Vísir - 29.05.1963, Qupperneq 9
VÍSIR . Miðvikudagur 29. maí 1963.
9
Gunnar Thoroddsen fjármálaraðherra:
LITLU MÁ MUNA
Gunnar Thoroddsen
fiármálaráðherra
33 þingmenn
móti 27.
Stjórnarflokkarnir tveir, Al-
þýðuflokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn, hafa á síðasta kjör-
tímabili haft 33 þingmenn sam-
tals, á móti 27 þingmönnum
Framsóknarflokksins og Alþýðu-
bandaiagsins.
Samkvæmt stjórnarskránni á
þriðjungur þingmanna sæti í
efri deild, þ. e. 20 þingmenn, en
tveir þriðjungar f neðri deild,
eða 40 þingmenn. öll frumvörp,
önnur en fjárlög og fjáraukalög,
þurfa að hljóta samþykki beggja
þingdeilda til þess að þau verði
að lögum. Aðeins fjárlög og
fjáraukalög eru afgreidd í sam-
einuðu þingi.
Ríkisstjórnin þarf
meirihluta í báðum
deildum.
Til þess að ríkisstjórn geti
fengið samþykkt þau lagafrum-
vörp, sem til þess eru nauðsyn-
leg að stjórna landinu, þarf hún
að hafa meiri hluta í báðum
deildúm þings. Undanfarið hafa
stjórnarflokkarnir haft 11 þing-
menn í efri deild móti 9 þing-
mönnum stjómarandstæðinga,
en í neðri deild 22 þingmenn
móti 18.
Hér má þvf ekki verða mikil
breyting á til þess að valdahlut-
föllin raskist. Ef stjórnarflokk-
amir, sem nú hafa 33 þingsæti,
tapa tveimur og fá aðeins
31 þingmann kosinn, er það að
vfsu meiri hiuti f sameinuðu
þingi og í annarri deild-
inni. í hinni þingdeildinni
myndu stjórnarandstæðingar
hafa jöfn atkvæði stjórnarsinn-
um og stöðvunarvald gegn öll-
um málum, er stjómin vildi
fram koma.
Af þessu má það ijóst vera,
hversu litlu má muna, að Fram-
sókn nái því marki sínu að
öðlast stöðvunarvald. Ef stjórn-
arflokkarnir missa tvö þingsæti
samtals yfir landið allt, er stöðv-
unarvald gegn stjórninni fengið.
St j órnarf Iokkamir
fengu 55% atkvæða.
Við síðustu alþingiskosningar
fengu stjórnarflokkarnir 55%
allra greiddra atkvæða, en Fram
sókn og kommúnistar samtals
tæp 42%, og Þjóðvarnarflokk-
urinn rúm 3%.
Þegar á það er litið, hve
stjórnarflokkarnir höfðu traust-
an meiri hiuta kjósenda á bak
við sig, — hve máistaður stjórn
arinnar er sterkur, — og hve
dómgreind íslendinga er örugg,
þegar hún fær að njóta sín, þá
hugsa vafalaust margir sem svo:
Er nokkur hætta á ferðum?
Hætta
á ferðum.
Vissulega er. hætta á ferðum.
Þótt nýja kjördæmaskipunin
væri mikilvægt spor fyrir lýð-
ræðið f landinu, tryggði hún
ekki fyllsta jafnræði milli flokk-
anna. Við haustkosningarnar
1959 vantaði samkvæmt skýrslu
hagstofunnar 3 uppbótarsæti til
viðbótar, til þess að fullum
jöfnuði yrði náð miili þing-
flokka. Hefði Sjálfstæðisflokk-
urinn fengið tvö þeirra og AI-
þýðuflokkurinn eitt. Þetta staf-
ar af þvf, að Framsóknarflokk-
urinn hefur fleiri þingsæti en
kjósendatala hans réttlætir. Ef
hann bætir við sig þingsætum
f þessum kosningum, er enn
meiri skekkja orðin og Alþingi
sýnir þá ekki rétta mynd af
þjóðarviljanum.
Eitt af því sem Framsókn
leggur mest kapp á f kosning-
unum nú, er að fá tvo þing-
menn kosna í Reykjavík. Ef
svo yrði, gæti á því oitið stöðv-
unarvald gegn viðreisninni,
sem Framsókn sækir ákafast
eftir.
Það má aldrei ske, að Reykvfk
ingar hjálpi Framsókn til þess
að verða viðreisnlnni að bana.
Slfkt óhapp mun heldur ekki
henda, ef Reykvfkingar vaka á
verðinum.
Stjórnarsinnar mega ekki
vera sigurvissir og andvaralaus-
ir.
Slgurvlssa hefur oft orðið
góðum málstað að falli. And-
varaleysi getur valdið því tjóni,
sem aldrei verður bætt.
Fram til starfa með djörfung
og dug.
Daf, eða undrabíllinn, eins og sumir vilja nefna hann.
DAF
Hollenzki
— Sjálfskiptur fjölskyldubíll
Fyrir nokkru komu tii lands-
ins 30 hollenzkir bílar af svo-
nefndri Daf gerð. En bílar af
þessari gerð hafa vakið mikla at-
hygli, því þeir hafa ýmislegt það
til að bera, sem er frábrugðið,
því sem áður hefur þekkzt f bfla
iðnaðnum.
Einn bíll af þessari gerð var
hér á landi fyrir af Dafgerð og
er eigandi hans Jónas Guðmunds
son, skrifstofustjóri. Tók Jónas
til máls á fundi sem O. Johnson
& Kaaber, h.f., sem hefur sölu
umboð fyrir bflana, hélt með
blaðamönnum s. 1. mánudag.
Sá grein í Vísi.
— Mig vantaði hentugan lít-
mn bfl og þurfti að hafa hann
sjálfskiptan.
Reyndist það mér þó erfitt því
engan litlan fjölskyldubíl sem
engan litlann fjölskyldubfl sem
væri með sjálfskiptingu vissi ég
um. Þá var það að ég rakst á
grein í Vísi f apríl f fyrra um
þennan hollenska undrabíl, sem
strax vakti athygli mína. Síðan
var ég svo heppinn að sjá aug-
lýsingu í dönsku blaði. Skrifaði
ég þá umboðinu strax og pantaði
bíi af þessari tegund. Nú hef
ég ekið um tólf þúsund km og
ég og barnabörnin syngjum, þeg
ar við förum út að aka. „Gott er
að aka f góðum bfl, Daffodil.
Loftkæld vél.
Það sem einkum hefur vakið
athygli manna á Dafbílnum er
að þeir eru gírkassalausir, hafa
ekkert fótstig fyrir kúplingu og
enga gírstöng. Vélin er nýstár-
leg, kraftmikil tveggja strokka
fjórgengisvél, staðsett frammi í
bílnum. Hún er loftkæld, en
hljóðlát. Einnig má nefna það
að Daf bílinn er smurkoppalaus
og aldrei þarf því að smyrja.
Vélarorkan vinnur alltaf jafnt á
bæði afturhjól og er það sér-
staklega þýðingarmikið í hálku
og hvers konar ófærð.
Ganghraðaskipting milli vélar
og hjóla fer fram með sérstök-
um nýjum útbúnaði, sem hlotið
hefur nafnið „Variomatic".
„Variomatic" er algerlega sjálf
virkur útbúnaður. Órka vélarinn
ar er leidd aftur f bílinn með
venjulegu drifskafti að „Vari-
matic" útbúnaðnum. Þar koma
fjögur V-reimahjól, tvö við aftur
öxul og tvö eilítið framar. Á
milli fremri hjólanna og þeirra
aftari liggja tvær V-reimar.
Þær hafa þann eiginleika að
þær geta víkkað og þrengzt,
þannig að reimin er ýmist inn
við ás, eða nær þvi út við hjól-
brún eða einhvers staðar þar á
milli- riö'>I ttm wti fi
Vélin er 30 hestafla. Bílinn
hefur sérfjöðrun á öllum hjólum.
Hér á landi er bílinn skráður
fjögurra manna, en 4 cm vantar
uppá breidd aftursætisins svo að
hægt sé að skrá hann fimm
manna.
Verksmiðjan gefur upp að bíll
inn eyði 6 til 71/-. Iftra á 100 km.
Tvær gerðir eru fáanlegar af
Daf bílnum, DAF fodil og DAF
750. DAF fodil kostúr um kr.
126.000,— þúsund, en DAF 750
kr. 118.000,— þúsund.
Umboðið hefur stofnað til fuli
komins verkstæðis að Sætúni 8
og hefur það einnig sent menn
út til Hollands, sem fengið hafa
sérstaka þjálfun í verksmiðjun-
um í viðhaldi, viðgerðum og
skipulagningu varðandi þjónustu
Tvær gerðir.
Norrœnir bœndur
með aðild að EBE
Fyrir nokkru var haldinn stjórn-
arfundur í Miðstjóm bændasam-
taka Norðurlanda. Búnaðarfélag
Islands og Stéttarsamtök bænda
eru aðilar að þessum félagsskap
og sóttu þrír íslenzkir fulltrúar
fundinn þeir Sveinn Tryggvason
framkvæmdastjóri, Agnar Guðna-
son ráðunautur og Lárus Jónsson
búfræðingur.
1 frétt frá Búnaðarfélaginu er
sagt að mikið hafi verið rætt á
fundinum um vandamál varðandi
sölu landbúnaðarafurða sérstak-
lega í sambandi við stofnun Efna-
hagsbandalagsins. Kom eftirfarandi
fram i umræðunum:
Otflutningur landbúnaðarafurða
frá Norðurlöndunum hefur þegar
dregizt allvemiega saman vegna
innflutningshafta og ytri tolla.
Ef Bretar ganga í Efnahags-
bandalagið telja fulltrúar danska
Iandbúnaðarins óhugsandi fyrir
Dani að standa utan þess, en fuli-
trúar norskra og sænskra bænda
era ekki eins hlynntir þátttöku,
þótt þeir viðurkenni nauðsyn þess
að vera með í bandalaginu vegna
annarra atvinnuvega.
Þá var rætt á fundinum um sam-
ræmdar aðgerðir Norðurlanda í al-
þjóðasamstarfi, þar sem ákveðnir
eru tollar á landbúnaðarafurðum,
bæði í toliasambandinu (GATT)
og í aiþjóðasamtökum landbúnaðar
framleiðenda (IFAP).
Næsti aðalfundúr í norrænu
bændasamtökunum verður haldinn
í Finnlandi £ sumar. Þangað sækja
fulltrúar frá sölusamtökum bænda
og skýra frá sölu landbúnaðaraf-
urða og markaðshorfum.
#'■...... ...............
Óðinsfélagar
Málfundafélagið Óðinn minnir
meðlimi sína á stærsta og glæsi
legasta happdrættið, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur efnt til
vegna starfsemi sinnar og skor-
ar á þá að gera skil vlð fyrsta
tækifæri. Aðeins 9 dagar eru þar
til dregið verður. Skrifstofa
Sjálfstæðisflokksins verður opin
frá kl. 9—22 daglega.