Vísir - 27.02.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 27.02.1963, Blaðsíða 1
53. árg. — Mlðvikudagur 27. febrúar 1963. — 48. tbl. Við Hafravatn Mynd þessi var tekin á vegamótunum i morgun þar sem leynifundur Rússanna átti að fara fram. Ragnar Gunnarsson stendur hér hjá hinni gömlu Morris-bifreið sinni. Ummæli dómsmálamðherrn: VAFALAUST LEITAÐ TIL MARGRA ISLENDINGA Vísir átti f morgun tál við Bjarna Benediktsson dóms- málaráðherra um njósnastarf- semi hinna tveggja rússnesku sendiráðsmanna. Dómsmálaráðherra sagði: „Grunur hefir leikið á því að hér á landi væru stundaðar njósnir. Eftir að upp komst um tékkneska njósnamálið í vor varð sá grunur að fullri vissu. Vafalaust hefir verið leitað til margra íslendinga í þessu sama skyni en ekki er vitað hve margir hafa neitað að taka þátt í slíkum skaðræðis- gjörðum né heldur hvort nokkr- ir, og ennþá siður hve margir, hafa Iátið ánetjast. Það sem hér hefir komið fram er auðsjáanlega á byrjun- arstigi, en sýnir hve reynt er að leiða menn stig af stigi til þess að njósna í þágu erlends stórveldis. Það ber að meta það að verðleikum og þakka þcim mönnum, sem skýra rétt- um yfirvöldum frá þvi að þeir hafi verið beðnir að fram- kvæma slík skaðræðisverk, og sem koma upp um þá erlendu menn sem að baki standa. Framh á bls. 5 Þao er nú upplýst og sannað með óyggjandi sönnunargögnum, að starfsmenn rússneska sendi- ráðsins hafa reynt að fá rúmlega þrítugan íslending Ragnar Gunnarsson til að stunda njósnir fyrir sig. Hann brást þannig við að hann gerði íslenzkum yfirvöldum aðvart og leiddi það til afhjúpunar atferlis Rússa. Ragnar Gunnarsson er með- limur kommúnlstaflokksins og hefur hann langt árabil ver- ið áhugasamur og mjög virkur í flokkssamtökum þeirra. Hann hefur elgnazt flesta sfna vini og kunningja 1 þcssu samstarfi og má þvf geta nærri, hve örðugt honum hefur reynzt að taka þetta spor. En þegar frétta- maður Vísis átti tal við hann í morgun sagði hann: — Mér var nauðugur einn kostur, ég varð einhvem veg- inn að losna undan þessari á- sókn Rússa, sem hófst fyrst á mig 1959, þegar þeir reyndu að notfæra sér að fjárhagsaðstæð- ur mfnar voru mjög erfiðar. En nú þegar þeir byrjuðu að nýju að sækja á mig að stunda njósn ir f desember s.l. þurfti ég þó ekki lengi að skoða hug minn um, hvað ég ætti að gera. — En hvað um viðhorf kunningja þinna I flokknum? — Það get ég ekki sagt. Það verður þeirra samvizka að segja þeim. Og ég veit að marg- ir þessara ungu manna sem vinna I sóslalistaflokknum eru ágætir og heiðarlegir drengir Þanriig hef ég kynnzt þeim. 1 samtalinu við Ragnar kom i það fram, að saga hans í flokkn um hefur verið lík og saga svo margra annarra ungra manna, sem hafa aðhyllzt hug- ! sjónir kommúnismans. — Ég gekk í sósíalistaflokk- i inn 1949, segir hann. Ég hafði áður verið í Félagi ungra jafn- aðarmanna, en vann þá mjög i með Hannibal Valdimarssyni, sem stjórnaði hinum róttækara armi. — Þú segir að þetta hafi ver- ið 1949, — var það þá í sam- bandi við atburðina 30. marz? — Já, ég og margir aðrir ungir menn litu mjög svörtum augum á aðild að Atlantshafs bandalaginu. Ég ímyndaði mér Framh á bls 5. Leið Einars til sósíalismans í GÆRKVÖLDI kl. 8,30 hélt Sóslalistafélag Reykjavíkur fund í Tjamargötu 20. Fundar- efnið var: Leið fslands til sósial isma. Frummælandi var Bryn- jólfur Bjarnason. I Ijósi þeirra atburða sem uppvísir urðu í gærkvöldi er eðlilegt að þeirri spurningu sé varpað fram hvort ein leiðin til sósíalisma sé ekki stuðning ur við njósnastarfsemi Rússa á fslandi. Verður að ætla að Brynjólfur hafi í framsöguer- indi sínu tjkið afstöðu til þess niáls. Vafalítið hefir þessi frum lega leið til sósialismans verið mikið rædd á fundinum. Mark- mið félagsins hefir frá uphafi verið nánara samband og sam vinna við Sovétríkin. Hve náið það samband hefir verið var ekki á almenningsvitorði fyrr en f gærkvöldi. Annar aðalræðu maður var Einar Olgeirsson. Við því má búast að innan fárra daga verði annar fundur haldinn f Sósíalistafélaginu í Tjarnargötu. Væntanlega verð ur umræðuefnið þá: Nauðsynin á að halda vissum Ieiðum til sósialismans betur leyndum en hingað til. Einar kemur af fundinum í gær- kvöldi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.