Vísir - 22.07.1963, Blaðsíða 5
VlSIR . Mánudagur 22. júlí 1963.
5
Svifflugmótið á Hellu:
Sverrír Þóroddsson svifflugmeistarí
Ungur Reykvíkingur, Sverrir Þóroddsson, bar sig-
ur úr býtum á Svifflugmóti íslands, sem staðið hefur
yfir á Helíu alla s.l. viku Gildir flugdagar urðu aðeins
þrír, sem er lágmark, en veður var yfirleitt mjög óhag-
stætt. Þriðji gildi flugdagurinn var laugardagurinn.
Ekkert var hægi að fljúga í gær, en þá fóru fram mót-
slit í hótelinu á Hellu Afhenti Ásbjöm Magnússon,
mótstjóri, sigurvegaranum tvo fagra bikara, annan far-
andbikar, en hinn gefinn af Ingólfi Jónssyni flugmála-
ráðherra, og þarf að vinna hann tvisvar í röð til að
fá hann til eignar.
Flugleiðin á laugardag var Hella,
Hraungerði, Skálholt, Hella, alls
82,7 km. Beztu útkomuna fékk þá
Porgeir Pálsson, alls 1 þús. stig,
næstur var Þórhallur Filippusson
með 945 stig. Þriðji var Leifur
Magnússon með 933 stig. Fjórði
Sverrir Þóroddsson með 811 stig,
en fimmti Ásgrímur Jóhannsson
með 648 stig.
Eins og fyrr segir, var ekkert
hægt að fljúga í gær vegna mikils
hvassviðris, en þrír gildir flugdag-
ar voru komnir og var því heildar-
stigatalan reiknuð út. Kom þá í
ljós, að sigurvegari og svifflugmeist
ari íslands 1963 var Sverrir Þór-
oddsson, Reykjavík, með alls 2662
stig. Annað sætið hlaut Þórhallur
með alls 2550 stig. Næstur kom
Þorgeir með 2256 stig. Fjórði varð
Leifur Magnússon með 2177 stig.
Og í fimmta sæti var Arngrímur
Jóhannsson frá Akureyri og hlaut
hann alls 1268 stig. í heild má
segja um mótið, að útkoman er
mun Iægri en menn gerðu sér vonir
um, en það stafar af mjög óhag-
stæðri veðráttu flesta daga móts-
ins. Þess má geta, að þeir Leifur
og Þórhallur voru á æfingaflugum,
og dregur það skiljanlega úr góðum
árangri.
Happdrætti
Dregið var 15. þ.m. í Happdrætti
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar. Vinningur Simca-bifreið. —
£>ar sem beðið var eftir skilagrein
frá ýmsum var ekki hægt að til-
kynna vinningsnúmerið strax, en
það verður gert á morgun eða mið-
vikudag.
Mótið fór mjög vel fram, og ekk-
ert óhapp henti neinn þátttakend-
anna.
Mótinu var slitið að hótel Hellu.
Mótstjórinn, Ásbjörn Magnússon,
hélt stutt ávarp og afhenti því
næst verðlaun. Auk titilsins Svif-
flugmeistari íslands árið 1963 hlaut
sigurvegarinn, Sverrir Þóroddsson,
glæsilegan bikar, sem er farandbik-
ar, og var þetta 1 fyrsta sinn, sem
keppt var um bikarinn. Bikarinn
gáfu nokkrir meðlimir Svifflugfé-
Iags íslands til minningar um Jó-
hann Hagan, sem var mjög efni-, bikar, sem gefinn var af Ingólfi
legur svifflugmaður, en lézt árið Jónssyni flugmálaráðherra
1942. Einnig hlaut Sverrir fagran I
Þórhallur Filippusson og Sverrir Þóroddsson, svifflugmeistari fslands.'
Evrópumótið i bridge:
island sigraði
í 3.og4.umferð
Einkaskeyti til Vísis
frá Baden-Baden.
Fjóruin umferðum er Iokið í Ev-
rópumeistaramótinu í bridge, sem
haldið er í Baden-Baden í V-
Þýzkalandi. ísland tapaði í tveim
fyrstu umferðum en sigraði i
hinum. í fyrstu umferð sigraði
Belgía fsland 6—0 (134—77) og í
annarri umferð sigraði Þýzkaland
ísland 6—0 (129—86).
í þriðju umferð sigraði ísland
Sviss 6—0 (120—55) og í fjórðu
umferð sigraði ísland Líbanon 6—0
(87—27).
Úrslit urðu að öðru leyti sem hér
segir í 1. umferð: Pólland vann Sví-
þjóð, 6—0, Þýzkaland írland 6—0,
Finnland Sviss 5—1, England Le-
banon 6—0, Frakkland Holland
6—0, Danmörk Austurrlki 5—1,
Ítalía Egyptaland 6—0 og Spánn
vann Noreg 6—0. Stefán, Lárus,
Ásmundur og Hjalti spiluðu fyrir
ísland í 1. umferð.
í annarri umferð sigraði Eng-
land Frakkland 6—0, Svlþjóð
Belgíu 6—0, Sviss írland 5—1, Hol-
land Danmörku 6—0, Austurríki
Frh. á bls. 7.
Breiðablik í I.
Vestmanitaeyjar — Breiðablife 2-2
næsta árl
Breiðablik, liðið, sem
mest hefur komið á ó-
vart í knattspyrnunni
undanfarið, hefur nú
tryggt sér sigur ! A-riðl-
inum og leikur nú til úr-
slita í II. deild, sennilega
við Þrótt, um að hreppa
sæti í I. deild næsta ár.
Þessir duglegu Kópa-
vogsbúar kepptu í Vest-
mannaeyjum s.l. laugar-
dag. Þeir voru að vísu
heppnir, en þeir komu
með eitt stig til baka frá
Eyjum. Dýrmætt stig,
sem tryggði þeim að
Ieika til úrslita í II. deild.
Fljótlega eftir að leikurinn í
Vestmannaeyjum hófst, var það
ljóst, að Eyjamenn voru ákveðn
ir I því ð hefna fyrir ófarirnar
á Melavellinum, þegar Breiða-
bliksmenn renndu knettinum
fjórum sinnum I netið hjá þeim,
án þess að þeir gætu svo mikið
sem sett eitt mark.
Þrátt fyrir það voru það Kópa
vogsmenn sem settu fyrsta
mark leiksins, það kom um miðj
an fyrrj hálfleik. Grétar Krist-
jánsson skaut föstu, góðu skoti
fyrir utan vítateig, sem hafnaði
efst uppi f horni — glæsilegt,
óverjandi skot. Eftir markið
sækja Vestmannaeyingar mun
meira, en skora loksins síðast í
fyrri hálfleik af stuttu færi úr
þvögu.
Fljótlega eftir að síðari hálf-
leikur byrjaði, skora Eyjamenn
aftur og var þar Guðmundur
Þórarinsson að verki. Vest-
mannaeyingar „pressa“ nær
stanzlaust í síðari hálfleik og
Breiðablik á ekki nema eitt og
eitt upphlaup. En heppnin var
með beim. Þegar um það bil
átta mínútur voru til leiksloka,
tókst þeim að skora, 2:2. Ekki
urðu mörkin í leiknum fleiri.
Dómarinn. Valur Benediktsson,
flautaði af og það voru ánægðir
II. deildar leikmenn úr ung-
mennafélaginu Breiðablik í
Kópavogi, sem yfirgáfu leikvang
inn. Eitt stig hafði bætzt við á
stigatöfluna þeirra og það var
nóg til að tryggja þeim að leika
til úrslita í II. deild.
Áberandi bezti maður Vest-
mannaeyinganna var Atli Ein-
arsson, h. framvörður. 1 liði
Breiðabliks stóðu þeir sig einna
bezt Júlíus miðvörður og Reynir
Jónsson. Einnig átti markmað-
urinn ágætan leik.
Eins og fyrr segir, var dómari
í leiknum Valur Benediktsson,
og dæmdi hann ágætlega. Ahorf
endur voru margir, enda mikill
áhugi fyrir knattspymu f Vest-
mannaeyjum og hvöttu áhorf-
endur 1-p:r->pr-ierln vel að vanda.
Syndið
20C mitrona
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
FERÐIZT í VOLKSWA3EN