Vísir - 29.03.1963, Page 11
V1SIR . Föstudagur 29. marz 1963.
n
Slysavarðstofan í Heilsuverndat
stöðinni er opin allan sólarhring-
inn — Næturlæknir kl. 18—8.
sfmi 15030.
Næturvarzla vikunnar 23.—30.
marz er 1 Vesturbæjar Apóteki.
Útivist barna: Börn yngri en 12 j
ára, til kl. 20.00, 12-14 ára, tii I
kl. 22.00. Börnum og unglingum
innan 16 ára aldurs er óheimill að- ;
gangur að veitinga- dans- og sölu- j
stöðvum eftir kl. 20.00
ÚTVARPIÐ
Föstudagur 29. marz.
Fastir liðir eins og venjulega
20.00 Úr sögu siðbótarinnar; III.
erindi: Nýr siður á Skálholts
stað (Séra Jónas Gíslason).
20.25 Tónleikar.
20.45 í ljóði: Alþýðufólk, — þátt-
ur í umsjá Baldurs Pálma-
sonar.
21.10 „Lítið næturljóð", hljóm-
sveitarverk eftir Mozart.
21.30 Útvarpssagan: „íslenzkur að-
all“ eftir Þórberg Þórðarson;
XVII; (Höfundur les).
22.10 Passíusálmar (41).
22.20 Efst á baugi (Tómas Karls-
son og Björgvin Guðmunds-
son),
22.50 Á síðkvöldi: Létt-klassísjk
tónlist.
23.30 Dagskrárlok.
SJÓNVARPIÐ
Föstudagur 29. marz.
17.00 So This Is Holly;ood
17.30 Password
18.00 Afrts News
18.15 Greatest Dramas
18.30 Lucky Lager Sports Time
19.00 Current Events
19.30 Tennessee Ernie Ford
Nei, hún er ekki heima — Þér
eruð að tala við hina ljóshærðu,
síðhærðu og grannvöxnu vinkonu
hennar með fjólubláu augun!
Félag Járniðnaðarmanna í Reykja
vík hefur nýlega komið upp bóka-
safni fyrir félagsmenn. 1 bókasafn-
inu eru margs konar bækur og
tímarit varðandi flestar greinar
róálmiðfiá^rinigi^VHSmíðiaeinirtig
rit um félaggm'ál og sögu verka-
lýðshreyfinga/íbnar. Tæknirit jejru
flest á Norðurlandamálum, ensku
og þýzku og í þeim er mikið af
myndum til skýringar.
Félagið mun kappkosta að eign-
ast jafnóðum allan þann fjölda af
tækniritum sem koma út á Norð-
urlöndum og stuðla þannig að
fræðslu um tækni og nýjungar í
greinum málmiðnaðarins. Einnig
mun verða kappkostað að bóka-
safnið eignist sem mest af inn-
lendum og erlendum ritum um
félags og verkalýðsmál.
Bókasafnið er , skrifstofu Félags
járniðnaðarmanna í húseign þess
að Skipholti 19, og verður opið
fyrir félagsmenn á sunnudögum
kl. 2—5 fyrst um sinn.
BLÖÐ & TIMARIT
Rit æskulýðsráðs „Æskulýðs-
blaðið“, er nú komið út með nýju
sniði, og er breytingin mjög til
hins betra. Blaðið er í mun stærra
broti, og skemmtilegra, og eru efa-
laust margir sem fagna þvl. Þeir
Kór Kvennadeildar SVFf í
Reykjavík og Karlakór Keflavík-
ur halda nú í þriðja sinn sam-
elginlega konsert, sem verður 29.
og 30 marz og 1. apríl í Nýja Bíó
í Keflavík og 3. og 4. apríl í
Gamla Bíó hér í Reykjavík.
Þessir tveir kórar hafa ekki tek-
ið fyrir svo veigamikil verkefni,
sem eru elngöngu úr óperum og
óperettum, og hafa fæst þessará
verka áður verið flutt hér opin-
berlega af fslenzkum kórum og
einsöngvurum.
Fyrri hluti prógramsins er helg-
I aður óperum og verður þá fluttur
lokakaflinn úr Töfrastyttunni eftir
Weber, dans úr Kátu konurnar
frá Windsor eftir Nicolai, atriði
úr Systir Angelica eftir Puccini
og aría, kór og sextett úr Lucia
de Lammermoor eftir Donnizetti.
Á seinni hluta þessa samsöngs
verða fluttir stórir úrdrættir úr
tveimur óperettum, Keisarasynin-
um eftir Lehar og Nótt í Feneyj-
um eftir Johann Strauss.
Sjö einsöngvarar syngja með
kómum á þessum tónleikum, en
þeir eru Eygló Viktorsdóttir, Snæ-
björg Snæbjarnar, Erlingur Vig-
fússon, Vincenzo Maria Demetz,
Hjálmar Kjartansson, Haukur Þórð
arson og Böðvar Pálsson.
Söngstjóri er Herbert Hriber-
chek Ágústsson, sem undanfarin ár
hefur haft á hendi stjórn beggja
þessara kóra, en Vincenzo Maria
Demetz annast raddþjálfun þeirra.
Við flygelinn verður Ásgeir
Beinteinsson.
Ákveðið er, að kórarnir fari I
söngferð til Vestmannaeyjar um
páskana og haldi þar tvo kons-
erta þar á Páskadag.
Formaður kvennakórsins er frú
Gróa Pétursdóttir, en formaður
karlakórsins er Böðvar Pálsson.
rtasi
20.00 The Miss America Pageant
21.30 War With Spain, 1865-98
22.00 Music On Ice
23.00 Northern Lights Playhouse
„Lady From Lisbon“
Final Edhion News
BAZAR
Barzar Kirkjunefndar kvenna
Dómkirkjunnar verður þriðjudag-
inn 2. apríl kl. 2 e.h. í Góðtempl-
arahúsinu.
ÁRNAÐ HEILLA
Laugardaginn 23. þ.m. varu gef-
in saman í hjónaband af séra Jóni
Thorarensen ungfrú Arndís Magn-
úsdóttir og Hafsteinn Filippusson
húsgagnasmiður. Heimili þeirra er
að Grundargerði 24. (Ljósm. Studio
Gests, Laufásvegi 18).
BÓKASAFN FYRIR
JÁRNIÐNAÐARMENN
sem að því standa vinna að því
öllum stundum að gera það sem
bezt úr garði, og ber frágangur
allur þess ljósan vott.
Mikið hefur verið unnið til þess
að gera blaðið sem vinsælast og
fjölbreyttast. Þrjú skref hafa þegar
verið stigin að því marki. Fyrsta
skrefið var að stækka blaðið.
Annað var að kjósa fulltrúa þess
úr sem flestum prófastsdæmum
landsins, og reyna á þann hátt að
ná til sem flestra ungmenna um
land allt. Þriðja skrefið var útgáfu- ;
stjórn sem á að tryggja það að efni
og sjónarmið blaðsins verði ekki
of einhæf. Næstu tvö skrefin verða
að ráða að blaðinu góða ritstjórn
sem getur helgað því tíma sinn
óskiptan, og að það megi koma út
sex sinnum á ári I stað þess að
koma út fjórum sinnum.
Það er einlæg ósk þeirra sem að
þessu vinna, að blaðið megi eign-
ast sem flesta vini I lesendahópi
sínum og að unga fólkinu falli það
sem best í geð.
ÁHEIT Sr GJAFIR
Strandakirkja: Áheit frá gamalli
konu kr. 50,00. Kr. 50.00 frá NN.
SÖFNIN
Bæjarbókasafn Reykjavíkur, —
sími 12308. Aðalsafnið Þingholts-
stræti 29A: Útlánsdeild opin kl. 2-
10 alla daga nema laugardaga kl.
2-7 og sunnudaga kl. 5-7. Lesstof-
an er opin kl. 10-12 og 1-10 alla
daga nema laugardaga kl. 10-7 og
sunnudaga kl. 2-7.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Rétt að vera talsvert á
ferðinni í dag. Gamlir vinir þín-
ir eða kunningjar gætu reynzt
þér mjög ráðhollir varðandi við
fangsefni líðandi stundar.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Góðar horfur á því að þú getir
endurskipulagt fjármálin hjá
þér og jafnvel eignir þínar að
einhverju leyti. Eldri maður
gæti reynzt þér hjálplegur í
sambandi við þetta.
Tvíburamir, 22. maí til 21.
júní: Allar horfur eru á því að
þú eigir auðvelt með að fram-
fylgja áhugmálum þínum í dag.
Vinir þínir gætu reynzt þér
mjög ráðhollir síðar I dag.
Krabbinn, 22. júnl til 23. júlí:
Þér er mjög mikilvægt að leita
þér fremur hvíldar I kvöld en
leita þér skemmtana, sem reyna
á þig.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Athyglisverðar fréttir langt að
gætu verið I vændum. Taktu
þátt I félagslífinu I kvöld.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept:
Horfur eru vænlegar til fjáröfl-
unar I dag.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Farðu að ráðum þér vitrari
manna því það er mjög ráð-
legt.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Maki þinn kann að hafa komið
auga á góðar leiðir til sparn-
aðar. Þér er ráðlegt að taka
fullt tillit til hans I þeim efn-
um.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Þér er nauðsynlegt að
sýna skilning á þörfum annarra
og hugmyndum. Vertu sam-
starfsfús I kvöld.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Þér mun bjóðast gott tæki-
færi til að sýna hvað I þér býr
i dag með því að rétta þurfandi
hjálparhönd, enda mun það
koma á daginn að það borgaði
sig.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Vertu talsvert á ferðinni
í dag. Ljáðu ráðleggingum ann-
arra eyra.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Fúlsaðu ekki við góðum
ráðum á fjármálasviðinu.
Bjóddu vinum þfnum heim I
kvöld.
Jack, hvernig förum við að,
ef þessi plat lávarður neitar að
skrifa undir? Hann kemur ekki til
með að vita hvað hann skrifar
undir Orchid. Hann er frekar ein-
faldur náungi, og ekki veraldar-
vanur. Við verðum ekki I nein-
um vandræðum með hann eða
hinn heimska þjón hans.
(Um borð I flugvél). Engin
spilasvik Wiggers, ég þekki öll
þín brögð. Allt I lagi lávarður
minn. Vilduð þér þá gera svo
vel að afhenda spilin sem þér er-
uð með I erminni.
JACk, WHAT
IF THIS FAKE
"LORP PE5MONIP"
REFUSE5 TO
SISN OVER
THE
PLACEf
HE WON'T
REALIZE
WHAT HE'5
A
SIMPLE BIRC7
WHO POESN'T
KNOW HIS WAY
AROUNP. WEWON'T
HAVE A'NY
TROUBLE
WITH HIM
ANP HIS
OUMB BUTLER.
IN AN AIRLINEÍZ LOUNGE
VERY WELL,
M'LORP. ANP
LET S HAVE NO
BOTTÓM OR
SECONP
PEALING)
WISSERS.
I KNOW
YOUREVERY
I LL THANK YOU TO
KEEP THE CARPS
OUT OF YOUR