Vísir - 27.02.1963, Side 8

Vísir - 27.02.1963, Side 8
8 V1SIR . Miðvikudagur 27. febrúar 1963. L* VÍSIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR, Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á má nuði. 1 lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 Unur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Hægri akstur á íslandi? Tveir þingmenn, Kjartan J. Jóhannsson og Birgir Finnsson, hafa borið fram tillögu um, að ríkisstjómin láti fram fara athugun á því, hvort ekki sé tímabært, að hér verði tekinn upp hægri handar akstur, sem gild- andi er í flestum löndum heims. Það er margt, sem mælir með því, að athugun sé látin fram fara á þessu og framhald hennar verði síð- an, að unnið verði að því, að við íslendingar breytum til og hverfum frá vinstri handar akstri. Einna þyngst á metaskálunum mun það vera, að það verður nú æ tíðara, að íslendingar fari til annarra landa með bif- reiðar og aki þar lengri eða skemmri vegarlengdir. Einnig má gera ráð fyrir, að það fari nokkuð í vöxt, að útlendingar aki hér um eigin bifreiðum eða taki bifreiðar á leigu til að aka þeim um landið. Hvort tveggja skapar hættu fyrir viðkomandi menn og aðra í umferðinni í kringum þá. Bretar og Svíar eru nú einu þjóðimar í Evrópu, sem einnig hafa vinstri handar akstur, en þeim vex óðum fylgi, sem berjast fyrir því, að ökureglur þeirra verði samræmdar þeim reglum, sem gilda í öðrum löndum álfunnar. Þótt þessu fylgi margvíslegur kostn- aður, bæði fyrir hið opinbera, samgöngufyrirtæki og jafnvel einstaklinga, er ekki ósennilegt, að fsland verði eitt eftir með vinstri handar akstur að fáum ámm liðn- um, ef við gemm ekki breytingu einnig. Því mundi að vísu fylgja ýmis kostnaður hér á landi — eins og annars staðar, þar sem eins er ástatt — en hagræðið virðist augljóst. Og þar sem ætla má, að kostnaðurinn verði þeim mun meiri, sem við drögum það meira á langinn að gera eitthvað í þessu, þyrfti nauðsynlega að ákveða sem fyrst, hvenær breyting skuli endanlega um garð gengin og hef jast síðan handa um framkvæmdimar. Dagur Rauða krossins Öskudagurinn hefir um langt árabil verið dagur Rauða kross fslands, þegar hann hefir leitað til al- mennings víða um land um stuðning við starfsemi sína. Þetta er hinn fasti, árlegi fjársöfnunardagur sam- takanna, en auk þess leita þau oftar til almennings, þegar sérstaklega stendur á, og þörf er að veita skjóta hjálp innan lands eða utan. Rauði krossinn er ein þeirra samtaka, sem öllum ætti að vera mjög ljúft að styðja, enda hefir það oft komið í Ijós á liðnum árum. Dæmi þess þarf ekki að nefna, því að aldrei munu Rauða kross-menn hafa far- 5ð bónleiðir til búðar, þegar þörf hefir verið liðveizlu almennings. Svo verður vonandi enn í dag, þegar merki félagsins verða boðin til sölu, svo að unnt verði að safna gildum sjóðum, er alltaf verða tiltækir, þegar þörf verður fyrir skjóta hjálp í neyð. Leonard Bernstein. Eugene Ormandy. Erich Leinsdorf. Bandarískar sinfóníuhljém■ sveitír eru framúrskarandi heim, enda eftirsóttar. Heima- borgirnar eru misjafnlega hrifn- ar af því að missa þær þótt leiðin liggi aðeins í næstu borg. Aðdáendur hljómsveitarinnar vilja stundum ekki vita af henni utan borgarinnar. En I öðrum borgum er hljómsveitin hvött til að ferðast sem mest ,eða alltaf þegar henni er boðið, og þá er tekið á móti henni við heimkom- una, eins og geimförum eða í- þróttaköppum. Oandaríkjamenn voru seinir að viðurkenna yfirburði eigin hljómsveita þrátt fyrir ótvíræða aðdáun sína á þeim. Þeir biðu eiginlega eftir viðurkenningu frá Gamla heiminum á því að banda rískar sinfóníuhljómsveitir stæðu evrópskum hljómsveitum framar. Þessi viðurkenning kom óhjákvæmilega. Cíðan hafa Bandaríkjamenn k'7 gert meira en nokkru sinni fyrr til að styrkja hljómsveitir sínar. Þeir hafa látið þeim í té stærstu og glæsilegustu kon- serthallir landsins eða byggt nýj ar fyrir starfsemi þeirra. Ein nýjasta byggingin er sú, sem byggð hefur verið á Manhattan fyrir Sinfóníuhljómsveit New York-borgar. Hún var opnuð með miklum glæsibrag fyrir nokkru síðan. Þar léku nokkrar af fremstu sinfóníuhljómsveit- um borgarinnar á hverjum hljóm leikunum eftir aðra, sem öllum var sjónvarpað og útvarpað svo öll bandaríska þjóðin gæti tek- ið þátt í hinum mikla viðburði. Gyðingar fá brotfifærnrSeyfi Fréttir frá Ungverjalandi herma að líklegt sé, að Kadar forsætis ráðherra gefi nú þeim Gyðing- um sem í landinu búa loksins heimild til að hverfa á brott úr landinu og flytja til fyrir- heitna landsins, ísraels. Hafa alþjóðasamtöf Gyðinga sótt um leyfi til þess í meir en áratug en alltaf fengið afsvar. En síðustu dagana hafa samn ingar staðið yfir milli ung- verska sendiráðsins f London og alþjóðasambands Gyðinga og hefur orðið slíkur árangur af þessum viðræðum, að ætla má að leyfið fáist á næstunni. 1 Ungverjalandi bjuggu fyrir stríð um 800 þúsund Gyðingar, en sá hópur þynntist í ofsókn- um nazista á stríðsárunum og er talið að um 120 þúsund Gyð- inga búi þar nú. Það eru ekki margir áratugir síðan beztu sin- fóníuhljómsveitir verald ar var að finna á megin- landi Evrópu, í Berlín, London og Vín. Hljóm- sveitir Nýja heimsins, þóttu þá ekki merkileg- ar. Tónskáldið Gustav Mahler kom fyrir 54 ár- um til New York til að stjóma aðalsinfóníu- hljómsveit borgarinnar og ritaði í bréfi heim til Vínar um New York Fílharmoníuhljómsveit- ina, sem nú er talin með al þriggja beztu hljóm- sveita veraldar: „Hljómsveit mín, er dæmi- gerð bandarísk hljómsveit, fjörlítil og hæfileikalaus“. En sinfóníuhljómsveitir hafa ver- ið vinsælii f Bandarfkjunum en óperur og jafnvel leikhús- in. 1 þvf er öðrum þræði fólg in skýring á því hvers vegna bandarískar sinfóníuhljóm- sveitir eru margar meðal allra beztu hljómsveita í heimi. A ð margra áliti skarar engin hljómsveit fram úr sinfóníu hljómsveitinni í Cleveland undir stjórn George Szell, en hún á harða keppinauta, sem eru sin- fóníuhljómsveitimar í New York, undir stjóm Leonard Bern stein, Boston, undir stjóm Erich Leinsdorf, Fíldelfíu, undir stjórn Eugene Ormandy og Chicago, en henni stjómar Fritz Reiner. Keppinautar þeirra f Evrópu eru ef til vill sinfóníuhljómsveitirnar í Berlín og London. Önnur skýring á örum upp- vexti bandarískra hljómsveita, eða öllu heldur, hnignun evr- ópskra hljómsveita er sú stað- reynd að á styrjaldarárunum fórust margir þeirra eða flýðu heimalönd sín — þá jafnvel til Bandaríkjanna, og það hefur tekið langan tíma að þjálfa upp menn til að fylla í skörðin, sem mynduðust óhjákvæmilega við þetta. Dandarískar sinfóníuhljóm- sveitir eru alþjóðlegar í anda og túlkun. Þær leika verk eftir þýzk tónskáld öðrum verk- um oftar, en meðal þeirra eru tónverk Beethovens vinsælust. Tchaicovsky er mest leikinn allra tónskálda annarra en þýzkra. En þær taka einnig rík- George Szell. an þátt i nýsköpun tónlistarinn- ar með flutningi nútímaverka og kynningu á nýjum tónskáldum. Dandarískar hljómsveitir njóta almennra vinsælda í heima- borgum sínum í líkingu við base ballsveitir eða beztu íþrótta- menn þeirra. Og hljómsveitar- stjórarnir eru jafnoft ef ekki oftar á vörum fólksins en í- þróttamennirnir. — Óbreyttir hljómsveitarmenn. sem jafnvel eru ekki áberandi á sviðinu. verða ósjaldan fyrir því að vera stöðvaðir á götu og beðnir um eiginhandaráritun ■Llljómsveitirnar eru allar rekn ar með stórkostlegu tapi, þótt laun stjórnanda og hljóð- færaleikara séu ekki tiltölulega há, miðaða við stöðu þeirra Aðeins ein af helztu hljómsveit- um Bandaríkjanna nær að afla sér tekna fyrir 80% af rekstrar- kostnaði, New York-hljómsveit- n. Hinum tekst varla að aflr sér fyrir helmingi af kostnaði Þetta er ekki vegna þess að hljómleikar íéu illa sóttir. þvert á móti, en það er hvað sem laun unum líður, mjög dýrt að reka sinfónluhljómsveitirnar, sem eru stórar. hafa mikið starfslið og þurfa stóra æfingasali. Dandarískar sinfóníuhljóm- sveitir ferðast um allan

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.