Vísir - 11.01.1963, Síða 4
á VÍSIR . Föstudagur 11. janúar 1963.
Bónusinn ætti að banna með lögum
Baldvin Einarsson, forstjóri Almennra Trygginga.
Það er ekki óalgengt að
lesa í blöðum fréttir um
bruna og aðra skaða þar
sem með fylgir eð ekki
hafi verið hátt tryggt, til
að greiða það tjón, sem
varð. Mun láta nærri að
þrír fjórðu fólks hafi ekki
nægilega tryggt innbú,
að því er Baldvin Einars-
son, forstjóri Almennra
trygginga, tjáði blaðinu,
en til hans leituðum við,
til að kynnast þessu nán-
ar.
— Hvað eru algengustu trygg-
ingar hjá ykkur?
— Mestur er fjöldinn af bruna
tryggingum, bæði á innbúum og
RÆTT VIÐ
BALDVIII
EINARSSON
UM
TRYGGINGAR
lagerum. Yfirleitt gætir fólk þess
ekki nærri nógu vel að hækka
tryggingar til samræmis við verð
lag. Þar sem hagar. til eins og
hér, að verðlag hækkar frá ári
til árs, er þetta sérstaklega nauð-
synlegt. Þá er og þess að gæta,
að eftir því sem menn búa lengur
og fjölskyldan stækkar, eignast
menn meira af verðmætum, sem
nauðsynlegt er að tryggja.
— Það er mjög algengur mis-
skilningur að ef tjónið fer ekki
fram úr tryggingarupphæðinni,
fái fólk fullar bætur. Því er ekki
þannig farið, heldur fær það
greitt sama hlutfall af trygging-
arupphæðinni og hlutfall tjónsins
er af eigninni. Til dæmis 9 maður
innbú fyrir 100 þús. og það er
tryggt fyrir 50 þús. Nú eyðileggst
helmingur þess, 50 þúsunda virði.
Þá fter hann bætur sem nema
helmingi tryggingarupphæðarinn-
ar, eða 25 þúsund.
— Þegar tryggingin er tekin
upphaflega, metur fólk sjálft
hvers virði það telur innbú sitt.
Þegar svo gengislækkanir og
verðhækkanir eiga sér stað, þarf
að hækka þetta, til jafns við
endurkaupsverð, þegar búið erað
reikna með eðlilegu sliti.
—o—
— Svo eru heimilistryggingar,
sem byrjað var að selja árið
1957. Síðasta haust voru skilmál-
ar þeirra bættir og þær gerðar
víðtækari. Þar er hægt að fá á
einu skírteini allar tryggingar,
sem heimili þarf með. Þrer fela
í sér brunatryggingu, vatnsskaða
tryggingu, þjófnaðartryggingu,
tryggingu gegn snjóflóðum og
flugvélahrapi o.s.frv. Þá fela þær
í sér ábyrgðartryggingu gagn-
vart þriðja aðila, vegna tjóns
sem fjölskyldan telst ábyrg fyr-
ir, svo sem ef börn brjóta rúður
í öðrum húsum. Þá ná þær yfir
slysaörorku- og lömunartrygg-
ingar húsmóður, og barna innan
16 ára.
—- Af bílatryggingum er
skyldutryggingin að sjálfsögðu
algengust, en hún nær yfir tjón
sem valdið er þriðja aðila, allt að
500 þúsund krónum. Þá eru
kaskotryggingar algengar. Þær
er hægt 'að fá þannig að þær nái
yfir allt tjón sem verður á bíln-
um. Einnig er hægt að kasko-
tryggja þannig að eigandi taki
sjálfur á sig tjón sem nemur allt
að tíu þúsund krónum. Þá lækkár
iðgjaldið verulega. Slysatrygging
á farþegum en skylda í leigubíl-
um og langferðabílum, en einnig
er hægt að fá þær fyrir einka-
'bíla.
- Þá er hægt að tryggja sér-
staklega rúður í bílum og getur
verið full ástæða til, þar sem
stórar rúður kosta frá 5—12 þús-
und. Glertryggingar eru einnig
til fyrir einkaheimili og verzlun-
arhús.
—O""
- Frjálsar ábyrgðartrygging-
ar fyrir atvinnurekendur eru
einnig algengar, og fara ört vax-
andi. Þær ná yfir öll þau tjón
og slys, sem atvinnurekandi telst
ábyrgur fyrir. Sams konar eru
húseigendaábyrgðartryggingar.
Það þarf ekki annað en að blaða-
strákur detti í hálku á tröppun-
um, þá er komið skaðabótamál.
Þessar tryggingar eru nauðsyn,
bæði fyrir húseigendúr og at-
vinnurekendur.
— Slysatryggingar eru mjög
nauðsynlegar, bæði fyrir sjálfan
sig, og eins geta atvinnurekend-
ur tryggt starfsfólk sitt, ef þeir
kæra sig um, gagnvart slysum
sem þeir ekki bera ábyrgð á. Með
þeim eru menn tryggðir hvar sem
þeir eru gegn dauða, öroroku og
varanlegum atvinnumissi, allt
upp í eitt ár.
y-O—
— Eru menn tryggðir ef þeir
eru fullir?
— Ekki ef þeir eru mikið full-
ir. Hins vegar eru þeir tryggðir
þó að þeir hafi bragðað vín og
séu eitthvað kenndir.
— Borga allir sama iðgjald,
hvað sem þeir gera?
— Það er mjög mismunandi
eftir starfi. 1 hæsta flokki eru til
dæmis kafarar og gluggahreins-
unarmenn. Flugmenn eru fremur
ofarlega, þó að þeir séu ekki I
hæsta flokki. Sjómenn eru svo
nökkru neðar. í lægsta flokki eru
svo skrifstofumenn og margar
aðrar stéttir. Til gamans má geta
tveggja, sem eru ekki sérlega al-
gengar, sem eru verkstjórar við
áfengisblöndun og hattahreinsun-
armenn.
— Og fleiri algengar trygging-
ar?
— Ferðatryggingar eru nú
orðnar mjög algengar. Þær er
hægt að sameina slysatryggingu,
en einnig er hægt að tryggja sig
þann tíma sem ferðalagið stend-
ur yfir. Þetta skyldi hver maður
notfæra sér, hvort sem hann er
að ferðast innanlands jeða utan.
— Þá eru allskyns’ sjótrygg-
ingar algengar, svo sem trygg-
ingar á vörum, sem eru á leið
til og frá landinu. Skip sem eru
undir 100 tonn eru skyldutryggð
hjá bátaábyrgðarfélögunum, en
við tryggjum stærri skip.
—o—
— Og svo eru það líftrygging-
arnar, sem eru geysilega algeng-
ar um allan heim, þó að þær séu
ekki enn orðnar það á íslandi.
Menn geta með þeim tryggt fjöl-
skyldu sinni nokkurt fé, ef þeir
falla frá og einnig geta þeir
tryggt sig þannig, að þeir fái
tryggingarféð útborgað sjálfir, ef
þeir verða langlífir. Er þá gjarn-
an miðað við 65 ára aldur.
— Önnur tegund af þessu er
svokölluð stórlíftrygging. Hún er
þannig að menn tryggja sig fyrir
hárri upphæð og er iðjgjald Iágt
og helzt alltaf það sama, en
tryggingarupphæðin lækkar ár-
lega. Þessi trygging er áhættu-
trygging. Þetta hentar til dæm-
is vel ungum mönnum, sem hafa
lagt í mikla fjárfestingu, svo sem
íbúð. Þannig geta þeir tryggt að
fjölskyldan þurfi ekki að miss'a
íbúðina, vegna skulda, þó að þeir
falli frá, án þess að þurfa að
borga hátt iðgjald.
—0—
— Hvað þarf heimilisfaðir að
hafa mikið af tryggingum svo vel
sé, að yðar áliti?
— Hann þarf að hafa líftrygg-
ingu, sem nemur ekki minnu en
tvöföldu árskaupi, eða stórtrygg-
ingu. Heimilistryggingu þarf
hann að hafa og slysatryggingu
fyrir sig og konu sína, og jafn-
vel líka fyrir börnin. Ef hann á
bíl þarf hann að hafa kaskó-
tryggingu, ef hann telur sig hafa
nokkur efni á því, og ef hann á
hús þarf hann að hafa húseig-
andaábyrgðartryggingu.
— Hvað er stærsta tjón sem
þið hafið borgað út?
— Stærsta tjónið nam 30 mill-
jónum króna. Það var togari sem
fórst. Stærsta brunatjónið er um
þrjár milljónir.
— Ekki þurfið þið að greiða
alla þessa upphæð sjálfir?
— Rekstur tryggingarfyrir-
tækja byggist allur á endurtrygg-
ingum. Fyrirtæki erlendis taka
að sér nolckurn hluta af þeirri
tryggingu sem við tökum að okk-
ur. Þau selja svo öðrum nokk-
urn hluta og þannig gengur það
koll af kolli, þangað til hver að-
'ili hættir ekki nema litlu. Við
tökum svo aftur endurtrygging-
ar frá öðrum. Ef til dæmis hús
brennur austur f Persfu getur
verið að við fáum nokkru seinna
reikning fyrir nokkur þúsund
krónum, sem við höfum tekið að
okkur að endurtryggja.
—0—
— Er það algengt að bílatjón
nái 500 þús. króna hámarkinu?
— Það er nokkuð algengt. Ég
er þeirrar skoðunar að 500 þús.
króna ábyrgðartrygging á bíl sé
of lág, miðað við verðgildi krón-
unnar. T.d. í Englandi og Þýzka-
landi nær ábyrgðartryggingin yf-
ir ótakmarkað tjón, enda er hún
miklu dýrari þar en hér. Yfir-
leitt eru bílatryggingar ódýrari
hér en annars staðar, enda er
tap á þeim hér.
— Hvað finnst yður um svo-
kallaðan bónus, sem menn fá, ef
ekkert kemur fyrir þá?
—; Ég álft að það ætti að af-
nema hann með lögum. Hann
beinlínis veldur þvf að menn
stinga af frá tjónum. Ég álít að
það væri miklu nær að trygg-
ingarfélögin legðu í sameiginleg-
an sjóð það sem honum nemur,
til að borga með þau tjón sem
verða og stungið er af frá.
—o—
— Eitt af því sem ég tel sér-
lega athugavert í tryggingamál-
um hérlendis eru þær hringa-
myndanir ,sem átt hafa sér stað.
Bæði Sambandið og Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna hafa sett á
stofn eigin tryggingafélög og
tryggja hjá þeim þann útflutning
óg innflutning sem þessi fyrir-
tæki hafa með höndum. Þetta er
mjög óheilbrigt og viæri miklu
eðlilegra að þessar tryggingar
væru boðnar út á frjálsum mark-
aði.
— Þá er það mjög varhuga-
vert ástand sem hér rfkir, að
engin tryggingalöggjöf er til. Er-
lendis er mjög strangt eftirlit
með tryggingafélögum, til að sjá
um að þau veiíi eðlilega þjón-
ustu. Það er ekkk'löggjöf1 fyfir
að þakka, að ekki hafa hlotizt
óhöpp af, hér á landi.
Sfai borðbúnaði
Lögreglan handsamaði í fyrra-
kvöld þjóf sem var með fulla vasa
af stolnum borðbúnaði.
í fyrrakvöld kom ungur mað-
ur upp í Þórskaffi til að sækja
þar úlpu sína, er hann hafði gleymt
kvöldið áður. Þegar afgreiðslukon-
an tók úlpuna af snaganum, hringl
aði í henni eins og í jólábjöllum,
og er hún aðgætti þetta betur, þá
voru í vösum úlpunnar hluti borð-
búnaðar, sem merktur var Hafnar-
búðum. Konunni þótti þetta ein-
kennilegt, að svona delinkvent
skyldi vera með þennan borðbúnað
í vösunum. Hún gerði lögreglunni
sem var þarna á staðnum strax
viðvart og lögreglan hirti mann-
inn. Við yfirheyrsluna kom í ljós,
að vinurinn hafði stolið þessu í
Hafnarbúðum. Ekki gat hann gefið
aðra skýringu á þessu en að þetta
hefði verið fylliríisdella.
Manngreyið fékk fría gistingu í
Síðumúla í fyrrinótt og mun hafa
verið færður rannsóknarlögreglunni
í gær til frekari athugunar. Ekki
er blaðinu kunnugt um hve mikill
hluti borðbúnaðar Hafnarbúða var
í vösum þjófsins.
iróðisr i vondo
Don Jaime, bróðir Fabíólu Belga
drottningar, er. í mesta vanda suð-
ur á italíu.
Honum hafa verið • gerðir tveir
kostir — annað hvort greiði hann
80,000 króna skuld sem gistihús í
Feneyjum hefir átt hjá honum í
tvö ár, eða fari í 23 daga fangelsi
ella. Gallinn er sá, að Don Jaime,
sem er svallari mikill, á ekkert til
að greiða skuldina — nema mágur
hjálpi, svo að ættin verði firt
skömm.