýsingum frá
Kópavogslögreglunni í gærkveldi
stóð þessi skúr við Austurgerði 3
og hafði verið komið upp ( sam-
bandi við nýbyggingu sem var
verið að byggja. Einhver verð-
mæti höfðu verið geymd í skúrn-
um, en ekki vissi lögreglan hver
þau voru né heldur um eldsupp-
tök, en það mál var í rannsókn i
gærveldi.
Slökkviliðið í Reykjavík var
kvatt á vettvang klukkan rúmlega
1 í ;T(™rdag. en hegar bað kom á
aðinn var skúrim delda og
rann bann fi! ösku
Um hádegisleytið i gær var
slökkviliðið kvatt að Ásvallagötu
33. Þar var eldur í kjallaraher-
bergi en var fljótlega slökktur og
áður en verulegt tjón hlauzt af.
Talið er að krakkar hafi kveikt
utanfrá í gluggagardínum . með
iogandi eldspýtum sem þeir voru
að leika sér með Eldurinn læsti
sig lítiisháttar f þiljur við glugga-
kistuna, þannig að þær sviðnuðu
eitthvað, en um frekara tjón var
ekki getið.
í fyrrakvöld brann skúr við
Háaleitisveg og var hann alelda
þegar ' slökkviliðið kom á vett-
vang laust fyrir kl. 10. Skúrinn
evðilagðist bannig að grindin ein
-tóð uppi Gizkað er á að þarna
hafi einnie börn verið að verki
sem kveikt hafi i skúrnum.