Vísir - 20.04.1963, Qupperneq 7
VÍSIR . Laugardagui 20. aprí! 1963.
Framlög til verklegra
framkvæmda tvöfölduð
Gunnar Thoroddsen, fjár-
málaráðherra, var einn af þrem
talsmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins í útvarpsumræðunum á
miðvikudaginn. Birtist hér ræða
ráðherrans. Þess skal getið að
Eysteinn Jónsson (F) og Kari
Guðjónsson (K) töluðu fyrr
um kvöidið og beindist mál-
flutningur ráðherrans einkum
að ræðum þessara stjórnar-
andstæðinga.
Herra forseti. Góðir áheyr-
endur. Hv. 1. þm. Austf., Ey-
steinn Jónsson og hv. 6. þm.
Sunnl., Karl Guðjónsson, gerðu
báðir að umtalsefni hve mjög út-
gjöld og álögur hefðu hækkað í
tíð núv. ríkisstj. Hv. 1. þm.
Austf. var þó öllu stórtækari og
sagði, að álögur hefðu hækkað
um 1400 millj. á kjörtímabilinu.
Væntanlega á hv. þm. við
breytinguna frá 1958,. sem hon-
um og flokksbræðrum hans er
tamt að tala um og hafa oftar
nefnt þessa tölu sem dæmi um
hækkun frá 1958 til fjárlaga fyrir
1963. Samanburður milli þessara
ára er harla vafasamur og vara-
samur. Það stafar af því, að árið
1958 vr ríkissjóðurinn klofinn í
tvennt og annar parturinn kall-
aður útflutningssjóður. Útgjöld
hans námu á árinu nær 700
millj. kr. en ríkissjóðsins sjálfs
um 940 millj. Séu þessar upp-
hæðir lagðar saman, urðu ríkis-
gjöldin um 1640 millj. og hafa,
miðað við þessar tölur, því ekki
hækkað um 1400 heldur um
tæplega 540 millj.
En málið er nú ekki svona
einfalt. Það er ekki rétt
eða sanngjarnt að bera sam-
an ríkissjóðsgjöld 1958 og
1963 né heldur að bera sjóðina
báða frá árinu 1958 samanlagða
saman við ríkisgjöldin nú. Það er
heldur ekki rétt að nota í þess-
um samanburði tölur fjárl. fyrir
árið 1958, heldur ríkisreiknings-
ins vegna þess, hve útgjöldin
fóru þá stórlega fram úr áætlun.
Það gerir samanburðinn einnig
erfiðan, að árið 1958 var mikili
hluti af tekjum og gjöldum út-
flutningssjóðs yfirfærslugjald og
yfirfærslubætur, en þetta var
grímuklædd gengislækkun. í
sanngjörnum samanburði er
væntanlega rétt að sleppa yfir-
færslugjöldum og bótum, en eins
og kunnugt er, kom rétt skrán-
ing krónunnar í stað þeirra.
Þegar nú samanburðurinn milli
ársins 1958 og 1963 er gerður á
eðlilegan og sanngjarnan hátt,
litur dæmið þannig út, að ríkis-
gjöldin hafa hækkað um 1105
millj. en ekki um 1400 millj.
Skakkar þar nærri 300 millj. i
samanburðinum hjá hv. þm. En
1105 millj. eru vissulega há tala
og stór fúlga og því er rétt að
kanna, í hvað hefur þetta fé far-
ið? Hefur það horfið í einhverja
eyðsluhít eða til hvers hefur það
verið notað?
Framlög til félagsmála og þar
eru almannatryggingar stærsti
liðurinn, hafa hækkað um 397
millj. kr. á þessum tíma. Fram-
lög til að lækka vöruverð innan-
lands og til uppbóta á afurðir
landbúnaðarins, hafa hækkað um
282 millj. Framlög til skóla og
Hallalaus ríkisbúskapur
fræðslumála hafa hækkað um
138 millj. Framlög til atvinnu-
mála til sjávar og sveita og
bættra samganga á landi og sjó
og í Iofti hafa hækkað um 133
millj. M. ö. o., af hækkun ríkis-
gjaldanna á 5 árum, rúmlega
1100 millj. kr., hafa um 950
millj. gengið til félagsmála,
kennslumála, niðurgreiðslna, at-
vinnu- og samgöngumála, en öll
önnur ríkisútgjöld, þ. á m. hin
eiginlega stjórnsýsla, hafa vaxið
um 155 millj. eða sem næst 30
millj. á ári að meðaltali. Miðað
við fjölgun landsmanna cg sí-
vaxandi framkvæmdir og þjón-
ustu ríkisins, getur sú aukning
útgjalda ekki talizt úr hófi fram.
Og eins ber að hafa það í
huga, að fólksfjölgun, aukning
þjóðarframleiðsiu, innflutnings,
veltu og velmegunar skilar rík-
issjóði og sveitarsjóðum auknum
tekjum ár frá ári að óbreyttum
toll- og skattastigum, án þess að
slíkt sé á mæltu máli kallað
tolla- eða skattahækkanir.
Framlög til verklegra
framkvænida.
Hv. 1. þm. Austf., Eysteinn
Jónsson, sagði, að framlög til
verklegra framkvæmda væru.nú
mjög af skornum skammti og
vegamálin í hreinu öngþveiti. Og
Karl Guðjónsson sagði.aðframlög
til verklegra framkvæmda hefðu i
tíð stjórnarinnar verið lækkuð
hlutfallslega. Við skulum nú at-
huga sérstaklega hinar verklegu
framkvæmdir, það, sem venju-
lega er fellt undir það hug-
tak er vegir brýr, hafnir,
flugvelli, skólar, sjúkrahús. Ég
tek hér eingöngu framlög til ný-
framkvæmda, en ekki til við-
halds, tölurnar eru þá þannig,
að árið 1958 var varið til þessa
alls 90 millj. kr., árið 1963
sarnkv. fjárl. 197 millj. Hækkuntil
þessara verklegu framkvæmda
er því um 107 mlilj. kr. Þessi
framlög hafa í krónutölu meira
en tvöfaldazt. En tilkostnaður-
isgjöldum hefur farið á undan-
förnum árum, þessar tölur, sem
ég nefndi að gefnu sérstöku
tilefni frá tveim hv. þm.
bregða upp nokkurri mynd af
því, sem gerzt hefur í þjóðmál-
unum þetta tímabil, en það eru
stóraukin fjárframlög til verk-
legra framkvæmda vaxandi
stuðningur við atvinnuvegi og
menningarmál og margföldun á
almannatryggingum.
Gunnar Thoroddsen
fjármálaráðherra
Greiðsluafgangur
hjá ríkissjóði.
Hvernig hefur þá afkoma ríkis-
sjóðs orðið á þessum tíma? Þaðer
alltaf mikilsvert, að fjárlög séu af
greidd hallalaus og ríkisbúskap-
, urinn sé rekinn í samræmi við
; það. Og greiðsluafgangur hjá
ríkissjóði var mikilvægur hlekk-
ur í viðreisninni, hlekkur, sem
ekki mátti bresta. Á árunum 1950
1958 að báðum meðtöldum, 9 að
tölu, varð halli hjá ríkissjóði 5
aldur verið hjá rikissjóði eins og
sjá má í rikisreikningum. Það er
eðlilegt, að ríkissjóður hafi við-
skiptaskuld hjá Seðlabankanum
mikinn hluta árs, jrar sem út-
gjöldin falla fyrr á en tekjur
koma inn. En til þess er ætlazt,
að slik viðskiptaskuld eins og
aðrar lausaskuldir séu greiddar
upp fyrir reikningslok og svo
hefur verið gert í tvö undanfar-
in ár. í árslok 1961 og 1962
skuldaði rikissjóður engar lausa-
skuldir.
Lánstraust endurvakið.
En hvað þá um föst lán
til langs tíma? Ég vil nefna
tvennt, sem sýnir breytt viðhorf
erlendis gagnvart íslenzkum fjár-
málum. Alþjóðabankinn, sem
verið hafði okkur lokaður í 8
ár, hefur opnað okkur dyr sínar
að nýju og þegar lánað til langs
tíma 86 millj. kr. til hitaveitu-
framkvæmda. Og framkvæmda-
lánið í Englandi að upphæð 240
millj. til 26 ára, sem fékkst á
hinum frjálsa peningamarkaði í
Lundúnum, verður á þessu og
næsta ári aflgjafi mikilvægra
framkvæmda víðs vegar um
Iand. Slík lán til langs tfma þarf
Island að taka á næstu árum til
margháttaðra framkvæmda, en
til þess að þau fáist, þarf að
varðveita lánstraustið, efnahags-
og fjármálagrundvöllinn.
Ný tollskrá.
En hvernig er svo aflað tekna
til að standa undir ríkisbúskapn-
um og hvaða breytingar hafa þar
á orðið á stjórnartíma núv. rík-
isstj.? Meginhlutinn af tekjum
ríkissjóðs fékkst áður með tollum
og tekjuskatti. Báða þessa tekju-
stofna þurfti að endurskoða frá
grunni og alla löggjöf um álagn-
ingu þeirra, innheimtu og frani-
kvæmd. Til þess lágu margar á-
stæður. Tollarnir voru smám
saman orðnir svo margir, marg-
breytilegir og flóknir og reikn-
aðir á svo margvíslegan hátt, að
Ræða Gunnars Thoroddsen fjármóln-
ráðherra við átvarpsumræðurnar
inn hefur hækkað og ef umreikn-
að er eftir vísitölu byggingar-
kostnaðar, verður samt raunveru-
leg hækkun 42%. M. ö. o. það
er ekki aðeins meira en tvöföld-
un að krónutölu, heldur hækkun
yfir 40% að notagildi. Manni
virðast því harla einkennileg þau
ummæli þessara hv. tveggja þm.
um að framlög til verklegra
framkvæmda séu nú mjög af
skornum skammti og hafi lækkað
hlutfallslega frá því, sem áður
var.
Þær tölur, sem ég nefndi um
það, í hvað þessi aukning á rík-
árin en tekjuafgangur 4 árin.
Öll þessi 9 ár var Eysteinn Jóns-
son fjmrh. og eina heila árið,
sem vinstri stjórnin lifði, var
tekjuhalli. En síðan hefur orðið
tekjuafgangur öll árin, 1959,
1960, 1961 og 1962. Þegar rætt
er um lántökur ríkisins, verður
að greina sundur, hvort tekin eru
eðlileg hagkvæm lán til Iangs
tíma eða safnað Iausaskuldum.
Lausar óumsamdar skuldir þykja
hvarvetna til vansa og hinn mesti
þrifnaður að hreinsa þar til og
borga þær upp. Lausaskuldir
meiri og minni hafa um langan
það var orðið á fárra manna
færi að kunna þar full skil á.
Ósamræmið var óviðunandi. Sem
dæmi má nefna, að sams konar
hlutur bar ýmist 21% toll eða
34% eða 77% eftir því, hvort
átti að setja hann sem varahlut
í bát, dráttarvél eða bíl. Og toll-
arnir á ýmsum vörum voru
komnir svo úr hófi, að stórfelld-
ur ólöglegur innflutningur átti
sér stað og var það á allra vit-
orði. I nóvembermánuði 1961 var
ráðizt í lækkun tolla á ýmsum
vörutegundum, sem höfðu borið
mjög háa tolla. Reynslan af
þeirri tollalækkun varð sú, að
hún færði almenningi lægra verð
á ýmsum vörum, hún dró úr
smyglinu og jók tekjur ríkis-
sjóðs.
Eftir þriggja ára starf hefur
nú verið lögð fyrir Alþingi
ný tollskrá, sem sníður aðalá-
gallana af núv. tollakerfi, gerir
það einfaldara, samræmdara,
mun enn draga úr smyglinu til
viðbótar ' þeim tollalækkunum,
sem lögleiddar voru fyrir hálfu
öðru ári. Og í heild miðað við
innflutningsmagnið 1962 mun
tollskráin nýja létta tollabyrðina
um 100 millj. kr. Hv. 1. þm.
Austf., Eysteinn Jónsson, sagði
hér áðan: Bæjar- og sveitarfélög-
unum er ætlað að bera helming
af þessari 100 millj. kr. lækkun.
Þessi staðhæfing er alröng. Bæði
í grg. tollskrárfrv. og í framsögu-
ræðu minni í hv. Ed. kom það
svo skýrt fram, að ekki verður
um villzt, að í stað hluta sveitar-
félaganpa af innflutningssölu-
skatti, en sá skattur verður nú
felldur niður, skyldi jöfnunar-
sjóður sveitarfélaganna fá fullar
bætur. Fyrir árið 1963 er beint
ákvæði í tollskránni, en varðandi
framtíðina verður jöfriunarsjóði
ætluð 5% af verðtollstekjum
ríkissjóðs. En þá er skörin farin
að færast upp í bekkinn þegar sá
maður, Eysteinn Jónsson sem í
áratug synjaði óskum sveitarfé-
laganna um nýjan tekjustofn og
hótaði eitt sinn afsögn úr ráð-
herradómi, sem því rriiður varð
ekki af, ef sveiíarfélögin fengju
hluta af söluskatti — þá
er skörin faHn að færast upp í
bekkinn, þegar sá hinn sami
maður briglzar þeim, sem beitti
hafa sér fyrir lögfestingu hins
nýja tekjustofns um, að þeir ætli
nú að ræna sveitarfélögin helm-
ingi þessara tekna.
Hv. þm. viðurkenndi þó, að
um tolllækkanir væri að ræða
með nýju tollskránni. En það
stafaði bara af því, að nú væri
látið undan pressunni frá fram-
sóknarmönnum og þar nefndi
Iiann sem dæmi Iækkunina á
tollum af dráttarvélum. Við
skulum nú skoða það mál nánar.
Nú 1 dag eru heildartollar af
dráttarvélum 34%. 1958, þegar
vinstri stjórnin skildi við, voru
tollarnir 23l/2%, en samkv. nýju
tollskránni' verða þeir 10% eða
tæpur helmingur af því, sem
þeir voru í stjórnartíð vinstri
stjórnarinnar.
Vildi leika á vísitöluna.
Háttvirtur fyrsti þ. m. Austf.
undraðist, að þessi tollalækkun.
muni ekki lækka framfærslu-
vísitöluna að ráði. Þessi undrun
hans er eðlileg. Þessi háttvirtur
þm. hafði nefnilega, meðan hann
var í stjórnarsessi og var að
hækka tolla og skatta, sem kom
alloft fyrir, eitt aðalsjón-
armið, það, hvernig væri
hægt að komast fram hjá visitöl-
unni, að leika á vísitöluna, leggja
tolla á þær vörur, sem ekki værtf
taldar í henni. En auðvitað var
hann að rýra lífskjör fólksins
með þessu.
Nýja tollskráin er ekki miðuð
Framh. á bls. 13