Vísir - 03.05.1963, Side 7
V í S I R . FötVidagur 3. maí 1963.
7
ÁRSÞING IÐNREKENDA 1963
% \
Eins og áður hefur verið getið
var ársþing iðnrekenda sett í
Súlnasalnum, Hótel Sögu, mið-
vikudaginn 17. apríl s.I.
Á lokafundi ársþingsins, sem
hófst í Leikhúskjallaranum kl.
10.00 f. h. s.l. Iaugardag, skiluðu
starfsnefndir þingsins álitum um
ýmis þau mál er varða hagsmuni
iðnaðarins og urðu miklar um-
ræður. Ársþinginu var slitið af
formanni Félags íslenzkra iðn-
rekenda, Gunnari J. Friðriks-
syni um kl. 16.00 sama dag.
Hér fara á eftir nokkrar þeirra
ályktana, sem ársþingið sam-
þykkti:
Tollamál.
Ársþing iðnrekenda 1963 lýsir
ánægju sinni yfir, að tollskráin
skuli hafa verið endurskoðuð og
telur, að fyrirmynd sú, sem farið
hefur verið eftir við flokkun
hennar sé til mikilla bóta og
svari betur kröfum nútíma'ns og
þörfum atvinnuveganna. Þá ber
sérstaklega að fagna því nýmæli
að sett skuli hafa verið ákvæði
um undirboðs- og jöfnunartolla.
Hins vegar harmar ársþingið,
að réttmætum kröfum um leið-
réttingu fyrir vissar iðngreinar,
skuli hafa verið synjað. Verður
ekki lítið fram hjá þeirra stað-
reynd, að ákveðnar iðngreinar
búa við mun lægri tollvernd en
hliðstæðar iðngreinar í viðskipta-
löndum vorum og eru þannig of-
urseldar ójafnri aðstöðu til sam-
keppni. Komi til gagnkvæmra
tollalækkana við þessi lönd,
verður að gera þá kröfu, að áður
en til lækkana kemur, njóti eng-
in íslenzk atvinnugrein minni toll-
verndar en meðaltollvernd hlið-
stæðra atvinnugreina er meðal við
skiptaþjóða vorra.
Þá bendir ársþingið á, að hin-
ir háu tollar, sem eru á vélum til
iðnaðarframleiðslu, hljóta að
draga verulega úr vélvæðingu
iðnaðarins og tilkomu nýrra iðn-
greina, auk þess, sem það úti-
lokar möguleika íslenzkra iðnfyr-
irtækja til samkeppni á erlendum
mörkuðum.
Ársþingið beinir því til fjár-
málaráðherra, að nefnd þeirri,
sem skipuð verður samkvæmt 34.
gr. tollskrárlaganna, verði falið
að fjalla um rökstuddar breyt-
ingartillögur, sem komið hafa
fram og fram kunna að koma og
verði lagfæringar á tollskránni
lagðar fyrir Alþingi á næsta
hausti.
Innlent tollvörugjald.
Þær þreytingar, sem gert er
ráð fyrir að verði á aðflutriings-
tollum sams konar vara og þeirra,
sem nú er greitt af innlent toli-
vörugjald, munu í mörgum til-
fellum hafa í för með sér veru-
lega neikvæða tollvernd innlendu
framleiðslunnar. Því skorar árs-
þingið á Alþingi, að samþykkja
lækkun innlenda tollvörugjalds-
ins til samræmis við breytta að-
flutningstolla. Leggja verður á-
herzlu á, að um leið og Iögin um
innlent tollvörugjald verða end-
urskoðuð, verði fullt tillit tekið
til þess, að innlendir framleið-
endur verða að kaupa innlend
hráefni, sem' er verulegur hluti
framleiðsluverðmætisins, á miklu
hærra verði, en hinn erlendi
framleiðandi þarf að greiða fyrir
sams konar hráefni.
Lóða- og byggingamál.
Ársþing iðnrekenda 1963 vek-
ur. athygli forráðamanna borg-
ar-, bæjar- og sveitarfélaga,
svo og annarra skipulagsyfir-
valda á því, að iðnaðurinn í
Iandinu getur því aðeins gegnt
hlutverki sínu í framtíðinni, að
iðnfyrirtækjum sé á hverjum
tíma séð fyrir rúmgóðum bygg-
ingarlóðum og athafnasvæðum, t.
d. f útjöðrum þéttbýlis og Iosa
á þann hátt hinar dýrari lóðir
bæjanna til annarra þarfa. Bendir
ársþingið á, að öðru jöfnu munu
þau bæjarfélög draga til sín iðn-
fyrirtæki, sem bjóða þeim hag-
stæðasta fyrirgreiðslu í þessum
efnum.
Við skipulagningu slíkra svæða
verður að miða við þárfir fyrir-
tækjanna 20 - 30 ár fram í tím-
ann.
Þessa hefur því miður ekki
verið gætt sem skyldi á undan-
förnum árum, enda er erfitt að
sjá fyrir hina öru þróun iðnað-
arins,
í þessu sambandi ber þó að
þakka þá viðleitni til úrbóta, sem
Reykjavíkurborg hefur nú sýnt
með skipulagningu fyrirhugaðra
iðnaðarsvæða við Grensásveg og
norðan við Árbæ.
MiðaÖ við þá reynslu, sem
fyrir liggur hér á landi og er-
lendis, telur ársþingið, að nýjar
iðnaðarlóðir þurfi að vera að
minnsta kosti 3—4 sinnum stærri
að flatarmáli en nemur gólffieti
þeirra bygginga, sem reistar eru
í lokaáfanga, þannig að enn verði
nægilegt athafnasvæði fyrir
hendi. þótt byggingar á lóðunum
séu síðar auknar verulega. I
þessu sambandi má geta þess, að
það stuðlar að aukinni fram-
leiðni og samkeppnishæfni í ýms-
um iðnaði, að verksmiðjubygg-
ingarnar séu á einni hæð.
Ársþingið vekur athygli á því
í þessu sambandi að á næstu 25
árum mun þjóðinni fjölga um allt
að 100 þúsund manns, og þá
fyrst og fremst í bæjum og öðru
þéttbýli. Verulegur hluti vinnu-
aflsins, sem þjóðinni bætist á
þessum árum, hlýtur að verða að
fá framfæri sitt af iðnaðarstarf-
semi í einni eða annarri mynd.
Framundan er því óhjákvæmilega
stórfelld uppbygging iðnaðar, sem
taka verður tillit til nú þegar, ef
vel á að fara.
Ársþingið vill einnig undir-
strika nauðsyn þess að lóðagjöld-
um iðnaðarins sé stillt í hóf og
greiðsluskilmálar þeirra séu gerð-
ir aðgengilegir. Sérstaklega er
það varhugavert að íþyngja iðn-
fyrirtækjum með greiðslu hárra
lóðastofngjalda einmitt á þeim
tíma, sem þau eru að hefja bygg-
ingaframkvæmdir. Telur fundur-
inn, að slík gjöld beri að inn-
heimta á lengri tíma, og í áföng-
um eftir því sem byggingar á
hverri einstakri lóð eru auknar.
Iðnlánasjóður.
Ársþing iðnrekenda 1963 lýsir
ánægju sinni yfir því, að Iðnlána-
sjóði skuli hafa verið sett ný
löggjöf, er miðar að eflingu
sjóðsins og útfærslu starfssviðs
hans. Fagnar þingið þeirri stefnu-
breytingu, sem átt hefur sér stað
af hálfu ríkisvaldsins, að því er
varðar öflun á fjárfestingarlánum
til iðnaðarins jafnframt því, sem
iðnaðurinn leggur sitt af mörkum
með árlegu gjaldi til uppbygging-
ar Iðnlánasjóði. Þó verður að
leggja áherzlu á, að með því
fjármagni, er fengizt hefur, verð-
ur einungis takmörkuðum hluta
þarfa iðnaðarins fyrir fjárfesting-
arlán fullnægt. Væntir ársþingið
því, að framhald verði á aukn-
ingu þeirrar fyrirgreiðslu, sem
fengizt hefur.
Iðnaðarbanki íslands h.f.
Ársþing iðnrekenda 1963
fagnar nýorðnum breytingum á
lögum um Iðnaðarbanka íslands,
er heimila hluthafafundi að á-
kveða, hvert hlutafé bankans
skuli vera á hverjum tfma og
stjórn bankans að ráða tölu
bankastjóra. Telur ársþingið, að
með þessari breytingu hafi veru-
lega verið bætt skilyrði bankans
til frekari eflingar og stuðnings
við iðnað landsmanna.
Ársþingið vill enn ítreka óskir
sínar um að Iðnaðarbankanurr
verði veitt heimild til gjaldeyric
verzlunar. Skorar þingið á rík
isstjórnina að beita sér fyrir því
við bankastjórn Seðlabankans
að heimild þessi verði veitt þeg-
ar á þessu ári, til þess að bank-
inn geti veitt viðskiptamönnum
sínum þjónustu einnig á þessu
sviði bankaviðskipta.
Telur þingið, að traustur hagur
bankans, fjárhagslegt bolmagn
og rúmgott húsnæði hafi skapað
honum raunhæf skilyrði til þess
að verða aðnjótandi þessara rétt-
inda, auk þess sem traust gjald-
eyrisaðstaða landsins út á við
gerir lausn þessa máls auðveldari
nú en nokkru sinni fyrr.
Rekstrarfjárlán.
Ársþingið lýsir yfir stuðningi
sínum við eftirfarandi niðurstöð-
ur nefndar þeirrar, er iðnaðarmála
ráðherra skipaði árið 1959 undir
formennsku dr. Jóhannesar Nor-
dal, til athugunar á lánsfjármál-
um iðnaðarins. í niðurstöðum
Ieggur nefndin m. a. fil: „að nú
sé tímabært vegna þess jafn-
vægis, sem náðst hefur í peninga
málum, að endurskipuleggja lán-
veitingar viðskiptabankanna til
iðnaðarins með það fyrir augum
að tryggja, að eðlilegur hluti af
lánveitingum fari ti! fjárfestingar-
lána til Iangs tíma. Fyrsta skref-
ið í þessum aðgerðum verði að
breyta hluta af stuttum skuldum
iðnfyrirtækja við bankana í löng
lán með veði í eignum þeirra“.
Með vísun tii framangreindra
niðurstöðu Ieggur ársþingið á-
herzlu á, að eftirfarandi verði
framkvæmt hið fyrsta:
a) Ríkisstjórnin beiti sér fyrir
samkomulagi viðskiptabankanna
um* að breyta stuttum skuldum
iðnfyrirtækja við bankana í löng
Ián likt og átt hefur sér stað urn
lausaskuldir sjávarútvegs og land
búnaðar.
b) Jafnframt leggur þingið á-
herzlu á, að reglum um endur-
kaup afurðavíxla verði þegar
breytt á þann veg, að ekki verði
um neinn mismun að ræða varð-
andi endurkaup afurðavíxla út-
flutningsframleiðslunnar eftir því
hvort sjávarútvegur, landbúnaður
■>ða iðnaður á í hlut.
"st'íurskoðun vinnulög-
gjafarinnar.
Ársþing iðnrekenda 1963 fagn-
ar framkominni tillögu á Alþingi
um nauðsyn á endurskoðun
vinnulöggjafarinnar og telur nauð
synlegt, að endurskoðunin verði
falin nefnd, sem skipuð verði
fulltrúum tilnefndum af samtök-
um stjórnenda atvinnufyrirtækja
og launþega.
Endurskoðun laga
nr. 16/1958.
Ársþingið bendir ennfremur á
naúðsyn endurskoðunar laga nr.
16/1958 um rétt verkafólks til
uppsagnarfrests frá störfum og
um rétt þess og fastra starfs-
manna til launa vegna sjúkdóms-
og slysaforfalla, þar sem mis-
munandi skilningur hefur komið
fram á ýmsum ákvæðum laganna.
Þá ber og nauðsyn til að setja
skýr mörk um bótaskyldu fyrir-
tækja og Tryggingastofnunar rík-
isins í slysatilfellum.
Vinnurannsóknir
og hagræðing.
Ársþingið telur, að tryggasta
leiðin til varanlega bættrar efna-
hagsafkomu fyrirtækja og starfs-
manna þeirra, sé fólgin í bættri
nýtingu framleiðsluþáttanna, þ.
e. aúkningu framleiðni. Það tel-
ur því nauðsynlegt, að meiri á-
herzla sé lögð á hagkvæmni í
skipulagningu atvinnufyrirtækja,
verkkönnun og vinnuhagræðingu,
ákvæðisvinnu og afkastaverðlaun-
un.
Þar sem slíkt verður ekki fram-
kvæmt með góðum árangri, nema
með aðstoð sérfróðra manna,
fagnar ársþingið því, að á vegum
Iðnaðarmálastofnunar íslands hef
ur verið hafizt handa um úrbætur
i þessum efnum með námskeiðum
í hagræðingartækni og verk-
stjórn.
Tækniskóli.
Ársþingið fagnar fram komnu
frumvarpi um tækniskóla, en tel-
ur þó, að gert sé ráð fyrir of
langri verklegri þjálfun sem inn-
tökuskilyrði I skólann. Væntir
ársþingið þess, að fullt tillit
verði tekið til þarfa verksmiðju-
iðnaðarins, þegar reglugerð fyrir
skólann verður samin.
Starfsfræðsla.
Ársþingið vill vekja athygli á
þeirri starfsfræðslu, sem verið
hefur á vegum Reykjavíkurborgar
og annarra bæjarfélaga og vænt-
ir þess að áframhald verði á
henni og hún látin ná til sem
flestra greina atvinnulífsins.
Verðlagsmál.
Þar sem langvarandi verðlags-
höft hafa mjög óheillavænleg á-
hrif á hagkvæma uppbyggingu
atvinnuvega þjóðarinnar og trú
á gildi þeirra fer almennt minnk-
andi, skorar ársþing iðnrekenda
1963 á ríkisstjórnina að hefja nú
þegar undirbúning að afnámi op-
inberrar íhlutunar um verðlagn-
ingu iðnaðarframleiðslunnar.
Á meðan algjört afnám verð-
lagsákvæða hefur ekki farið
fram, krefst ársþingið þess, að
rökstúðningur verðlagsyfirvald-
anna fylgi við verðákvarðanir
hverju sinni, og að úrskurðir séu
jafnan í anda sjálfra verðlagslag-
anna, en þau mæla svo fyrir, að
„verðlagsákvaðanir allar skuli
miðaðar við þörf þeirra fyrir-
tækja, sem hafa vel skipulagðan
og hagkvæman rekstur".
Úr vélasal Hampiðjunnar í Reykjavik-