Vísir - 11.06.1963, Blaðsíða 1
VISIR
53. árg. — Þriðjudagur 11. júní 1963. — 131. tbl.
Síldveiðin byrjar vel
„Síldveiðin byrjar ágætlega,“
sagði Jón Einarsson skipstjóri
á síldarleitarskipinu Pétri Thor-
steinsyni, er Vísir hafði tai af
honum á Siglufirði í morgun,
en Pétur 7 oinsso'n hefur
nú leitað sv i út af Bakka-
flóa, þar sem aiimikil síld hefur
veiðzt undanfarna daga. Síðdeg-
is i gær fengu þau fáu skip,
sem þar v.oru, ágæta veiði,
Grótta 1700 mál og tunnur, Odd
geir 1400, Gulifaxi 1100, Snæ-
feil 1200 og Sigurður Bjarnason
1200 mál og tunnur. Áður höfðu
Stígandi og Gunnar frá Reyö-
arfirði fengið ágæta veiði á þess
um slóðum og nokkur fleiri skip
einhvern afla.
Jón Einarsson skipstjóri
sagði, að aðalveiðisvæðið væri
fjörutíu til sextíu sjómílur
suðaustur af Langanesi. Þar
lóðaði leitarskipið á ágætar
torfur á töluvert mörgum stöð-
Framhald á bls. 5.
SJÁLfSTÆBISFLOKKURINN JÓK
mSI SITT I 41,4 PRÓSfNT
ÓSIGUR KOMMÚNISTA
Úrslit Alþingiskosn-
inganna eru mikill sigur
fyrir viðreisnarstjórn-
ina. Þjóðin hefur vottað
stefnu síðustu ára traust
sitt. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur aukið atkvæða
magn sitt. Framsóknar-
flokkurinn hefur einnig
fengið nokkru fleiri at-
kvæði en síðast, en kom
múnistar töpuðu veru-
lega fylgi.
Sjálfstæðisflokkurinn
hlaut jafnmarga þing-
menn og 1959, eða 24.
Alþýðuflokkurinn hlaut
8 þingmenn, einum
færra en síðast. Hafa
stjórnarflokkarnir því
meirihluta á þingi, eða
32 þingmenn. Kommún-
istar hlutu 9 þingmenn
og töpuðu einum. Fram-
sóknarflokkurinn hlaut
19 þingmenn, vann tvo.
Stjómarflokkarnir auka atkvæðamagnið að baki sér úr 54.9% í 55.7%, og
er það í fyrsta skipti að stjóm, sem étarfað hefur áður heilt kjörtímabil,
hljóti fylgisaukningu og meirihluta allra kjósenda. Stjórnarflokkarnir missa
að vísu einn þingmann, en hafa áfram meirihluta í báðum þingdeildum.
Skapa kosningaúrslitin gmndvöll fyrir áframhaldandi samstarf " Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks til eflingar aukinni viðreisn og velmegun.
Kommúnistar tapa stórlega fylgi í þessum kosningum, og dugir ekki einu
sinni handalagið við Þjóðvörn til að breiða yfir það tap. Missa þeir einn þing-
mann (úr 10 í 9) og hljóta nú 16% atkvæða, en höfðu áður 19.4% eða 3.4%
minnkandi fylgi. Framsóknarflokkurinn bætir við sig tveim þingmönnum
(úr 17 í 19) og eykur atkvæðafjölda sinn um 2.5%.
Á kjörskrá voru nú 100.573,
en atkvæði greiddu 90.945 eða
90.4%. Atkvæðatölur flokkanna
og hlutfallstölur þeirra (I sviga
tölur síðustu kosninga) fara hér
á eftin
Alþýðuflokkur 12793 atkv.
eðá 14.2% (12009 atkv. eða
15.2%).
Framsóknarflokkur 25220 at-
kv. eða 28.2% (21882 atkv. eða
25.7%).
Sjálfstæðisflokkur 37116 at-
kvæði eða 41.4% (33800 atkv.
eða 39.7%).
Alþýðubandalag 14274 atkv.
eða 16% (16504 atkv. eða 19.
Framhald á bls. 5.
Atkvæðamagn
og þingmenn
Sjálfstæðisflokkurinn jók
verulega fylgi sitt í þessum
kosningum (úr 39.7% í 41.1% )
Þingmannatala flokksins helzt
hins vegar óbreytt. Einn maður
tapaðist í Reykjavik, en í stað
hans kemur uppbótarþingmað-
ur, Hermann Þórarinsson frá
Blönduósi. Þingmenn Sjáifstæð
isflokksins eru 24.
Kosningaúrslitin eru mikill
sigur fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Þrátt fyrir harða hríð, beggja
stjórnarandstöðuflokkanna og
eftir að hafa setið i ríkisstjórn
allt kjörtímabilið, er það mjög
eftirtektarverður og mikilvæg-
ur árangur að fá aukið fylgi og
halda þingmannafjöldanum.
Alþýðuflokkurinn tapar ein-
um manni og lítilsháttar af at-
kvæðum, eða um 1,5% af heild
aratkvæðamagni. Ef miðað er
við síðustu borgarstjórnarkosn-
ingar ,hefur flokkurinn bætt
stórlega við sig. Góður sigur
er það fyrir Alþýðuflokkinn að
halda þingmönnum sínum í
Reykjavík og á Vesturlandi, en
þá hugðist Framsókn fella.
Framsóknarflokkurinn bætir
við sig 2.5% af heildaratkvæða-
magni og er það minni aukning
en Framsóknarmenn höfðu gert
sér vonir um. Lögðu þeir ofur-
Framhald á bls. 5.
Formaður Alþýðuflokksins:
Viljum sams tarf
Vfslr átti f morgun tal við var fyrir kosningar. Við Alþýðu
formann Alþýðuflokksins, Emil flokksmenn getum verið ánægð-
Jónsson ráðherra. Spurði blaðið ir með kosningaúrslitin. Þau
hann um afstöðu Alþýðuflokks- eru okkur hagstæð, miðað við
Ins til áframhaldandi stjómar- bæjarstjórnarkosningamar sfð-
samstarfs. Ráðherrann sagði: ustu. Eini skugginn er að Frið-
— Rfkisstjómin heldur vænt- jón Skarphéðinsson hverfur nú
anlega áfram, enda er það í af þingi. Að honum er mikil
samræmi við það sem ákveðið eftirsjá.
Halda verður áfram
í sömu braut
— sagði Bjarní Benedikts-
son í morgun
— Við fögnum miklum
sigri, sagði Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálf
stæðisflokksins, er Vísir
átti tal við hann í morg-
unum kosningaúrslitin.
Tilviljanirnar liafa verið á
móti flokknum að þessu sinni,
sem fram kom í því að við
misstum þingsæti í Reykjavík,
þrátt fyrir að við stórykjum
fylgi okkar hér. Og á sama hátt
varð sigur Framsóknar yfir
Karli Guðjónssyni i Suðurlands
kjördæmi með broti úr stigi
ekki til þess að kommúnistar
misstu þingsæti, heldur gekk
ósigur þeirra út yfir okkur, því
ella hefðum við fengið 25 þing-
menn kosna.
Þannig verka ýmis ófyrirsjá-
anleg atvik á sjálfa þingmanna-
töluna, en f heild megum við
Sjálfstæðismenn vera mjög
ánægðir. Við höfum unnið einn
stærsta sigur sem flokkurinn
hefur fengið fyrr og síðar. Vil
ég þakka öllum, sem að honum
stóðu.
— Hvemig verður með stjóm
arsamstarfið?
— Núverandi ríkisstjóm hef-
ur hlotið eindregna traustsyfir-
lýsingu alþjóðar og er þvf sjálf-
Bjarni Benediktsson
sagt að áfram verði haldið á
sömu braut. Ég þekki ekki
dæmi þess úr íslenzkri stjóm-
málasögu að ríkisstjóm sem
setið hefur heilt kjörtfmabil
hljóti svo miklð fylgi við al-
mennar kosningar. Enda hygg
ég að stuðningur 56% kjósenda
myndi hvarvetna i heiminum
vera talinn með mestu stjóm-
málasigmm.