Vísir - 01.03.1963, Blaðsíða 15

Vísir - 01.03.1963, Blaðsíða 15
VlSIR . Föstudagur 1. marz 1963. ■<M■WIIWWW KBgEa—WMMBl 15 áninn hátt á himni skein. Það vantaði ekki mikið á að hann væri kominn hæst á loft. Grænum fölva sló á himininn. Stjörnurnar skinu skært.' Það stirndi á snjóinn. — veggir skálanna voru glampandi hvítir. Ljósin í fangabúðunum máttu sín lítils. Þéttur dökkkleitur hópur manna hafði safnazt saman fyrir utan einn skálann. Fangarnir voru mætt ir í talningu. Þeir komu líka út úr öðrum skálum. En ekki heyrðist mannamál úr skálunum — hið eina, sem heyrðist, var marrið í snjón- um undan stígvélum. Nokkrir fanganna komu niður þrepin og fylktu sér, gegnt skálan- um. Fimm fremst, síðan þrír fyrir aftan. ívan slóst í þeirra hóp. Það var ekki svo bölvað, að standa þar, eftir- að hafa fengið sér svolítinn brauðbita. og vera með sígrettu í nunninum. Gott tóbak. Lettinn hafði ekki brugðizt/ honum þar. Sterkt og gott á bragðið. Smám saman drögnuðust aðrir fangar út um dyrnar. Tvær eða þrár fimmfaldar raðir fyigdu í kjöl- far þeirra. Þeir voru orðnir reiðir núna. Hvers vegna voru þessar rott ur að þvælast í ganginum? Hvers vegna komu þær ekki út? Hvers vegna ættum við að þurfa að hel- frjósa þeirra vegna? Enginn fangi sá nokkru sinni klukku eða úr. Hvaða gagn var . að þeim líka? Allt, sem fangi þarf að vita um tímann, er: Hljómar morgunkallið bráðlega? Hversu langt er til liðskönnunar? Hvað er langt fram að mat? Og hvenær hljóma síðustu höggin á járnrimla- verkinu? Allir sögðu, að kvöldliðskönnunin væri um níu-leytið. En þó var henni aldrei lokið klukkan niu, því að þeir endurtöldu stundum tvisvar eða þrisvar sinnum. Menn losnuðu ekki fyrr en kl. tíu. Og klukkan fimm morguninn eftir ráku þeir menn á fætur með þungri bar- 1 smíð á járnrimlaverkið. Ekki að undra, þótt Moldavian hafi skróp- að áður en vinnu var lokið í dag. Fangi hnígur í svefn alls staðar þar sem honum hlýnar. Menn misstu úr svo margra stunda svefn alla vik- una, að fangarnir sváfu í skálunum á sunnudögum — svo fremi sem þeir voru ekki reknir til vinnu. Nú streyma þeir út loksins. Yfir-skálavörðurinn og verðirnir voru að reka þá út og spörkuðu í afturenda þeirra. Það er eftir þeim bessum slóttugu skepnum. fremstu fangarnjr tii þeirra, sem voru síðbúnir. „Ætlið þið að vera sniðugir? Ætlið þið að fleyta rjómann ofan af? Ef þig hefðuð komið fyrr, hefðum við verið laus- ir úr talningunni fyrir löngu.“ Allur skálinn hafði nú tæmzt, 400 manns í áttatíu fimmföldum röð- um. Þeir mynduðu fylkingu, fimm í hverri röð fremst, og hinir fyrir aftan í losaralegri röðum. „Farið í röðina, þið þarna fyrir aftan,“ hópaði yfirskálavörðurinn. Þeir hreyfðu sig ekki, fjanda- kornið. 'T'sezar kom út, hríðskjálfandi og gerði sér upp veikindi. Á hæla hans komu fjórir skálaverðir, sitt úr hvorri skálaálmu, og fangi, sem stakk við. Þeir stilltu sér upp fremst. s að n var ívan í þriðju röð. Tsezar var sendur aft- ast í fylkinguna. Vörðurinn kom líka út. „Fimmfalda röð,“ hrópaði hann kröftuglega til þeirra, sem voru aftarlega í fylkingunni. „Fimm- falda röð,“ hrópaði yfirskálavörð- vörðurinn aftur, jafnvel enn kröft- uglegar. Mennirnir hreyfðu sig ekki, fjand inn.hafði það. Yfirskálavörðurinn æpti frá hlað inu til þeirra sem voru aftast í fylkingunni, sótbölvaði og barði á mönnum. En hann vah vandlátur í valinu á þeim, sem hann barði. Hann lúskr- •ngj9§u;i uiiacj p suisqb iqb Raðirnar fylktu sér. Hann kom aftur og hrópaði með vörðunum: „Fyrsta, önnur, þriðja röð. Óðara og ein röðin hafði verið kölluð fram, fóru þeir úr fylking- unni og hlupu inni í skálann. Öllu gert skil við yfirvöldin í dag. Öllu til skila haldið, nema það j yrði önnur talning. Þessar afætur voru svo heimskar, að þær töldu verr en nokkur ótíndur smali, því að þótt hann sé hvorki Iæs né skrif andi, veit hann upp á hár, hvort vantar lamb þegar hann rekur fjár- hópinn. Og hvaða gagn var að því, þó að þessar afætur væru þjálfaðar. Síðastliðinn vetur höfðu þeir ekki haft neinn þurrklefa, og fangarnir urðu að geyma flókastígvélin í skálunum um nætur. Og ef talning in var endurtekin, voru allir rekn- ir. út aftur, í fyrsta, annað, eða þriðja sinn. Þeir voru vanir að raða þeim upp, þótt þeir væru þeg- ar komnir úr — þeir gátu aðeins vafið sig inn í teppi. Síðan hafði „Hvað . er þetta," hrópuðu | þurrkherbergið verið byggt, sem rúmaði þó ekki alla í einu, en nógu stórt handa hverjum vinnuflokki til þess að þurrka stígvélin annan eða þriðja hvern dag. Nú fór önnur talning fram í skálanum. Þeir ráku einfaldlega fangana úr annarri álm- unni yfir í hina og töldu þá um leið, og þeir gengu fram hjá. Tvan varð ekki fyrstur til baka, en hann hafði auga með þeim, sem voru á undan honum. Hann hljóp að fleti Tsezars og settist á það. Hann fór úr stígvélunum og klifraði upp í efra flet á bálki rétt við ofninn. Hann setti stígvélin sln þaðan ofan á ofninn. Þessi staður tilheyrði þeim, sem 'varð fyrstur til baka, Svo fór hann aftur í flet Tsezars. Hann sat þar með kross- lagða fætur, og gætti með öðru auga eigna Tsezars (þeir gátu hæg- lega þrifið pakkann hans undir höfðulaginu) og með hinu auganu gætti hann sinna (þeir gætu ýtt stígvélunum af ofninum). „Heyrðu mig,“ hrópaði hann, „heyrðu mig, Rauðhaus, viltu að gemlurnar í þér fái að kenna á þessu stígvéli? Legðu þín eigin stfg- vél þarna, en snertu ekki á ann- arra manna itígvélum." Fangarnir streymdu nú inn. . Piltarnir I 20. vinnuflokki hróp- uðu: „Komið með stígvélin ykkar." Óðar og þeir voru farnir með stígvélin úr skálanum, var dyrun- um Iæst á eftir þeim. Þegar þeir komu til baka, hrópuðu þeir: „Hleypið okkur inn, yfirskála- vörður.“ Verðirnir söfnuðust saman í skrif stofu fangabúðastjórans með Iitlu spjöldin sfn og tóku nú til við skriffinnsku og grennsluðust um, hvort nokkur hefði flúið eða hvort allt væri með felldu. Jæja, ívan þurfti ekki að hugsa um þess háttar þá um kvöldið, Þarna kom Tsezar askvaðandi milli bálkanna. „Þakka þér fyrir, ívan. “ ívan kinkaði kolli og skauzt upp í fletið sitt eins og íkorni. Nú gat hann lokið við að borða brauðið, reykt aðra sígarettu og farið að sofa. Þetta hafði verið góður dagur fyr ir hann, hann var í Ijómandi skapi, svo góðu skaþi, að hann gat ekki hugsað sér að fara að sofa strax. JTann þurfti ekki að hafa mikið fyrir því, að búa um sig: Að- eins að svipta teppinu ofan af dýn- unni (Langt var nú síðan hann hafði sofið við lök — það hlýtur að hafa verið heima árið ’41; honum fannst jafnvel skrýtið, að konur skyldu gera svona mikið veður út af lökum alltaf að strauja þau). Höfuðið á koddann, fylltan hefil- spónum, lappirnar á jakkaermina; frakkann ofan á teppið — og dýrð sé þér, drottinn. Enn einn dagur liðinn. Þakka þér, að ég er ekki í fangaklefanum í nótt. Hér er enn- þá þolanlegt. Hann sneri höfðinu út að glugg- anum, en Ályosha, sem svaf í næsta fleti við hann í efri bálk handan við lítið tréskilrúm, lá andfætis til þess að notfæra sér ljósið. Hann var aftur farinn að lesa í biblfunni. Rafmagnsljósið var ekki fjarri. Hægt var að lesa og jafnvel sauma við það. Alyosha heyrði ívan hvísla bæn- ir og sneri sér að honum og sagði: „Þarna sérðu, ívan, sál þín þyrst- ir í. að biðja til drottins. Hvers vegna gefurðu henni því ekki frelsi?" ívan horfði á hann út undan sér. Augu Alyoshas ljómuðu eins og tvö kertaljós. „Jæja, Alyosha," sagði hanp and- varpandi, „þessar bænir eru eins konar bænaskjöl okkar til yfirvald- anna. Annaðhvort komast þau ekki leiðar sinnar eða þeim er skilað aftur með orðið „Frávfsun" krotað yfir þau.“ Fjórir innsiglaðir póstkassar voru fyrir utan skrifstofu fangabúða- stjórans. Þeir voru tæmdir einu sinni í mánuði af yfirmanni f Ör- ygginu. Mörgum skriflegum beiðn- um var stungið f kassana. Bréf- ritararnir biðu í eftirvæntingu og töldu vikurnar: Svar kemur eftir tvo mánuði, einn mánuð ... En svarið kemur ekki. Og ef það kemur, er það afsvar. „En það er af því að þú biður of sjaldan og slælega, ívan Sjúkov. Og án þess að reyna nógu mikið og oft. Þess vegna er bænum þínum ósvarað. Menn mega aldrei hætta að biðja. Ef þú ert sanntrúaður, geturðu lyft fjalli ..” ívan glotti og vafði sér aðra sígarettu. Hann fékk eld hjá Eist- lendingnum. „Vertu ekki að þessu þrugli, Aly- oscha. Ég hef aldrei séð fjalli lyft. Og satt að segja hef ég aldrei séð fjall. En hvað um þig, sem baðst og baðst í baptistasöfnuði þfnum í Kákasus, sástu nokkru sinni fjall hreyfast?” Heilsuvernd Síðasta námskeið vetr- arins í tauga- og vöðva- slökun og öndunaræf- ingum fyrir konur og karla, hefst mánudag- inn 4. marz. Upplýsingar f síma 12240 eftir kl. 20.00. VIGNIR ANDRÉSSON, íþróttakennari. JOE sishop; A ZUG5S7 WHITE HUNTER' ZUKOFF, A FLASHY- 7Z.ESSIKJG 5UT COMÉETENT Þrír af þátttakendunum í kvik- myndaleiðangri Anagram kvik- myndafélagsins áttu eftir að koma við sögu í lífi Tarsans . . . Poe Bishop, ruddalegur veiði- maður . . . Zukoff, stjórnand- inn . . og Ivy Vines, spillt og eigingjörn leikkona. '£"i-ifiH P E R M A, Garðsenda 21, sfmi 33968 Hárgreiðslu- og snyrtistofa Dömur, hárgreiðsla við allra hæfi. T JARN ARSTOFAN, Tjarnargötu 10, Vonarstrætismeg in. Sími 14662, Hárgreiðslustofan HÁTÚNI 6, sími 15493. Kárgreiðslu- og snyrtistofa STEINU OG DÓDÓ, Laugavegi 11, sími 24616. Hárgreiðslustofan SÓLEY Sólvallagötu 72, Sfmi 14853. * Hárgreiðslustofan PIROLA Grettisgötu 31, sími 14787. Hárgreiðslustofa ' ESTURBÆ J AR Grenimel 9, sfmi 19218. Hárgreiðslustofa SVÖNU ÞÓRÐARDÓTTUR, Freyjugötu 1, sími 15799. Hárgreiðslustofa AUSTURBÆJAR (María Guðmundsdóttir) Laugavegi 13, sfmi 14656. Nuddstofa á sama stað. Sigurgeir Sigurjónsson hæstaréttarlögmaður IVlálflutningsskrifstofa Óðlnsgötu 4. Simi 11043. f Odýrar , telpuúlpur esa

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.