Vísir


Vísir - 16.03.1963, Qupperneq 8

Vísir - 16.03.1963, Qupperneq 8
V í SIR . Laugardagur 16. marz 1963. VÍSIR Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði. í lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 linur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Tryggð, þrái eða skynsemi Óðum líður nú að kosningum, og ekki eru nema um það bil þrír mánuðir, þar til gengið verður að kjör- borðinu. Það er þess vegna ekkert á móti því, og raun- ar sjálfsagt, að kjósandinn fari að gera upp við sig, hverjum hann á að veita stuðning, þegar honum gefst tækifæri til að ganga í kjörklefann og leggja lóð sitt á vogarskálina, hafa áhrif á það, hvernig málefnum þjóðarinnar verður stjórnað næsta kjörtímabil. Það er þrennt, sem getur ráðið miklu, jafnvel mestu, um afstöðu einstakra kjósenda og því, hvar hann setur krossinn afdrifaríka, þegar hann er staddur í einveru kjörklefans. Það getur verið tryggð við þann flokk, sem kjósandinn hefir stutt lengi, það getur verið þrái, sem stafar af þröngsýni — og getur oft reynzt erfitt að draga mörkin milli tryggðar og þráa — og það getur verið skynsemi, sem lætur hvern flokk njóta sann- mælis og þann hljóta stuðning,sem hans reynist verður vegna þeirra verka, sem hann hefir unnið fyrir þjóðar- heildina. í kosningum þeim, sem fram hafa farið á undan- förnum áratugum, hefir oft verið næsta erfitt fyrir marga að gera úpp við sig, hvað ætti að ráða gerðum þeirra í kjörklefanum, hvern skyldi helzt styðja. Að þessu sinni ættu slík vandræði ekki að vera fyrir hendi, því að aldrei hafa línurnar verið skýrari en í lok þess kjörtímabils, sem endar á þessu ári. Aldrei hafa gerðirnar verið eins greinilegar, og aldrei hefir verið auðveldara að gera samanburð á loforðum og gerðum einstakra flokka en einmitt nú. Efnahag þjóðarinnar hefir verið komið á traustan grundvöll. Viðskiptin við útlönd eru ekki lengur rekin með halla, í stað þess að safna skuldum, greiðir þjóðin stórar fjárhæðir á ári hverju til að létta skuldabyrðina, atvinna er svo mikil, að hvarvetna er skortur á vinnu- afli, tryggingar hafa verið stórauknar til að létta mönn- um lífsbaráttuna og svona mætti lengi telja. Allt ber að sama brunni í þessu efni - efnahagur þjóðarinnar er með meiri blóma og stendur traustari fótum en nokkru sinni fyrr. Hvernig hefði farið, ef... En þessi mynd verður ekki skilin til fullnustu, ef menn gera sér ekki einnig grein fyrir því, hvemig farið hefði, ef engin breyting hefði orðið á verðbólgustefn- unni, sem náði hámarki í tíð vinstri stjómarinnar. Þá hefði verið haldið áfram feluleiknum með skráningu krónunnar, haldið áfram hallabúskap út á við, haldið áfram skuldasöfnun og áfram í þessum dúr. Vandræð- in hefðu farið vaxandi, unz atvinnuvegirnir hefðu ver- ið komnir í kalda kol. * Kommúnistar og Framsókn segjast vilja taka þá stefnu upp aftur. Sjálfra sín vegna hljóta kjósendur að hindra það. Ljósmyndagerðin Danskt blað, Sorö Amtstid- ende, birti nýlega viðtal við ung- an íslending, Stefán Bergþórs- son frá Akureyri, sem hefur dval izt þar ytr.a við nám í húsgagna- smíði. En samtalið fjallar mest um helzta áhugamál Stefáns, sem er Ijósmyndun, en í henni hefur hann náð miklum árangri sem áhugamaður. Hefur hann tekið mikið af myndum í Dan- mörku, verið í samtökum áhuga- ljósmyndara og haft myndir á sýningum. Þrisvar sinnum hefur hann átt Ijósmyndir á mynda- sýningum í félagi áhugaljós- myndara i Sorö og i öll skiptin voru hans myndir taldar bera af öðrum myndum á sýningun- um. Stefán skýrir frá því, að hann hafi komið til Danmerkur til að læra húsgagnasmlði og ræðir um það, að húsgagnasmiðir sæki fyrirmyndir sínar til Dana En hann kvaðst þegar hafa átt .vini í Danmörku, sem höfðu sama áhugamál og hann, ljós- myndun. Einn þessara vina hans útvegaði honum starf við hús- gagnasmiðju í Sorö. En það var í ljósmyndagerð- inni, sem flestir möguleikar opn- uðust við það að koma til Dan- merkur, segir Stefán. Hann kvartar yfir því, að heima á ís- landi sé örðugleikum bundið að fá þau sérstöku efni og tæki, sem þarf til að reyna nýjar leið- ir í listræ;.ni ljósmyndafram- köllun, og leiðbeiningar, en úti í Danmörku er greiður aðgang- ur að miklu fjölbreyttari efnum. — Ljósmyndagerð er mesta áhugamál mitt, segir Stefán. 1 þá níu mánuði, sem ég hef bú- ið hér í Sorö, hef ég tekið um Stefán Bergþórsson. 1300 myndir. Ég get ekki án þess verið að vera sífellt að taka myndir. Sjálf myndatakan er þó minnst ur hluti verksins. Aðalverkið hefst I myrkraherberginu. Síðan skýrir hann í blaðaviðtalinu frá ýmsum ráðum og brögðum, sem ljósmyndarar beita til þess að er list fá fram þann tón, sem þeir æskja. Hann greinir frá því hvernig hann gerir svokallaðar solariseraðar myndir með þvi að bregða Ijósi skamma stund á myndina, þar sem hún liggur I framköllunarleginum. Þessar sol ariseruðu myndir eru mjög sér- kennilegar, þær eru samtlmis positivar og negativar og nást oft fram mjög Iistrænir drættir. Þá eru aðrar aðferðir notaðar til að fjarlægja öll aukaatriði, svo að aðeins koma fram sterk- ustu og skýrustu drættimir, þannig að myndin líkist einna helzt pennateikningu. Fylgir hér með ein slík. ljósmynd af hús- um I Sorö. Það er gert með mörgum eftirtökum positivum og negativum til skiptis og má endurtaka þessa aðferð eins oft og maður vill unz réttum ár- angri er náð. Stefán Bergþórsson segir, að það sé fyrst þegar menn hafa náð valdi yfir öllum framköll- unaraðferðum, sem ljósmynda- gerðin fari að verða verulega skemmtileg. Þá fyrst fer maður að geta ráðið því fyllilega sjálf- ur, hvernig myndin verður, mót að hana eins og listamaðurinn mótar málverk eða höggmynd. Telur Stefán, að ljósmynda- gerð sé ekki síður list en mál- aralist, höggmyndalist, bók- menntir eða tónlist. Bergman breytir stjórn sænska þj óðleikhússins Eins og kunnugt er úr frétt- um, var kvikmyndagerðarmaður inn heimsfrægi Ingmar Berg- man nýlega skipaður þjóðleik- hússtjóri 1 Svíþjóð til þriggja ára, en þar I landi er þetta embætti ekki veitt til lengri tíma I senn. Þjóðleikhúsið sæn- ska er I daglegu tali kallað „Dramaten" og hefur um ára- bil verið leiðandi I leiklist á Norðurlöndum. Um miðjan feb- rúar slðastliðinn gerði Bergman miklar breytingar á stjórn leik- hússins. Hefur hann látið fast- ráðna leikara hússins kjósa fimm manna fulltrúaráð, sem tekur virkan þátt I allri dag- Jegri stjórn hússins, það tekur þátt I umræðum um leikrita- val og hlutverkaskipan og kem- ur reglulega saman til fundar hálfsmánaðarlega. Skal kjósa ráð þetta til eins árs I senn. Þetta nýja fyrirkomulag á stjórn leikhússins er algert ný- mæli f Svlþjóð og er að öllu leyti hugmynd Bergmans sjálfs, sem lengi hefur verið þeirrar skoðunar. að leikarar ættu að taka virkan og ábyrgan þátt I stjórn leikhúsa. Hefur þetta að vonum vakið mikla athygli um öll Norðurlönd, og leikararnir hafa tekið þessu tilboði Berg- mans með miklum fögnuði. Sjá- st undirtektir þeirra meðal ann- ars á því, að þegar ráðið var kosið, tók hver einasti leikari við Dramaten þátt í kosning- unni. Ingmar Bergman kvað svo að orð f viðtali við Dagens Nyheter að jafnan þegar hann hafi talað við nemendur I leik- list um það, hvað leikhúsum væri nauðsynlegt, hefði niður- staðan verið sú, að það væri einkum þrennt: leikrit, áhorf- endur og leikarar. Ekkert leik- hús er til án leikara. Og nú viljum við hegða okkur eftir niðurstöðum þeirrar staðreynd- ar og viljum láta leikarana eiga sinn þátt I að ákveða verkefni sln. Ekki sagði Bergman, að þetta væri einsdæmi, hann hefði óljóst hugboð um, að svi- pað fyrirkomulag væri við Bolsjoj-leikhúsið I Moskvu. Kv- aðst hann að lokum gera sér vonir um, að þetta nýmæli yrði til þess að styrkja starf Dram- atens og gera stjórn leikhús- sins samvirkari og fastmótaðri.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.