Vísir - 29.03.1963, Side 16

Vísir - 29.03.1963, Side 16
* VISIR Föstudagur 29. marz 1963. 75 ár liðin frá Heklugosi Um 100 ferðir á áætlun Ferðafélagsins í suntar Um næstu helgi hefjast ferðir I lagsins. Er hún sem stendur i Ferðafélags íslands, en í sumar prentun og líkur til að hún komi verða allt að 100 lengri og út i næstu viku. skemmri ferðir á ferðaáætlun fé-1 Fyrsta ferð Ferðafélagsins á ÞorskafHnn 30% meiri en í fyrra Bátar á þorskveiðum hafa aflað vel það sem af er vertíð- inni og apríl sem oft er bezti mðnuður vertíðarinnar fram- undan. Var afli bátanna i febrú- arlok orðinn 25—30% meiri en á sama tfma f fyrra. Mun þessi munur mun hafa aukizt í marz, því að bátarnir hafa aflað vel í mánuðinum. — Afli á togara er svipaður og f fyrra. 1 febrúarlok var síldarafli báta um 100% meiri en í fyrra, en í þessum mánuði (marz) hefir orðið hlé á síldveiðum og lítið bæzt við, en menn gera sér góðar vonir um síldveiðarn- ar í apríl. þessu ári verður n.k. sunnudag. Verður þá ekið að Fossá í Kjós, I þaðan gengið upp Þrándarstaða- fjall og síðan yfir Kjöl niður að Kárastöðum í Þingvallasveit. Þang- að verða þátttakendur svo sóttir undir kvöldið. Lagt verður af stað frá Austurvelli kl. 9 árdegis og verða farmiðar seldir við bílana. Um páskana efnir Ferðafélagið til tveggja ferða inn á Þórsmörk, önnur er 5 daga ferð, en hin 3 daga ferð, og verður farið á fimmtudagsmorgun í þá fyrri, en á laugardag kl. 2 e.h. í þá seinni. Dvalið verður í sæluhúsi félags- ins, en dagarnir notaðir til að ganga um Mörkina og á nærliggj- andi fjöll, þ.á.m. á Rjúpufell og Fimmvörðuháls. Duglegir göngu- menn geta farið á Eyjafjallajökul, ef þeir vilja. Þá verður og Stakk- holtsgjá skoðuð og fleiri fallegir og sérkennilegir staðir. Komið j Á þessum degi fyrir 15 árum, hinn 29. marz 1947, vaknaði tröllið mikla í Landsveit af aldagömlum svefni. Þegar við hér í blaðinu flettum Vísi frá þessum tfma rákumst við á tveggja línu fyrirsögn yfir þvera forsíðu: Heklugos hófst kl. 7 í morgun. Steig þá geysi- legur mökkur til lofts að undan- gengnum snörpum jarðskjálfta- kipp. Sífeildar drunur heyrðust úr fjallinu, öskufall er þegar hafið í Fljótshlíð, og þar var dimmt sem um hánótt þennan morgun. Þessi atburður er Is- lendingum í fersku minni, því enn erum við minnt á það, að við búum í eldafjalla- og land- skjálftalandi, og er þess skemmst að minnast er mikill landskjálfti gekk yfir mikinn hluta landsins í fyrrakvöld. Þessi ágæta mynd, sem við birtum í dag í tilefni af því, að 15 ár eru liðin frá því Hekla tók að gjósa, er áreiðanlega ein af fáum myndum, sem teknar voru af. gosinu frá Reykjavík séð. Myndina tók Tryggvi Samúels" son trésmiður um kl. sjö að morgni 29. marz 1947, eða um svipað leyti og Heklugosið hófst. Hann var við vinnu á verkstæði sínu f Laugarnesi, er honum var litið út um glugg- ann til austurs og sá þá mikinn mökk í lofti yfir Laugarásnum. Var hann svo heppinn að vera með myndavél sína með sér, brá sér þegar í stað út og tók þessa einstæðu mynd. Framh. á bls 5 Lýðneðissinnar sigruðu / Frama Þjóðminþsafmð rannsak■ ar bein Þjóðminjasafninu barst í gær tilkynning um kuml, sem talið er vera úr hciðni. Kumlið fannst fyrir nokkrum dögum. Þótti dr. Kristjáni Eldjárn, þjóðminjaverði, ekki ósennilegt lÍLJ ., að þarna hefði verið bænhús- reitur þar -em '-álfkirkia var í Krossanesi ytra. Dr. Kristján bað Steindór Steindórsson. yfirkennara ,að fara á staðinn og athuga hann nánar, þar sem hann hefur gott vit á þessum hlutum. Steindór tilkynnti í gær að hann teldi þetta vera kuml úr heiðni. í því var all- mikið af mannabeinum auk hrossabeina. Þjóðminjavörður sagði Vísi i morgun að Gísli Gestsson, safn- vörður mundi fara norður í dag að kanna þennan fund. Lýðræðissinnar unnu glæsilegan sigur í stjórnarkjörinu í Bifreiða- stjórafélaginu Frama, sem stóð yfir í gær og í fyrradag. Úrslit urðu þau að kommar og framsókn töp- uðu fylgi og þar með meirihluta sínum. Úrslitin urðu nú þau að A-listi lýðræðissinna í sjálfseignarmanna deild hlaut 246 atkvæði B-listi fram sóknar 106 atkv., og C-listi komma 77 atkvæði. I vinnuþegadeild hlaut A-listi lýðræðissinna 48 at- kvæði en B-listi komma og fram- sóknar sameiginlega hlaut 46 at- kvæði. í haust, þegar kosið var til Al- þýðusambandsins fengu Iýðræðis- sinnar 215 atkvæði en kommar og framsókn sameiginlegt 242 at- kvæði, og höfðu þvf 27 atkvæða meirihluta í félaginu. Nú fengu lýðræðissinnar hins vegar 57 at- kvæða meirihluta. Stjérn sjálfseignarmannadeildar er því skipuð þannig: Bergsteinn Guðjónsson, form. Jakob Þorsteins son, varaformaður, Narfi Hjartar- son, ritari og Sófus Bender og Gestur Sigurjónsson, sem með- stjórnendur. í stjórn vinnuþegadeildar eiga sæti: Styrmir Þorgeirsson, form, Haraldur Sigurðsson, varaform. og Björn Sigurðsson ritari.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.