Vísir - 11.03.1963, Side 3
VlSIR . Mánudagur 11. marz 1963,
3
V/.V.V.V
f gær lauk hinu harða' skák-
einvígi milli keppinautanna
gömlu Friðrlks Ólafssonar og
Inga R. Jóhannssonar. Höfðu
þeir orðið jafnir á meistaramóti
Reykjavíkur og urðu því að
heyja fjögurra skáka einvígi til
að fá úr því skorið hvor yrði
meistari.
Einvígi þetta var frá upphafi
mjög spcnnandi. Þeir Friðrik og
Ingi hafa lengi fylgzt að í skák
keppnum ,en Friðrik að jafnaði
borið hærri hlut í þeim skipt-
um. En upp á síökastið hafa
menn þótzt merkja það að nokk
uð væri farið að draga af Frið
rik, þar sem hann yrði nú að
verja tíma sínum í lögfræðilest
ur undir próf. Kom það m.a.
fram í því að hann tapaði skák
fyrir komungum pilti. Af
þessu Ieiddi spennuna, skyldi
það nú gerast í fyrsta sinn, að
Friðrik biði Iægri hlut fyrir
Inga.
Ekki dró það úr spennunni,
þegar Ingi náði sér vel á strik
í tveim fyrri skákunum. Eftir
þær hafði hann ll/2 vinning
móti y2 vinning Friðriks. Þá
þótti mörgum sýnt, að Friðrik
myndi tapa. Hann gæti vart
unnið báðar skákirnar.
En nú tók Friðrik sig harka
lega á. Hann sagði einhvers stað
ar, að nú væri hann f hefndar-
hug og gamli meistarinn sýndi,
að enn býr kraftur í honum.
Þegar lokaskákin var tefld, var
mikið fjölmenni saman komið f
skáksölunum og nú brást Frið-
rik ekki aðdáendum sínum. Frið
rik varðist snarpri sókn Inga
og hóf sfðan gagnsókn. Undir
lokin var hann hyiltur af áhorf
endum þegar sigurinn var vfs^
Efri myndin er af keppinautunum Friðriki og Inga, tekin í gær.
S
Á neðri myndinni sést Ingvar Ásmundsson skýra skákina jafnóðum út fyrir áhorfendum.
'.V.V.V
Leikdómur —
Frh. af 7. sfðu:
túlkun sumra leikara. Allt eru J«
þetta smáatriði en safnast þeg- ■!
ar saman kemur. Heildarsvipur !j
sýningarinnar er góður en hefði J.
verið hreint afbragð ef ofurlítið
betur hefði verið að gætt. Ij
T leikritinu eru fimm mjög •!
þýðingarmikil hlutverk en í «J
yerkinu skiptir samstillingin
raunar geysilegu máli svo að jj!
hvert smáhlutverk þarf að nýt- «J
ast til fulls Regfna Þórðardóttir
leikur geðveikralækninn • af '!
miklu öryggi og hefur fullt vald "
á þeirri túlkunaraðferð sem hún
hefur kosið í samráði við leik-
stjórann. Hitt er annað mál
hvort sá skilningur er réttur.
Áður en vikið að taugakipringn-
um í andlitinu sem ég er and-
vfgur þvi mér finnst hann
skemma áhrif hins óvænta. All-
ar hreyfingar Regínu á sviðinu
voru fastmótaðar og hnitmið-
aðar og framsögnin festuleg og
ákveðin. í lokaatriðinu hefði ég
þó kosið meiri ögun og stillingu
í stað hrópa og bægslagangs,
ef til vill hefði mátt ná enn
sterkari áhrifum með þvi að
lækka röddina og hreyfingar
minni en örvæntingarfyllri. En
um slíkt má deila og leikur
Regínu í heild var mjög góður.
En hlustunarpípan skemmdi
gervi hennar, yfirlæknir á geð-
veikrahæli gengúr tæpast um
með hlustunarpípu um hálsinn.
Það er þó Gfsli Halldórsson sem
að minni hyggju nær lengst í
listrænni túlkun á þessari sýn-
ingu. Hin stillta og hljóðláta
túlkun hans á hinum ógæfu-
sama vísindamanni ber ekki ein-
asta vott um fullkominn skiln-
ing á viðfangsefninu heldur vex
hann inn í hlutverkið og verður
gamgróin því, persónan birtist
íifandi og fullkomlega eðlileg í
meðferð hans. Sömuleiðis er
Helgi Skúlason sannfærandi í
hlutverki Einsteins og gervi
hans er framúrskarandi. Hann
vinnur einnig á hæglæti og still
ingu án þess þó að missa af
nokkrum blæbrigðum í umbreyt
ingaratriðinu. Hins vegar passar
Guðmundur Pálsson ekki í hlut
verk Newtons. Hann nær þó
mjög.sæmilegum tökum á hlut-
verkinu framan af en leikurinn
slaknar allur þegar til átakanna
kemur. Framsögnin verður þá í
óþægilegum kalltón og hreyf-
ingarnar virðast erfiðar og þar
af leiðandi óeðlilegar. 1 loka-
kynningunni fær rödd Guðmund
ar aftur sinn eðlilega hreim og
þá sést munurinn geinilega.
Þorsteinn Ö. Stephensen leikur
Voss lögreglufulltrúa og nýtir
sitt hlutverk til fulls eins og
við mátti búast. Einkum tekst
honum vel upp í samtölum sín
um við geðsjúklinganna.
/Ánnur hlutverk eru smærri
og yfirleitt vel af hendi
leyst Guðrún Stephensen er
kannski óþarflega hörkuleg i
hlutverki yfirhjúkrunarkonunn-
ar en Helga Bachmann gerir
sinni hjúkrunarkonu mjög
þokkaleg skil. Knútur Magnús-
son setur skemmtilegan svip á
sýninguna með sannfærandi
túlkun trúboðans og Helga
Vaitýsdóttir er að venju svip-
míkil en kannski helzti hjákát-
lega sveitamannleg. Steinþór
Sigurðsson gerði snotur leik-
|jöld og virðist hann vera orð-
inn mjög fær leiktjaldamálari.
Beiting ljósa var með ágætum.
Um þýðingu Halldórs Stefáns-
sonqr er það að segja að hann
virðist ekki átta sig nógu vel á
því að ekki fer allt vel í ís-
lenzku talmáli þótt það njóti sín
með ágætum í þýzku, kom það
til dæmis fram í óbreyttri endur
tekningu frá spurningu til
svars. Var þýðingarblær stund
um augljós og hefði mátt bæta
mjög ur því með lítilli fyrirhöfn.
Þrátt fyrir ýmsar minni hátt-
ar misfellur sem hér hefur
verið vikið að er sýningin i
heild með ágætum, enda kom
það skýrt fram í fögnuði áhorf-
enda í leikslok. Leikfélag
Reykjavíkur hefur hér ráðizt tii
atlögu við mjög erfitt verkefni
og tekizt að leysa það með
prýði. Njörður P. Njarðvík.
Banaslys —
Framhald af bls. 16.
séð þegar það varð, biður lög-
reglan þann hinn sama að koma
til viðtals.
Rétt eftir kl. 1.30 e. h. kom maö-
urinn, sem valdur var að slysinu,
til lögreglunnar og skýrði frá
málavöxtum. Þetta var tvítugur
piltur og kvaðst hann hafa verið
á ferð eftir Bústaðaveginum, en
allt í einu séð hvar lítill drengur
kom út úr hliði og hljóp út á göt-
una beint fyrir framan bílinn
Kvaðst hann hafa snarbeygt en {
sömu andrá heyrði hann skell
og sá barnið hverfa. Ekki taldi
hann þó að hjólin mundu hafa
farið yfir barnið, enda telur 'lög-
reglan heldur ekki beinlínis ltk-
legt að svo hafi verið.
Ökumaðurinn sagðist ekki hafa
hemlað, bílinn hafi runnið áfram
og komið hafi á sig ofsalegt fát.
Kvaðst hann hafa átt í haðri bar-
áttu hið innra með sér hvað gera
skyldi, en brast kjark til að snúa
við á slysstað. Ók hann fyrst á
vinnustað ,en síðan heim til sln
til hádegisverðar. Skýrði hann
stjúpa sínum þá frá málavöxtum
og sagði stjúpi hans honum að
gefa sig þegar fram við lögregl-
una og komu þeir saman þangað
eftir hádegið á laugardaginn.
Þetta er þriðja dauðaslysið í
umferð í umdæmi Reykjavíkur frá
áramótum en áttunda í röðinni á
öllu landinu.