Vísir - 27.03.1963, Qupperneq 1
NÝJA TOLLSKRÁIN:
Fjármálaráðherra,
Gunnar Thoroddsen, rit-
ar um hina nýju tollskrá
í Vísi í dag, á bls. 9.
.. v.v-.v.sv.v. v..s...v ..., „v.w.W.. ..v. V , „ „ ^,,.V„.W
■
Frumvarp til laga
uxn tolJskra o. fl.
(Lagt fyrir Alþingi á 83. löggjaíorþingí, 3 002.HKJ3.)
100 MILLJ. KR. TOLLALÆKKUN
Stórlækkun tollu bifreiðavuru-
hlutu og fjölmurgru neyzluvuru
i
Ríkisstjórnin lagði í dag fyrir Alþingi frumvarp til laga um
nýja tollskrá. Frumvarpið felur í sér stórfellda lækkun tolla 3)
á innfluttum vörum. Miðað við innflutningsmagnið á síðasta
ári myndu tollarnir samkvæmt nýju tollskránni verða 100
millj. krónum lægri en eftir núgildandi tollalögum. Frumvarp-
inu er ætlað að taka gildi 1. maí n. k. og verða tollafgreiðslur
á vörum ekki stöðvaðar meðan frumyarpið er fyrir þingl.
Höfuðatriði hins nýja frumvarps eru þessi:
X) Hámarkstollur verður nú 125%. Er hér um mikla almenna
lækkun á fjölmörgum hátollavörum að ræða því þess eru
dæmi að tollur á sumum vörum sé nú allt áð 300%. Gert
er ráð fyrir því að mjög fáar neysluvörur og aðrar þýð-
ingarmiklar vörur verði í 100—125% flokkunum, heldur í
lægri flokkum.
2) Hinir margvíslegu tollar og aðflutningsgjöld, sem til
þessa hafa verið lagðir á innflutta vöru verða nú samein-
aðir í einn toll, verðtoll. Er hér um mjög aukna hagræð-
ingu við útreiknun og álagingu tolls að ræða.
Samræmdur er eftir föngum tollur á skyldum vörum, en á
slíka samræmingu hefir mjög skort eftir núgildandi lögum.
Olli það misnotkun, sem nú er girt fyrir með hinni nýju
tollskrá. Er því tollur á bifreiðavarahlutum m. a. lækkað-
ur úr 77% í 35%.
4) Með hinni nýju tollskrá verður tollabyrði landsmanna
lækkuð um 8.3% og eru það augljósar hagsbætur fyrir alla
gjaldendur í landinu.
5) Söluskatturinn (7+8%) er nú felldur niður í núverandi mynd
sinni. Hefir hann verið santeinaður hinum nýja heildartolli,
verðtollinum, en sökum hinna almennu tollalækkana hefir
hann verið felldur niður á fjölmörgum vörutegundum.
35% algengustu
tollarnir.
Samkvæmt hinni nýju toll-
skrá er gert ráð fyrir því að
algengasta tollprósentan verði
nú 35%.
Er sá tollur á flestum hrávör-
um og (ekstrarvörum til iðnað-
ar. Enn fremur er þessi tollur
almennt á byggingarvörum, iðn
aðarvélum, ýmsum tækjum og
fjölmörgum öðrum vörum. Er
hér um víðtækar tollalækkanir
að ræða m. a. á flestum bygg-
ingarvörum. Á vörum til fataiðn
aðar er gert ráð fyrir ýmsum
tollalækkunum, og umbúðir ut-
an um útfluttar sjávarafurðir
verða tollfrjálsar. Tollur er lækk
aður verulega á flestum tegund-
um pappírs og umbúða. Skip
verða tollfrjáls samkvæmt til-
lögunum og einnig flugvélar.
Ein stærsta tollalækkunin er
á varahlutum til bifreiða og
landbúnaðarvélum lækkar úr
20% £ 10%. Tollur á bifreiða-
varahluti er nú 77% en lækkar
um meir en helming og verður
35%.
Á fólksbifreiðum hækkar toll
urinn úr 81% í 90%, en það
mun þýða 3—5% hækkun á út
söluverði fólksbifreiða. En hags
bótin af stórlækkun varahlut-
anna gerir miklu meir en vega
upp á móti þessari litlu hækk-
un. Tollur á vörubifreiðum sendi
bifreiðum jeppum og almenn-
ingsbifreiðum verður nær ó-
breyttur, hækkar 'úr 38% í
40%. Tollur á húsgögnum er nú
125% en lækkar í 90%. Þá
lækka stórlega klukkur og vara-
hlutir til úra. Sama er að segja
um lækkun á tolli á gleraugum
og kvikmyndavélum.
í tillögunum er ekki gert ráð
fyrir teljandi breytingum á
rekstrarvörum sjávarútvegsins,
en þó eru þar nokkrar minni
háttar lækkanir. Fóðurvörur og
tilbúinn áburður verður toll-
frjáls eins og verið hefur. Yf-
irleitt má segja að fyrir ofan
35% toll séu tiltölulega lítið
um hrávörur og rekstrarvörur.
í þeim flokki er einnig lítið
um vélar og tæki til atvinnu-
reksturs.
f hæsta tollflokknum 125%,
er aðeins fáar innfluttar vörur
að finna. Þær eru: Tilbúið sæl-
gæti, kex, snyrtivörur, eldspýt-
ur, frostlögur, glysvarningur,
spil og jólatré. Af búsáhöldum
greiðist 100% tollur og er þar
um lækkun að ræða frá því sem
nú er, en þar er tollur upp í
132%.
Hér hefur aðeins verið minnzt
á tollabreytingar á nokkrum
vöruflokkum, en miklu ítarlegar j1
er breytinganna geið á siðu 7
hér í blaðinu í dag.
Aðdragandi þessara víðtæku
lækkana og breytinga á tollskrá
inni er sá að 1959 fól Gunnar
Thoroddsen fjármálaráðherra, 4
embættismönnum, þeim Jónasi
Haralz, Klemenz Tryggvasyni,
Sigtryggi Klemenzsyni og Torfa
Hjartarsyni að endurskoða nú-
gildandi tollskrá. Seinna bætt-
ist Pétur Sæmundsen í hópinn.
woo
IBÚDIR
Um síðustu áramót voru 844
íbúðir í smíðum í Reykjavík,
þar af voru 416 fokheldar og
lengra á veg komnar. Síðan
hafa margir byrjað að byggja
svo að fullyrða má að nú séu
um 1000 íbúðir í byggingu i
Reykjavík. Auk þcss kemur til
mikillar lóðaúthlutunar á næst-
unni, m. a. verður úthlutað
byggingalóðum í heilu hverfi, á
Grensásnum upp af Háaleitis-
braut en þar verður 350 manna
hverfi eins og blaðið hefir áður
Framh. á bls. 5
■
llii
Mynd þessa tók I. M., ljósmyndari Vísis, i morgun af byggingaframkvæmdum i Kringlumýrinni, og sjást þar 5 hús í smíðum og
fleiri eru í byggingu i næsta nágrenni. Samkvæmt upplýsingum frá byggingavörukaupmönnum hefir aldrei verið meiri byggingahugur
i Reykvíkingum en einmitt á þessu vori og talar það sínu máli um afkomu fólks og athafnavilja.