Vísir - 03.05.1963, Page 2
2
V í S IR . Föstudagur 3. maí 1963.
Fyrsta markiö í leiknum. Gunnar Felixson KR (lengst til hægri) skorar. Knötturinn fer framhfí "Björg-
vinssyni í Þrótti.
Guttormur, hinn ungi markmaður Þróttar ,hendir sér á boltann. Gunnar
Felixson hafði verið með knöttinn en fellur um varnarieikmann Þróttar.
Jón Björgvinss. horfir rólegur á meðan markmaður handsamar knöttinn.
Skemmtilegur leikur er
KR voúh ÞRÚTT með 5:2
KR vann Þrótt i gærkvöldi í
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu
og vann þar með sinn fyrsta sigur
í vor á knattspymusviðinu og er
því hérmeð spáð að þeir eigi eftir
að verða nokkuð margir f sumar,
þvf ekki er nokkur vafi á að liðið
veröur erfitt viðureignar öðrum fé-
Iögum. Sigur KR 5:2 var óeðlilega
hár, en leikurinn var á köflum hinn
skemmtilegasti, einkum þegar
Þróttarar notuðu hratt tempó, létu
boltann ganga, en einmitt á slíkum
hraða skoruðu þeir bæði mörk sín.
KR-ingar sýndu mikla yfirburði
í byrjun leiksins og eftir 17 mfn-
útur var staðan 3:0 fyrir KR.
Gunnar Felixson fékk fyrsta veru
lega tækifærið eftir 6 mfn. leik en
„kiksaði". Tveim mfnútum síðar
bætti hann fyrir það með bráðgóðu
skoti, er hann tók fyrirgjöf frá
Óskari Sigurðssyni og skaut við-
stöðulaust f netið.
Á 12. mfnútu skorar Sigurþór
2:0 með skalla, og enn var það
Óskar, sem gaf fallegan bolta fyrir
markið, en Þróttarvörnin fær þetta
mark á sinn syndareikning, því
hún átti að vera búin að „hreinsa"
frá markinu.
Á 17. mfnútu rak Sveinn Jóns-
son tána í boltann í þvögu við
Þróttarmarkið og stýrði boltanum
laglega upp í vinstra horn marks-
ins.
Eftir þetta sóttu Þróttarar meira,
en KR hafði til þessa nær átt Ieik-
inn, ef frá eru taiin tvö góð upp-
hlaup Þróttar, sem enduðu með
hættulegum þvögum fyrir framan
KR-markið. En þó að Þróttur sækti
nú meir en fyrr, voru upphlaup KR-
inga hættuleg hinni opnu vörn
Þróttar. T. d. var skot Gunnars
Guðmannssonar seint f fyrri hálf-
leik stórgott, en það lenti í þver-
slá af miklu afli.
Óskar Sigurðsson lék aðalhlut-
verkið, er 4:0 var skorað og setti
boitann f mannlaust mark Þróttar,
en áður hafði Gunnar Felixson átt
f höggi við Guttorm markvörð og
boltinn skotizt frá þeim fyrir mark
ið. Þetta var á 43. mínútu.
í síðari hálfleik voru Þróttarar
á stórum köflum mjög frískir og á
11. og 14. mínútu skoraði Jens
Karlsson innherji tvö þrumumörk.
Fyrra markið kom af 20 metra færi,
en Þróttarar einléku, fyrst Eyjólfur
og síðan Jens, upp miðjuna frá
miðlfnu og endaði sóknin með skoti
Jens, sem var stórglæsilegt og ó-
verjandi.
Síðara markið var skemmtilegt.
Boltinn rann fyrir markið frá
hægri, síðan frá vinstri kanti til
Jens, sem skaut í þverslá, en tókst
að skalla laglega inn f lokatilraun
sinni.
KR tókst að bæta við marki á
36. mfn. Vörnin hjá Þrótti fær þar
enn mark á sinn reikning. Sigþór
stóð einn og óvaldaður rétt fyrir
utan markteig og afgreiddi utan
af hægri kanti.
Dómari var Haukur Óskarssón.
Tvö skíðamót í
SKÁLAFELU
Tvö skíðamót voru haldin f
Skálafelli nýlega og sá Skíðadeild
K.R. um bæði mótin. Stefánsmót
er haldið til minningar um Stefán
Gfslason, sem var einn aðalhvata
maður að stofnun skfðadeildar-
innar og Steinþórsmót er haldið
til minningar um Steinþór Sig-
urðsson menntaskólakennara en
báðir eru þeir látnir fyrir allmörg-
um árum.
Stefánsmót er svigmót í öllum
flokkum. Fyrstir í A-flokki urðu
(samanlagður brautartími):
Valdimar Örnólfsson, Í.R., 63,8
Guðni Sigfússon, Í.R., 64.4
Hilmar Steingrímsson, KR, 65.00
NEMENDASÝNING
Dansskóla Hermanns Ragnars
verður í Austurbæjarbíó laugardaginn 4. maí og endur-
tekin sunnudaginn 5. maí kl. 2,30 e. h.
Um 200 nemendur börn, unglingar og fullorðnir
koma fram á sýningunni. |
Meðal annárs verður brugðið upp skyndimynd
af grímudansleik.
Bossa Nova nýjasti dansinn sýndur í fyrsta sinn
opinberlega.
3f Magnús Pétursson og félagar aðstoða og leika
m. a. mörg af vinsælustu lögunum úr „West Side
Story“ og „Sound of Music“.
X. Þetta er skemmtun fyrir alla fjölskylduna jafnt
unga sem gamla.
Aðgöngumiðasala er í Austurbæjarbíói í dag,
östudag, kl. 2 e. h. Sími 11384.
Pantanir sækist fyrir kl. 6 í kvöld.
B-flokkur karla:
Ásgeir Kristjánsson, Vík., 74,00.
C-flokkur karla:
Þórður Sigurjónss., ÍR, 77,00.
Júlfus Magnússon, KR, 78,2.
Kvennaflokkur:
Jakobína Jakobsd.,, ÍR, 77,00.
Drengjaflokkur:
Tómas Jónsson, ÍR, 41,3. .
Steinþórsmót er 6 manna sveitá-
keppni í svigi. Sveit ÍR vann á
403,8. í sveitinni voru: Guðni Sig-
fússon, Þorbergur Eysteinsson,
Sigurður Einarsson, Haraldur Páls-
son, Jakobína Jakobsdóttir, Valdi-
mar Örnólfsson. Ennfremur mættu
til leiks sveit KR og sveit Víkings.
Þoka var meðan á keppni stóð
og nokkuð rigndi fyrri hluta dags.
Tilbúinn í
bnrdngnnn
► Jack Nilon, ráðgjafi Sonny
Listons, sagði nýlega, að meistar-
inn væri nú tilbúinn til að verja
titil sinn fyrir Floyd Patterson síð-
ari hluta júnímánaðar. Eins og
kunnugt er meiddist Liston f fe-
brúar, þegar hann ætlaði að láta
ljósmyndara taka mynd af sér
við að slá golfbolta. Var keppni
hans og Patterson þá frestað um
óákveðinn tíma og minnst 6 mán-
uði, enda búizt við að uppskurðar
væri þörf. í New York Post sagði
Liston hins vegar að því fyrr sem
keppnin færi fram, þvf betra.