Vísir - 19.06.1963, Síða 3
V í S IR . Miðvikudagur 19. júní 1963.
FYRSTI KVEN-
GEIMFARINN
Valentina Tereshkova er fræg
asta kona veraidar þessa dag-
ana. Engin furða. Hún er fyrsta
konan, sem gerist farþegi í
gervdhnetti á braut umhverfis
jörðu. Valentina er kona Ijós-
hærð, með blá augu, breitt and-
lit, eilítið þrekvaxin, en kven-
leg. Fyrir þremur árum vann
hún í vefnaðarverksmiðju 150
mílur frá Moskvu. Hún var tek-
in f hóp verðandi geimfara
vegna áhuga sins á fallhlífar-
stökki, dugnaði 1 skóla og sfð-
ast en ekki sfzt vegna þess að
hún er góður kommúnisti (sem
væntanlega hefur ekki beðið
bænir sínar áður en hún lagði
upp í geimreisuna).
Valentina hefur verið f þjálf-
unarbúðum geimfaranna sfðan
í marz eða apríl sl. ár. Karl-
geimfararnir eru allir með tölu
hrifnir af fyrsta kvengeimfar-
anum, ekki að ástæðulausu ef
taka má mark á orðum þeirra,
sem eru ekkert nema Iofsyrði
um Valentínu. En Valentína er
hins vegar aðeins skotin í ein-
um þeirra, að sögn, geimfaran
um Nikolayev. Munu þau vera
ieynilega trúlofuð.
Valentínu gekk upphaflega
erfiðlega að tileinka sér geim-
ferðartækni og læra utanað um
hin ýmsu tæki geimskipanna.
En vegna þess að hún var dug-
leg og eyddi mestum hluta frí-
stunda sinna við námið, tókst
henni að yfirstfga þennan hjalla,
og stendur hún nú öðrum geim-
förum ekkert að baki f þessum
efnum.
Valentína hefur mikið dálæti
á Beethoven og Tsjækovski og
rússneskum þjóðlögum. Eftirlæt
isrithöfundar hennar eru Tol-
stoy og Shokolov.
Efri mynd: Valentina í geim-
farinu á æfingu.
Neðri mynd: Valentina með
litlum frænda sínum.