Vísir - 22.07.1963, Page 5

Vísir - 22.07.1963, Page 5
VlSIR . Mánudagur 22. júlí 1963. 5 Svifflugmótið á Hellu: Sverrír Þóroddsson svifflugmeistarí Ungur Reykvíkingur, Sverrir Þóroddsson, bar sig- ur úr býtum á Svifflugmóti íslands, sem staðið hefur yfir á Helíu alla s.l. viku Gildir flugdagar urðu aðeins þrír, sem er lágmark, en veður var yfirleitt mjög óhag- stætt. Þriðji gildi flugdagurinn var laugardagurinn. Ekkert var hægi að fljúga í gær, en þá fóru fram mót- slit í hótelinu á Hellu Afhenti Ásbjöm Magnússon, mótstjóri, sigurvegaranum tvo fagra bikara, annan far- andbikar, en hinn gefinn af Ingólfi Jónssyni flugmála- ráðherra, og þarf að vinna hann tvisvar í röð til að fá hann til eignar. Flugleiðin á laugardag var Hella, Hraungerði, Skálholt, Hella, alls 82,7 km. Beztu útkomuna fékk þá Porgeir Pálsson, alls 1 þús. stig, næstur var Þórhallur Filippusson með 945 stig. Þriðji var Leifur Magnússon með 933 stig. Fjórði Sverrir Þóroddsson með 811 stig, en fimmti Ásgrímur Jóhannsson með 648 stig. Eins og fyrr segir, var ekkert hægt að fljúga í gær vegna mikils hvassviðris, en þrír gildir flugdag- ar voru komnir og var því heildar- stigatalan reiknuð út. Kom þá í ljós, að sigurvegari og svifflugmeist ari íslands 1963 var Sverrir Þór- oddsson, Reykjavík, með alls 2662 stig. Annað sætið hlaut Þórhallur með alls 2550 stig. Næstur kom Þorgeir með 2256 stig. Fjórði varð Leifur Magnússon með 2177 stig. Og í fimmta sæti var Arngrímur Jóhannsson frá Akureyri og hlaut hann alls 1268 stig. í heild má segja um mótið, að útkoman er mun Iægri en menn gerðu sér vonir um, en það stafar af mjög óhag- stæðri veðráttu flesta daga móts- ins. Þess má geta, að þeir Leifur og Þórhallur voru á æfingaflugum, og dregur það skiljanlega úr góðum árangri. Happdrætti Dregið var 15. þ.m. í Happdrætti Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar. Vinningur Simca-bifreið. — £>ar sem beðið var eftir skilagrein frá ýmsum var ekki hægt að til- kynna vinningsnúmerið strax, en það verður gert á morgun eða mið- vikudag. Mótið fór mjög vel fram, og ekk- ert óhapp henti neinn þátttakend- anna. Mótinu var slitið að hótel Hellu. Mótstjórinn, Ásbjörn Magnússon, hélt stutt ávarp og afhenti því næst verðlaun. Auk titilsins Svif- flugmeistari íslands árið 1963 hlaut sigurvegarinn, Sverrir Þóroddsson, glæsilegan bikar, sem er farandbik- ar, og var þetta 1 fyrsta sinn, sem keppt var um bikarinn. Bikarinn gáfu nokkrir meðlimir Svifflugfé- Iags íslands til minningar um Jó- hann Hagan, sem var mjög efni-, bikar, sem gefinn var af Ingólfi legur svifflugmaður, en lézt árið Jónssyni flugmálaráðherra 1942. Einnig hlaut Sverrir fagran I Þórhallur Filippusson og Sverrir Þóroddsson, svifflugmeistari fslands.' Evrópumótið i bridge: island sigraði í 3.og4.umferð Einkaskeyti til Vísis frá Baden-Baden. Fjóruin umferðum er Iokið í Ev- rópumeistaramótinu í bridge, sem haldið er í Baden-Baden í V- Þýzkalandi. ísland tapaði í tveim fyrstu umferðum en sigraði i hinum. í fyrstu umferð sigraði Belgía fsland 6—0 (134—77) og í annarri umferð sigraði Þýzkaland ísland 6—0 (129—86). í þriðju umferð sigraði ísland Sviss 6—0 (120—55) og í fjórðu umferð sigraði ísland Líbanon 6—0 (87—27). Úrslit urðu að öðru leyti sem hér segir í 1. umferð: Pólland vann Sví- þjóð, 6—0, Þýzkaland írland 6—0, Finnland Sviss 5—1, England Le- banon 6—0, Frakkland Holland 6—0, Danmörk Austurrlki 5—1, Ítalía Egyptaland 6—0 og Spánn vann Noreg 6—0. Stefán, Lárus, Ásmundur og Hjalti spiluðu fyrir ísland í 1. umferð. í annarri umferð sigraði Eng- land Frakkland 6—0, Svlþjóð Belgíu 6—0, Sviss írland 5—1, Hol- land Danmörku 6—0, Austurríki Frh. á bls. 7. Breiðablik í I. Vestmanitaeyjar — Breiðablife 2-2 næsta árl Breiðablik, liðið, sem mest hefur komið á ó- vart í knattspyrnunni undanfarið, hefur nú tryggt sér sigur ! A-riðl- inum og leikur nú til úr- slita í II. deild, sennilega við Þrótt, um að hreppa sæti í I. deild næsta ár. Þessir duglegu Kópa- vogsbúar kepptu í Vest- mannaeyjum s.l. laugar- dag. Þeir voru að vísu heppnir, en þeir komu með eitt stig til baka frá Eyjum. Dýrmætt stig, sem tryggði þeim að Ieika til úrslita í II. deild. Fljótlega eftir að leikurinn í Vestmannaeyjum hófst, var það ljóst, að Eyjamenn voru ákveðn ir I því ð hefna fyrir ófarirnar á Melavellinum, þegar Breiða- bliksmenn renndu knettinum fjórum sinnum I netið hjá þeim, án þess að þeir gætu svo mikið sem sett eitt mark. Þrátt fyrir það voru það Kópa vogsmenn sem settu fyrsta mark leiksins, það kom um miðj an fyrrj hálfleik. Grétar Krist- jánsson skaut föstu, góðu skoti fyrir utan vítateig, sem hafnaði efst uppi f horni — glæsilegt, óverjandi skot. Eftir markið sækja Vestmannaeyingar mun meira, en skora loksins síðast í fyrri hálfleik af stuttu færi úr þvögu. Fljótlega eftir að síðari hálf- leikur byrjaði, skora Eyjamenn aftur og var þar Guðmundur Þórarinsson að verki. Vest- mannaeyingar „pressa“ nær stanzlaust í síðari hálfleik og Breiðablik á ekki nema eitt og eitt upphlaup. En heppnin var með beim. Þegar um það bil átta mínútur voru til leiksloka, tókst þeim að skora, 2:2. Ekki urðu mörkin í leiknum fleiri. Dómarinn. Valur Benediktsson, flautaði af og það voru ánægðir II. deildar leikmenn úr ung- mennafélaginu Breiðablik í Kópavogi, sem yfirgáfu leikvang inn. Eitt stig hafði bætzt við á stigatöfluna þeirra og það var nóg til að tryggja þeim að leika til úrslita í II. deild. Áberandi bezti maður Vest- mannaeyinganna var Atli Ein- arsson, h. framvörður. 1 liði Breiðabliks stóðu þeir sig einna bezt Júlíus miðvörður og Reynir Jónsson. Einnig átti markmað- urinn ágætan leik. Eins og fyrr segir, var dómari í leiknum Valur Benediktsson, og dæmdi hann ágætlega. Ahorf endur voru margir, enda mikill áhugi fyrir knattspymu f Vest- mannaeyjum og hvöttu áhorf- endur 1-p:r->pr-ierln vel að vanda. Syndið 20C mitrona ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN FERÐIZT í VOLKSWA3EN

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.