Vísir - 29.05.1963, Blaðsíða 15

Vísir - 29.05.1963, Blaðsíða 15
V í S,I R . Miðvikudagur 29. maí 1963. 75 □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□ ERCOLE PATTI: ÁSTARÆVINTÝRI í RÓMABORG Þegar hann kom inn voru þarna fimm eða sex menn fyrir m. a. Unberto Conti, sem allt af skrif- aði ,,langhunda“ um mál, sem auð- velt var að gera glögg skil f stuttu máli. Þessa stundina var hann að ráðast á ungan rithöfund, Ugo Mastrostefano, af miklum ákafa, fyrir ritgerð, sem hann hafði birt, aðallega fyrir stíl hans. Hafði hann tyllt sér á eitt skrifborðið og beindi þaðan skotum sínum á Ugo fyrir ritsmíð hans, og var þessi sókn gegn honum í rauninni alls endis óþörf, því að hann hafði ekki af neinu að státa, var snauður af frumlegum hugmyndum, en reyndi af lítilli getu að stæla þá, sem eitthvað höfðu til brunns að bera, en það aftraði ekki Conti frá að láta móðan mása í hálfa klukku stund, en þar næst ræddi hann góða stund um annan höfund, og bar á hann mikið lof, — mann, sem um tuttugu ára skeið hafði lofsungið fasismann af málskrúðs- rembingi, hrúgað þannig skraut- steini á skrautstein ofan, skipu- lagslaust og af algeru tilgangs- leysi. Ef svo hefði viljað til, að einhver ritsmíða hans hefði af til- viljun borizt upp f hendurnar á einhverjum, er hefði lagt á sig að lesa hana, mundi sá hinn sami vart hafa getið litið öðru vísi á, en að höfundurinn hefði af ásettu ráði verið að skopstæla sígilda höfunda, til skemmtunar lesendum háðblaða. En vitanlega fór því fjarri, að sá væri tilgangur hans, þvf að hann taldi sig vera að gegna alvarlegu og háleitu menningarlegu hlutverki. Smáhópur hafði safnazt kring- um Conti og sumir voru ailtaf að grípa fram í fyrir honum. Tveir voru þarna, menn nær fimmtugu en fertugu, sem vörðu kvöld- stundum öllum til þess að sitja í veitingastofum og spjalla, eða á börum og þrepum gosbrunna, allt af um bókmenntir og gildi þeirra, og nutu þeir nú ósmárrar virðing- ar í vinahópi. Enn ólu þeir sína drauma um skáldsögur, sem þeir mundu semja, og ljóð sem þeir myndu yrkja, þegar andinn kæmi yfir þá, en á þvf hafði orðið drátt- ur og lá ekkert eftir þá nema nokkrar ritgerðir f blöðum og tímaritum. Þeir beittu jafnan strangri gagnrýni, er þeir gagn- rýndu verk annarra. Þegar það T A R kom fyrir, sem sjaldan var, að eitthvað birtist eftir þá sjálfa í tímaritum, sem fjalla um ljóðagerð og skáidsagnagerð, komu þeir fram sem skáld, sem ávarpa skáld- bræður, en greinar þeirra' voru ó- þroskaður ávöxtur. ófrumlegar og sékennalausar, því að þeir litu á heiminn gegnum gleraugu þeirra bóka, sem þeir höfðu lesið um safna efni. Sjálfir sáu -þeir aldrei neitt nýtt, hversu mjög sem þeir rýndu, en til skýringar á, að þeir nutu þó nokkurs álits, er það hve iítið þeir skrifuðu, sem raun- verulega var eftir þá sjálfa. En þetta girti ekki fyrir, að þeir réð- ust með ákefð að hvaða ungum rithöfundi sem vera skyldi, er nafði getið sér nokkra frægð of snemma, að þeirra áliti. Að vísu munu þeir hafa litið svo á, að þessir ungu menn hefðu brotið í bág við viðurkenndar bókmennta reglur — héldu því fram að minnsta kosti, -— en svo munu þeir og hafa verið minnugir þess, að hér var um unga og óreynda menn að ræða, og að mun auð- veldara er að gagnrýpa ,bók. ann- arra manna en skrifá Csæifrííegsi bók sjálfur. En á hinn bóginn kann hefndarlöngun undir niðri að hafa legið til grundvallar, er þeir lof- ! uðu hástöfum verk hástéttahöf- unda, sem engan boðskap höfðu neinum að flytja, eða verk illa sendibréfsfærra unglinga í stjórn- arskrifstofum, sem af ástæðum, sem þeim sjálfum hljóta að vera bezt kunnar, stunduðu ritpár af miklu kappi án tillits til þess hverjum verðmætum var á glæ kastað þar sem pappírinn var. Nú verður að teljast hugsanlegt, að í skrifum þessum blikaði á eitthvað, sem benti á góðmálm, en þeirri staðreynd verður ekki haggað, að þeir hlóðu oflofi á þau verk, sem hér um ræðir og gerðu það af ásettu ráði, til þess óbeint að hrópa niður verk höfunda, sem eitthvað hafa til brunns að bera. Sannast að segja virtust þessir gagnrýnendur hafa tekið sér það hlutverk, að beina áhrifum sínum til þess, að verk slíkra manna yrðu ekki talin mikilvæg, — þeir vildu með öðrum orðum „hópaftökur" sér betri manna, og kannski fundið í þessu viðhorfi einhverja uppbót fyrir, að þeir höfðu ekki séð eigin drauma um fé og frama rætast. Þvælt var um málin fram og aftur af talsverðum hita, en Marcello hlustaði á og leit við og við á klukkuna. — Mastrostefano hefur ekki þroskazt á að lesa Joyce og Gide, sagði Palermi háðslega, en hann var í hópi þeirra menntamanna, sem að ýmsu líktist stétt hinna nýríku. Hann mælti þetta á þann hátt, að undirtónninn virtist hót- unarkenndur. Hefði Marcello ekki verið með hugann hjá Önnu mundi hann hafa vaðið fram á viðræðuvöllinn og iátið til sín taka, en lét sér ægja að skjóta inn orði og orði. Þegar klukkan var orðin sjö hringdi hann að nýju. Honum var sagt, að Anna væri nýkomin. Þá hún þegar boð hans um að koma með honum á kvikmyndasýningu klukkan átta. Þegar klukkuna vantaði fjórð- ung stundar í 8 var Marcello kom- inn að húsdyrum hennar við Via Germanico. Gekk hann þar fram og aftur eftirvæntingarfullur og leit við og við í áttina til hússins handan götunnar, þar sem þau höfðu setið hann og Anna kvöid- inu áður. Þar höfðu þau ræðzt við og þar hafði hann kysst hana fyrsta kossinum. Eftir nokkrar mínútur kom Anna. Hún var í snoturri regnkápu úr gljákenndu efni, sem hún hafði hneppt alveg upp í háls. Húfan hennar sat ská- hallt á höfðinu og huldi því ekki allt hið fagra, jarpa hár hennar. Hinn einfaldi klæðnaður hennar iók mjög ánægju Marcello yfir að fá nú tækifæri til að kynnast henni betur. — Nú gætti ég þess að hafa með mér lykilinn minn, sagði Anna og hló dálítið. — ... til þess að lenda ekki í því aftur að þurfa að tala við «þrá8ákunnuea m.enn. svaraði Mar-. cello 6g-‘ hTS'Ííka. Hann tók undir handlegg hennar og það fór eins og rafmagnsstraumur um hann við snertinguna. — Hvert eigum við að fara? spurði hann. — Mig langar mest til þess að fara í eitthvert úthverfabíó, svar- aði Anna, og sjá eina af þessum gömlu, góðu myndum — og ekki mundi það spilla neinu, ef það væru einhver önnur skemmtiatriði. — Já — í eitt af þessum leik- húsum, þar sem sýndar eru kvik- myndir, og sviðsþættir á milli ■—- og hægt að fá „pop“ og rjómaís. — Alveg rétt til getið. Ég skemmti mér ailtaf prýðilega á slíkum stöðum. — Þá höfum við líkan smekk, sagði Marcelio. — Ég blátt áfram dáist að söng- þáttunum, kór feitu kvennanna og kjólklæddra söngvaranum, sem syngur Brinneso af allri sái sinni. Þessar yfirlýsingar hennar vakti einkennilegar hræringar í huga Marcello, þau væru vafalaust and- lega skyld, lík að smekk, og hann fór að raula fyrir munni sér vís- una um meyjuna sem sagði við móðurina: Þú kaupir ekki nein Við veröum að biða eftlr að pabbi og mamma samþykki gift- inguna. leikföng handa litlu dótturinni þinni, — bara ilmvatn, til þess að bera á fyrir aftan eyrun, — og raulaði Anna með seinni part- inn. — Hve dásamlegt, sagði Mar- cello, sjaldan, aldrei hefi ég kynnzt jafn samúðarríkri og skilnings- góðri stúlku og yður. — Af því að ég kunni þetta erindi úr Leikföng og ilmvatn?, spurði Anna mjúkri, barnslegri röddu. — Ein af ástæðunum. Flestar stúlkur botna ekki neitt í neinu. Yður geðjast að hinu sama og mér — að því, sem mér er kært, það er ég viss um. Framkoma fólks er svo mikilvæg, viðhorf, smekkur. Tökum nú til dæmis hvernig þér hneppið regnkápuna yðar upp f hálsinn •—• það sýnir góðan smekk — mér finnst til um slíkt. — O, þetta er gömul kópa, en mér þykir vænt um hana. Og Marcello fannst Anna hæfa beint í mark með hverju svari. Þau fóru f Principekvikmynda- húsið við Via Cola di Rienza. Það var verið að sýna skemmtiþátt, er þau komu inn. Nærri hvert sæti var skipað og reykjarmökkur mikill f salnum. Söngvaranum var fagnað með dynjandi lófataki og hélt hann svo áfram að syngja. Marcello tókst að finna sæti handa sér og Önnu. Þröngt var milli sætaraða og Anna iyfti upp fót- unum og studdi knjám að stól- bakinu fyrir framan sig og svo hallaði hún sér dálítið að honum og yljaði það honum enn frekara að finna þennan vott innilegs kuningsskapar. Gamanvísna- og dægurlaga- söngvarinn glotti af sjálfsánægju, er unglingalýðurinn, sem þarna var fjölmennur, hyllti hann með fagaðarlátum. — Kunnið þér vél við yður hér, spurði Anna og bætti svo við: — Viljið þér ekki þúa mig? Mér er ómögulegt að halda áfram að þéra yður. Hvað segið þér um þetta? z A N Tarzan: Það ættu að vera ein- hvérjir fiskar í þessu lóni. Við tökum réyktan fisk með okkur í fjallgönguna. Á fjallsbrúnum er Ég vildi gjarnan fá borð nálægt milljónamæringunum þama. — Fyrirtaks hugmynd, svaraði Marcelio, himinlifandi yfir, að þessi yndislega stúlka skyldi stinga upp á þessu eftir svona skömm kynni. — Og — hvernig kannst þú við þig á svona skemmtistað? — Mér finnst það afskaplega gaman. Þegar ég var í Treviso fór ég alltaf á svona skemmtanir — oft án þess að láta vini mfna vita. Þeir kusu heldur að fara á dans- staði. — Þykir þér ekki gaman að dansa? — Mér leiðist það, — en þér? — Mér leiðist að dansa, ég verð leiður f skapi fari ég á danssam- komu. — En hvað það er gaman að hitta einu sinni fyrir mann, sem hefur ekki gaman af að dansa. Mér þykir svo vænt um, að það skuli vera eins með þig og mig hvað þetta snertir, því að nú get ég verið örugg um, að þú bjóðir mér ekki út að dansa. Dægurlagasöngvarinn hafði lok- ið þætti sínnm og ungmennin klöppuðu, kölluðu og blfstruðu, og vildu meira, en það fékkst ekki, og fóru þá sumir að senda honum tóninn. Feit og förðuð kona kom fram á sviðið. Áhorféndur fussuðu og sumir göluðu sem hanar ,er hún kynnti sönginn, sem hún ætlaði að syngja: Morgunn í Flórenz. Anna rétti úr sér í sætinu. — Ég veit ekki hvernig á því stendur, sagði Marcello, en þetta hljómar svo kunnuglega. Mér finnst næstum að ég hafi alltaf kunnað þetta. — Mér líka, sagði Anna, um leið og söngkonan söng Ijóðið um Flórenz og vorið og ástina, og allt í einu fann Marcello að Anna hafði smeygt litlu, fíngerðu hend- inni sinni f hans, svo sakleysis- lega, að það vakti hinar ljúfustu kenndir í huga hans. — Hvernig skyldi standa á því að allt kemur eins og af sjálfu sér hjá okkur — þegar við erum saman? spurði Marcello. Þú hefur eitthvað það til að bera, sem veld- ur, að þú ert öðru vfsi en aðrar. Allt þetta er umhugsunarvert. ... — Það er leyndarmál, en við munum grafa það upp, sagði Anna og brosti dálítið. Vinnubuxur Aðeins kr. 198.oo SSt! yfirleitt ekki annað að finna en gamalt grjót. Við notum votar tágar, til þess að gera reykinn. Hvers vegna ætli töframennirnir Ito: Mombai, sagði'að fjallið hafi varað okkur við einmitt drépi menn. En ég ér ekkért þessu fjalli? hræddur méðan ég er með þér.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.