Vísir - 15.02.1963, Blaðsíða 8
8
VÍSIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ö. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði.
1 lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 Unur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Glappaskot Framsóknar
Það kom í ljós í umræðum Alþingis um Efnahags-
bandalagið í fyrradag, að framsóknarflokkurinn ætlar
sér að gera það mál að höfuðáróðursmáli sínu í kosn*
ingunum í sumar. Þessi tíðindi sýna, að ekki er um
auðugan garð að gresja í málefnasjóði framsóknar-
flokksins. Upp er tekið dautt mál, aðild íslands að
EBE, dustað af því rykið og áróðursvélin sett af stað.
Sýnu nær hefði verið fyrir framsóknarflokkinn að
leggja fram tillögur í vandamálum líðandi stundar og
koma með fyrirhugaðar lausnir á ýmsum þeim erfið-
leikum, sem nú steðja að íslenzku þjóðarbúi. En því
er ekki að heilsa, vegna þess að flokkurinn hefir ekki
skoðanir, aðeins mismunandi duttlunga.
En hver er raunverulegur ágreiningur framsókn-
ar og ríkisstjórnarinnar í EBE málinu? Hann er furðu-
lítill, þegar málið er skoðað ofan í kjölinn. Ríkisstjórn-
in vildi ekki rasa um ráð fram og kaus að bíða átekta
vegna þess að enginn vissi hvað í aukaaðild eða tolla-
samningi mundi felast. Framsóknarflokkurinn vissi
það auðvitað ekki heldur. Jafnvel sérfræðingar í
Brussel gátu í janúar enn engin svör gefið við því
hvað í þessum hugtökum væri fólgið. Samningar einir
hefðu leitt það í ljós, en ekkert aukaaðildarlandanna
var einu sinni setzt við samningaborðið, þegar enda-
lokin komu.
Nú segir framsóknarflokkurinn: Ríkisstjórnin hef-
ir brotið af sér gagnvart þjóðinni með að bíða átekta
og ganga ekki strax til fylgis við tollasamningsleiðina.
Hún hefir velt aukaaðild fyrir sér, en sú aðild myndi
hafa stórskert sjálfstæði þjóðarinnar. En er það glæp-
ur að velta öllum hugsanlegum möguleikum fyrir sér?
Og hvemig veit framsókn, að aukaaðild hefði jafngilt
fjötri um háls þjóðarinnar?
Auðvitað veit flokkurinn ekki hætis hót um það.
Og þetta sýnir hve rök framsóknar í málinu em undra
léleg. Flokkurinn er hér að reyna að blása upp mál,
sem aldrei komst af frumstiginu. Við málsmeðferð
ríkisstjómarinnar var bókstaflega ekkert athugavert.
Hún hafði ekkert aðhafzt nema átt könnunarviðræður,
sem voru óhjákvæmilegt forspil allra samninga.
Það er leitt til þess að vita að þessi óábyrgi flokk-
ur skuli reyna að gera viðkvæmt utanríkismál að bit-
beini í orrahríð kosninga. Betur hefði farið að allir
lýðræðisflokkamir hefðu borið gæfu til þess að ganga
einhuga á fund þjóða Evrópu og eiga við þær þá sam-
vinnu í viðskiptum, sem efnaleg framtíð okkar hlýtur
að byggjast á.
VlSIR . Föstudagur 15. beb;;'nv !C
Greifínn og gjaMkerim
Furðulegt mál hefur
nú komið upp í Dan-
mörku. Fyrir um þremur
ámm fór að bera tals-
vert í Kaupmannahöfn á
ungum manni með al-
skegg, sem sagðist vera
franskur markgreifi að
nafni Marcel de Sade.
Vakti hann talsverða at-
hygli í samkvæmislífinu,
enda var hann glæsileg-
ur maður útlits, lifði
í miklu óhófi og hélt sig
á alla lund sem glæsileg
ur aðalsmaður.
Hann klæddist jafnvel í slag-
kápu sem var fóðruð með rauðu
silki að innan og hafði með
sér hvar sem hann fór staf með
filabeinshnúð. Var framkoma
hans öll svo virðuleg og hátíð-
leg, að hinn ungi maður eign-
aðist marga vini sem litu á
hann sem raunverulegan fransk
an aðalsmann. Menn hneigðu
sig fyrir honum.
l?n allt I einu var draumurinn
búinn og upp kemst, að
ungi maður var aðeins fals-
greifi. Það kom í ljós, að Marcel
de Sade markgreifi af Keriolet
var fæddur í Álaborg 1934 og
hét þá Jörgen Larsen. Það kom
ennfremur í Ijós, að hann hafði
síðar skipt oft um nafn og þeg-
ar hann var loksins handtekinn
lifði hann tvöfaldri tilveru. Á
daginn hét hann Jörgen Sch-
midt og hafði starfað sem bók-
ari hjá Austurasíufélaginu og
Carlsberg og loks sem gjaldkeri
hjá stóru efnavörufyrirtæki B.
Ringsted & Co. En þegar hann
kom heim til sín á kvöldin
breytti hann um gervi og gerð-
ist hinn glæsilegi aðalsmaður og
heimsmaður í hinni virðulegu
slagkápu.
JJannsóknarlögreglumennirnir
dönsku sem hafa rannsakað
mál falsgreifans vita enn varla
hvernig þeir eigia að fara með
þetta einkennilega mál. Þeir
hafa komizt að þvf, að hér sé
ekki einvörðungu um vfsvitandi
glæpastarfsemi að ræða. Hinn
ungi maður þjáist af alvarlegum
hugklofningi og hann stendur
sjálfur í þeirri trú þar
sem hann situr í fangels-
inu að hann sé franskur að-
alsmaður. Lítur út fyrir að f
hvert skipti sem hann kom
heim til sín eftir vinnu, hafi
þessi hutverkaskipti mannsins
orðið og það með ósjálfráðum
hætti. Þannig hafi dagdraumar
og ímyndanir fengið á sig veru
leikablæ f huga hins unga
manns.
J£n málið kemur lögreglunni
þó mjög við, því að það
hefur nú komið í Ijós, að það
Marcel de Sade markgreifi gengur í dómsal.
var dýrt að halda sig sem greifi.
Á daginn þegar hinn ungi mað-
ur gegndi starfi sínu sem gjald-
keri varð honum þannig nauð-
synlegt að afla fjár fyrir eyðslu
semi og fjárþörfum markgreif-
ans. Þannig tengist þessu eitt
alvarlegasta fjársvikamál í sögu
danskra sakamála. Það mun að
vísu taka Iangan tfma að upp-
lýsa öll þau fjársvik, en talið
er að þau muni ekki nema
minna en einni milljón danskra
króna eða um 6 milljónum ísl.
króna.
Drýgsti hluti fjársvikanna
gerðist hjá fyrirtækinu sem
Jörgen Schmidt vann hjá síð-
ustu árin og er um að kenna
algeru eftirlitsleysi með fjár-
reiður fyrirtækisins. En auk
þess hefur greifinn sjálfur not-
að sitt góða nafn tif-að komast
innundir hjá fólki og fyrirtækj-
um og svíkja stórfé út úr þvf.
JTngi ,,aðalsmaðurinn“ hefur
ekki verið spar á fé, þenn-
an tíma. Hann upplýsir sjálfur
að mánaðarlegir leigubílareikn-
ingar hans hafi numið um 6
þúsund dönskum krónum. Hann
bjó f glæsilegu einbýlishúsi við
Höeghsmindevej og barst mikið
á. Það hefur t.d. komið í ljós, að
hann hefur látið taka af sér
ljósmyndir fyrir 30 þúsund
danskar krónur og þegar hann
hefur látið klippa sig hefur
hann borgað í hvert skipti 100
danskar krónur. Vinum sínum
gaf hann stórgjafir. Um tfma
átti hann t.d. bíl, en hann gaf
Framhald á bls. 5.
Nafnspjald markgreifans bar virðulega kórónu.