Vísir - 29.06.1963, Síða 8
8
VÍSIR . Laugardagur 29. júní 1988.
Otgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði.
í lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Tjaldað með rauðu
Frá því hefur verið skýrt í fréttum, að forseti
Bandaríkjanna kom til Vestur-Berlínar á ferð sinni
um Evrópu og dvaldist þar í sjö klukkustundir. Var
honum fagnað mjög af íbúum borgarinnar. Hann ók
að Brandenborgarhliðinu og horfði þaðan af palli inn
í Austur-Berlín. Ekki virðist foringjum kommúnista
þó hafa verið um það, að fólkið sæi forsetann, því
að þeir höfðu látið reisa þriggja metra háan timbur-
vegg austan hliðsins og tjaldað með rauðum fánum
milli súlnanna í hliðinu.
Þegar forsetinn kom að varðstöðinni á banda-
ríska svæðinu hafði hópur manns safnazt saman aust-
an stöðvarinnar, til þess að sjá forsetann og fagna
honum, en brátt komu a-þýzkir landamæraverðir á
vettvang og dreifðu mannfjöldanum.
Þjóðviljinn hefur sagt nokkuð frjá ferðalagi Kenn-
edys, en af einhverjum ástæðum hefur blaðinu jþótt
rétt að sleppa að skýra frá þessum ráðstöfunum yfir-
valdanna f Austur-Berlín! Slíkar aðgerðir eru líka síð-
ur en svo meðmæli með því þjóðskipulagi, sem komm-
únistar eru alltaf að gylla fyrir íslendingum. Miðað
við margt annað, sem almenningi í ríkjum kommún-
ista er bannað, skiptir það auðvitað litlu máli, hvort
Iiann fær að sjá forseta Bandaríkjanna eða ekki. Það
er t. d. alvarlegri hlutur, að þar er hvorki ritfrelsi né
málfrelsi og það getur kostað menn fangelsisvist eða
jafnvel sjálft lífið, ef þeir hlusta á erlent útvarp eða
lesa blöð, sem yfirvöldin hafa vanþóknun á.
Það hlýtur að vera eitthvað meira en lítið bogið
við það þjóðfélag, sem þarf að setja þegnunum svona
reglur; og það er því ekki vonum fyrr, að þeim tek-
ur nú óðum að fækka hér á íslandi, sem fylgja þess-
ari óheillastefnu.
Þurfa ekki oð reisa múr
Allir unnendur frelsis og lýðræðis munu geta tek-
; ið undir þessi orð Kennedys forseta, í ræðu hans í
Berlín á dögunum:
„Frelsi hefur marga erfiðleika í för með sér og
; lýðræðið er ekki fullkomið, en við höfum aldrei þurft
að reisa múr til að hindra fólkið í að flýja frá okkur.
Berlínarmúrinn sýnir heiminum Ijóslegar en nokkuð
annað, að kommúnisminn hefur misheppnazt, því að
múrinn er, eins og borgarstjóri Vestur-Berlínar hefur
sagt, ekki aðeins glæpur gegn sögunni, heldur gegn
mannkyninu“.
Meðal siðmenntaðra þjóða eru kommúnistar nú
alls staðar á undanhaldi, og íslendingar ættu ekki að
verða öðrum þjóðum miklu seinni til þess, að reka
ófögnuðinn af höndum sér.
Stig Wennerström ofursti, Ulla Greta kona hans, og Christina dóttir þeirra.
Fingraför á leyniskjali
komu
Fingraför á leyniskjali
urðu til þess, að upp
komst um njósnir Stig
Wennerströms ofursta
hins sænska.
■ „Stig Wennerström-njósnamál-
18“ virðist ætl^jað fá?p Í$j8-
tækari og alvarlegri afléiðingár,
— m. a. er ljóst orðið, að það
getur haft alvarlegar stjórnmála
legar afleiðingar fyrir stjórnina,
jafnaðarmannastjórnina, sem Er
lander veitir forstöðu, en hið
kunna blað DAGENS NYHET-
ER hefir lýst yfir, að stjómin
hafi haft Wennerström grunað-
an í 2 ár. Sama blað skýrði frá
þvl samtímis, að eftir langar
umræður hefði ríkisstjórnin sam
þykkt, að setja á laggirnar
rannsóknarnefnd, og var sú á-
kvörðun tekin, eftir að forsætis-
ráðherrann hafði fengið grein-
argerð frá saksóknara ríkisins
og æðstu mönnum lögreglu og
öryggismála.
o—r
Blaðið heldur því einnig fram,
að öryggislögreglan hafi fengið
vitneskju um, að Wennerström,
sem virðist hafa njósnað fyrir
Rússa peninganna vegna, en
ekki af stjórnmálaástæðum, hafi
látið Rússa leggja fé fyrir sig
inn á banka 1 Sviss, sem hann
gat svo ráðstafað að vild, er
hann kom þar ?em sænskur sér-
fræðingur á afvopnunarráðstefn
una, en talið er að það sé geysi-
fé, sem Rússar hafa greitt hon-
um á þeim 15 árum, sem hann
njósnaði fyrir hann — sennilega
milljónir.
0 °jt
iw / x? m m m
Það voru fingraför, sem urðu
til þess, er fyrr segir, að upp
komst um njósnir ofurstans. —
í skeyti frá Stokkhólmi til Poli-
tiken í Khöfn, segir að þetta
hafi orðið upphaf þess, að
sænska öryggislögreglan, sem
hafði haft hann grunaðan um
margra ára skeið, gat grafið
fyrir margar rætur málsins.
Og þetta gerðist fyrir jól og
er þakkað árvekni embættis-
manns nokkurs á yfirherstjórn-
arskrifstofunni, að allt komst
upp.
Wennerström ofursti var þá
starfandi fyrir utanríkisráðuneyt
ið sem sérfræðingur í afvopn-
unarmálum, og hafði fengið til
afnota skjal stimplað sem leyni-
skjal, skjal, sem eftir venjuleg-
um skilningi var ekki hægt að
áiykta, að hann hefði not
fyrir.
En Ieyndarskjalið hafði verið
skilað aftur, en hin tæknilega
stofnun, sem rannsakar gögn
í afbrotamálum, staðfesti að á
plagginu væri fingraför ofurst
Eins og fyrr hefir verið að
vikið er talið, að ofurstinn hafi
njósnað peninganna vegna. Vit-
anlega er þetta ekki rannsakað
til hlítar frekar en annað, en
svo virðist sem hann hafi flækzt
í „svikamylnu, sem hann af
efnahagslegum eða öðrum á-
stæðum gat ekki losað sig úr“,
segir í StokkhólrhSskeytinu til
Politiken.
Þá segir í sama skeyti, að í
mörg ár muni ofurstinn hafa
haft meiri tekjur en hann hafði
sem sænskur ofursti — ef til vill
mikið meira.
O—T
Þá er kunnugt orðið, að Wenn-
erström hefir ferðazt til Sovét-
ríkjanna eftir að hann 1952
hætti að starfa þar sem flug-
hermála-sérfræðingur. Það er
ekki iéngra siðan en í fyrra-
vetur, að hann var í leyfi ásamt
konu sinni suður við Svartahaf
og öryggisþjónusta.n var í mikl-
um vanda. Menn höfðu sterkar
grunsemdir vegna sambanda
hans en það var ekki hægt á
því stigi að hætta á að taka
hann fastan, því að ekki var
hægt að sanna á hann sakir,'
og var því sá kostur valinn, að
láta það afskiptaiaust, að hann
færi og héldi njósnaspilinu á-
fram, er heim kæmi — og þa&
var það sem gerðist.
Framh. á 10. síðu.
Ekki hefur verið tekin end-
anleg ákvörðun um það hvort
ísland taki þátt í heimssýning-
umii, sem haldin verður í New
York í ár, en allt cendir ti! að
svo verði ekki.
Það sem er því til fyrirstöðu
að ísland geti verið þátttak-
and: er, að ríkisstjórnin mun
ekki styrkja þátttöku og einstök
fyrirtælci hafa ekki bolmagn til
aii standá undir hinum gífurlega
kostnaði, sem samfara henni
yrði. Leigja þyrfti stóra sýn-
ingarskála eða leigja svæði og
b 'ggia uoo sýningarskála, sern
siðan yrðu rifnir niður. Myndi
það verða tugmiiljóna króna
kostnaður. Telja fyrirtæki og
einstakiingar sig geta varið þvi
fé á betri hátt tii auglýsinga
og Iandkynningar en með þátt-
töku í heimssýningunni.
Ríkisstjórnir hinna Norður-
iandanna munu ekki veita styrk
til þátttöku og verður því ekki
um hana að ræða nema einstök
fyrirtæki sjái sér fært að standa
undir hinum gífurlega kostnaði.