Vísir - 27.03.1963, Blaðsíða 4

Vísir - 27.03.1963, Blaðsíða 4
V í S I R . Miðvikudagur 27. marz 196S, 4 BOKASAFN i-- Það vekur furðu hvers út- lendings, sem til íslands kemur og fær tækifæri til að koma inn á einkaheimili fólks, hversu rík þau cru af bókum, nokkuð sama hvort það er hjá lærðum eða leikum, verkafólki eða menntamönnum. Mörgum verður á að spyrja hvort ekki séu til nein almenn- ingsbókasöfn i landinu, því þeir skilja ekki ást fólksins á bók- unum sínum, skilja það ekki að bókin er vinur eigandans og að hann þarf að hafa hana við hendina til að lesa í henni og fletta upp í henni, þegar þörfin krefur. Þeir halda að íslending- ar verði að eiga bækurnar sjálfir, því ekki sé unnt að leita til safna. Bókasöfn í einstaklingseigu eru mörg á íslandi, jafnvel þótt maður einskorði það hugtak við verðmætar bækur eða fágætar. Þar við bætast svo heimilis- bókasöfnin, sem til eru á vel- flestum heimilum landsins, en þau eru annars eðlis. í heild má ganga út frá þvi sem gefnu að íslendingar séu allra þjóða mestir bókamenn. Bókasafnarar hafa verið til allt frá því að prentun bóka hófst á Isiandi, en að sjáifsögðu voru það nær einvörðungu mennta- menn sem gátu leyft sér þann munað að eignazt bækur að nokkru ráði. Meiri og minni upplýsingar eru til um bókaeigu einstakra manna, einkum þó er fram líða stundir, ekki sízt frá s.l. öld. íslenzkir menntamenn og emb- ættismenn áttu margir hverjir verðmæt söfn bóka. Þarf í því efni ekki annað en nefna nöfn eins og t .d. Jóns Sigurðssonar. Finns Magnússonar, Gísla Brynjúlfssonar, Vilhjálms Fin- sen, Guðbrandar Vigfússonar, Konráðs Gíslasonar, Árna Thor- steinssonar, síra Þorvaldar á sem tekur sem næst 3 þúsund bækur, þar af 1750 íslenzkar eða um íslenzk efni, er bókun- um skipt niður í 60 flokka og undirflokka. Sá galli er þó á þessari flokkun að í mörgum tilfellum er erfitt að átta sig á niðurröðun bókanna í einstaka flokka og virðist þar hafa ríkt önnur sjónarmið á stundum heldur en við eigum að venjast meðal bókasafnara í dag. Svo eg nefni dæmi þá er t. d. ís- lenzkt fornbréfasafn fiokkað með rímum af Héðni og Hlöðvi, ásamt Gaman og alvöru Magn- úsar Stephensen, Landnámabók og Nýársnóttinni eftir Indriða Eftir Þorstein Jósepsson Einarsson. Þar eru flokkaðai undir tækifærisljóð bækur eins og Ljóðmæii Jóns Þorlákssonar frá Bægisá, Þjóðsögur og munnmæli Jóns Þorkelssonar eða Sagan af Þiðrik frá Bern svo nokkur dæmi séu tekin. Sá maður sem ætlar sér að leita að tímaritatitlum í bókaskrá Jóns þarf ekki aðeins að Ieita að þeim í tímaritaflokk skrár- innar heldur í 8—10 bókmennta greinum öðrum. Þetta gerir það að verkum að skráin er tnjöp óaðgengileg til notkunar enda þótt gaman sé að blaða í henní vegna þess hve um auðugar garð er þar að gresja af fágæt- um bókum. taldar hér upp 17. aldar bækur í eigu Jóns. Prentaðar á Hólum: Þoriáksbiblla 1644 Davíðssaltari 1675 Sönn einföld og ljós útskýring kristiiegra fræða 1610 Enchiridon eða Handbókarkorn 1656 Manuale eftir M. Molleri 1661 Passíusálmar Hallgríms Péturs- sonar (frumútgáfa) 1666 Eintal sálarinnar eftir Arngrím Jónsson, bæði útgáfan frá 1627 og 1662 Þessi konunglega spámanns Davíðs saltari eftir Jón Þor- steinsson 1662 Passio Kristi 1677 Prédikanir út af pínu og dauða Jesú eftir Arnflt 1684 Gerhardi Hugvekjur 1634 Postilla eftir Pangratio 1676 Húspostilla Gfsla Þorlákssonar, báðar útgáfurnar frá 1667— 70 og frá 1684—85 Kristileg undirvísun um ó- dauðleik sálarinnar eftir Guðbrand Þorláksson 1601 Útlegging yfir faðir vor eftir Mariager, 1606 Um dauðan og pínuna eftir Selneccero 1606 Meditationes eður góðar bænir eftir M. ‘MoIIeri 1607 og sömuleiðis útgáfan af sömu bók 1665 Vísnabók 1612 Summaria 1602. Prentaðar í Skálholti: Harmonia Evangelica 1687 Sá andlegi ferðamaður 1694 Stóri katekismusinn 1691 F.inn lítill sermon um helvíti 1693 Grallari 1691 Eintal sálarinnar 1697 Tðrunnar íþrótt eftir J. Förster 1693 Hugvekjur Gerhardi 1695 Medulla epistolica, eður Stutt Jón Þorkelsson rektor Svo sem að líkum lætur átti Jón rektor einkar gott safn bóka í sérgrein sinni, málvís- indum. Meðal annars átti hann velflestar orðabækur og mál- fræðibækur, er snertu íslenzka tungu og íslenzkir menn höfðu samið. I' þeim hópi voru t. d Lexicon Islandicum eftir Guð- mund Andrésson, prentuð i Khöfn 1683, en raunar var það eintak ekki heilt. Þá má nefna Epitome grammaticæ Latinæ cum interprætatione Islandica eftir Jón Árnason, Khöfn 1734. Donatus. Khöfn 1733, Gramma- ticæ Tslandicæ Rudimenta eftir Runólf Jónsson, Khöfn 1651 Lexicon Latino-Islandícum Grammaticale, Khöfn 1734. Nucleu Latinatis, Khöfn 1738 og úr því allar orðabækur um íslenzkt mál fram til loka 19 aldar, auk fjölda málfræðirita í náttúrufræði, landafræði og ferðabókum varðandi ísland var safn Jóns ekki ýkja auð- ugt. Þó var þar að finna ýmis ande en resa i Island eftir von Troil, Uppsölum 1777, auk margra annarra. Af búnaðarbæklingum og rit- um um skyld efni átti Jón m. a. Grasnytjar Björns Halldórsson- ar, Kh. 1783, Grasafræði Hjalta líns, Kh. 1830, Garðyrkju-Fræði quer Bjarna Arngrímssonar, Beitistöðum 1816, Um garðyrkj- unnar nauðsýn og nytsemi eft- ir sama höfund, Kh. 1820, Bún- aðarrit Suður-Amtsins, Viðey 1839—43, Einfaldir þankar um akuryrkju á íslandi, Kh. 1771, Bóndi 1.—6. tbl.i Rvík 1851, Hirðir I—III ár, Rv. 1859—61, Höld, Ak. 1861. Af búnaðar- ritlingum frá Hrappsey átti Jón Atla. Stutt ágrip um ítölu búfjár I haga, Hestabit er haga- bót og Hrossaslátrið er gagn- samlegt. Þá átti hann Lachano- logiu Eggerts Ólafssonar, Kh. 1774, Stutt ágrip um jarðepl- anna nytsemd og ræktan eftir J. K. Trojel, Kh. 1772, Leiðarvísir til að þekkja ein- Jóns Þorkelssonar rektors Melstað o. fl. Ekki verður frek- ar farið út í upptalningu á bókasöfnum síðustu aldar eða alda, en skírskotað hins vegar til greinar sem birtist í tímarit- inu Helgafell um þetta efni eftir Þorstein sýslumann Þor- steinsson. í þessari grein verður aðeins minnzt á eitt bókasafn, en jafn- framt eitt hið stærsta, sem til var í einstaklings eign um alda- mótin síðustu. Það var bóka- safn Jóns Þorkelssonar rektors. Við fráfall Jóns dreifðust bæk- ur hans út um hvippinn og hvappinn. Eitthvað mun Lands- bókasafnið hafa keypt af þeim, en víða má sjá í söfnum ein- staklinga þækur sem eru með stimpli Jóns rektors. Það vill svo vei til að til er prentuð skrá yfir bókaeign Jóns og er hún heimildin að þessari ritsmíð. í þessari skrá, Bókasafn Jóns rektors var m. a. auðugt af hvers konar þjóðlegum fræðum, málfræði, rímum, æviminningum, forn- ritaútgáfum, blöðum og tíma- ritum, en þó sér í lagi af ís- lenzku fornprenti. Þar átti Jón sæg bóka sem naumast munu nokkru sinni koma á almennan bókamarkað framar. Hann átti m. a. 4 bækur prentaðar á ís- landi á 16. öld, en þær voru Guðbrandarbiblía frá 1584, báð- ar Summariurnar, frá Núpu- felli 1589 og Hólum 1591 og loks. Eintal sálarinnar eftir Arngrím lærða, prentuð á Hól- um 1599. Jón átti 21 bók prent- aða á Hólum á 17. öld og 18 bækur prentaðar í Skálholti. auk mýgrúts af 18. aldar bók- um, sem ýmist voru prentaðar á Hólum, eða í Hrappsey eða Leirárgörðum. Til gamans og líka nokkurs fróðleiks skulu innihald eftir L. Lossi 1690 Dagleg iðkun eftir Hallgr. Pét- ursson 1693 Kristilegar bænir eftir Avenar- ius 1692 (tvö eintök) Schematographia eður Nokkrar merkilegar fígúrur 1695 Jaradísarlykill 1686 Landnáma 1688 Schedeæ 1688 Kristindóms saga 1688 Grönlandia 1688 Ólafs saga Tryggvasonar I—II 1689—90. Eins og við mátti búast var ekki um úrvals eintök af öllum bókunum að ræða og sumar þeirra vanheilar eins og gerist og gengur um jafngamlar bæk- ur. En hvað sem því líður vát þarna um eindæma gott safn íslenzks fornprents að ræða sem erfitt mun verða fyrir nokkurn bókasafnara að eignast jafn gott eða betra. ágæt rit sem hver nútímasafn- ari myndi öfunda hann af. Þar má nefna: Forsög til isi Natur- historie eftir N. Mohr, Khöfn 1786, De Islandiæ natura et constitutione eftir E. Ólafsson, Khöfn 1749, Prodromus der isl Ornithologie eftir Fr. Faber Khöfn 1822, Frá Grænlandi eftir Sigurð Breiðfjörð, Khöfn 1836, Voyage en Islande et au Groénland eftir P. Gaimard (þó ekki rit.rafnið í heild, París 1838. Tilforladelige Efterret- ninger eftir N. Horrebow. Khöfn 1752, rit Arngríms lærða þ. e. Brevis commentarius Anatoma Blefkianæ, Crymo- gaea, Specimen og Grönlandia. e'n þau voru gefin út á árunum 1593—1688, Landaskiþunar- cræði G Idsen’s, Khöfn 1822 —25, ferðabók Eggerts og Bjarna, Sórey 1772, ferðabók Olaviusar Kh. 1780, Brev rör- kenni á mjólkurkúm, Ak. 1859, Urtagarðsbók Olaviusar, Kh. 1770 og Tractatus Historico- Physicus eftir J. Snorronius, Kh. 1757. Af bókum um verzlun, hag- fræði og siglingar átti Jón nokkra fágæta ritlinga, þ. á m. marga þeirra, sem skrifaðir voru — ýmist af íslendingum eða Dönum — uw verzlunina við ísland undir aldamótin 1800. Af læknisfræðibókum var raunar ekki um auðugan garð að gresja í safni Jóns, en þess ber lika að geta að sá flokkur var heldur ekki stór í íslenzk- um bókmenntum til síðustu aldamöta. Fágætustu bókina á þessu sviði í safni Jóns má vafalaust telja Stutt ágrip um icktsyke eður liðaveiki eftir Jón Pétursson frá Hólum 1782. Auk Framhald á bls. 10. )

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.