Vísir - 22.07.1963, Blaðsíða 3
V í S IR . Mánudagur 22. júlf 1963.
3
Ljósm. Oddur Ólafsson.
' 'a- ii í
FYRSTU M YNDIRNAR
FRÁ KIRKJUVÍGSLUNNI
Fréttamenn og ljósmyndarar Vísis voru að sjálfsögðu viðstadd-
\
ir hina miklu hátíð, sem fram fór í Skálholti f gærdag. Á forsíðu
blaðsins í dag er sagt frá athöfnimii inni í kirkjunni, vígslunni
sjáifri, en hér á eftir verður slegið upp lauslegum svipmyndum
af þessum viðburði, framvindunni, og aðstæðum öllum á staðnum.
Fjöldi mynda fylgir og þessum frásögnum, en ljósmyndir Vísis í
dag eru þær fyrstu, sem birtast frá Skálholtshátíðinni.
VÍSIR birtir f dag fyrstu mynd-
imar frá vígslu Skálholtskirkju.
Fékk blaðið m. a. leigða flugvél
til að fljúga með Ijósmyndara
yfir staðinn og náðist þar hin
ágæta yfirlitsmynd af Skálholti,
sem hér er að ofan.
Er myndin tekin strax eftir
að vígslunni sjálfri er loklð, eða
þegar vígsluvottar ganga úr
kirkju. Má glöggt sjá þá f hvít-
um skikkjum (rykkilínum), en
inn í kirkjuna gengu þeir f full-
um skrúða, forkunnarfögrum
biskupakápum. — Afskrýddust
vígsluvottarnir biskupakápunum
í kirkjunni, en hvítu skikkjumar
eru tákn vígslunnar.
Efst á þessari mynd sér til
norðausturs yfir vatnasvæðið,
þar sem Hvítá og Tungufljót
koma saman.
Til vinstri er sr. Bjami Jóns-
son vígslubiskup, en hann þjón-
aði fyrir altari við vígsluna.
>(-
Myndir þær, sem birtast hér f
blaðinu frá Skálholtshátfðinni,
eru teknar af ljósm. Vísis (Braga
Guðmundssyni og Pétri Ó. Þor-
steinssyni). Oddur Ólafsson tók
Ioftmyndina.
Við vfgsluna voru mættir f kirkju rúmlega 100 vígðir menn, þar af 91 hempuklæddur prestur. Settu þess
ir þjónar kirkjunnar sinn svip á hátíðina. Hér sjást nokkrir þeirra í kirkjunni. Fremst á myndinni sjást
forsetahjónin. Fremst til vinstri er kona kirkjumálaráðherra, frú Sigríður Bjömsdóttir. Á miðri mynd-
inni er skírnarfontur, sem gefinn var frá Færeyjum.