Vísir - 03.05.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 03.05.1963, Blaðsíða 1
y ■. Hinn heimsfrægi knattspymu- maður Pele, sem leikur með liði Brasiliu. 200 LÓÐUM ÚTHLUTAB í gær staðfesti borgar- stjóm Reykjavíkur út- hlutun borgarráðs á lóð- um undir 216 íbúðir í f jölbýlishúsum við Fells- múla og Háaleitisbraut. Fjölbýlishúsin eru 13, þar af 12 með 16 íbúð- A ttatíu Islenaingar á knatt■ um og eitt með 24 íbúð- um. Alls verður úthlutað lóðum undir 19 fjölbýlishús við þessar götur. Óúthlutað er þá lóðum undir sex fjölbýlishús og mun það verða gert á næstunni. Borgarstjóri, Geir Hallgrfms- son, sagði á fundi borgarstjórn- arinnar í gær að haldið yrði á- fram að úthluta þeim lóðum, sem verið hefðu í undirbúningi. Hann lagði áherzlu á, að á með- an ekki væri hægt að fullnægja eftirspurn eftir lóðum væri alls ekki mögulegt fyrir yfirvöldin, hversu velviljuð sem þau væru, að úthluta svo að öllum líkaði. En það er stefnt að því að hægt verði að fullnægja eftirspurninni þannig að jafnvægi náist, í þess- um efnum, sagði borgarstjórinn. spyrnukappleik í LONDON GóS veiSi í nótt í. árg. — Föstudagur 3. maí 1963. — 97. tbl. VERKBANNINU MÓTMÆLT Eins og skýrt var frá hér í blaðinu á mánudag, hefur Verkalýðsfélag Miðneshrepps boðað verkbann á síldarbáta Guðmundar frá Rafn- kelsstöðum. Nú hefur Vinnuveitendasamband ið og LÍÚ mótmælt þess- ari vinnustöðvun, sem hefjast á á miðnætti í kvöld, lýsa hana ólög- lega og áskilja sér rétt til skaðabóta af öllu því sem af hlýzt. Sendu Vinnuveitendasam- bandið og LÍÚ bréf þess efnis til Verkalýðs- og sjómannafé- lags Miðneshrepps í vikunni. Hafa lögfræðingar sambandsins haft vinnustöðvunarboðun verkalýðsfélagsins til athugun- ar að undanförnu. Afstaða þeirra byggist á ákvæðum vinnulöggjafarinnar. Vinnustöðvunin á að ná yfir allt félagssvæðið áðumefnds verkalýðsfélags. Þar sem born- ar hafa verið brigður á sann- leika þeirrar fréttar sem hér birtist í blaðinu á mánudaginn, Framhald á bls. 5. Þrjú læknis- héruð luus í nýútkomnu Lögbirtingablaði era þrjú héraðslæknisembætti auglýst laus til umsóknar. Eru það embættin í Kirkjubæjar- klaustri, Austur-Egilsstaðahér- að og Reykhólahérað. — Úlfur Ragnarsson, sem gegnt hefur embættinu á Kirkjubæjar- klaustri, hefur sagt því lausu og ætlar að flytjast til Reykja- víkur. Hin héruðin tvö hafa ver- ið laus og kandidatar gegnt störfum í þeim. Umsóknarfrest- ur um Kirkjubæjarklaustur er til 15. maf, en um hin til 18. maí. TRYSTlVtLAR HÉÐINS Á ALÞJÓÐASÝNINGU Hinar svonefndu Booster- fíystivélar, sem framleiddar eru hjá vélsmiðjunni Héðni i Reykja vik og teiknaðar þar, eru nú orðnar svo útbreiddar, að með þeim eru fryst 90% alls freð- fiskútflutnings þjóðarinnar. — Þessar vélar, sem eru langal- gengastar i íslenzkum frystihús- um, verða sýndar á vegum Héð- ins i fyrsta skipti erlendis sið- ar í þessum mánuði á hinni miklu fiskveiða- og fiskiðnað- arsýningu í London. Er talið að þessar íslenzku frystivélar séu samkeppnisfær- ar um verð á erlendum markaði. En um reynsluna af þeim hafa ekki aðrir getað dæmt til þessa en Islendingar. Héðinn mun einn ig sýna Isframleiðsluvél á þess- ari sýningu. Þessi vél framleið- ir nú skelís f 50 frystihúsum hér á landi. Auk Héðins munu Hampiðjan og Kassagerð Reykjavíkur sýna ýmsar framleiðsluvörur sjnar á fyrmefndri sýningu í London, sem verður umfangsmesta sýn- ing á sviði sjávarútvegs, fisk- iðnaðar og fiskverzlunar, sem nokkru sinni hefir verið haldin. - VtSIR Aðfaranótt þriðjudags ins 7. maí n. k. heldur héðan frá íslandi 80 manna flugvél, að mestu fullskipuð, rakleitt til Lundúnaborgar. Erind- ið: Að horfa á knatt- spyrnukappleik. í þetta skipti er það ekki Þór- ólfur Beck, sem á hlut að máli, heldur „óbreytt ir leikmenn“ frá Brazilíu sem leika landsleik við heimamenn, Englend- inga. Framh. á.bls. 5. Síldaraflinn í nótt nam 9—10 þús- und tunnum. Yfir 20 bátar fengu sfld í gær- kvöldi og nótt, en undir morgun hvessti á miðunum og var ekki veiðiveður í birtingu. Mestan afla fékk Eldborgin, 1500 tn., en all- margir fengu 4—500 tn. og nokkrir 100—-250 tn. Síldin fékkst aðallega 20—22 mílur NV af Akranesi. Þessir bátar lögðu upp á Akra- nesi: Höfrungur 500, Haraldur 350, Sigurður Bjarnason 600, Reynir 250, Skarðsvík 100 og Vfðir frá Eskifirði 120. Framh. á bls. 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.