Vísir - 29.03.1963, Page 3

Vísir - 29.03.1963, Page 3
Reykvíkingar í skíðaparadís Ungur skíðamaður úr Knatt- spymufélaginu Víking leggur til þessar góðu myndir í mynd- sjánni í dag. Það er Ásgeir Christiansen sem tók þær í Sol- fonn í Harðangursfjöllunum í Noregi. Þar dvöldu þeir rúma viku í nær stöðugu sólskini og dðsamlegu veðri, en endapunkt- ur dvalar þeirra í Solfonn var keppnin milli Reykjavíkur, Berg en og Glasgow. Þess er skemmst að minnast að skíða- menn vorir stóöu sig með prýði og veittu Bergen nokkra keppni en unnu milljónaborgina Glas- gow með yfirburðum, en í Glasgow er talsvert um góða skíðamenn, enda frábær skiða- lönd í grennd við Glasgow. Stærstu myndina tók Ásgeir á leiðinni upp lyftuna, sem er um 900 metrar á lengd. Sést greini- lega þvílík fegurð er á þessum slóðum. Á miðri myndinni er hótelið í Solfonn, sannkallað lúxushótel með öllum þægind- um. i Númer 21 á tvidálka mynd- inni er kappinn Sigurður R. Guðjónsson, margfaldur meist- ari og þrautreyndur f brekkum utan og innanlands. Það er víðar en meðal Eski- móa'sem hunduín er beitt fyrir sleða, það sýriir myndin af tveim þýzkættuðum hundum, sem einn Norðmaðurinn hafði til að draga sleða með föggum sínum. Hópmyndin sýnir frá vinstri: Sigurður R. Gúðjónsson, Þor- bergur Eysteinsson, sem varð annar i stórsvigi Á-flokks á mótinu, Ásgeir Christiansen, Helgi Axelsson, Þórir Lárusson, Þorgeir Ólafsson, Sigurjón Þórð arson, forstjóri Borgarþvotta- hússins, sem kom til að horfa á flokkinn f keppni og renndl sér sjálfur enda þaulvanur slfku, Gunnlaugur Sigurðsson, Sigurð ur Einarsson, Hinrik Hermanns son og Lárus Jónsson, farar- stjóri flokksins.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.