Vísir - 29.03.1963, Page 1
VISIR
RÁDSTAFANIR TIL AD
FYRIRBYGGJA SMYGL
S ^ ■
i ■
W
■ •
n
■' '
53. árg
Föstudagur 29. marz 1963.
73. tbl.
Eins og kunnugt er liggur
frumvarp að nýrri tollskrá fyrir
Alþingi þessa dagana. Ennfrem-
ur hefir sérstök nefnd. samið
frumvarp að nýjum lögum um
tollheimtu og tolleftirlit, og er
þessi nefnd einnig að vinna að
tillögum um ráðstafanir til að
fyrirbyggja að vörur séu fluttar
til landsins, án þess af þeim
thalassa
Hið glæsilega rannsóknarskip Thalasse frá Brest var statt í Reykjavík í gær á leið til rannsókna á hafinu milli Islands og Grænlands
séu greidd aðflutningsgjöld.
Nefnd þessa skipaði fjármála-
ráðherra hinn 28. júní í fyrra, I
henni eiga sæti Valgarð Briem
hdl. formaður, Einar Ingimund-
arson bæjarfógeti, Unnsteinn
Beck tollgæzlustjóri og Jón
Finnsson lögfræðingur.
Valgarð Briem sagði í viðtali
við Vísi í morgun, að nefndin
hefði í huga að reyndar væru
ýmsar nýjar leiðir við tolleftirlit
hér á landi til að fyrirbyggja
smygl, en óskaði' ekki að öðru
leyti að skýra frá tillögum
nefndarinnar um það efni, enda
hafa þær ekki enn verið af-
greiddar frá nefndinni til ráðu-
neytisins.
Franskt rannsóknaskip í Reykjavík:
klendingar taka þátt í físki-
rannsóknum 9 þjéða
Datt í sjóinn
í nótt féll ölvaður maður i
sjóinn af Grandagarði.
Þarna var um skipverja á bát að
ræða og var hann allmjög drukk-
inn. Menn voru á ferli skammt frá
og sáu þegar hann datt í sjóinn.
Brugðu þeir þegar við og komu
honum til hjálpar, en gerðu lög-
reglunni jafnframt aðvart.
Maðurinn var enn með fullri
rænu þegar honum var bjargað,
en samt orðið mjög kalt. Flutti
lögreglan hann í slysavarðsofuna
þar sem honum var hjúkrað í nótt.
Laust fyrir kl. 6 sfðdegis 1 gær
datt telpa f tröppunum fijá biðskýl-
inu undir Amarhóli. Hún kom nið-
ur á höfuðið og meiddist nokkuð,
en ekki alvarlega að þvf að talið
er.
íslendingar taka þátt f víðtæk-
um flski- og hafrannsóknum 9
þjóða, sem nú eru að hefjast f
Norðurhöfum. 13 skip munu taka
þátt í þessum rannsóknum, meðal
þeirra verður Ægir, en leiðangurs-
stjóri í þeirri rannsóknaferð verð-
ur dr. Jakob Magnússon. Höfuð-
markmið þessara rannsókna er að
kanna útbreiðslu, magn og rek
þorskeggja og þorskseiða, svo og
karfaseiða. Þessir fiskar eru, sem
alkunnugt er, meðal helztu nytja-
fiska Islendinga og geta þessár
rannsóknir því haft mikla þýð-
ingu fyrir okkur. Þær miða að því
að staðsetja, eins og unnt er, got-
svæði þorsksins við Austur- og
Vestur-Grænland og gotsvæði karf
ans f Grænlandshafi, en mikið
vantar á að þau svæði séu nægi-
lega þekkt. í öðru lagi á sérstak-
Iega að rannsaka hvert egg og
seiði reka og hvar þau alast upp,
og rekja út frá því uppruna stofn-
anna.
Vísir átti í morgun tal við dr.
Jakob Magnússon, sem á að
stjórna þátttöku íslands í þessum
rannsóknum. Hann sagði að rann-
sóknir þessar hefðu verið í undir-
búningi tvö sfðustu árin og yrðu
rannsökuð hafsvæðin við SA-
Grænland, Vestur-Grænland, —
undan Baffinslandi, Labrador og
allt suður til Nýfundnalands. Auk
íslendinga taka Frakkar, Vestur-
Þ.jóðverjar, Englendingar, Skotar,
Danir, Norðmenn, Rússar og Kan-
adamenn þátt I þessum umfangs-
miklu rannsóknum, og verða þrjár
yfirferðir farnar um rannsókna-
svæðin í vor. Fjórar til fimm þjóð-
ir leggja til skip í hverja yfirferð.
Fyrsta yfirferðin verður í apríl,
önnur í maí, og taka íslendingar ! 9
asta í júní—júlf.
Fyrsta útlenda rannsóknaskipið,
þátt í henni, og hin þriðja og sfð-
sem kemur til íslands I sambandi
við þessar rannsóknir, kom til
Reykjavíkur f gær og er meðfylgj-
andi mynd af því. Það heitir
Thalassa, leiðangursstjóri er dr.
Dardignac. í næstu viku er von á
skipi.
ensku og rússnesku rannsókna-
Dr. Jakob Magnússon kvað ekki
laust við að fslenzku fiskifræðing-
arnir renndu öfundaraugum til hins
glæsilega og vel búna franska rann
sóknaskips, sem nú er í Reykja-
vík, og fyndu til þess að þeirra
aðstaða til að leggja fram sinn
skerf þyrfti að vera betri.
Ægir mun rannsaka svæðið vest-
ur af Islandi og Grænlandshaf, en
franska rannsóknaskipið kannar
það svæði í fyrstu yfirferð. Auk
höfuðmarkmiðs rannsóknanna, sem
áður var nefnt, verða gerðar rann-
sóknir á svifi, og almennar haf-
og fiskirannsóknir.
Vottur hrær-
inga í nótt
KI. 19 mínútur yfir eitt s. 1.
nótt sýndu Iandskjálftamælar
hér hrærlngar, sem áttu upptök
sfn á svipuðum slóðum og i
fyrrakvöid. Ekki voru þær — né
aðrar síðar í nótt — meirl en
svo, að menn hafi orðið þeirra
varir.
■Œ!tfU
Landsfundur Sjáíf-
stæðisflokksins
Miðstjóm Sjálfstæðis- ið 18. apríl, til 25. apríl
folkksins hefir ákveðið næstkomandi.
að fresta Landsfundi
Sjálfstæðisflokksins, Miðstjórn
sem auglýstur hefir ver- Sjálfstæðisflokksins.
Söiuskatturinn verð-
ur lagður niður
1 gær flutti fjármálaráðherra
Gunnar Thoroddsen framsögu-
ræðu sína á þingi um hið nýja
tollafrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar. Drap hann á alla höfuð-
þætti frumvarpsins og gerði
ítarlega grein fyrir hinum víð-
tæku tollalækkunum sem nema
urn 100 millj. krónum.
HALDA TEKJU-
STOFNUM SÍNUM.
Ráðherrann drap nokkrum
orðum á það að aldrei hefði
komið annað til greina en að
jöfnunarsjóður sveitarfélaganna
héldi tekjustofnum sínum, þótt
innflutningssöluskatturinn væri
felldur niður. Mun ríkisstjórn-
in leggja fram á þessu þingi
tillögur um frambúðarlausn
þess máls. Stjórnarandstaðan
hefir hins vegar ranglega haldið
þvi fram síðustu tvo daga að
svipta ætti bæjar og sveitarfé-
lög 50—60 millj. með nýju toll-
skránni, án þess að þeim yrði
bætt það upp á annan hátt.
Fyrir því er ekki nokkur fótur,
eins og ráðherrann drap á í gær.
Hann sagði m. a. um þetta efni:
Á árinu 1960 voru sett lög
um jöfnunarsjóð sveitarfélaga
og var þá ákveðið að hann
skyldi fá 1/5 hluta af þeim
söluskatti, sem þáw var á lagð-
ur, bæði 3% söluskattinum í
smásölu og 8% söluskattinum,
sem lagður er á innflutning.
Síðan hefur jöfnunarsjóður
sveitarfélaga fengið þetta fram-
lag bæði árin 1960, 1961, 1962
og 1963 og nú er í fjárl. að
sjálfsögðu gert ráð fyrir því og
áætlað, hver þessi hluti muni
verða, en i fjárlagaáætluninni
er gert ráð fyrir, að hann nemi
samtals að báðum þessum
tekjustofnum 104 millj. kr. Þeg-
ar nýja tollskráin kemur í gildi,
þá falla niður öll önnur að-
flutningsgjöld sem hér voru
rakin og m. a. innflutningssölu-
Framh i hls. 5.