Vísir - 20.04.1963, Page 7

Vísir - 20.04.1963, Page 7
VÍSIR . Laugardagui 20. aprí! 1963. Framlög til verklegra framkvæmda tvöfölduð Gunnar Thoroddsen, fjár- málaráðherra, var einn af þrem talsmönnum Sjálfstæðisflokks- ins í útvarpsumræðunum á miðvikudaginn. Birtist hér ræða ráðherrans. Þess skal getið að Eysteinn Jónsson (F) og Kari Guðjónsson (K) töluðu fyrr um kvöidið og beindist mál- flutningur ráðherrans einkum að ræðum þessara stjórnar- andstæðinga. Herra forseti. Góðir áheyr- endur. Hv. 1. þm. Austf., Ey- steinn Jónsson og hv. 6. þm. Sunnl., Karl Guðjónsson, gerðu báðir að umtalsefni hve mjög út- gjöld og álögur hefðu hækkað í tíð núv. ríkisstj. Hv. 1. þm. Austf. var þó öllu stórtækari og sagði, að álögur hefðu hækkað um 1400 millj. á kjörtímabilinu. Væntanlega á hv. þm. við breytinguna frá 1958,. sem hon- um og flokksbræðrum hans er tamt að tala um og hafa oftar nefnt þessa tölu sem dæmi um hækkun frá 1958 til fjárlaga fyrir 1963. Samanburður milli þessara ára er harla vafasamur og vara- samur. Það stafar af því, að árið 1958 vr ríkissjóðurinn klofinn í tvennt og annar parturinn kall- aður útflutningssjóður. Útgjöld hans námu á árinu nær 700 millj. kr. en ríkissjóðsins sjálfs um 940 millj. Séu þessar upp- hæðir lagðar saman, urðu ríkis- gjöldin um 1640 millj. og hafa, miðað við þessar tölur, því ekki hækkað um 1400 heldur um tæplega 540 millj. En málið er nú ekki svona einfalt. Það er ekki rétt eða sanngjarnt að bera sam- an ríkissjóðsgjöld 1958 og 1963 né heldur að bera sjóðina báða frá árinu 1958 samanlagða saman við ríkisgjöldin nú. Það er heldur ekki rétt að nota í þess- um samanburði tölur fjárl. fyrir árið 1958, heldur ríkisreiknings- ins vegna þess, hve útgjöldin fóru þá stórlega fram úr áætlun. Það gerir samanburðinn einnig erfiðan, að árið 1958 var mikili hluti af tekjum og gjöldum út- flutningssjóðs yfirfærslugjald og yfirfærslubætur, en þetta var grímuklædd gengislækkun. í sanngjörnum samanburði er væntanlega rétt að sleppa yfir- færslugjöldum og bótum, en eins og kunnugt er, kom rétt skrán- ing krónunnar í stað þeirra. Þegar nú samanburðurinn milli ársins 1958 og 1963 er gerður á eðlilegan og sanngjarnan hátt, litur dæmið þannig út, að ríkis- gjöldin hafa hækkað um 1105 millj. en ekki um 1400 millj. Skakkar þar nærri 300 millj. i samanburðinum hjá hv. þm. En 1105 millj. eru vissulega há tala og stór fúlga og því er rétt að kanna, í hvað hefur þetta fé far- ið? Hefur það horfið í einhverja eyðsluhít eða til hvers hefur það verið notað? Framlög til félagsmála og þar eru almannatryggingar stærsti liðurinn, hafa hækkað um 397 millj. kr. á þessum tíma. Fram- lög til að lækka vöruverð innan- lands og til uppbóta á afurðir landbúnaðarins, hafa hækkað um 282 millj. Framlög til skóla og Hallalaus ríkisbúskapur fræðslumála hafa hækkað um 138 millj. Framlög til atvinnu- mála til sjávar og sveita og bættra samganga á landi og sjó og í Iofti hafa hækkað um 133 millj. M. ö. o., af hækkun ríkis- gjaldanna á 5 árum, rúmlega 1100 millj. kr., hafa um 950 millj. gengið til félagsmála, kennslumála, niðurgreiðslna, at- vinnu- og samgöngumála, en öll önnur ríkisútgjöld, þ. á m. hin eiginlega stjórnsýsla, hafa vaxið um 155 millj. eða sem næst 30 millj. á ári að meðaltali. Miðað við fjölgun landsmanna cg sí- vaxandi framkvæmdir og þjón- ustu ríkisins, getur sú aukning útgjalda ekki talizt úr hófi fram. Og eins ber að hafa það í huga, að fólksfjölgun, aukning þjóðarframleiðsiu, innflutnings, veltu og velmegunar skilar rík- issjóði og sveitarsjóðum auknum tekjum ár frá ári að óbreyttum toll- og skattastigum, án þess að slíkt sé á mæltu máli kallað tolla- eða skattahækkanir. Framlög til verklegra framkvænida. Hv. 1. þm. Austf., Eysteinn Jónsson, sagði, að framlög til verklegra framkvæmda væru.nú mjög af skornum skammti og vegamálin í hreinu öngþveiti. Og Karl Guðjónsson sagði.aðframlög til verklegra framkvæmda hefðu i tíð stjórnarinnar verið lækkuð hlutfallslega. Við skulum nú at- huga sérstaklega hinar verklegu framkvæmdir, það, sem venju- lega er fellt undir það hug- tak er vegir brýr, hafnir, flugvelli, skólar, sjúkrahús. Ég tek hér eingöngu framlög til ný- framkvæmda, en ekki til við- halds, tölurnar eru þá þannig, að árið 1958 var varið til þessa alls 90 millj. kr., árið 1963 sarnkv. fjárl. 197 millj. Hækkuntil þessara verklegu framkvæmda er því um 107 mlilj. kr. Þessi framlög hafa í krónutölu meira en tvöfaldazt. En tilkostnaður- isgjöldum hefur farið á undan- förnum árum, þessar tölur, sem ég nefndi að gefnu sérstöku tilefni frá tveim hv. þm. bregða upp nokkurri mynd af því, sem gerzt hefur í þjóðmál- unum þetta tímabil, en það eru stóraukin fjárframlög til verk- legra framkvæmda vaxandi stuðningur við atvinnuvegi og menningarmál og margföldun á almannatryggingum. Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra Greiðsluafgangur hjá ríkissjóði. Hvernig hefur þá afkoma ríkis- sjóðs orðið á þessum tíma? Þaðer alltaf mikilsvert, að fjárlög séu af greidd hallalaus og ríkisbúskap- , urinn sé rekinn í samræmi við ; það. Og greiðsluafgangur hjá ríkissjóði var mikilvægur hlekk- ur í viðreisninni, hlekkur, sem ekki mátti bresta. Á árunum 1950 1958 að báðum meðtöldum, 9 að tölu, varð halli hjá ríkissjóði 5 aldur verið hjá rikissjóði eins og sjá má í rikisreikningum. Það er eðlilegt, að ríkissjóður hafi við- skiptaskuld hjá Seðlabankanum mikinn hluta árs, jrar sem út- gjöldin falla fyrr á en tekjur koma inn. En til þess er ætlazt, að slik viðskiptaskuld eins og aðrar lausaskuldir séu greiddar upp fyrir reikningslok og svo hefur verið gert í tvö undanfar- in ár. í árslok 1961 og 1962 skuldaði rikissjóður engar lausa- skuldir. Lánstraust endurvakið. En hvað þá um föst lán til langs tíma? Ég vil nefna tvennt, sem sýnir breytt viðhorf erlendis gagnvart íslenzkum fjár- málum. Alþjóðabankinn, sem verið hafði okkur lokaður í 8 ár, hefur opnað okkur dyr sínar að nýju og þegar lánað til langs tíma 86 millj. kr. til hitaveitu- framkvæmda. Og framkvæmda- lánið í Englandi að upphæð 240 millj. til 26 ára, sem fékkst á hinum frjálsa peningamarkaði í Lundúnum, verður á þessu og næsta ári aflgjafi mikilvægra framkvæmda víðs vegar um Iand. Slík lán til langs tfma þarf Island að taka á næstu árum til margháttaðra framkvæmda, en til þess að þau fáist, þarf að varðveita lánstraustið, efnahags- og fjármálagrundvöllinn. Ný tollskrá. En hvernig er svo aflað tekna til að standa undir ríkisbúskapn- um og hvaða breytingar hafa þar á orðið á stjórnartíma núv. rík- isstj.? Meginhlutinn af tekjum ríkissjóðs fékkst áður með tollum og tekjuskatti. Báða þessa tekju- stofna þurfti að endurskoða frá grunni og alla löggjöf um álagn- ingu þeirra, innheimtu og frani- kvæmd. Til þess lágu margar á- stæður. Tollarnir voru smám saman orðnir svo margir, marg- breytilegir og flóknir og reikn- aðir á svo margvíslegan hátt, að Ræða Gunnars Thoroddsen fjármóln- ráðherra við átvarpsumræðurnar inn hefur hækkað og ef umreikn- að er eftir vísitölu byggingar- kostnaðar, verður samt raunveru- leg hækkun 42%. M. ö. o. það er ekki aðeins meira en tvöföld- un að krónutölu, heldur hækkun yfir 40% að notagildi. Manni virðast því harla einkennileg þau ummæli þessara hv. tveggja þm. um að framlög til verklegra framkvæmda séu nú mjög af skornum skammti og hafi lækkað hlutfallslega frá því, sem áður var. Þær tölur, sem ég nefndi um það, í hvað þessi aukning á rík- árin en tekjuafgangur 4 árin. Öll þessi 9 ár var Eysteinn Jóns- son fjmrh. og eina heila árið, sem vinstri stjórnin lifði, var tekjuhalli. En síðan hefur orðið tekjuafgangur öll árin, 1959, 1960, 1961 og 1962. Þegar rætt er um lántökur ríkisins, verður að greina sundur, hvort tekin eru eðlileg hagkvæm lán til Iangs tíma eða safnað Iausaskuldum. Lausar óumsamdar skuldir þykja hvarvetna til vansa og hinn mesti þrifnaður að hreinsa þar til og borga þær upp. Lausaskuldir meiri og minni hafa um langan það var orðið á fárra manna færi að kunna þar full skil á. Ósamræmið var óviðunandi. Sem dæmi má nefna, að sams konar hlutur bar ýmist 21% toll eða 34% eða 77% eftir því, hvort átti að setja hann sem varahlut í bát, dráttarvél eða bíl. Og toll- arnir á ýmsum vörum voru komnir svo úr hófi, að stórfelld- ur ólöglegur innflutningur átti sér stað og var það á allra vit- orði. I nóvembermánuði 1961 var ráðizt í lækkun tolla á ýmsum vörutegundum, sem höfðu borið mjög háa tolla. Reynslan af þeirri tollalækkun varð sú, að hún færði almenningi lægra verð á ýmsum vörum, hún dró úr smyglinu og jók tekjur ríkis- sjóðs. Eftir þriggja ára starf hefur nú verið lögð fyrir Alþingi ný tollskrá, sem sníður aðalá- gallana af núv. tollakerfi, gerir það einfaldara, samræmdara, mun enn draga úr smyglinu til viðbótar ' þeim tollalækkunum, sem lögleiddar voru fyrir hálfu öðru ári. Og í heild miðað við innflutningsmagnið 1962 mun tollskráin nýja létta tollabyrðina um 100 millj. kr. Hv. 1. þm. Austf., Eysteinn Jónsson, sagði hér áðan: Bæjar- og sveitarfélög- unum er ætlað að bera helming af þessari 100 millj. kr. lækkun. Þessi staðhæfing er alröng. Bæði í grg. tollskrárfrv. og í framsögu- ræðu minni í hv. Ed. kom það svo skýrt fram, að ekki verður um villzt, að í stað hluta sveitar- félaganpa af innflutningssölu- skatti, en sá skattur verður nú felldur niður, skyldi jöfnunar- sjóður sveitarfélaganna fá fullar bætur. Fyrir árið 1963 er beint ákvæði í tollskránni, en varðandi framtíðina verður jöfriunarsjóði ætluð 5% af verðtollstekjum ríkissjóðs. En þá er skörin farin að færast upp í bekkinn þegar sá maður, Eysteinn Jónsson sem í áratug synjaði óskum sveitarfé- laganna um nýjan tekjustofn og hótaði eitt sinn afsögn úr ráð- herradómi, sem því rriiður varð ekki af, ef sveiíarfélögin fengju hluta af söluskatti — þá er skörin faHn að færast upp í bekkinn, þegar sá hinn sami maður briglzar þeim, sem beitti hafa sér fyrir lögfestingu hins nýja tekjustofns um, að þeir ætli nú að ræna sveitarfélögin helm- ingi þessara tekna. Hv. þm. viðurkenndi þó, að um tolllækkanir væri að ræða með nýju tollskránni. En það stafaði bara af því, að nú væri látið undan pressunni frá fram- sóknarmönnum og þar nefndi Iiann sem dæmi Iækkunina á tollum af dráttarvélum. Við skulum nú skoða það mál nánar. Nú 1 dag eru heildartollar af dráttarvélum 34%. 1958, þegar vinstri stjórnin skildi við, voru tollarnir 23l/2%, en samkv. nýju tollskránni' verða þeir 10% eða tæpur helmingur af því, sem þeir voru í stjórnartíð vinstri stjórnarinnar. Vildi leika á vísitöluna. Háttvirtur fyrsti þ. m. Austf. undraðist, að þessi tollalækkun. muni ekki lækka framfærslu- vísitöluna að ráði. Þessi undrun hans er eðlileg. Þessi háttvirtur þm. hafði nefnilega, meðan hann var í stjórnarsessi og var að hækka tolla og skatta, sem kom alloft fyrir, eitt aðalsjón- armið, það, hvernig væri hægt að komast fram hjá visitöl- unni, að leika á vísitöluna, leggja tolla á þær vörur, sem ekki værtf taldar í henni. En auðvitað var hann að rýra lífskjör fólksins með þessu. Nýja tollskráin er ekki miðuð Framh. á bls. 13

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.