Vísir - 10.06.1963, Blaðsíða 1
VISIR
53. árg. — Mánudagur 10. júní 1963. — 130. tbl.
Flugmannaverkfallinu afíétt
Gerðardómur fjallar um
uppsagnarókvæðin
Flugmannaverkfalli því, sem stað-
ið hefur nær viku á mesta anna-
tíma ársins og vaidið miiljónatuga
tjóni, var aflýst i morgun eftir að
fulltrúar deiluaðila höfðu verið á
fundum með sáttasemjara til kl. 4
f nótt og flugmenn haidið félags-
fund, sem hófst á miðnætti. Vitað
er, að flugmenn fengu ekki fram
það, sem raunverulega hleypti verk
fallinu af stað, kröfu sína um að
flugfélögin megi ekki segja upp
flugmönnum nema með því að til-
greina „sök“ £ uppsögninni, enda
var hér um að ræða brot á megin-
reglu hins frjálsa atvinnulífs, sem
Framhald á bls. 5.
Meir en helmingur REYKVÍKINCA greiddi
SJÁLFSTÆDISFL OKKNUM ntkvæði
Úrslit úr tveim kjördæmum, Reykjavík og
Reykjaneskjördæmi urðu kunn í nótt. Það sem eink
um vekur athygli í þeim úrslitum, er hin mikla
fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Jók
flokkurinn atkvæðamagn sitt um 16% frá kosn-
ingunum 1959 og hefur nú hlotið 4% meira af heild-
aratkvæðamagninu en þá. í kosningunum í okt.
1959 fékk flokkurinn 16.474 atkvæði, en nú 19122,
og er aukningin 2648 atkvæði. Fær flokkurinn nú
50.7% atkvæða, en fékk 46% í síðustu Alþingiskosn
ingum.
Tala þessar tölur vissulega sínu máli um hug Reyk-
víkinga til Sjálfstæðisflokksins. Það vekur og at-
hygli, hversu kosningabandalag kommúnista og
Þjóðvarnar hefur mistekizt gjörsamlega og er af-
hroð kommúnista nú meira en nokkru sinni fyrr.
Tapar bandalag þeirra 7.2% eða á þriðja þúsund
atkvæða. Framsóknarflokkurinn bætir við sig í
höfuðborginni, en sú aukning getur ekki talizt stór-
vægileg. Má telja víst, að fylgisaukning hans sé
fyrst og fremst að þakka fyrrverandi Þjóðvamar-
mönnum, enda rökstyður atkvæðamagn Alþýðu-
bandalagsins þá ályktun. Alþýðuflokkurinn tapar
1.6%, en má vel við sinn hlut una, ef miðað er við
fylgistap hans í borgarstjómarkosningunum í
fyrra — og þar eð hann heldur sínum tveim þing-
mönnum.
í heild eru þessi kosningaúrslit skýlaus trausts-
yfirlýsing á stefnu og störfum viðreisnarinnar.
REYKJAVlK
1963 1959
A — Alþýðuflokkur 5730 atkv. 2 menn (15.2%) 5946 (16.8%)
B — Framsóknarflokkur 6178 atkv. 2 menn (16.4%) 4100 (11.6%)
D — Sjálfstæðisflokkur 19221 atkv. 6 menn (50.7%) 16474 (46.7%)
G — Alþýðubandalag 6678 atkv. 2 menn (17.7%) 6543 (18.5%)
Þjóðvamarflokkur 2247 ( 6.4%)
Á kjörskrá 42,300. Atkvæði greiddu 38,340, eða 90,6%.
Sú breyting verður á þing-
sætum f Reykjavík, að Sjálf-
stæðisflokkurinn tapar einum
þingmanni, en Framsóknarflokk
urinn vinnur eitt þingsæti. Sú
breyting stafar einkum af því,
að atkvæði Þjóðvamarflokksins
(2247), sem féllu „dauð“ í sfð-
ustu kosningum, skiptast nú á
andstöðuflokkana og koma
þannig betur til skila. Þing-
mannatapið er hins vegar eng-
an veginn hægt að túlka sem
ósigur Sjálfstæðisflokksins,
enda segir hin glæsilega at-
kvæðaaukning allt annað.
Ljóst er og, að aukning kjós-
enda f Reykjavík fer nær ein-
göngu til Sjálfstæðisflokksins.
Sýnir það hver þróunin er.
Ægir / sildarrannsóknaleið-
angur a morgun
Ægir leggur af stað f sfldar-
leit og rannsóknaleiðangur á
morgun, leiðangursstjóri verð-
ur Jakob Jakobsson fiskifræð-
ingur og með honurn verður
í fyrstu rannsóknaferðinni Ing-
var Hallgrfmsson fiskifræðing-
ur.
Jafnframt verður Jakob yfir-
maður síldarleitar á sjó í sum-
ar eins og í fyrrasumar og
taka tvö skip þátt í leitinni,
TALID í DAG
auk Ægis, Pétur Thorsteinsson,
sem er kominn norður, og Fann
ey, sem er í vélarhireinsun, en
fer sfðan rakleitt norður.
Segja má, að síldveiðarnar
séu nú að byrja og eru kunn-
ugir bjartsýnir á veiði. Norska
rannsóknaskipið Johan Hjort
hafði fundið síld um 70 sjó-
mflur út af Langanesi. Bátar,
sem ætluðu þangað, fengu góð-
an afla í leiðinni eins og sagt
er frá á öðmm stað í blaðinu.
Verkfðt boðað
á Norðurlandi
Verkfallsalda er risin norðan- Hækkunarkröfur þær um kjara-
lands. Hafa verkföll verið boðuð á bætur sem gerðar eru á Akureyri
Akureyri og Siglufirði frá 16. þ. munu nema allt að 35%.
m. (næstu helgi). Miklar kröfur
em gerðar um kjarabætur.
Þessi félög hafa boðað verkföll
á Akureyri:
Verkalýðsfélagið Eining, sem í
eru bæði verkamenn og verkakon-
ur, Iðja, félag verkafólks og Bíl-
stjórafélag Akureyrar.
Verkamannafélagið Þróttur á
Siglufirði og verkakvennafélagið
Brynja hafa líka boðað verkföll
frá 16. n. m.
Líkur em fyrir, að sátta-
semjari rikisins fái þessi mál til
meðferðar, þar eð samningar á
Akureyri hafa hvað eftir annað
orðið fordæmi að kaup- og
kjarasamningum verkafólks um
allt land.
Talning atkvæða f öllum
þeim kjördæmum, sem eftir er
að telja I, hefst í dag. Verður að
sjálfsögðu útvarpað frá taln-
ingu jafnharðan og tölur ber-
ast.
Vesturlandskjördæmi. Talið
er f Borgarnesi og hefst taln-
ing þar strax upp úr hádeginu.
Vestfjarðarkjördæmi. Þar
hefst kosning einnig skýmmu
eftir hádegi.
Norðuriandskjördæmi vestra.
Taiið er á Blönduósi og reikn-
að er með að talning hefjist
kl. 5. Stendur hún væntanlega
fram á nótt.
Norðurlandskjördæmi eystra.
Talið er á Akureyri og hefst
talningin ekki fyrr en 5, þar
eð atkvæði hafa enn ekki bor-
izt úr Þingeyjarsýslunum. Taln-
ingin mun þó ekki standa leng-
ur en I 3—4 tfma.
Austurlandskjördæmi. Talið
er á Seyðisfirði og hefst taln-
ingin væntanlega kl. 4 og geng-
ur þá fljótt fyrir sig.
Suðurlandskjördæmi. Þar
verður byrjað að telja upp úr
hádeginu. Talið er á Hvoli.
Ólafur Thors,
forsætisráðherra.
Ólofur Thors í morgun:
Urslitin ótvíræi traustsyfírlýsing
Vísir átti í morgun tal
við forsætisráðherra Ól-
af Thors og spurði hann
um álit hans á úrslitun-
um í Reykjaneskjör-
dæmi.
Forsætisráðherra svar
aði:
t— Við Sjálfstæðismenn hljót-
um að vera ánægðlr með þá
traustsyfirlýsingu, sem kosn-
ingaúrslitin gáfu okkur.
— En hvað um úrslit f
Reykjavík?
— Úrslitin í Reykjaneskjör-
dæmi og Reykjavik eru skýr
og ótvíræð traustsyfiriýsing til
viðreisnarflokkanna.
— En hvað um landið?
a
— Við skulum ekki tala um
hvað ég haldi. Við skulum biða
til kvölds. Þá vitum við báðir
f stað þess að halda.