Vísir - 22.07.1963, Síða 1
5000 manns í Skálholti í gær
í þann mund sem fylking 100 biskupa og presta
gekk í Skálholtskirkju í gærmorgun leystist skýja-
þykknið skyndilega sundur og sólin baðaði Skál-
holtsstað geislum sínum. Var það gott jarteikn og
í senn kennimark hátíðahaldanna á Skálholtsstað
í gær. Þau fóru ágætlega vel fram og urðu öllum
þeim ógleymanleg, sem á þessum fornhelga stað
íslenzkrar kirkju voru staddir.
Síðar um daginn stakk biskup fyrstu skóflu-
stunguna fyrir menntasetri kirkjunnar að Skál-
holti og veitti viðtöku rausnarlegri norskri pen-
ingagjöf. Um 5000 manns tók þátt í hátíðinni og
dvöldust í Skálholti þessar sögulegu sturidir í gær.
Hér fer á eftir stutt lýsing á
viðburðum dagsins eins og þeir
komu fréttamönnum Vísis fyrir
sjönir.
T býtið i gærmorgun streymdu
bifréiðir Reykvíkinga ög
annarra aðkoniumanna austur i
Biskupstungur. Veður var nöt-
urlegt, úrkoma mikil og belj-
andi stormur. En er komið var
á þann stað i tungunum, þar
sem fyrst sést heim til Skál-
holts, hálfri stundu áður en
klukkur dómkirkjunnar hringdu
inn í vígsluhátíðina, gerði upp-
styttu. Hélzt þurrt allan dag-
inn en var nokkuð hvasst.
Mikil prósessía.
Forseti Islands og biskup
höfðu gist að Skálholti, í bisk-
ups húsinu, um nóttina. En um
þetta leyti bar þá níutiu presta
að garði, sem þátt tóku i vígsl-
unni, og gesti innlenda og er-
lenda. Gengu prestar til bisk-
upshúss, þar sem þeir skrýdd-
ust hempum sinum og biðu þess
að prósessia hæfist.
Nokkur tjaldborg var i hæð-
ardraginu suðvestan undir kirkj-
unni, þar sem aðkomumenn
gistu, og einnig voru öll önnur
tjöld reist þegar um morguninn,
veitingatjöld, pósttjöld og varð-
tjöld lögreglu og skáta.
Eftir lúðraþyt og klukkna-
hringingu á nýjan leik hófst
prósessian. Var það mikil för
og virðuleg. Gengu yngstu prest
ar kirkjunnar fremstir, siðan
eldri prestar, þá biskupar Norð-
urlandanna og vígsluvottar,
jafnan tveir og tveir saman. Síð-
astur gekk biskupinn herra Sig-
urbjörn Einarsson og hafði yfir
sér biskupskápu forkunnarfagra
og bar á höfði biskupshatt gerð-
an á Englandi. Báru vígsluvott-
arnir kirkjugripi hinnar nýju
Skálholtskirkju i skrúðgöng-
unni.
Mannfjöldi allmikill hafði safn
azt fyrir framan kirkjuna og er
prósessían færðist nær og gekk
að kirkjudyrum tóku kvikmynda
vélar að suða og útvarpsmenn
hófu lýsingar sínar. Prósessian
gekk inn kirkjuna, sem þegar
var fullskipuð boðsgestum, m.
a. ráðherrum, og sendiherrum
erlendra rikja. Tóku prestar sér
sæti aliir i norðurstúkunni, þar
sem Brynjólfsaltari stendur. —
Vígsluvottar, þ. e. biskupar
Norðurlandanna og vigslubiskup
ar Skálholts og Hóla, dr. Bjarni
Jónsson og sr. Sigurður Stefáns-
son og dr. Valdimar Eyiands
vígsluvottur Vestur-íslendinga
gengu til sætis sitt hvorum
megin við altarið ásamt héraðs-
prófastinum, séra Gunnari Jó-
hannssyni.
Kirkjuvígslan sjálf.
Kirkjuvígslan hófst á þvl að
Framhald á bls. 2
Söguleg
mynd
Þessi mynd var tekin í
gær við vígslu Skálholts
kirkju.
Biskupinn, herra Sig-
urbjöm Einarsson hefir
Iýst vígslu kirkjunnar
frá altari og flytur þakk-
arorð úr kórdyrum, þeg-
ar myndin er tekin. Sitt
hvorum megin við altar-
ið má sjá hvar vígslu-
vottamir sitja, skrýddir
rykkilíni. í norðurstúku,
t. v., sitja þeir 90 prest-
ar, sem þátt tóku í vígsl-
unni í hempum sínum.
Ríkisstjórnin og erlend-
ir gestir sitja á bekkjun-
um innst til vinstri. Innst
til hægri í kirkjunni sit-
ur Skálholtskórinn.
(Ljósm. Vísls, Pétur Þorsteinss.).
Fleiri myndir og
frósngnir eru á
síðum 2,3,8 og
9 í bluðinu í dug
\ ¥0
VISIR
53. ár. — Mánudagur 22. júlí 1963. — 165. tbl.
Skálholtskirkja vígð
Áhrifamikil stund