Vísir - 11.03.1963, Blaðsíða 8
8
VÍSIR . Mánudagur 11. marz 1963.
VISIR
WMWpWgaa ' '' '......... ■*''v^v' y" ' ' ' í '
Útgefandi: BlaðaUtgáfan VlSIR
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson. Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Porsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. y
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði.
! lausasölu 4 kr eint. - Simi 11660 (5 linur).
Prentsmiðja VIsis — Edda h.f
Hió góða hjartalag
Þau tíðindi hafa gerzt að kommúnistar á Aiþingi
hafa lagzt gegn því að átján ungverskir flóttamenn,
sem hér hafa dvalizt í 6 ár fái íslenzkan ríkisborgara-
rétt. Samkvæmt ríkisborgararéttarlögunum er gert ráð
fyrir því að norrænir menn geti fengið ríkisborgara-
réttinn eftir 5 ára dvöl hér á landi en annarra þjóða
menn eftir 10 ára dvöl. Er í frumvarpinu um ríkis-
borgararétt Ungverjanna gert ráð fyrir undanþágu frá
þessu ákvæði.
Nú hefir kommúnistinn í allsherjarnefnd neðri
deildar, Gunnar Jóhannson lagzt gegn því að Ungverj-
amir fái ríkisborgararéttinn og þar að auki hnýtir
hann í þá í minnihlutanefndaráliti sínu. Þar með hefir
línan verið lögð.
Kommúnistar hafa jafnan sjálfir sagzt vera vemd-
arar lítilmagnans. Þeir hafa kvatt sjálfa sig til þess að
vera málsvarar þeirra, sem við lökust kjörin búa,
þeirra sem kúgaðir em og ranglæti beittir. En hvað
kemur á daginn? Flóttafólkið, sem hingað kom blá-
snautt fyrir sex árum sækir nú um að fá hér fram-
tíðarheimili. Ekkert þess kunni tungumál þess lands
sem það flýði til og lífsbaráttan reyndist því hörð.
Nokkrir festu hér ekki yndi, lentu í nokkrum útistöð-
um og hurfu aftur heim til Ungverjalands. Aðrir ílent-
ust og eiga ekki aðra ósk betri en þá að mega dveljast
hér áfram. Og við þeirri ósk munu flestir íslendingar
fúsir að verða.
Nema „verndarar lítilmagnans“. Nema mennimir
sem berja sér á brjóst og segjast vera málsvarar bróð-
urhugar og mannréttinda. Nema íslenzkir kommún-
istar.
Þeir telja sér sæma að úthýsa hinum átján Ung-
verjum. Og hver er sök þeirra? Hún er sú að hafa
yfirgefið land, þar sem kommúnisma hafði verið kom-
ið á. Afbrot þeirra er ekki annað en það að hafa frem-
ur viljað búa á íslandi en í landi kommúnismans, —
jafnvel þótt þar væri föðurland þeirra. Og yfirgefur
þó enginn föðurland sitt fyrir lífstíð fyrr en í fulla
hnefana.
Þess vegna ætla íslenzkir kommúnistar að reyna
að koma í veg fyrir að Ungverjarnir átján eignist hér
annað föðurland. Það er munur að hafa gott hjartalag.
Sjónvarpskerfin tvö
Vísir benti á það á laugardaginn að þeim f jölgaði
nú óðum, sem festa kaup á sjónvarpstækjum. Hins
vegar munu slík tæki reynast flest ónothæf ef íslenzka
sjónvarpið verður stofnað með evrópska sjónvarps-
kerfinu því ljóst að miklum fjármunum væri á glæ
kastað.
Því ríður á að sem fyrst sé tekin ákvörðun um
hvort sjónvarpskerfið verður notað hér á landi svo
almenningur á Suðurlandi geti hagað tækjakaupum í
samræmi við það.
Steinþór Guðmundsson kennari, ásamt Iðju-Birni og fleiri kommúnistum stofnuðu hlutafélagið
garð 1940. Hlutafé: 15 þús. kr.!
Mið-
( þessari grein
)g annari, sem
^ birtist hér í blað-
inu I dag og á morgun,
er nokkuð rakin saga
kvæmda hafi
flokknum.
komið
íslenzkir kommúnist-
milljónafyrirtækja reyk- ar hafa sjaldan verið við
um hðmarki sfnu f vopnaðri
uppreisn gegn hervæddri yfir-
stétt Islands". /
Einar Olgeirsson mælti þá
sannari orð en hann hefur ef
til vill sjálfan grunað. Allir vita
að kommúnistar hafa hvergi
komizt til valda nema með
„vopnaðri uppreisn" og blóðs-
Mffljónafyrirtæki
vískra kommúnista. I
Sósíalistafélag Reykja-
víkur eru innan við eitt
þúsund manns. Engu að
síður hefir flokkurinn
komið á fót á síðustu ár-
um mörgum fyrirtækj-
um og byggt stórhýsi
hér í borg, sem eru tug-
milljóna króna virði.
Fróðlegt er að rannsaka
hver saga þessara fyrir
tækja er og eðlilegt er
að sú spurning vakni
hvaðan fjármagnið til
þessara stórfelldu fram-
Ragnar Ólafsson hrl., einn
tryggasti fylgismaður komm-
únista og frambjóðandi þeirra.
Var einn þeirra sem stofnuðu
niilljónafyrirtækið Hóla h.f.
eina fjölina felldir. Þeir
hafa áratugum saman
brugðið sér í allra kvik-
inda líki, til þess að
reyna að tæla fólk ty
fylgis við sig. Þeir hafa
verið fylgjandi „vopn-
aðri uppreisn“ hér á
landi, þeir hafa verið
„með her“ og „móti her“
til skiptis, allt eftir því,
hvað hefur hentað þeim
og hinum austrænu læri-
feðrum þeirra og hús*
bændum hverju sinni.
En kommúnistar sáu einnig
fljótlega, að byltingarboðskap
ur þeirra yrði næsta vaxtarlítil\
í íslenzkum jarðvegi. Þesa
vegna höguðu þeir seglum eftii
vindi og breyttu um baráttuað-
ferðir.
Einar Olgeirsson sagði áður:
„Kommúnistaflokkurinn vil\
byltingu, af því að hann vil\
sócialisma og veit, að honum
Verður ekki komið á öðruvlsl,
eins og reynzlan hefur bezt
sannað 1 Rússlandi og Þýzka-
landi Þess vegna á sá verka-
lýður, sem ætlar að afnema
þetta auðvaldsskipulag, enga
aðra leið en vægðarlausa dæg-
urbaráttu fyrir hagsmunum sín-
um, háða með verkföllum og
hvaða öðrum ráðum sem duga,
með rótfestu I þýðingarmestu
vinnustöðvum auðvaldsfram-
leiðslunnar, og sú verkfallsbar-
átta leiðir til sífellt skarpari
árekstra við burgeisastéttina og
ríkisvald hennar og nær að Iok-
úthellingum. Dæmi er óþarft að
nefna. Þau eru flestum f fersku
minni. En þessar ofstækisfullu
uppreisnarhótanir unnu flokkn-
um ekki vinsældir eða kjörfylgi.
Þá var breytt um stefnu í orði.
kveðnu:
„Flokkurinn starfar á lýðræð-
isgrundvelli innan vébanda
sinna og utan og telur rétt þjóð-
armeirihlutans skýlausan til að
ráða málum þjóðarinnar, en álít-
ur lýðræðinu í sinni núverandi
mynd mjög ábótavant, enda full
komið lýðræði aðeins hugsan-
legt á grundvelli socíalismans.
Flokkurinn berst þó fýrir þvl að
bæta lýðræðið og fullkomna
það og vill koma í veg fyrir að
því sé misbeitt gegn'hinum vinn
andi stéttum. Jafnframt telur
flokkurinn eitt af höfuðverkefn
um sínum að verja lýðræðið
gegn öllum árásum ofbeldis-,
einræðis-! og afturhaldsflokka
Steinþór Guðmundsson kennari,
fyrrv. formaður Sósialistafélags
ins stjórnarformaður milljóna-
félagsins Miðgarðs h.f.