Vísir - 24.07.1963, Page 1

Vísir - 24.07.1963, Page 1
y VISIR 153. árg. — Miðvikudagur 24. júlí 1963. — 167. tbl. Kornræktarhorfur ískyggilegar Sé korn ekki farið að skríða um mánaðamótin júií—ágúst, er korn- uppskeru vart að vænta, en nú er aðeins vika eftir af júlí og korn ekki farið að skriða, hvorki á Norð ur- eða Austurlandi, samkvæmt þeim upplýsingum sem hfaðið hef- ur fengið. Horfir því uggvænlega um korn- ræktina á Norður- og Austurlandi, og gæti svo farið, bregði ekki til batnaðar og fari að hlýna, að hún bregðist I ár. Vísir hafði það eftir Árna Jóns- syni tilraunastjóra á Akureyri í gær, að korn væri ekki farið að skríða nyrðra og horfur ískyggileg- ar með kornræktina. í morgun átti blaðið tai við Jón as Pétursson á Lagarfelli á Héraði. Hann kvað kornakra sennilega um 100 hektara að flatarmáli á ýmsum stöðum á Héraði í sumar og horf- ur alvarlegar, þvf að korn væri .ekki farið að skríða, en vonlftið, B*eð Framh. á bls. 5 37 lóðum úthlutað S. 1. föstudag var úthlutað 27 hlutunina. raðhúsalóðum, 18 Ióðum undir Fyrir nokkru hafði verið út- einbýlishús og.tveim tvíbýlislóð- hlutað á þriðja hundrað lóðum um í Háaleitishverfinu. Er verið f sama hverfi, en frá því hefur að senda út tilkynningar um út- verið sagt í Vísi. BRIDGE: ÍSLENDINGAR SIGRUÐU DANI Einkaskeyti til Vfsis frá Baden-Baden. I sjöttu umferð Evrópumótsins í bridge sigruðu íslendingar Dani 4—2 (69—60). Allir íslenzku spila- mennirnir tóku þátt f þessari um- ; ferð. Að öðru leyti urðu úrslit á þessa i leið: England sigraði Spán 6—0, 1 Ítalía sigraði Holland 6—0, Sviss sigraði Þýzkaland 5—1, írland sigr- aði Egyptaland 6—0, Austurríki Pólland 5—1, Noregur og Finnland, Blaðið i dag Sfða 3 Sfldarmyndir frá Seyðisfirði. — 4 Gullfiskar á þurru landi. — 7 Stokkið úr 12 þús. feta hæð. — 9 Grein Gunnars Thoroddsen fjár- málaráðherra. Belgía og Líbanon og Frakkland og Svíþjóð skildu öil jöfn 3—3. — Stefán. SIGLUFJARÐARSKARÐ L0KAST VEGNA SNJÓA L/.'MV.V.'.V.v. V. ... • ...v, ,....,,,V.S, V. V.,„,V.,.-.-.V.V..., .......'■ Fréttamaður Vfsis, Þorsteinn Jósefsson, var á Siglufirði f s.l. viku. Hann ætlaði yfir Siglu- fjarðarskarð í fyrradag. En þeg- ar komið var miðja leið upp á skarðið varð ófært venjulegum bifreiðum. Fékk hann þá kraft- mikla bifreið frá Siglufirði til að draga bifreið sfna yfir skarðið. Þorsteinn og félagar hans voru ekki fyrr komnir yfir skarðið en það lokaðist með öllu. Myndin er tekin í Siglufjarðarskarði og gefur góða hugmynd um snjó- inn, sem þar er. (Ljósm. Vísis, Þ. J.). Veríð að setja upp afkasta- mikla malhikunarstöð Á næstunni tekur til starfa ný og afkastamikil malbikunarstöð, sem Reykjavíkurborg er að reisa f Ártúnshöfða, nálægt grjótnáminu. Verið er að reisa undirstöður og á morgun er Væntanlegur sérfræðing ur frá verksmiðju þeirri f Dan- mörku, sem smíðaði stöðina, og mun hann annast uppsetningu hennar. Stöðin kostaði komin til lands- ins fimm milljónir króna. Hún get-®' ur framleitt 50—80 tonn á klst. af malbiki, sem er mun meira en áætluð þörf gatnagerðarinnar í Reykjavík. Stöðin er að öðru leyti mun full- komnari en gamia malbikunarstöð- in, getur t. d. framleitt betra mal- bik en eldri stöðin. Sennilega tek- ur stöðin til starfa eftir um það bil hálfan mánuð. Bv. Sigurður með 400 tonn B/v Sigurður kom af veiðum í gær. Var hann við Austur-Græn- land og á heimamiðum. Aflinn var mestmegnis karfi og er áætlaður um 400 tonn. Byrjað var að skipa upp úr honum í gær. Blómlegur hugur ríkissjóðs: 100 MIIUÓNIR CCYMD- AR m MÖCRU ÁRANNA Greiðsluafgangur rík- isins hefir aldrei verið meiri en á liðnu ári, 1962. Var hann alls 162 millj. króna. Ber það vott um blómlega af- komu ríkisins. Frá þessu skýrir fjármálaráð- herra Gunnar Thoroddsen í grein, sem hann ritar á 9. síðu Vfsis f dag, og rekur ýmis at- riði hinnar mjög bættu afkomu ríkissjóðs. Hefur rfkisstjómin þess vegna afráðið að leggja 100 millj. kr. af greiðsluafgangi ríkissjóðs f Jöfnunarsjóð. Lögin um hann hafa verið óvirk f 30 ár, og er það fyrst nú sem hin skynsam- Iegu fyrirmæli þeirra eru látin koma til framkvæmda. í tfð Ey- steins Jónssonar var greiðslu- afgangi ríkissjóðs ávallt veitt út í atvinnulífið með óhjákvæmi legri verðbóigumyndun. Ríkis- stjórnin telur óverjandi að fara þá leið, og auka þannig verð- bólguhættuna, og leggur þess vegna féð fyrir til mögru ár- anna. Þess skal getið að f tið nú- verandi ríkissjórnar hefur greiðsluafgangur sífellt farið vaxandi. Var hann 35 millj. kr. árið 1960, 72 millj. kr. 1961 og 162 millj. kr. f fyrra. Enn er það til marks um hina hagstæðu útkomu ríkissjóðs að vaxtabyrðin var 6 millj. krónum lægri en áætlað var á fjárlög- um. Stafar það af því hve hag- ur ríkissjóðs gagnvart Seðla- bankanum hefur mjög batnað.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.