Vísir - 11.03.1963, Qupperneq 5
VÍSIR . Mánudagur 11. marz 1963.
ri.i
Iþróttir
Frarnhald af bls. 2.
mjörg mörk frá Víking. Karl og
Reynir voru markhæstu menn KR
sem fyrr, báðir með 8 mörk. Lið
Víkings var vel að sigrinum kom-
ið, léku hratt og örugglega og án
nokkurs fums, sendingar liðsins
eru góðár enda allir leikmenn liðs-
ins jafnir. Pétur Bjarnason var sem
fyrr heilinn í liðinu, en án hans
væri liðið ekki það sem það er í
dag. Jóhann Gíslason átti einn
sinn bezta leik í þetta sinn, og
sama má segja um Björn Bjarna-
son. En áberandi skemmtilegasti
maður liðsins er hinn óviðjafnan-
legi Sigurður Hauksson, sem vinn-
ur hug allra er á hann horfa með
hreinum og prúðum leik, og mættu
aðrir leikmenn liðsins taka hann
sér til fyrirmyndar um sannan
íþróttaanda á leikvelli. Dómari í
leiknum var Sveinn Kristjánsson
og dæmdi illa.
Seinni leikurinn var hið mesta
undur, er hefur skeð í meistara-
flokk handknattleiksíþróttarinnar
um langt árabil. Hið mikla stór-
veldi Hafnfirðinga, FH, varð að
láta, í minni pokann fyrir ÍR, en
þvi bjuggust fáir við í þetta sinn.
Er liðin komu inn á vantaði nokk-
ur þekkt andlit í báða hópa, hjá
FH saknaði maður Ragnars Jóns-
sonar og Arnar Hallsteins, en hjá
ÍR Hermanns Samúelssonar. ÍR-
ingar léku allan tímapn með að-
eins einn skiptimann, og má þvi
kalla sigur liðsins enn stærri.
I fyrri hálfleik var FH ein-
ráðir á vellinum, en þeir settu
fyrstu 4 mörk leiksins áður en ÍR-
ingar komust á blað, staðan varð
fljótlega 4—2, siðan var staðan
7—3, stuttu seinna 11—4, allt fyrir
FH. Flestir bjuggust því við auð-
veldum sigri FH sem fyrr. En
undir lok fyrri hálfleiks söxuðu
ÍR-ingar örlítið á forskotið og kom
ust í 15—10. í hálfleik hafði FH
samt enn 6 rriarka forskot, 17—11.
Strax í síðari hálfleik bættu Hafn-
firðingarnir enn við forskotið með
góðu marki frá Einari Sigurðssyni
en rétt á eftir skeði undrið. Stefán
Kristinsson kom ÍR-ingum á leið-
ina í markið með að skora 2 glæsi-
leg mörk, en hann kom manna
mest á óvart í þessum leik. Vörri
FH varð eins og lélegasta þriðju
deildarvörn, og allt lak inn. Hjalti
varði aðeins 3 góð skot í seinni
hálfleik og var því ekki að sökum
að spyrja. Á 11. mínútu síðari
hálfleiks tókst iR að jafna og var
þar að verki Þórður Tyrfingsson
er komst inn í sendingu Hafnfirð-
inga, 19—19. Gunnlaugur Hjálm-
arsson kom liðinu í 22—19 með
alæsilegum mörkum, og ætlaði þá
allt um koll að keyra á áhorfenda-
pöllunum. Fljótlega var staðan
orðin 23—20, en Birgir Björnsson
setti þá 3 mörk í röð, og tókst að
jafna í 23—23. Stefán kom ÍR aft-
ur á bragðið, með 2 glæsilegum
mörkum, en aftur tekst Hafnfirð-
ingum að jafna, þá er eins og ÍR-
ingum sé gefinn nýr kraftur, og
fljótlega er staðan orðin 30—25.
Hafnfirðingar eiga samt síðasta
orðið í leiknum og setja 2 mörk,
en allt kemur fyrir ekki, sigurinn
er ÍR-inga megin 30—27.
Kátína ÍR er mikil, þeir hrópa
sitt húrra af öllum kröftum, og
taka Stefán, er mestan heiðurinn
á skilið, og tollera hann. FH-
ingarnir fara út af niðurbeygðir
og daufic yfir þessum óvnætu úr-
slitum. Lið ÍR kom sannarlega á
óvart í þessum leik, án Hermanns
og með aðeins einn skiptimann,
var útkoma liðsins 100%. Að
hafa undir 6 mörk í hálfleik en
sigra samt með 3 mörkum er glæsi
leg útkoma. Bezti maður liðsins
var konungur handknattleiksins á
Nlandi Gunnlaugur Hjálmarsson.
En mest á óvart kom hinn stór-
kostlegi leikur Stefáns Kristinsson-
ar en hann hefur hingað til verið
m
lítt nafnkenndur meðal ÍR-inga og
á hann ásamt Gylfa og Matthíasi
mestan þátt í sigrinum í þessum
leik. Finnur í markinu átti einn
sinn bezta leik í ár, en það var
ekki fyrr en í síðari hálfleik að
virkilega reyndi á hann og þá stóð
hann fyrir sínu.
— klp —
Fieygði sér —
Framhald ai hls 1
gat tekið til bragðs var að brjóta
rúðu í glugganum og henda sér
út. Fallið var nokkuð hátt og 'hart
niðurkomu enda brákaðist maður-
inn allmikið á fæti og Ieið illa
bæði í gær og í morgun.
Slökkviliðið kom fljótlega og
tókst giftusamlega að kæfa eldinn
en skemmdir urðu miklar. Her-
bergið, sem eldurinn kom upp í,
brann allt að innan og allt sem í
því var. Sömuleiðis urðu verulegar
skemmdir í eldhúsinu og forstof-
unni. Allt innbú var óvátryggt og
hafa ungversku hjónin orðið fyrir
tilfinnanlegu tjóni.
Um eldsupptök er það helzt vit-
að, að leigjandinn kvaðst hafa ver
ið að reykja. vindling um það leyti
sem hann var að búast til brott-
ferðar. Hafði hann lagt vindling-
inn frá sér í öskubakka, hélt að
væri dautt í honum og fleygði úr
öskubakkanum í ruslakassa úr
pappa. Þykir sennilegt að eldur
hafi leynzt í vindlingnum og hann
hafi kveikt út frá sér.
Bílaverkstæðisdeilan á Akureyri
Vísir flutti í sl. viku fréttir
af deilu bifvélavirkja og bíla-
verkstæða á Akureyri, en þar
sem nokkurs misskilnings gætti
'og ósamræmis f fréttum þess-
um, vlll blaðið hér með birta
bréf allra bílaverkstæðanna á
Akureyri til Sambands bifreiða
verkstæða á íslandi, sem gefur
réttar upplýsingar um afstöðu
bílaverkstæðanna og um það,
sem raunverulega hefur skeð,
en Samband birfeiðaverkstæða
á islandihefur góðfúslega látið
Vfsi bréfið f té.
Bréfið ber með sér að öll
bifreiðaverkstæðin á Akureyri
leggja sama skilning í sam-
komulagið við bifvélavirkjana á
Akureyri og BSA verkstæðið,
eða þann að hér sé ekki um
neina almenna 20% kauphækk
un að ræða, eins og Þjóðviljinn
heldur fram. Breytingin á launa
flokkum er engin ,heldur er að-
eins greidd uppbót á eftir- og
næturvinnu.
Ætti ekki að þurfa að undir-
strika frekar hvað rétt er f
þessu máli.
„Akureyri, 2. marz 1963.
Samband bifreiðaverkstæða
á íslandi, c/o hr. Óli ísaksson,
Reykjavík.
Að gefnu tilefni viljum við
upplýsa yður um eftirfarandi:
Bráðabirgðasamkomulag það,
sem nýlega náðist milli bifvéla
virkja og atvinnurekenda á Ak-
ureyri er fólgið f því, að verk-
stæðin greiða uppbót á eftir-
vinnu og næUyvinnu hið sama
og fyrir dagvinnu. Þannig er í
rauninni aðeins um samræm-
ingu að ræða, þar sem a.m.k.
eitt verkstæði hefur greitt eftir
þessari reglu áður.
Breyting á launaflokkum sam
kvæhit síðasta samningi er eng
in.
Virðingarfyllst,
Baugur h.f.
Hörður Adólfsson (sign).
Bifreiðav. Jóh. Kristjánss. h.f.,
Ásgeir Kristjánsson (sign)
BSA Verkstæði h.f.
Ól. Benediktsson (sign)
Bifreiðaverkst. Þórshamar hf.
Matthías Andrésson (sign).
Bifreiðaverkstæði Lúðvíks
Jónssonar & Co.,
Lúðvík Jónsson (sign)“
• •
Orn festist —
Framhald af bls. 16.
setja dýraboga upp hjá honum í
þeirri von að dýrbíturinn fest-
ist í honum. En áður hafði
Daníel veitt tvo refi og marga
minka í þennan boga.
Hann vitjaði sfðan um bogann
á hverjum degi. Þegar hann sá
örninn í boganum á laugardag-
inn var sólarhringur liðinn síð
an hann hafði síðast vitjað um
hann. Örninn var búinn að vera
lengi fastur í boganum og var
orðinn dasaður, blautur og kald
ur. Boginn sem hann festist í
er gerður þannig, að hann særir
ekki, en heldur föstu. Örninn
var fastur í boganum á hægra
fæti og orðinn bólginn á honum
eftir að reyna að slfta sig laus
ann.
Bóndinn tók örninn og fór
með hann heim. Lét hann fugl-
Georges Bidault — eins og
hann kom fram í brezka sjón-
varpinu.
inn út í hlöðu, þar sem hann |
þorrnaði fljótt og náði sér. Nýr
fiskur og ket var Iátið til hans
út í hlöðuna og um nóttina át
örninn allt ketið og nokkuð af
fiskinum.
Snemma á sunnudagsmorgun
ákvað Birgir Kjaran alþingis-
maður að fljúga vestur og bauð
Finni Guðmundssyni fuglafræð
ingi að koma með. Flugu þeir
til Stykkishólms og fóru síðan
með jeppabifreiðum til Breiða-
bólsstaðar, þó færi væri mjög
slæmt. Þar skoðaði Finnur
fuglinn. Hann sá að hægri fótur
fuglsins var bólginn og hlífði
örninn fætinum. Hann var þó
ekki meira meiddur en svo, að
Finnur taldi rétt að sleppa hon
um. Settu þeir hann út á tún.
Þar var hann nokkrar klst. lyfti
sér við og við til flugs, en
aðeins stuttan spöl f einu og
var eins og hann væri að reyna
hinn meidda fót.
Hann var enn á túninu, þegar
þeir Birgir og dr. Finnur fóru
á brott, en hóf sig nokkru síðar
til flugs.
Þegar Vísir talaði við dr. Finn
í morgun sagðist hann álíta að
meiðslin hefðu ekki verið meiri
en svo að þau hljóta að lagast
fljótt. Örninn var fullfleygur.
Dr. Finnur sagði að framkoma
bóndans í þessu hefði verið al-
veg rétt. Það var rétt hjá hon-
um að taka fuglin: inn í hlöð-
una til að hlýja honum og
þurrka og sleppa honum ekki
fyrr en gengið var úr skugga
um að fuglinn gæti bjargað sér.
Ef fuglinn hefði verið alvarlega
særður hefði sennilega verið
hægt að ala hann í hlöðunni.
Þetta sést af því, að hann át
ketið um nóttina. Sýndu aðgerð
<$>-■-
Fnmkt-þýzkt smstarf
íhættu vegna BIDAULT
Georges Bidault fyrrverandi for-
sætisráðherra Frakklands og aðal-
forsprakki baráttuhreyfingarinnar
gegn De Gaulle Frakklandsforseta
er kominn í leitirnar f þorpi f
Bayern. Hefir hann beðizt Iög-
regluverndar og hælis í Vestur-
Þýzkalandi sem pólitfskur flótta-
maður, og með þeirri kröfu sett
Adenauer kanslara, er ekkert vill
gera til að styggja De Gaulle, í
hinn mesta vanda, þar sem það
gæti spillt fransk-þýzku samstarfi,
ef hann neitaði að framselja hann.
Fréttir í gær hermdu, að Bidault
hefði verið handtekinn, en eftir
síðari fréttum að dæma er vafa-
samt, að það sé rétt. Svo virðist
sem lögreglan í Bayern hafi verið
að leita að öðrum, er hann lcom
þarna í leitirnar — hjá hollenzk-
um fréttaritara. og jafnvel
talið, að stjórnarvöldin hafi
vitað um það í nokkra daga
] hvár hann var, en nú var ekki
hægt að halda þessu leyndu.
| Hafi hann jafnvel fyrir 2—3
dögum verið búinn að biðja um
landvist sem flóttamaður. —
Þegar lögreglan kom bað hann
um lögregluvernd og var veitt
hún — og hann fær að fara
frjáls ferða sinna um þorpið,
en hefir lofað að gera enga til-
raun til að flýja.
Franska utanríkisráðuneytið til-
kynnti í gær, að það hefði þetta
mál til íhugunar, en opinberlega
er ekkert kiinnugt enn um kröfur
hennar. Krefjis); húh að Bidault
verði framseldur er Adenauer
mikill vandi á höndum sem að of-
an greinir — ekki aðeins vegna
beri að alþjóðavenjum og leyfa
manninum landvist sem flótta-
manni.
Vikið hefir verið að því, að til
mála kynni að koma, að fara þá
leið að framselja Bidault ekki,
heldur vísa honum úr landi.
TEKINN AF LÍFI.
í morgun var tekinn af lífi aðal-
forsprakki þeirra manna, sem
stóðu að samsærinu gegn De
Gaulle i ágúst í fyrra, en þá mun-
aði litlu, að De Gaulle yrði drep-
inn. Þrír samsærismannanna voru
dæmdir til lífláts, sá sem lífláts-
dóminum var fullnægt yfir í morg-
un, og tveir aðrir, sem samkvæmt
___ ______ . . seinustu fréttum hafa fengið náð-
þess að hann vill þóknast De ■ un, þannig, að liflátsákvæði
Gaulle og í engu spilla fransk- dómsins er breytt í ævilangt fang-
býzku samstarfi, heldur og vegna elsi. — Alls voru 6 menn dæmdir
þess að æ fleiri raddir heyrast um i fyrir viku fyrir þátttöku í þessu
það í Vestur-Þýzkalandi, að farasamsæri.
ir bóndans skilning og áhuga á
þýí að koma í veg fyrir út-
rýmingu arnarstofnsins.
r
Arekstur —
Framhald af bls. 16.
báðir allnokkuð, en G-bíllinn þó
meira. Ökumaður Reykjavíkurbif-
reiðarinnar meiddist eitthvað og
var bæði hann og eins konan flutt
í Slysavarðstofuna í Reykjavík til
athugunar og aðgerðar. Lögreglan
i Kópavogi taldi þó að ekki væri
um alvarleg meiðsli að ræða.
Hitt óhappið varð á Hvaleyrar-
holti fyrir sunnan Hafnarfjörð og
var tilkynnt til lögreglunnar í
Hafnarfirði kl. 4 aðfaranótt sunnu-
dagsins. ,1
Lögreglan hefur skýrt Vísi svo
frá að bifreiðin R 9074 hafi verið
á ferð eftir steypta veginum og
þegar hún var komin móts við
svokallað Þúfubarð ætlaði hún að
beygja inn á gamla veginn. Rétt
í sama mund kemur bifreiðin R
4121 á ofsalegum hraða á eftir
henni, skutlast fram hjá fyrr-
grpinda bílnum og þó svo naum-
lega að bílarnir strukust litilshátt-
ar saman. Að því búnu fer R 4121
út af steypta veginum Þúfubarðs-
megin yfir gamla veginn þveran
og flýgur síðan í loftinu út af
honum og niður í djúpa kvos hand
an við veginn. Talið er að bíllinn
hafi farið marga metra í loftinu
unz hann kom'niður aftur og stað-
næmdist þá sem betur fór á hjól-
unum. Munaði örfáum sentimetr
um að hann lenti á staur og hefði
þá stórslysi ekki verið forðað.
Ekki er getið að slys hafi orðið í
sambandi við þessa loftför bfls-
ins, en annars er málið enn I rann-
sókn, og ekki að fullu kannað.
Getum —
Framhald af bls. 16.
meðaoltekjum í húsnæðiskostn.
1 Sviþjóð hefur þetta hlutfall aft
ur á móti farið lækkandi á
seinni árum, þannig að nú er
talið að þar þurfi meðalfjöl-
skylda ekki að nota meira en
einn sjötta hluta af tekjum sín
um í rekstur húsnæðis eða í
húsaleigu.
í erindi sínu gat Gísli Hall-
dórsson þess að ýmsar aðrar
aðferðir en að framan eru
greindar komi til greipa við
lækkun byggingarkostnaðar, en
þær krefjist Iengri og kostn-
aðarsamari undirbúnings og
sumar hverjar ekki á færi smá
þjóðar, sem okkar.
v