Vísir


Vísir - 03.05.1963, Qupperneq 7

Vísir - 03.05.1963, Qupperneq 7
V í S I R . FötVidagur 3. maí 1963. 7 ÁRSÞING IÐNREKENDA 1963 % \ Eins og áður hefur verið getið var ársþing iðnrekenda sett í Súlnasalnum, Hótel Sögu, mið- vikudaginn 17. apríl s.I. Á lokafundi ársþingsins, sem hófst í Leikhúskjallaranum kl. 10.00 f. h. s.l. Iaugardag, skiluðu starfsnefndir þingsins álitum um ýmis þau mál er varða hagsmuni iðnaðarins og urðu miklar um- ræður. Ársþinginu var slitið af formanni Félags íslenzkra iðn- rekenda, Gunnari J. Friðriks- syni um kl. 16.00 sama dag. Hér fara á eftir nokkrar þeirra ályktana, sem ársþingið sam- þykkti: Tollamál. Ársþing iðnrekenda 1963 lýsir ánægju sinni yfir, að tollskráin skuli hafa verið endurskoðuð og telur, að fyrirmynd sú, sem farið hefur verið eftir við flokkun hennar sé til mikilla bóta og svari betur kröfum nútíma'ns og þörfum atvinnuveganna. Þá ber sérstaklega að fagna því nýmæli að sett skuli hafa verið ákvæði um undirboðs- og jöfnunartolla. Hins vegar harmar ársþingið, að réttmætum kröfum um leið- réttingu fyrir vissar iðngreinar, skuli hafa verið synjað. Verður ekki lítið fram hjá þeirra stað- reynd, að ákveðnar iðngreinar búa við mun lægri tollvernd en hliðstæðar iðngreinar í viðskipta- löndum vorum og eru þannig of- urseldar ójafnri aðstöðu til sam- keppni. Komi til gagnkvæmra tollalækkana við þessi lönd, verður að gera þá kröfu, að áður en til lækkana kemur, njóti eng- in íslenzk atvinnugrein minni toll- verndar en meðaltollvernd hlið- stæðra atvinnugreina er meðal við skiptaþjóða vorra. Þá bendir ársþingið á, að hin- ir háu tollar, sem eru á vélum til iðnaðarframleiðslu, hljóta að draga verulega úr vélvæðingu iðnaðarins og tilkomu nýrra iðn- greina, auk þess, sem það úti- lokar möguleika íslenzkra iðnfyr- irtækja til samkeppni á erlendum mörkuðum. Ársþingið beinir því til fjár- málaráðherra, að nefnd þeirri, sem skipuð verður samkvæmt 34. gr. tollskrárlaganna, verði falið að fjalla um rökstuddar breyt- ingartillögur, sem komið hafa fram og fram kunna að koma og verði lagfæringar á tollskránni lagðar fyrir Alþingi á næsta hausti. Innlent tollvörugjald. Þær þreytingar, sem gert er ráð fyrir að verði á aðflutriings- tollum sams konar vara og þeirra, sem nú er greitt af innlent toli- vörugjald, munu í mörgum til- fellum hafa í för með sér veru- lega neikvæða tollvernd innlendu framleiðslunnar. Því skorar árs- þingið á Alþingi, að samþykkja lækkun innlenda tollvörugjalds- ins til samræmis við breytta að- flutningstolla. Leggja verður á- herzlu á, að um leið og Iögin um innlent tollvörugjald verða end- urskoðuð, verði fullt tillit tekið til þess, að innlendir framleið- endur verða að kaupa innlend hráefni, sem' er verulegur hluti framleiðsluverðmætisins, á miklu hærra verði, en hinn erlendi framleiðandi þarf að greiða fyrir sams konar hráefni. Lóða- og byggingamál. Ársþing iðnrekenda 1963 vek- ur. athygli forráðamanna borg- ar-, bæjar- og sveitarfélaga, svo og annarra skipulagsyfir- valda á því, að iðnaðurinn í Iandinu getur því aðeins gegnt hlutverki sínu í framtíðinni, að iðnfyrirtækjum sé á hverjum tíma séð fyrir rúmgóðum bygg- ingarlóðum og athafnasvæðum, t. d. f útjöðrum þéttbýlis og Iosa á þann hátt hinar dýrari lóðir bæjanna til annarra þarfa. Bendir ársþingið á, að öðru jöfnu munu þau bæjarfélög draga til sín iðn- fyrirtæki, sem bjóða þeim hag- stæðasta fyrirgreiðslu í þessum efnum. Við skipulagningu slíkra svæða verður að miða við þárfir fyrir- tækjanna 20 - 30 ár fram í tím- ann. Þessa hefur því miður ekki verið gætt sem skyldi á undan- förnum árum, enda er erfitt að sjá fyrir hina öru þróun iðnað- arins, í þessu sambandi ber þó að þakka þá viðleitni til úrbóta, sem Reykjavíkurborg hefur nú sýnt með skipulagningu fyrirhugaðra iðnaðarsvæða við Grensásveg og norðan við Árbæ. MiðaÖ við þá reynslu, sem fyrir liggur hér á landi og er- lendis, telur ársþingið, að nýjar iðnaðarlóðir þurfi að vera að minnsta kosti 3—4 sinnum stærri að flatarmáli en nemur gólffieti þeirra bygginga, sem reistar eru í lokaáfanga, þannig að enn verði nægilegt athafnasvæði fyrir hendi. þótt byggingar á lóðunum séu síðar auknar verulega. I þessu sambandi má geta þess, að það stuðlar að aukinni fram- leiðni og samkeppnishæfni í ýms- um iðnaði, að verksmiðjubygg- ingarnar séu á einni hæð. Ársþingið vekur athygli á því í þessu sambandi að á næstu 25 árum mun þjóðinni fjölga um allt að 100 þúsund manns, og þá fyrst og fremst í bæjum og öðru þéttbýli. Verulegur hluti vinnu- aflsins, sem þjóðinni bætist á þessum árum, hlýtur að verða að fá framfæri sitt af iðnaðarstarf- semi í einni eða annarri mynd. Framundan er því óhjákvæmilega stórfelld uppbygging iðnaðar, sem taka verður tillit til nú þegar, ef vel á að fara. Ársþingið vill einnig undir- strika nauðsyn þess að lóðagjöld- um iðnaðarins sé stillt í hóf og greiðsluskilmálar þeirra séu gerð- ir aðgengilegir. Sérstaklega er það varhugavert að íþyngja iðn- fyrirtækjum með greiðslu hárra lóðastofngjalda einmitt á þeim tíma, sem þau eru að hefja bygg- ingaframkvæmdir. Telur fundur- inn, að slík gjöld beri að inn- heimta á lengri tíma, og í áföng- um eftir því sem byggingar á hverri einstakri lóð eru auknar. Iðnlánasjóður. Ársþing iðnrekenda 1963 lýsir ánægju sinni yfir því, að Iðnlána- sjóði skuli hafa verið sett ný löggjöf, er miðar að eflingu sjóðsins og útfærslu starfssviðs hans. Fagnar þingið þeirri stefnu- breytingu, sem átt hefur sér stað af hálfu ríkisvaldsins, að því er varðar öflun á fjárfestingarlánum til iðnaðarins jafnframt því, sem iðnaðurinn leggur sitt af mörkum með árlegu gjaldi til uppbygging- ar Iðnlánasjóði. Þó verður að leggja áherzlu á, að með því fjármagni, er fengizt hefur, verð- ur einungis takmörkuðum hluta þarfa iðnaðarins fyrir fjárfesting- arlán fullnægt. Væntir ársþingið því, að framhald verði á aukn- ingu þeirrar fyrirgreiðslu, sem fengizt hefur. Iðnaðarbanki íslands h.f. Ársþing iðnrekenda 1963 fagnar nýorðnum breytingum á lögum um Iðnaðarbanka íslands, er heimila hluthafafundi að á- kveða, hvert hlutafé bankans skuli vera á hverjum tfma og stjórn bankans að ráða tölu bankastjóra. Telur ársþingið, að með þessari breytingu hafi veru- lega verið bætt skilyrði bankans til frekari eflingar og stuðnings við iðnað landsmanna. Ársþingið vill enn ítreka óskir sínar um að Iðnaðarbankanurr verði veitt heimild til gjaldeyric verzlunar. Skorar þingið á rík isstjórnina að beita sér fyrir því við bankastjórn Seðlabankans að heimild þessi verði veitt þeg- ar á þessu ári, til þess að bank- inn geti veitt viðskiptamönnum sínum þjónustu einnig á þessu sviði bankaviðskipta. Telur þingið, að traustur hagur bankans, fjárhagslegt bolmagn og rúmgott húsnæði hafi skapað honum raunhæf skilyrði til þess að verða aðnjótandi þessara rétt- inda, auk þess sem traust gjald- eyrisaðstaða landsins út á við gerir lausn þessa máls auðveldari nú en nokkru sinni fyrr. Rekstrarfjárlán. Ársþingið lýsir yfir stuðningi sínum við eftirfarandi niðurstöð- ur nefndar þeirrar, er iðnaðarmála ráðherra skipaði árið 1959 undir formennsku dr. Jóhannesar Nor- dal, til athugunar á lánsfjármál- um iðnaðarins. í niðurstöðum Ieggur nefndin m. a. fil: „að nú sé tímabært vegna þess jafn- vægis, sem náðst hefur í peninga málum, að endurskipuleggja lán- veitingar viðskiptabankanna til iðnaðarins með það fyrir augum að tryggja, að eðlilegur hluti af lánveitingum fari ti! fjárfestingar- lána til Iangs tíma. Fyrsta skref- ið í þessum aðgerðum verði að breyta hluta af stuttum skuldum iðnfyrirtækja við bankana í löng lán með veði í eignum þeirra“. Með vísun tii framangreindra niðurstöðu Ieggur ársþingið á- herzlu á, að eftirfarandi verði framkvæmt hið fyrsta: a) Ríkisstjórnin beiti sér fyrir samkomulagi viðskiptabankanna um* að breyta stuttum skuldum iðnfyrirtækja við bankana í löng Ián likt og átt hefur sér stað urn lausaskuldir sjávarútvegs og land búnaðar. b) Jafnframt leggur þingið á- herzlu á, að reglum um endur- kaup afurðavíxla verði þegar breytt á þann veg, að ekki verði um neinn mismun að ræða varð- andi endurkaup afurðavíxla út- flutningsframleiðslunnar eftir því hvort sjávarútvegur, landbúnaður ■>ða iðnaður á í hlut. "st'íurskoðun vinnulög- gjafarinnar. Ársþing iðnrekenda 1963 fagn- ar framkominni tillögu á Alþingi um nauðsyn á endurskoðun vinnulöggjafarinnar og telur nauð synlegt, að endurskoðunin verði falin nefnd, sem skipuð verði fulltrúum tilnefndum af samtök- um stjórnenda atvinnufyrirtækja og launþega. Endurskoðun laga nr. 16/1958. Ársþingið bendir ennfremur á naúðsyn endurskoðunar laga nr. 16/1958 um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og um rétt þess og fastra starfs- manna til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla, þar sem mis- munandi skilningur hefur komið fram á ýmsum ákvæðum laganna. Þá ber og nauðsyn til að setja skýr mörk um bótaskyldu fyrir- tækja og Tryggingastofnunar rík- isins í slysatilfellum. Vinnurannsóknir og hagræðing. Ársþingið telur, að tryggasta leiðin til varanlega bættrar efna- hagsafkomu fyrirtækja og starfs- manna þeirra, sé fólgin í bættri nýtingu framleiðsluþáttanna, þ. e. aúkningu framleiðni. Það tel- ur því nauðsynlegt, að meiri á- herzla sé lögð á hagkvæmni í skipulagningu atvinnufyrirtækja, verkkönnun og vinnuhagræðingu, ákvæðisvinnu og afkastaverðlaun- un. Þar sem slíkt verður ekki fram- kvæmt með góðum árangri, nema með aðstoð sérfróðra manna, fagnar ársþingið því, að á vegum Iðnaðarmálastofnunar íslands hef ur verið hafizt handa um úrbætur i þessum efnum með námskeiðum í hagræðingartækni og verk- stjórn. Tækniskóli. Ársþingið fagnar fram komnu frumvarpi um tækniskóla, en tel- ur þó, að gert sé ráð fyrir of langri verklegri þjálfun sem inn- tökuskilyrði I skólann. Væntir ársþingið þess, að fullt tillit verði tekið til þarfa verksmiðju- iðnaðarins, þegar reglugerð fyrir skólann verður samin. Starfsfræðsla. Ársþingið vill vekja athygli á þeirri starfsfræðslu, sem verið hefur á vegum Reykjavíkurborgar og annarra bæjarfélaga og vænt- ir þess að áframhald verði á henni og hún látin ná til sem flestra greina atvinnulífsins. Verðlagsmál. Þar sem langvarandi verðlags- höft hafa mjög óheillavænleg á- hrif á hagkvæma uppbyggingu atvinnuvega þjóðarinnar og trú á gildi þeirra fer almennt minnk- andi, skorar ársþing iðnrekenda 1963 á ríkisstjórnina að hefja nú þegar undirbúning að afnámi op- inberrar íhlutunar um verðlagn- ingu iðnaðarframleiðslunnar. Á meðan algjört afnám verð- lagsákvæða hefur ekki farið fram, krefst ársþingið þess, að rökstúðningur verðlagsyfirvald- anna fylgi við verðákvarðanir hverju sinni, og að úrskurðir séu jafnan í anda sjálfra verðlagslag- anna, en þau mæla svo fyrir, að „verðlagsákvaðanir allar skuli miðaðar við þörf þeirra fyrir- tækja, sem hafa vel skipulagðan og hagkvæman rekstur". Úr vélasal Hampiðjunnar í Reykjavik-

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.