Vísir - 01.03.1963, Síða 6

Vísir - 01.03.1963, Síða 6
6 V1SIR . Föstudagur 1. marz 1963, AthyglisverS afmœlisýning Atvinnudeildar háskólans Atvinnudeild háskólans held- ur um þessar mundir upp á 25 ára afmæli sitt. í tilefni afmælis ins heimsóttu fréttamenn stofn tmina i gær, undir leiðsögn Steingríms Hermannssonar framkvæmdastjóra Rannsókna- ráðs ríkisins, en Rannsóknaráð er atvinnumálaráðuneytinu til aðstoðar við yfirstjóm Atvinnu deildarinnar Atvinnudeild háskólans skipt ist í þrjár deildir, Fiskideild, Iðnaðardeild og Landbúnaðar- deild, og hafa deildir þessar nú komið upp fróðlegum og skemmtilegum sýningum sem gefa gott yfirlit yfir starfsemi stofnunarinnar. FISKIDEILD Fréttamenn heimsóttu fyrst Fiskideildina, sem er til húsa í glæsilegum húsakynnum að Skúlagötu 4. Fiskideildin er stærsta deildin innan stofnunar innar og starfa þar 23 menn Deildarstjórinn Jón Jónsson skýrði frá starfsemi deildarinn ar en meginverkefni hennar er, að afla þeirrar þekkingar, sem nauðsynleg er til skynsamlegr- ar nýtingar hinna einstöku fiski stofna og annars dýralffs sjáv- arins. Er gengið var um hinar fjöl- mörgu rannsóknarstofur bar margt fyrir augu. Stillt hafði verið upp alls konar mæli- og rannsóknartækjum, sem notuð eru á sjó og Iandi og á veggjum gaf að líta niðurstöður rann- sóknanna, komnar í kort og línurit. Mátti þar lesa hinar merkilegustu upplýsingar um dýpt sjávar, hitastig, fiskigengd aflabrögð o.m.fl. f einu herberg inu gat að líta dálítið aðra teg- únd korta, teikningar af rann- sóknaskipum nágrannaþjóð anna, þær verður Fiskideildin að láta sér nægja. Pótt hún eigi glæsilegt húsnæði á landi, á hún ekkert, sem getur flot ið og verður því að fá inni á varð- og fiskiskipum, þegar --------:--------------------- Marcel Achllle Þekktur negrasöngvari í Sjálfstæðishúsinu Um helgina byrjar ameríski negrasöngvarinn Marcel Achille að skemmta gestum Sjálfstæðis- hússins. Þetta er kunnur söngvari, sem hefur komið viða fram, bæði í Bandarikjunum og f Evrópu. Hann hefur leikið í þremur kvik- myndum, starfað á Broadway, komlð alloft fram f NBC-sjón- varpsþáttum og skemmt á mörgum af þckktustu skemmtistöðum Evr- ópu, en þar hefur hann aðallega starfað að undanfömu. Marcel Achille syngur bæði dægurlög og óperettulög, og það sem meira er hann syngur einnig i óperum. Var hann nýkominn frá Barcelona en þar söng hann í Faust og Aida. Hann hefur mikla bassa-baritonrödd, og hefur feng- ið góða dóma um söng sinn hvar- vetna. Marcel Achille verður hér einn mánuð hjá Sjálfstæðishúsinu. Danski söngvarinn Tajmer, sem skemmt hefur gestum Sjálfstæðis- hússins að undanförnu fór til Kaúpmannahafnar í morgun. Hann lét ákaflegc vel af dvöl sinni hér og sagðist mundu koma aftur við fyrsta tækifæri. gera þarf mikilvægar rannsókn ir á hafi úti. IÐNAÐARDEILD Næst var Iðnaðardeildin heim sótt, en hún er önnur stærsta deild stofnunarinnar, hefur á<i> að skipa 15 manna starfsliði og er Óskar Bjarnason deildar- stjóri. Við Lækjarteig er bygg ingaefnarannsóknadeild til húsa en hún er þar í leiguhúsnæði og getur búizt við að standa á götunni nú einhvern daginn. Starfsemi deildarinnar er fólg in I ýmis konar rannsóknum á byggingaefni, t.d. burðarþois- eiginleikum, massa, leiðni o.fl. Gat þar að líta ýmis konar tæki, t.d. eitt sem slitur í sund ur stál, annað, sem sprengir steypu o.s.frv. Nú var afmælisbarnið sjálft, hús Atvinnudeildarinnar við há skólann heimsótt, en það hefur innan veggja meginhluta Iðnað ardeildar og Búnaðardeildina. Árið 1937 er hús þetta var byggt, gat það með góðu móti hýst alla starfsemi stofnunar- innar, en nú, 25 árum síðar nægir húsið engan veginn, þótt Fiskideildin og nokkur hluti Iðnaðardeildar séu fluttar burt. Allar líkur eru þó til að úr þessu máli greiðist, því að Reykjavíkurborg hefur úthlutað 48 hektörum lands á Keldna- holti til rannsóknastofnana land búnaðarins, og standa vonir til að hægt verði að hefja þar byggingaframkvæmdjr nú í vor. Iðnaðardeildin hefur með höndum umfangsmiklar efna- rannsóknir á sviði almennrar efnafræði og jarðefnafræði og eru virkjunarrannsóknir þar stór þáttur. Innan skamms mun verða tekin í notkun ný mat- vælarannsóknarstofa, og munu verkefni hennar verða ýmis konar rannsóknir á matvælum, aðallega landbúnaðarafurðum. BÚNAÐARDEILD Síðast var farið um Búnaðar deildina en hennir veitir for- stöðu Pétur Gunnarsson. í Búnaðardeild vinna 11 manns. Alþingi Aðalverkefni deildarinnar eru vlsindalegar rannsóknir og til- raunir í þágu jarðræktar og búfjárræktar. Er gengið var um húsakynni Búnaðardeildar bar margt merkilegt fyrir augu. Á stóru veggkorti mátti sjá hvernig fara á að því að fá eingöngu gráar eða hvítar ær með réttu vali kynbótagripa. Hægt var að fylgjast með korninu frá því er sáð þangað til það er komið í brauð. Á einu borði var tún um og kálgörðum komið fyrir á skemmtilegan hátt og voru þar kindur á beit, en ef betur var að gáð kom £ Ijós, að þetta var mjög smækkuð mynd af merkilegum beitilandsrannsókn um, sem nú er unnið að. Það er engin leið að gera hinni merkilegu starfsemi At- vinnudeildar háskólans skil í fáum orðum. Menn þurfa að kynnast henni sjálfir, sjá, hvað verið er að gera, til þess að þeir geti gert sér grein fyrir mikilvægi starfseminnar fyrir þjóðarframleiðsluna. Hefði því verið æskilegt að almenningi hefði verið gefinn kostur á að sjá yfirlitssýningu þá, er nú hefur verið komið upp, en því miður munu ekki hafa verið tök á því — að sinni. Athugasemd frá kjararáíi BIRB Eftirfarandi tilkynning hefur borizt frá Kjararóði B.S.R.B.: „Eins og kunnugt er, hafa að undanförnu farið fram viðræður aðila um kjaramál opinberra starfsmanna, samkvæmt lögum nr. 55 1962. Ekkert hefur ennþá miðað í samkomulagsátt og þvl horfur á, að Kjaradómur fái málið í heild til meðferðar. Ákvað því Kjararáð á fundi sínum í dag að reyna að ná sam- komulagi um fjölda launaflokka, ef það mætti leiða til þess, að samningar tækjust. Var þetta til- kynnt samninganefnd ríkis- stjórnarinnar á sáttafundi I dag. Tækist þetta taldi Kjararáð eðlilegt, að fjármálaráðherra notaði heimild laganna til að framlengja samningaaumleitanir á vegúm sáttasémjara um mán- aðartíma. Á fundi með sáttasemjara í dag var Kjararáð afhent afrit af tilkynningu fjármálaráðherra um frestun og jafnframt fréttatil- kynning um málið, sem ríkis- stjórnin hafði sent blöðum og út- varpi. Vill Kjararáð að gefnu því til- efni taka fram, að það telur ekki heppilegt á þessu stigi að efna til opinberra umræðna um málsmeð ferð við sáttaumleitanir í kjara- deilunni. en vegna fullyrðinga í fréttatilkynningu þessari þykir rétt að birta eftirfarandi útdrátt úr fundargerð samninganefndar ríkisstjórnarinnar og Kjararáðs frá 9. febrúar sl.: „Kristján Thorlacius lagði til f. h. Kjararáðs, að byrjað yrði á að ræða fjölda launaflokka, bil milli flokka og aldurshækkanir. Sigtryggur Klemenzson lagði til f. h. samninganefndar rikis- ins, að launaflokkaskipunin yrði könnuð til að ganga úr skugga um, hvort nauðsyn bæri til að fjölga launaflokkum meira en fram kemur í tillögum ríkisstjórn arinnar. Þessari tillögu hafnaði Kjara- ráð. Síðan var gert hlé á fundin- um. Eftir fundarhlé lýsti Sigtrygg- ur Klemenzson þeirri skoðun samninganefndarinnar, að þar eð ágreiningur hefði komið upp um, hvaða atriði skyldu fyrst tekin til umræðu, þ. e/ sjálfa dag- skrána, og með þvf, að umræður færu nú fram á hinum lögskip- aða tíma sáttasemjara, þá telji nefndin rétt, að sáttasemjari verði kallaður til“. Karjalainen forsætisráðherra Finnlands, sem er f heimsókn í Sovétríkjunum, hefur átt vlðræður við Nikita Krúsév forsætisráðh. í viðtali við fréttaritara NTB í Moskvu segir Karjalainen að þess- ar viðræður hafi verið hinar gagn- legustu. Hann kvaðst hafa orðið var umhyggju hjá Krúsév og stjórn hans fyrir Finnlandi og finnsku þjóðinni. Hámarksþóknun verkfræðinga aldraðs fólks. Byggingarsjóður Rætt var um staðfestingu á bráðabirgðalögum ríkisstjórnar- innar um hámarksþóknun fyrir verkfræðistörf á fundum neðri deildar Alþingis í gær. Lögin voru sett í maí, 1962, þegar ríkis stjórnin taldi útlit fyrir að ný gjaldskrá Verkfræðingafélags ís lands mundi valda stórkostlegri röskun á launamálum bæði hjá rfki og öðrum aðilum og auk þess óeðlilegum kostnaðarauka við margvísleg rannsóknarstörf og framkvæmdir, eins og segir f forsendum laganna. Kauphækk anir þær, sem verkfræðingar eftir Ásmund Einarsson höfðu reiknað sér voru allt að 32%. Frumvarpið var búið að vera hjá nefnd og þríklofnaði nefndin. Meirihlutinn, fulltrúar stjórnarflokkanna, vildu að bráðabirgðalögin yrðu staðfest. Fulltrúi Framsóknarflokksins lagði til að frumv. yrði vísað frá með rökstuddri dagskrá en full- trúi kommúnista skoraði á deild ina að fella frumvarpið. Urðu um þetta nokkrar um- ræður og tók m. a. til máls Ingólfur Jónsson, ráðherra. Lagði hann sérstaka áherslu á það að samþykkt frumvarpsins mundi skapa mjög hættulegt legt fordæmi í iaunamálum. Jafn framt gat hann þess að náðst hefði samkomulag við verkfræð inga um störf hjá rfkinu, var þar m. a. samið um ákvæðis- vinnu fyrir ýms störf. Einar Ingimundarson, Gunnar Jóhanns son, Björn Björnsson og Einar Olgeirsson tóku einnig til máls. í efri deild gerði Emil Jóns- son, ráðherra grein fyrir frum- varpi ríkistjórnarinnar um bygg ingarsjóð aldraðs fólks. Ræddi hann um nauðsyn þess að skapa öldruðu fólki aðstöðu til að búa að sínu. Efni frumvarpsins var rakið hér í blaðinu í gær. Um það sagði Ólafur Jóhannesson, einn af foringjum stjórnarandstæð- inga í efri deild að það væri spor í rétta átt. Taldi hann einnig rétt að Iáta athuga hvort ekki væri mögulegt að hækka hámarksaldur embættismanna. -i.. lááiiéí. iMtitfrtrifrryn ■mr - rrriiSKBtt

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.