Vísir - 11.03.1963, Síða 2
JL
VlSIR . Mánudagur 11. marz 1963
^ k.
'^rr ttd i
rv
f//jffl4MM'////////4M.W/////ÆMZ/////.
Úr leik ÍR og FH í handbolta í gær. Gunnar í ÍR skýtur að marki en Hjalti í FH reynir að verja.
Handknatfleiksmótið:
FH TAPADIFYRIRIR
Körfuknnttleikur:
Sigurmöguleikar
Ármanns aukast
Unnu KR með yfirburðum 61:43
í gærkveldi voru leiknir tveir
leikir í meistaraflokki karla, á ís-
landsmótinu í handknattleik, átt-
ust þar við Víkingur og KR og FH
og ÍR. Fyrirfram var búizt við
spennandi leikjum, en úrslit þeirra
komu mjög á óvart. Fyrri leikurinn
sem var á milli KR og Víkings
var skemmtilegur en aldrei spenn-
andi. Vikingarnir byrjuðu vel,
komust í 3—0 áður en KR tókst
að svara fyrir sig, en þá með góðu
marki frá Sigurði Óskarssyni.
Fyrri hálfleikur var Vikings áð
öllu leyti sem og allur leikurinn,
þeir höfðu ætíð yfirhöndina, allt
frá 4 mörkum og niður í 1 mark,
en það var það næsta er KR
komst til að jafna. Sfðari hálfleik-
ur var vasaútgáfa af þeim fyrri
hvað markatölu snertir, en Vík-
ingarnir voru síðri í þeim leik.
—í hálfleik var . staðan 44:11
en lokatalan var 25—23. Sann-
gjarn sigur Víkings. KR-ing-
arnir komu inn á með sigur í
huga, og auðkenndist leikur þeirra
af því, hin slæma byrjun þeirra
var liðirtu til falls, þeir byrjuðu
með stórskotahríð er heppnaðist
illa og var því ekki að sökum að
spyrja, að allt gekk á afturfótun-
Halldór Ingvarsson 3,11
Jón Pétursson, KR, 3,10.
Pristökk án atrennu:
íslandsmeistari Jón Þ. Ólafsson,
ÍR, 9,61
Jón Pétursson, KR, 9,57
Kristján Kolbeinsson, IR, 9,19.
Á laugardagskvöldið voru leikn
ir tveir leikir í körfuknattleiksmót
inu. Ármann og Skallagrimur léku
í I. flokki og í meistaraflokki átt-
ust við KR og Ármann.
Fyrri leikurinn var milli Ár-
manns og Skallagríms og var lield
ur ójafn. Ármann sigraði með yf-
irburðum 63:38 eins og við mátti
búast, enda miklu leikvanari. Borg
nesingamir ættu hins vegar að
geta náð upp ailgóðu liði, eink-
um ef þeir gerðu sér ljóst, hvaða
þýðingu samleikurinn hefur, en
hann er allur í molum hjá þeim.
Annars háir Borgnesingum (og
vafalaust fleirum liðum) mest,
að leikfimissalir við skóla úti á
landi eru óþarflega litlir.
Seinni leikinn léku eins og fyrr
segir KR og Ármann í meistara-
flokki. Ármenningarnir skoruðu
fyrstu körfurnar, en KR svaraði
strax og var leikurinn jafn að stiga
tölu lengst af fyrri hálfleik og
skiptust liðin á að skora. Hvað
um hjá þeim það sem eftir var.
Hinn gamalkunni leikmaður úr
KR- Þorbjörn Friðriksson (Tobbi)
lék nú með liöinu á ný og var sem
áður fyrr klettur f vörn, en sókn-
arleikur hans var neikvæður. En
það er mfnus fyrir KR, að af,,öll-
um þeim leikmönnum er leika
fyrir utan, eru aðeins 2 er geta
sett mörk. Vörn KR var allsæmi-
leg nema í hornúnum, en þar
komu flest mörkin, á versta tíma
fyrir liðið. Sigurður Óskarsson
var bezti maður varnarinnar og
átti einn sinn bezta leik f ár. í
sókninni bar mest á Karli Jóhanns
syni sem fyrr, en Reynir var ekki
upp á sitt bezta. Heins átti og
góðan leik. Guðjón í markinu varði
lítið í leiknum og skipti við hinn ó
útreiknanlega varamann sinn Svein
Kjartansson, er 15 min. voru til
leiksioka. Sveinn átti mjög góðan
leik og bjargaði KR frá að fá á sig
Framh. á bls. 5.
samleik og vörn snertir var Ár-
mann betra. Er leikar stóðu 15:14
fyrir KR fór hinn ákveðni sóknar
leikur Ármanns að bera árangur,
og skoruðu þeir 13 stig á móti
einu það sem var eftir hálfleiks-
ins, sem lauk 27:16 fyrir Ármann.
Seinni hálfleikur byrjaði, á lfkan
hátt og þeim fyrri lauk. Ármenn-
ingarnir skora 9 stig áður en KR
fengi svarað,, og höfðu þar með
20 stig yfir. Var leikurinn nokkuð
jafn um hríð, en þó höfðu Ár-
menningarnir alltaf frumkvæðið,
höfðu mest 27 stig yfir (56:29).
Sótti KR þá í sig veðrið og skoraði
10 stig í röð. Um þetta leyti
skiftu KR-ingar um varnaraðferð,
tóku upp maður á mann í stað
svæðisvarnar, sem þeir höfðu beitt
allan leikinn fram að þessu, með
litlum árangri. En það var of seint
leiknum var að verða lokið og
sigur Ármenninga að verða stað-
reynd. Leiknum lauk með 61:43
fyrir Ármann. Davíð Heigason (19
stig) var áberandi bezti maðurinn
á veliinum, byggði hann upp sam
leik Ármanns, hélt uppi miklum
hraða og átti góðan varnarleik.
Sigurður Ingólfsson (Á) átti sinn
bezta leik til þessa með meistara-
flokki (skoraði 12 stig). Hann á-
samt Herði og Birgi voru sem
klettar 1 vörn og hirtu nær öll-
fráköst (rebounds). Liðið átti ann-
ars góðan leik í heild. Einstökum
leikmönnum hjá KR er vart hægt
að hrósa. Þeirra skárstur var Kol-
beinn (13 stig). Hittni liðsins var
mjög léleg, en samt var haldið á-
fram að skjóta í tíma og ótíma.
Það skildi þó aldrei vera að ein-
hver hafi ætlað sér að verða stig-
hæstur í keppninni?
Að lokinni fyrri umferð f meist-
araflokki standa stigin þannnig, að
ÍR hefur unnið alla sína leiki og
er með 8 stig, næstlr koma Ár-
menningar með einn leik tapaðan
og 6 stig, þá KFR með 4 Stig, KR
með 2 og ÍS ekkert. Næst verður
leikið á fimmtudagskvöldið kemur
að Hálogaiandi. Þss.
JónÞ. íjórfaldur ís-
iandsmeistariígær
Meistaramót Islands' í frjálsum
iþróttum fór fram I KR-heimilinu
við Kapplaskjólsveg í gær. 31 kepp
andi var skráður til móts, frá 6
félögum og fþróttasamböndum.
mótið fór hið bezta fram og var
keppni í ýmsum greinum geysi
hörð. Sérstaklega yar spennandi
keppnin í þrístökki án atrennu en
ar sigraði Jón Þ- Ólafsson eftir
arða keppni við nafna sinn Pét-
ursson úr KR. Valbjörn Þorláks-
son sigraði í stangarstökki, stökk
4,25 og átti góða tilraunir við 4.38,
en íslandsmet Valbjargar innan-
þúss er 4,36. I hástökki varð
keppnin um 3. sætið mjög jöfn og
stukku þeir Kjartan Guðjónsson,
KR, og Sigurður Ingólfsson, Ár-
ftianni, báðir sömu hæð 1,75. Þeir
drógu því um hver ætti að hljóta 3.
sætið heldur en að keppa sín í
milli upp á nýtt, og varð Kjartan
hlutskarpari þar. — Meistaramót
drengja fór einnig fram í gær og
var því komið fyrir með keppni
hinna eldr-i. Úrslit í einstökum
greinum urðu, sem hér segir:
Kúluvarp:
Islandsmeistari Jón Pétursson, KR,
14,72
Arthúr Ólafsson, Ármanni 14,01
Kjartan Guðjónsson, KR 13,42.
Kúlpvarp (drengir):
Islandsmeistari Guðmundur Guð-
mundsson, KR, 11,38
Erlendur Valdimarsson, ÍR, 11,01
Ólafur Guðmundsson, KR, 10,52.
(Notuð var fullorðins kúla).
Stangarstökk:
íslandsmeistari Valbjörn Þorláks-
son, KR, 4,25
Páll Eiríksson, FH, 3,60.
Stangarstökk (drengir):
Islandsmeistari Kári Guðmunds-
son, Ármanni, 3,00
Hreiðar Júlíusson, ÍR, 3,00
Ólafur Guðmundsson, KR, 2,80.
Hástökk með atrennu:
Islandsmeistari Jón Þ. Ólafsson,
ÍR, 2,05
Valbjörn Þorláksson, KR, 1,80
Kjartan Guðjónsson, KR, 1,75
Sigurður Ingólfsson, Ármanni,
1,75.
Hástökk án atrennu:
íslandsmeistari Jón Þ. Ólafsson,
IR, 1,66
Halldór Ingvarsson 1,66
Karl Hólm, ÍR, 1,55.
Langstökk án atrennu:
íslandsmeistari Jón Þ. Ólafsson,
ÍR, 3,19
A laugardaginn fór fram fyrsta lyftingamót hér á Iandi Hér sjást sigurvegarar í fjórum flokkum.
Þeir eru talið frá vinstrl: Hörður Markan í léttavigt, Guðmundur Sigurðsson f millivigt, Gunnar
Alfreðsson f léttþungavigt og Svavar Karlsen f milliþungavigt.
n
M