Vísir - 29.05.1963, Qupperneq 2
2
V í S I R . Miðvikudagur 29. maí 1965.
m
va
Æskulýðsnámskeið
ÍR-svelt f stórsvigi drengja. Drengirnir sem taka við verðiaunuabikar
fyrir félag sitt eru: Tómas Jónsson Eyþór Haraldsson og Gísli Erlends-
son (talið frð vinstri).
SkíBakmdsmótinu hks hkið
Það sem eftir varð af Skíða-
landsmótinu um páskana varð loks
ins Iokið á Siglufirði í fyrri viku,
en það var stökkkeppni i öllum
flokkum, og fyrir bragðið varð
heldur ekki hægt að ganga frá úr-
slitum í norrænni tvíkeppni (þ. e.
göngu og stökki) fyrr en þá.
Stökkkeppnin var háð í Hvann
eyrarskál 21. maí við sæmilegar
aðstæður, en áður hafði oft verið
reynt að efna til hennar, en án
þess að tækist.
íslandsmeistari í skíðastökki
varð Skarphéðinn Guðmundsson,
stökk 34 + 32.5 métra og hlaut
fyrir það 147.5 stig. 2. varð Sveinn
Sveinsson með 144.3 stig og 3.
Jónas Ásgelrsson með 140.3 stig.
I flokki 17—19 ára sigraði Þór-
hallur Sveinsson, stökk 32 + 30
metra og hlaut 132.1 stig. Næstur
varð Haukur Jónsson með 125.6
stig og þriðji Sigurður B. Þorkels-
son, hlaut 115.3 Itigv
í aldursflokkf»<!15+-16-'ára' si£$j
aði Björn Olsen, stökk 25 + 23.5
metra og hlaut 111.7 stig. 2. varð
Sigurjón Erlendsson með 106.7 stig
og 3. Kristján Óli Jónsson, sem
hlaut 96.9 stig.
Úrslit í norrænni tvíkeppni í
aldursflokki 20 ára og eldri urðu
þau að Sveinn Sveinsson varð
hlutskarpastur, hlaut 301.1 stig og
þar með íslandsmeistaratitilinn
1963. Annar varð Birgir Guðlaugs-
son með 256.9 stig.
Tveir efstu menn í aldursfiokki
17—19 ára urðu Þórhallur Sveins-
son með 290.5 stig og Haraldur
Erlendsson með 249.4 stig. Þeir
sem efstir urðu í 15—16 ára flokki,
urðu þeir .Bjöfn Olsen, sem hlaut
267.2 stig og Sigurjón Eríendsson
með 267.0 stigí- Var það ekki nema
brot úr stigi, sem skildi þá að.
I’slandsmótinu í skíðaíþróttum er
þar með lokið og hlutu Siglfirð-
ingar ísiandsmeistarana í öllum
greinum.
♦ „Bjargað af bjöllunni" verður
hér eftir óþekkt orðtak í enskum
hnefaleikum. 1 framtíðinni á dóm-
arinn að haldá talningu áfram eftir
að bjallan klingir, hafi annar hvor
keppenda farið í gólfið.
■rUþpskenéátíð'
i ítalska salnum
Á uppstigningardag var verð-
iaunaafhending í Klúbbnum við
Lækjarteig fyrir skíðamót, sem
haldin hafa verið síðastliðinn vet-
ur. Skíðaráð Reykjavíkur stóð fyr-
ir þessari kvöldvöku. Mót þau, sem
afhent voru verðlaun fyrir voru:
Stórsvigmót Reykjavíkur og Svig-
mót Reykjavikur ásamt Stefáns-
móti og Steinþórsmóti. Ennfremur
voru afhent verðlaun fyrir innan-
félagsmót í. R. Þórií Lárusson, for
maður skíðadeildar I. R. bauð gesti
velkomna og gaf Ólafi Þorsteins-
syni, Ármanni, orðið. Ólafur fluttiémeð ágætum.
mjög snjalla hvatningarræðu fyrir
skíðamennina. Þar næst fór verð-
launaafhending fram.
Þá var stiginn dans. Síðar flutti
Valdimar Örnólfsson mjög skemmti
legt erindi um skíðaæfingar I Kerl-
ingarfjöilum og sýndi kvikmyndir
þaðan og frá ýmsum skíðamótum
(ísafirði, Siglufirði og víðar) og
frumsýndi kvikmynd, sem tekin var
í Noregsferð reykvískra skiða-
manna nú í vetur. Húsfyllir var
Og voru gestir kvöldsins sammála
um, að kvöldvakan hefði tekizt
túni — Golfvelli —- Álfheimatúni.
Verður byrjað fimmtudaginn 30.
maí. Á hverjum stað eru 2 íþrótta-
kennarar, sem leiðbeina börnunum
í ýmsum íþróttum og leikjum. Inn-
heimt verður vægt þátttökugjáld,
kr. 15.00.
Skarösmótið
7. og 2, júní
Skarðsmótið, það er skíðamót
Siglfirðinga, sem haldið er uppi í
Siglufjarðarskarði á vorin, þegar
snjóa hefur leyst af láglendinu,
verður haldið um næstu heigi, dag-
ana 1. og 2. júní.
Verið er að moka snjó af Siglu-
fjarðarskarði og má reikna með
því að bílfært verði upp í skarðið
um helgina, svo að búast má við
mikilli þátttöku og fleiri áhorfend-
um en vanalega.
Skíðafærið uppi í skarðinu er nú
betra en nokkru sinni fyrr. Það
er hreinasta alpaland.
Eins og undanfarin ár efna Æsku
lýðsráð, Leikvallanefnd, Í.B.R. og
Iþróttaráð Reykjavíkur til íþrótta-
námskeiða fyrir börn á aldrinum 5
—-12 ára í maí og júní. Verða þau
á 8 stöðum í bænum, og hefjast á
morgun, fimmtudag.
Á morgnana verður tekið á móti
yngri börnum, 5—8 ára kl. 9.30—
11.30 og eldri börnum kl. 2—4. Á
þessum stöðum verður kennt á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum:
KR-svæði — Valssvæði -— Ár-
mannssvæði — Víkingssvæði.
Á þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum á þessum stöðum:
Skipasundstúni — Laugalækjar-
Valdimar Örnólfsson vann Stefáns
bikarinn i þriðja sinn og nú til
eignar.
4 Argentínumaður, Oscar Bavenia
að nafni, var nýlega dæmdur fyrir
íþróttadómstóli frá rétti til að
koma fram fyrir land sitt í hnefa-
leik auk þess sem hann missti
titil sinn í íþróttinni. Ástæðan:
Hann læsti tönnunum á kaf í
brjóst andstæðings síns, eftir að
hann hafði fengið mikið högg frá
bandarískum andstæðingi sínum.
Aðeins 45000 ó Wembley - Altafini 15 mörk - Eusebio til MILAN?
Evrópubikarkeppninni í knatt-
spyrnu Iauk fyrir skömmu með
sigri ítalska liðsins MILAN í úr-
slitaleilc á Wembly við Benfica. —
Milan vann 3:1 í stórgóðum leik, I
sem enskir áhorfendur hundsuðu
gjörsamlega, aðeins 45.000 manns
komu á Wembley, en helmingi fleiri
hefðu getað komizt.
► Nokkrar tölur í sambandi við
Evrópubikarinn: Altafini skoraði 15
af 33 mörkum Milan. Þetta er
markamet. Puskas átti fyrra metið,
Érteitdar
fréttir
EVRÓPUBIKAR„MOLAR“
skoraði 12 mörk í Evrópubikarnum
1959—1960. — 214 mörk voru skor
uð í 60 leikjum keppninnar nú.
Þetta eru hæstu tölurnar til þessa,
fleiri mörk og fleiri Ieikir. —
2.180.000 áhorfendur hafa séð leiki
keppninnar á þessu leikári. Fleiri
áhorfendur voru á síðasta leikári,
1959—1960, en þá voru áhorfendur
2/ ’O.OOO.
14 Þessi lið hafa þegar öðlazt
þátttöku í næsta Evrópubikar Ben-
fica, Miian, Real Madrid, Standard
Liege, Everton, Sparta, Moskva,
Ziirich, Motor Jena, frá Austur-
Þýzkalandi og Monaco frá Frakk-
landl.
4 MILAN, sigurliðið í Evrópu-
bikar deildarliða, hefur látið í Ijós
ósk um að mæta Evrópubikarhafa
bikarliða, sem er Tottenham og er
mikill áhugi fyrir leikjum hjá báð-
um aðiium. Yrði væntanlega ieikið
heima og heiman.
4 MILAN hefur nú rnikinn hug á
að kaupa hinn snjalla leikmann
Euseblo, „svarta gimsteininn“, en
hann leikur með Benfica. Milan er
nú orðið þreytt á Altafini þótt
snjall sé, en hann er farinn að
hcimta of mikið af félaginu — orð-
inn of dýr maður í liðinu. Búizt
er við að verðið á Eusebio verði
algert heimsmet, en enn er ekki
vitað hver talan verður.
4 Myndirnar með þessu rabbi
sýna: Ljósmyndin: Lögreglan varð
að stöðva æstan Portúgalsmann frá
því að ryðjast inn á völlinn. Teikni
myndin: „Nei, þetta er ekki Evrópu
bikarinn — þetta eru „bónusarn-
ir“ handa leikmönnunum“.