Vísir - 10.06.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 10.06.1963, Blaðsíða 16
ISIR Mánudagur 10. júnf 1963. Mikill reykjarmökkur af eldsvoða við Borgartún UMMÆLI GYLFA Vísir átti f morgun tal við Gyifa Þ. Gislason menntamála- ráðherra og spurði um álit hans á úrslitum kosninganna hér i borg. Hann sagði: — Ég tel úrslitin x Reykja- vík mjög ánægjuleg fyrir Al- þýðuflokkinn. Hann hefur bætt við sig 1769 atkvæðum frá bæj- arstjórnarkosningunum og fær nú næsthæstu atkvæðatölu, sem hann hefur nokkurn tima fengið í Reykjavik. Það var mjög ánægjulegt að hann skyldi halda báðum þingsætum sin- um hér i höfuðstaðnum. Kosn- inganiðurstaðan er og mjög ákveðin traustsyfirlýsing til stjómarflokkanna þar sem sámeiginlegur meirihluti þeirra hjá reykvískum kjósendum er stór, eða um 65.9% og hefur vaxið frá þvf i síðustu Alþingis kosningum. Það má þvi segja að í þessum kosningum hafi Reykvíkingar vottað ríkisstjórn inni og stefnu hennar traust. Þá hringdi Vísir £ Einar Ol- geirsson, en hann vildi ekkert láta eftir sér hafa að svo stöddu. Kvaðst hann biða heild- araiðurstöðu úr kosningunum, áður en hann léti álit sitt uppi. Ljósmyndari Vísis I. M. tók þessa mynd af brunanum i morgun út um glugga á ritstjómarskrifstofu Vfsis að Laugavegi 178. Mikil heppni réði því að ekki hlauzt af stórtjón, þegar eldur gaus upp í geymsluporti Eim- skip við Borgartún í morgun, en sem kunnugt er eru geymdar i portinu vörur og vélar og nemur veðmæti þeirra fleiri milijónum króna. Það var laust fyrir kl. 10 i morgun sem eldurinn gaus upp og nokkrum augnablikum síöar sást biksvartur reykjarmökkur stíga upp og sást úr mikilli fjar- lægð. Var auðsjáanlegt að eld- fimt efni var að brenna.. Kvikn- að hafði í tjörulagi, sem mynd- azt hafði vegna leka frá tjöru- tunnum sem höfðu verið í geyrnslu í portinu en höfðu ver- ið fluttar þaðan s.l. laugardag. Voru nokkrir verkamenn að vinna við að hreinsa tjöruna upp. Þar stóð stór kransi og er talið að neistar frá útblásturs- röri hans hafi kveikt f tjöru- laginu. Gaus samstundis upp mikill eldur. Þó vildi svo heppilega til að engin slys urðu á mönn- um og einnig tókst að bjarga krananum í burtu. Slökkviliðið kom fljótlega á vettvang og má þakka því, á- samt hagstæðri veðráttu að ekki hlauzt af gríðarlegt tjón, þvl á næstu grösum eru verð- mæti, sem skipta fleiri milljón- um króna. Við tjöruslagið sem kviknaði I var tunnustafli, sem málninga- verksmiðjan Harpa átti og var i tunnunum eldfimt efni til málningargerðar, einnig komst eldurinn í olíu sem Hampiðjan átti f geymslu, og brann hvort tveggja mikið. Talsvert magn af rotvarnarefni og vítisóta var . geyma þarna nálægt, en hvorugt brann neitt a ðráði. Tvö sjúkrafíug í uótt vegna slysa í gær hrapaði 15 ára piltur i klettum austur i Bcrufirði og meidd ist alvarlega, en er ekki lengur í hættu. Einnig meiddist bam héðan úr bænum á höfði alvarlega og var einnig send sjúkraflugvél eftir þvf. Það er úr mestu hættu. Fyrra slysið varð á bænum Gauta vík í Berufirði. Þar voru tveir pilt- ar að klifra í klettum og hrapaði annar þeirra, sonur Guðm. I. Sig- urðssonar lögfræðings. Meiddist pilturinn á höfði og eitthvað meira. Var það kl. 9—10 í gærkvöldi, sem Björn Pálsson var beðinn að senda Framhald á bls. 5. Alvarlegt umferðarslys í gær Alvarlegt umferðarslys varð í Fossvogi í gær er bifreið og bif- hjóli lenti saman á Reykjanesbraut móts við Nesti. Volkswagenbifreið var á leið suður en beygði yfir að Nesti þegar hún kom þar á móts við og lokaði þar með veginum fyrir pilti sem kom fast á eftir á hjálparbifhjóli. Skipti það engum togum að pilt- urinn á bifhjólinu lenti á hægra framhjóli bifreiðarinnar og varð áreksturinn svo harður að piltur- inn slöngvaðist upp á þak bifreið- arinnar og að því búnu niður I götuna. Hann hlaut þungt höfuð- högg og heilahristing og enn fremur var óttazt að hann hafi tvíbrotnað á vinstri handlegg. Pilt- ur þessi, Guðmundur Einarsson, Hofsvallagötu 17 er fæddur 1946. Hann var fyrst fluttur 1 slysavarð- stofuna, en að athugun þar lok- inni var hann fluttur í Landakots- spltala. Fyrir hádegi I gær varð annað umferðarslys við Skíðaskálann I Hveradölum. Maður var þar á ferð I Volkswagenbifreið ásamt konu sinni og 9 ára gamalli dóttur og voru þau á austurleið. í brekkunni rétt vestan við Sklðaskálann missti maðurinn af einhverjum ástæðum stjórn á bifreiðinni og Framhald á bls. 5. Kosningasigur Sjálfstæðis- manna á Reykjanesi Auk Reykjavíkur eru úrslit nú kunn í Reykja- neskjördæmi. Þingsæti flokkanna haldast þar ó- breytt, en túlka má kosningaúrslitin sem glæsilegan .sigur Sjálf- stæðisflokksins. Eftir að hafa unnið einhvern stærsta kosningasigur síðari ára á Reykjanes- inu 1959, heldur flokk- urinn ekki einasta öllu því fylgi nú, heldur bæt- ir við sig 702 atkvæðum, eða 16%. Vantar aðeins rúm 200 atkvæði til að fá þriðja manninn kjör- inn og fella kommúnista b frambjóðandann Guðmundsson. sigur fyrir Ólaf Thors, forsæt- isráðherra. Sýna kjósendur Reykjaneskjördæmis hug sinn og afstöðu til hans sem for- sætisráðherra viðreisnarstjórn- arinnar, og stefnu þeirrar, sem hann hefur markað. Auk Sjálfstæðisflokksins vinn ur Framsóknarflokkurinn tals- vert á I Reykjaneskjördæmi eða um 5%, ef miðað er við greidd atkv. nú og 1959. Al- þýðuflokkurinn tapar verulega og kosningabandalag kommún- ista og Þjóðvamarmanna blður mikið afhroð, líkt og I Reykja- vík. Tapar bandalagið 2.1% at- kvæða (einnig miðað við greidd atkv. nú og 1959). REYKJANES 1963 Alþýðuflokkur 2804 atkv. 1 mann (22.8%) Framsóknarflokkur 2465 atkv. 1 mann (20.1%) 5040 atkv. 2 menn (41.1%) 1969 atkv. 1 mann (16.0%) Gils D — Sjálfstæðisflokkur G — Alþýðubandalag F — Þjóðvamarflokkur Telja verður úrslitin mikinn Á kjörskrá 14079. Atkvæði greiddu 12544, eða 89,1%. 1959 2911 (26.5%) 1760 (16.0%) 4338 (39.4%) 1703 (15.5%) 295 ( 2.6%) Týndi 13 þús. kr. Á iaugardagskvöldið týndi mað ur peningaveski sinu á samkomu- stað hér í Reykjavik, en f vesk- inu voru 13 þús. kr. i penlngum með öðru fleiru. Maður þessi fór I Glaumbæ rétt fyrir kl. 11 I fyrrakvöld. Við dyrn ar tók hann upp veski sitt og greiddi aðgang að húsinu. Þaðan fór hann beint I fatageymsluna og afhenti frakka sinn, en þá veitti hann því athygli að veskið var horfið úr brjóstvasa slnum á þess ari stuttu leið. Leit bar engan ár- angur. Auk þeirra 13 þús. kr. 1 pen- ingum sem I veskinu voru, voru I því ávísanir á sparimerki, heim- ilisföng á fólk erlendis, ökuskír- teini o.fl. Þessi gögn telur eigand- inn sér enn meira virði heldur en nokkurn tima peningana og kvaðst mundu verða þakklátur fyrir að fá þau, þótt hann missi af sjálfri fjárhæðinni. Að öðru leyti tekur rannsóknarlögreglan við upplýsingum um þetta mál. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.