Vísir - 03.05.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 03.05.1963, Blaðsíða 3
VÍSIR . Föstudagur 3. maí 1963, Fallegur sportbúningur á ungu stúlkuna. Buxurnar og vestið eru úr grænu stretch-efni en blússan #*r lir Oiiln csillri mpfi ornpnn mvn7tri Kápurnar eru ýmist úr ullarefni eða jersey, en sameiginlegt með þeim öllum er að þær eru fóðraðar með svampi, en svampur í stað venju- legs fóðurs hefur nú mjög rutt sér til rúms. (Ljósm.: Vísis B. G.) Tízkusýningar á Islandi Pils og vesti úr nappa-leðri og hvít blússa er vinsæll búningur hjá ungu stúlkunum. Og fyrir frúna er kjóll og kápa úr Ijósleitu ullarefni, kápunni má snúa við, öðrum megin er hún sámlit kjólnum. Orðið tízkusýning hefur til skamms tíma hljómað í eyrum íslendinga sem eitthvað mjög merkilegt eri jafnframt fram- andi. Við höfum haft spurnir af tízkusýningum úti í hinum stóra heimi, tízkusýningum, sem hafa síðan að nokkru leyti ráðið klæðnaði kvenna næsta misser- ið. Það, sem sýnt hefur verið á sýningunum, hefur síðan ver- ið selt „þeim fínu“, hinar hafa orðið að Iáta sér nægja að gera eftirlíkingar af módelfötunum. Þessar sýningar virðast þó sem betur fer vera að taka nokk uð aðra stefnu og er skemmst að minnast þeirrar byltingar, sem varð, þegar tízkukóngurinn Cardin f París hóf fjöldafram- leiðslu á ódýrum kjólum í sam- ráði við eitt stærsta vöruhús borgarinnar. En tízkusýningar erlendis áttu ekki að verða til umræðu hér, heldur tízkusýningar hér á Iandi. Það má ef til vill deila um, hvort unnt er að tala um tízkusýningar hér á landi, þar sem tízkan sjálf er í raun og veru komin utan lands frá, en við gerum það nú samt. 1 Tízkusýningar hérlendis má segja að séu alveg nýr þáttur í fatakynningu. Á undanförn- um árum hefur ein og ein sýn- ing stungið upp kollinum í Reykjavík, en á síðastliðnum vetri voru þær hvað flestar og má þakka það tilkomu tízku- skólannna, sem m. a. þjálfa stúlkur til að korna fram á fata- sýningum. Það hafa heyrzt radd- ir um að þessar sýningar séu hégómi cinn og vitleysa, en þeir, sem slíku hafa haldið frani, verða að hala í land, því við- tökur reykvískra kvenna (og karla) hafa sýnt að svo er ekki. Framhald á bls. 5. Hvít terelyne-dragt með blárri blússu og svört ullardragt með silki- pifum, tilvalin stúdentsdragt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.