Vísir


Vísir - 05.01.1963, Qupperneq 6

Vísir - 05.01.1963, Qupperneq 6
6 Ví S I R . Laugardagur 5. janúar 1963. Sjötugur í dag: ./ •• Ornólfur Yaldemarsson bankafulltrúi Mér hefur verið tjáð, að örn- ólfur Valdemarsson sé sjötugur I dag, en satt að segja finnst mér það hálf ótrúlegt — svo unglegur er hann, og lundin ber miklu fleiri einkenni æsku en elli. ömólfur fæddist vestur á ísa- firði, þar sem foreldrar hans bjuggu, Valdemar örnólfsson verzlunarmaður og kona hans, Guðrún Sigfúsdóttir. Var Valde- mar af kjarnmiklum vestfirzkum ættum, en Guðrún af merkum ættum norðlenzkum og austfirzk- um. Ungur fluttist Örnóifur til Súgandafjarðar, þar sem hann gerðist umsvifamikill atvinnurek- andi á sviði verzlunar og útgerð- ar, en auk þess hlóðust að hon- um ýmis trúnaðarstörf í þágu Súgfirðinga. Hann varð hrepp- stjóri, oddviti og sýslunefndar- maður og formaður skólanefndar langa hríð. Einnig var hann lengi formaður skólanefndar Héraðs- skólans á Núpi. I þágu kirkju og ýmissa félagasamtaka vann hann — og vinnur enn — mikið starf og merkilegt. Fyrir 17 árum fluttist Örnólfur með fjölskyldu sina til Reykja- víkur og starfar nú í Otvegsbanka íslands. sökum, en ég veit, að honum er enginn greiði gerður með því að hrópa um slíkt á gatnamótum. Hann vill, að slíkt sé í leynum, ömólfur Valdemarsson. og því fjölyrði ég ekki um það frekar. Örnólfur er ágætur starfsmað- ur, enda eftirsóttur bókhaldari og skýrslugerðarmaður. Vandvirknin er frábær og rithöndin fínleg og fögur. Hver ávísun, kvittun eða reikningur, sem fer frá hendi Örn ólfs, ber merki þessari vandvirkni. Allt verður að vera snyrtilegt og vel frá gengið. Þótt þýðlyndið einkenni skap- ferli örnólfs, getur hann verið fastur fyrir, ef gott málefni er að verja — skapið er mikið og geðbrigði stundum snögg, en fáir eru fúsari til sátta. Örnólfur er tvíkvæntur. Fyrri konu sfna, Finnborgu Kristjáns- dóttur, missti hann eftir skamma sambúð. Með henni eignaðist hann eina dóttur, er ber nafn móður sinnar. Síðari kona hans er Ragnhildur Þorvarðsdóttir, og börn þeirra eru 9 á lífi. Það hefur verið ein mesta gæfan í lífi örnólfs, hve hann hefur átt miklu barnaláni að fagna, og sjaldan má sjá hann sælii nú, þegar árin færast yfir, en við vöggu einhvers barnabarns ins. Ég óska Örnólfi langra lffdaga, og honum og fjölskyldu hans gæfu og gengis. Vinur. Fimm lögreglubiónar ófull y nægjandi fyrir Kópavog Ömólfur Valdemarsson er á margan hátt sérstæður maður, hann er strangur bindindismaður á vfn og tóbak, en samt hrókur alls fagnaðar í vinahópi, söng- maður ágætur og léttur og skemmtinn í samræðum. Gest- risni hans er frábær, og er kona hans, Ragnhildur Þorvarðardóttir, samhent honum í því efni. Hefur oft verið glatt á hjaila á heimili þeirra hjóna, þegar vinir og ætt- ingjar hafa safnazt þar saman. Hjálpsamur er Ömólfur með af- brigðum, og margir munu minn- ast hans 1 dag einmitt af þeim Sextán manns sækja urn lög- regluþjónastöður, sem auglýstar voru lausar til umsóknar í Kópa- vogskaupstað. Umsóknarfrestur var til áramóta, og eru fjórir umsækjendur um hverja stöðu, sem auglýst var, því að þær voru fjórar. Um þessar mundir eru fimm lögregluþjónar f Kópavogi, og er það undir því, sem tilskilið er í lögum, og allsendis ófullnægjandi, að þvf er Sigurgeir Jónsson, bæjarstjóri f Kópavogi, sagði við Vfsi f gær, er blaðið spurði um frétta af þessu. Sigur- geir komst svo að orði, að umferð um Reykjanesbrautina, sem sker bæinn sundur, eins og menn vita, væri svo geigvænleg, að það mætti kallast mesta mildi, að aldrei skyldi hafa orðið stórslys af völdum henn ar. Um Kópavog fara á hverjum degi þúsundir bifreiða, sem eiga erindi milli Reykjavfkur og Kópa- vogs eða staða fyrir sunnan hann. TRELLEBORG H JÚLBARÐAR | FyrirJiggjandi. HRAUNHOLT í v/ Miklatorg. Opið frá 8-23 alla daga. ! Sími 10300. Á morgun kl. 3 heldur Gestur Guðmundsson (tenór) söngskemmtipi í j Gamla bfói. Undirleikari hans verður Guðrún Kristinsdóttir. Á efnis-, skránni verða sönglög og óperuaríur eftir bæði innlenda og erlerada ; höfunda, Emil Thoroddsen, Eyþór Stefánsson, Pál isólfsson, Schubert, Massenet, Donizetti, Verdi og Puccini. Gestur kemur nú í fyrsta skipti fram opinberlega sem einsöngvari, en hann hefur undanfarin þrjú ár verið við söngnám i Þýzkalandi. | Hildigunnur Dungal og María Guðmundsdóttir. Snyrtiskóli tekur senn til starfa Nú er að taka til starfa fyrsti snyrtiskólinn i Reykjavík. Verður nemendum kennt þar að snyrta sig sjálfir, undir eftirliti kennara og kennd meðferð snyrtivara. Þá verð- ur einnig kennt að Iagfæra húð- galla með snyrtingu. María Guðmundsdóttir fegurðar- drottning mun aðstoða við kennsl- una á fyrstu námskeiðunum, en þau munu taka fjóra daga hvert. Verður kennt f klukkutfma f einu. Aðalkennari skólans verður Hildi gunnur Dungal^ sem lokið hefur prófi í snyrtingu hjá Max Factor í London, en forstöðukona verður Erla Guðmundsdóttir. Skólinn verð ur til húsa að Sólheimum 23, 8. hæð, og er þegar upppantað á fyrstu námskeiðin. íslenzkar var um Að öllum líkindum er nú byrj- að að afhenda mjólk og brauð úr hjálparstöðvum íslendinga í Alsír, en þær eru sem kunnugt er reistar fyrir fé sem safnað var á stuttum tíma fyrir jól, fyrst af Alþýðublaðinu en síðar af Rauða Krossinum og öllum dagblöðunum. Eitthvað magn af mjólkinni er frá íslandi, það er að segja mjólkurduftið, sem notað er. En brauðið er alsírskt. Bráðlega munu berazt hingað Ijósmyndir af stöðvunum. Tæplega ein milljón króna, eða j 967.764,00 krónur bárust í Alsír- j söfnunina. Þar af safnaði Rauði Krossinn rúmlega 660 þúsundum, króna. Henrik Beer, aðaifram- kvæmdastjóri Alþjóða-Rauða Kross ins skrifaði nýlega til íslenzka Rauða Krossins, og lýsti ánægju sinni yfir framlagi íslendinga, en hann var um það leyti að leggja af stað til Alsfr, til að hafa hönd í bagga með uppsetningu hjálpar- stöðvanna. Þær eru reistar á kostn- að islendinga en Alsírstjórn, útveg- ar vinnuafl til uppsetningarinnar og afgreiðslu í stövunum. Þær verða reistar dreift um Alsir, I smærri borgum og þorpum. hjálparstöð- alla Alsír Ýmsir aðilar hafa gefið stór- gjafir til söfnunarinnar. Sumir hafa lagt ýmislegt á sig- til að afla fjár til hennar t. d. börnin á Súðavík, en frá þeim var sagt á blaðamanna- fundi sem Rauði Krossinn hélt i gær. Sr. Bernharður Guðmunds- son, sóknarprestur þar, hafði getið þess að þeir peningar, rúmiega 4 þúsund krónur, sem börnin á Súða- vík söfnuðu hafi fengizt með því að þau unnu í frystihúsi, téiknuðu og seldu jólakort, og héldu skemmt- un, og létu ágóðann af þessu renna til Alsírsöfnunarinnar. CLAUMBÆR Allir salirnir opnir í kvöld. Hljómsveit Árna Elfar Borðpantanir í síma 22643 og 19330 GLAUMBÆR /

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.