Vísir - 06.04.1963, Page 8

Vísir - 06.04.1963, Page 8
8 V í S I R. Laugardagur 6. apríl 1963. i Utgefanai: Blaðaútgáfan VfSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og ''•’greiðsla Ingó'.fsstræti 3. Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði. I lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 linur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Öngþveitið hjá kommúnistum Eftir leiðara Þjóðviljans í fyrradag að dæma, öf- unda kommúnistar Sjálfstæðisflokkinn mikið af því, að hann hefur nú þegar birt alla framboðslista sína. Þetta er kannski skiljanleg öfund, þegar þess er gætt, hvernig ástandið er nú hjá kommúnistum sjálfum í framboðsmálunum. Þar logar allt í ófriði, foringjamir hafa í heitingum hver við annan og jafnvel kæra hver annan fyrir brot á lögum flokksins. Vítur hafa verið samþykkar á varaformanninn, Lúðvík Jósefsson, fyr- ir að hafa að engu fyrirmæli miðstjórnar, og aðra ósæmilega framlcomu gagnvart æðstu stofnunum flokksins. Jafnframt því sem Lúðvík er varaformaður Kommúnistaflokksins er hann og formaður þing- flokks Alþýðubandalagsins, en meirihlutinn þar hefur lagt blessun sína yfir framkomu Lúðvíks gagnvart hinum æðstu flokksstofnunum kommúnista! Það verður því varla sagt að ástandið sé gott og von að Þjóðviljinn reyni að breiða yfir það með því að láta í veðri vaka að ekkert liggi á og jafnvel skop- ast að öðrum flokkum, sem gengið hafa frá framboðs- listum sínum. Hins vegar er ótrúlegt að blaðið geti blekkt marga með slíku þvaðri, þar sem allur bærinn veit nú orðið, hvað töfinni hjá kommúnistum veldur. Það er líka kunnugt, að foringjar kommúnista eru dauðhræddir við kosningarnar. Þeir vita að fylgið hefur hrunið af flokknum upp á síðkastið og hann muni missa eitthvað af þingsætum, nema einhver björgun takist á síðustu stundu. Þess vegna er gamla og útslitna slagorðið um „samstöðu vinstri manna“ nú óspart notað á síðum Þjóðviljans, og hamrað á því, að sú „samstaða“ hafi aldrei verið meiri þjójðarnauð- syn en nú! Með því á enn að reyna að blekkja óflokks- bundna vinstri sinnaða sakleysingja og óánægða Framsókarmenn til fylgis við Moskvuvaldið. Reyna við leifarnar af Þjóðvörn Það sem kommúnistar setja nú einkum von sína á, eru leifarnar af Þjóðvarnarflokknum. Þjóðviljinn segir að það sé „fagnaðarefni“ að leiðtogar Þjóðvam- ar hafi nú loksins fengizt til að tala við Alþýðubanda- lagið um hugsanlegt samstarf í kosningunum. En íæplega verður það nú mikill hvalreki fyrir kommún- ista, þótt slíkt samstarf takist. Leifar Þjóðvarnarflokks- ins eru ekki stórar, og engan veginn víst að kommún- istar fengju þær allar, þó að „leiðtogarnir“ semdu slíkt framsal. Hin fáránlega barátta kommúnista gegn viðreisn inni og dekur þeirra við Rússa hlýtur að koma þeim í koll, og ósamlyndið innan flokksins stafar m. a. af því, að margir af stuðningsmönnum hans eru orðnir uppgefnir á Moskvuklíkunni, sem þar hefur ráðið lög- um og lofum. ———————— íslenzkur togari að landa fisk í Cuxiiaven f Þýzkalandi. einstökum löndum bandalags- ins. Það er ekki víst að þessi fyrsta ráðstefna bandalagsins áorki miklu meiru en því að semja eins konar skrá yfir þau vandamál, sem glíma þarf við í náinni framtíð. Sennilega verða þýðingarmestu umræð- urnar um landhelgistakmörk, og um uppbætur á fiskverð. Innan EUROPECHE eru skiptar skoðanir um það hvort banda- lagið eigi að móta stefnu sína í sjávarútvegsmálum áður en Bretland, Danmörk og Noregur verða fullgildir meðlimir í bandalaginu. Samkvæmt ummælum stjórn- arformanns EUROPECHE er það álit meirihlutans £ samtök- unum að veiðiskipum meðlima- ríkjanna, sé samkvæmt Rómar- sáttmálanum heimilt að veiða í „landhelgi" hverra annarra. Á þriggia mílna landhelgina er t. d. litið sem útfærslu á landamærum, en fiskveiðum á svæðinu ber að haga í sam- ræmi við reglur þess lands sem ræður svæðinu. Þetta frelsi til fiskveiða gæti orðið til þess að seinna mynd- uðust „evrópskar“ löndunar- hafnir, fyrir fiskiðnaðinn. Þær yrðu sem næst miðunum, út- búnar fullkomnustu tækjum til fiskmóttöku en jafnframt yrðu þær einnig að vera vel stað- settar með tilliti til þess að þaðan mætti á sem hagkvæm- StuðSar að samvinnu EBE- landa I sjávarútvegsmálum EUROPECHE, er bandalag fiskframleiðenda í hinum ýmsu Evrópulöndum Efnahagsbanda- lagsins, og var stofnað í maí 1962. Meðlimir eru þrjú lands- sambönd í Vestur-Þýzkalandi og eitt samband í hverju þess- arra ríkja: Belgíu, Frakklandi, Ítalíu og Hollandi, Höfuðstöðv- ar bandalagsins eru f Briissel, en það hefur einnig skrifstofur í Ostende í Belgíu. EUROFECHE leitast við að samrænia skoðanir og viðhorf bandalagsríkjanna í sjávarút- vegsmálum og kynna þessi við- horf í löndum Efnahagsbanda- lagsins. Vonast það til að geta orðið tengiliður fiskframleið- enda í Efnahagsbandalaginu og stjórnarnefndar EBE. Þessi níu-manna stjórnar- nefnd á að „skipuleggja stig- fara myndun sameiginlegs mark aðar þar sem allar hömlur verða niður lagðar, og vörur, þjónusta, vinnuafl, og fjármagn munu dreifast óhindrað innan þessa markaðar um Jeið og gætt er þess að fylgt sé ýtrustu regl- um um heilbrigða samkeppni.“ Bandalaginu er ljóst að Efna- hagsbandalagið getur ekki upp á eigin spýtur ráðið fram úr ýmsum vandamálum sínum, varðandi fiskveiðar. Samvinna við ríki utan Efnahagsbanda- lagsins verður að koma til. Stjórnarnefnd Efnahagsbanda- lagsins hefur ekki viljað leggja blessun sína yfir störf EURO- PECHE á þessu sviði. En hún hefur heldur ekki bannað þau. Meðlimir EUROPECHE eru látnir fylgjast sem allra bezt' með árangrinum af störfum bandalagsins. Ríki utan Efnahagsbandalags ins fá ekki að senda áheyrnar- fulltrúa á fundi EUROPECHE. Stjórnarnefnd EUROPECHE skipuleggur störf bandalagsins. Hún átti að koma saman f jan- úar en fresta varð fundum. Verkefni fundarins er að reyna að marka sameiginlega stefnu meðlimanna í sjávarútvegsmál- um, áður en gengið verður til mikillar ráðstefnu um sjávarút- vegsmál, sem sennilega verður haldin í febrúar n. k. annað hvort í Hollandi eða Ítalíu. Stjórnarformaður EURO- PECHE mun sitja ráðstefnuna ásamt áheyrnarfulltrúum frá í NTB-frétt frá Moskvu segir að frétt frá fréttastofunni ITALÍA um að Krúsév sé valt- ur í sessi sé hreinn uppspuni að áliti „reyndra stjórnmála- manna“. I Rómaborg hefur verið á kreiki orðrómur um, að Krúsév, sem verður 69 ára í þessum mánuði, ætli að fela öðrum for mennsku Kommúnistaflokksins eða forsætisráðherrastarfið, heilsufars og aldurs vegna. — I Moskvufréttinni segir, að menn séu ekki trúaðir á, að þetta muni gerast í náinni fram tíð. En það hefur annars komið í ljós í sambandi við frétt um, að Mao Tse Tung hafi verið boðið tii Moskvu í maí, að Krúsév á ekki heimangengt nú eða í bráð, því að honum var boðið að koma í heimsókn til Peking um leið og hann færi i fyrirhugaða heimsókn til Cambodiu, en Krú- sév kveðst ekki geta farið til HMWBI astan hátt dreifa fisknum á sem hæstu verði. Hafnir sem þessar myndu draga að skip frá öllum löndum Efnahagsbandalagsins, og gætu haft veruleg áhrif á núverandi stöðu ýmissa fiskiborga í Evr- ópu. Þessi þróun ásamt með öðrum ástæðum gæti valdið því að myndaðar yrðu smærri fram leiðslufyrirtæki en áður, til þess að stuðla að aukinni fram- leiðslugetu, útvegun fjármagns og um leið til að auka sam- keppnisgetuna. Peking, þar sem hann hefði orðið að anna vegna að hætta við ferðina til Cambodia, og mundi ríkisforsetinn fara í hana í sinn stað. Boðið til Mao var sent af mið stjórn Kommúnistaflokksins, og sleginn sá varnagli, ef Mao gæti ekki þegið boðið, að kín- versk sendinefnd kæmi tii Moskvu, til þess að ræða hug sjónir og stefnu kommúnista. SCona predíkar í Fríkirkjunm Frú Auður Eir Vilhjálmsdótt- ir cand. theol. predikar í Frí- kirkjunni kl. 5 á morgun, pálma sunnudag. Guðsþjónustan er á vegum Kvenfélags Fríkirkju- safnaðarins og mun þetta vera ■ í fyrsta skipti sem kona stígur í stólinn f Fríkirkjunni. iorið tii boka í Moskvu uð MRÚSÉV sé voltur í sessi

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.