Vísir - 29.05.1963, Qupperneq 8
8
VÍSIR
Utgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR,
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ö. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og a*greiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði.
í lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vfsis. — Edda h.f.
Flokkur á heljarbröm....
Það er almenn skoðun, að kommúnistar muni tapa
fylgi í næstu kosningum. Þeir vita þetta sjálfir og
þess vegna m. a. lögðu sumir af leiðtogum flokksins
svo mikið kapp á að semja við Þjóðvöm um sameig-
inleg framboð. Allir vita hvemig gekk að ná því sam-
komulagi. Andstaðan gegn því var mikil innan beggja
flokkanna, og þó ennþá meiri hjá Þjóðvamarfólkinu.
Siendurtekin mótmæli og yfirlýsingar frá ýmsum
helztu forustumönnum Þjóðvarnar, um að þeir styðji
ekki framboðslistana, sýna bezt hvemig allt er í pott-
inn búið og að kommúnistar muni ekki græða eins
mikið á þessum svokallaða samningi og þeir gerðu
sér vonir um.
En lítið dregur vesælan. Það sem þeir kunna að fá
af atkvæðum Þjóðvamarfólksins, veldur því, að fylg-
istap þeirra verður eitthvað minna á pappimum en
ella hefði orðið. En það nægir ekki til að hylja þá
staðreynd, að kommúnistar em flokkur í hnignun, sem
verður áður en mörg ár líða orðinn svo til áhrifalaus
í þjóðmálum, eins og í öðrum löndum þar sem lýðræði
og mannfrelsi stendur traustum fótum. ...
Þessu til sönnunar skal bent á þá staðreynd, að
ungt fólk er yfirleitt frábitið kommúnisma. Þeir sem
gerst vita um stjórnmálaskoðanir æskufólks, t. d. hér
í Reykjavik og nágrenninu, fullyrða að sárafátt af því,
sem öðlazt hefur kosningarétt síðari árin, sé kommún-
istar. Langflest, eða 75—80%, skipar sér undir merki
Sjálfstæðisflokksins. Hitt skiptist milli annarra flokka,
en minnst fer til kommúnista.
Aukin fræðsla og órækar sannanir, sem hver og
einn getur aflað sér um ástandið í þeim ríkjum, sem
kommúnistar ráða, hlýtur að fæla ungt fólk f rá flokkn-
um og stefnu hans. Örlög hans eru því ráðin: Sívax-
andi fylgishrun og algert áhrifaleysi í íslenzkum stjóm-
málum innan fárra ára.
*
Björgunarstarf Framsóknar
Kommúnistar eiga Framsókn það að þakka, ef fylgið
hrynur ekki stórlega af þeim nú þegar í þessum kosn-
ingum. Með þeim mikla stuðningi, sem Framsókn
hefur veitt þeim innan verkalýðsfélaganna og í Al-
þýðusambandinu, hafa þeir haldið valdaaðstöðu, sem
er þeim ómetanleg, en þjóðfélaginu skaðleg að sama
skapi.
Þegar Tíminn tók allt í einu upp á því að skamma
kommúnista nú fyrir stuttu, eftir að flokkarnir höfðu
unnið saman í mesta bróðemi allt kjörtímabilið, er svo
að sjá, að leiðtogum Framsóknar sé nú allt í einu orðið
ljóst að starfsemi kommúnista er þjóðfélaginu hættu-
leg. £n í því felst þá jafnframt sú viðurkenning, að
Framsókn sjálf hafi líka unnið gegn hagsmunum þjóð-
arinnar allt kjörtímabilið.
322
V1SIR . Miðvikudagur 29. maí 1963. ’
MMl—iaMMIllllMiail——«MWHI
Þannig lauk keppni um heimsmeistaratitil f fjaðurvigt, sem haldin var fyrir nokkru i Los Angeles.
Kúbumaðurinn Ramos stendur yfir sigruðum andstæðingi sínum, Davey Moore, sem hangir í snúr-
unum. Nokkru siðar lézt Moore vegna höfuðmeiðsla .
450 hafa látið lífið í
hringnum á þessari öld
JJeimsmeistarakeppni í
fjaðurvigt stóð yfir
í Los Angeles. Keppnin
hafði verið allhörð milli
tveggja svertingja,
Bandaríkjamannsins
Davey Moore, sem var
heimsmeistari, og kúb-
anska útlagans Urti-
mino Ramos, sem er bú-
settur í Bandaríkjunum,
en hann hafði skorað
Moore á hólm til þess að
freista þess að ná heims-
meistaratitlinum.
í tíundu Iotu gerðist það svo
allt í einu að Ketchum þjálfari
Davey Moores sá, að hann hafði
fengið svo þungt högg að hann
var ekki fær um að verja sig
Ketchum varpaði þá til jarðar
hvítum vasaklút til merkis um
uppgjöf. Hann gekk til Moores
að keppninni lokinni og studdi
hann út f homið um leið og
hann hughreysti hann og sagði
„Þú gerir það betur næst“. Síð-
an var farið inn í búningsklef-
ana.
Það var efnt til blaðamanna-
fundar. Morre ræddi við blaða-
mennina og sagði í afsökunar-
tón: „Þetta var óhappadagur
fyrir mig, þið vitið hvað ég get.
Ég hef slegið þá alla niður,
stóra og smáa. Það hefur ekki
skipt máli, þó þeir væru hand-
leggjalengri en ég. Ég vil berja-
st aftur við Ramos.“
Þetta voru síðustu orð Moor-
es við fþróttafréttaritarana. Er
hann hafði mælt þau missti
hann meðvitund og hann
komst aldrei til meðvitundar
aftur. Fjórum dögum síðar lézt
hann á sjúkrahúsi. Hann dró
síðast andann gegnum súrefn-
ispípu, sem hafði verið stungið
niður barka hans. Dánarorsök
var sköddun heilans vegna
hnefahöggs.
Þar með bættist hinn heims-
frægi hnefaleikari Davey Moore
f þann stóra hóp 450 hnefaleik-
amanna, sem hafa látið lífið í
hringnum frá aldamótum.
f augum hinna fjölmörgu að-
dáenda hnefaleikaíþróttarinnar
er litið á þessi 450 dauðsföll,
aðeins sem áhættuþátt þessarar
fþróttagreinar. Hver sem tekur
þátt í hnefaleikum verður að
reikna með þessari áhættu.
En það er annað alvarlegra í
sambandi við hnefaleikana, á-
hættan hefur farið stórum vax-
andi frá stríðslokum.
Það er staðreynd að þó áhug-
inn fyrir hnefaleikum hafi
minnkað og þó keppendunum
hafi fækkað hefur tölu dauðs-
falla fjölgað og áhættan stór-
aukizt. Frá stríðslokum fram á
þennan dag hafa 217 hnefaleik-
menn látið lífið fyrk- hnefa and-
stæðingsins. Hættan á dauðs-
falli hefur því tvöfaldazt á
síðustu árum.
íþróttalæknar f Bretlandi, föður-
landi hnefaleikaíþróttarinnar
telja sig hafa fundið orsakir
þessarar auknu áhættu. Þeir
hafa lýst því yfir, að meðalbox-
arinn í dag slái fastara, oftar
og hitti betur en meðalboxar-
inn fyrir stríð.
Þeir telja sig einnig hafa kom-
izt að þvf að högg hnefaleika-
manna í fjaðurvigt (53,5 — 57
kg. líkamsþungi) séu orðin eins
föst og högg hnefaleikamanna
f milliþungavigt (72,5 - ?9 kg)
voru fyrir stríð.
Það er almennt kunnugt að
frjálsíþróttamenn ná nú miklu
betri árangri en fyrir tveimur
til þremur áratugum, einfald-
lega vegna þess, að fþróttaþjálf-
un hefur fleygt fram. Nákvæm-
lega það sama hefur verið að
gerast í hnefaleikaíþróttinni, þó
það sé ekki eins áberandi,
vegna þess að áhorfandinn get-
ur ekki metið höggþunga kepp-
endanna.
Áður fyrr æfðu hnefaleika-
kapparnir sig skipulagslftið. Nú
er þetta nær undantekningar-
laust orðið mjög breytt. Nú
annast lærðir þjálfarar ná-
kvæma og skipulagða þjálfun.
Það er sérstaklega stefnt skipu-
lega að því að auka kraft höggs
ins.
„Við höfum lært að þrða hrað
höggið," sagði kunnur hnefa-
leikaþjálfari nýlega. Áður fyrr
var aðeins 50% af krafti hnefa-
leikmannsins nýttur. Nú hefur
tekizt að nýta um 90% af krafti
hans
Framfarirnar í hnefaleika-
íþróttinni hafa orðið mestar á
sviði höggtækninnar. Nú slær
enginn hnefaleikamaður skipu-
lagslaust. Áður kom það fyrir
að hnefaleikamaður snéri sér í
hring eins og kringlukastari til
að fá sem mestan kraft í högg-
ið. Nú er þetta algengt. Margir
hnefaleikarar, sem voru frægir
fyrir stríðið myndu teljast litlir
karlar núna.
Eftir stríðið gerðist það, að
hnefaleikamenn um allan heim
lærðu nýja tækni sem fundin
hafði verið upp í Bandaríkjun-
um og kallast „timing". Er hún
fólgin 1 þvf að þjálfa sig í því
að slá 4 réttu augnabliki.
Þjálfararnir hafa æft atvinnu-
hnefaleikarana í tæknilegum nýj
ungum, sem fela það í sér, að
höggið er ekki slegið með hnef-
anum einum, heldur öllum lík-
amanum og þungi hans fer all-
Framhald ai bls. 10.
mitiwiwniiBrHiimTiiiaBaiiimw i■BWEae^ata