Vísir


Vísir - 24.07.1963, Qupperneq 5

Vísir - 24.07.1963, Qupperneq 5
VlSIR . Miðvikudagur 24. júlí 1963. 5 Verkfræðingar — Framhald af bls. 16 stefna aðilum fyrir félagsdóm og höfum þegar gert ráðstafanir til þess.“ Tvennt er þá orðið ljósara en áður í þessari undarlegu verk- fræðingadeilu. í fyrsta lagi, að ríkið getur aðeins ráðið til sín vekfræðing, eins og aðra starfs- menn, á grundvelli Kjaradóms. Annað væri óframkvæmanlegt, óiöglegt og óréttlátt. Og það er hér ekki aðeins um 4 verkfræð- inga að ræða, heldur er og vit- að að ýmsir verkfræðingar muni sækja um þær stöður, sem aug- lýstar hafa verið hjá Raforku- málaskrifstofunni, Landsíman- um og fleiri ríkisstofnunum með umsóknarfresti til 5. ágúst. — Þetta var fyrra atriðið. Hitt atriðið, sem nú hefur skýrzt og vekur stórfurðu, er það, að stéttarfélag verkfræð- inga ætlar að berja höfðinu við steininn og kæra það, sem al- menningi virðist þó ekkj nema eðlilegt og löglegt. Það er að ríkið ráði til sín starfsmenn, verkfræðinga auðvitað sem aðra eftir því sem þeir fást, á grund- vellj hinna einu laga, sem nú gilda um kaup og kjör opin- berra starfsmanna og embættis- manna. Kornrækt — Framhald -J bls. I. kom, sem ekki er farið að skríða í byrjun ágúst. Hann kvað tíðina hafa verið góða £ lok júní og fram undir 10. júlí og þá hafi öllu fleygt fram, enda góðir heitir dagar, en vorið var kalt, frost fór seint úr jörðu og hún Iengi blaut og því seint sáð, og nú hafa verið kuldar í hálfan mánúð og gróðri farið lítið fram. Þeir, sem byrjuðu snemma, náðu inn talsverðu heyi, en þeir voru miklu fleiri, sem ekki gátu byrjað snemma ýmissa orsaka vegna og eiga nú hey úti, sem farin eru að hrekjast. í góðviðriskaflanum hefðu sumir getað siegið og hirt meira, ef þeim hefði þótt nógu vel sprott ið. Jónas kvað ekki hafa komið næturfrost á Héraði í sumar, en oft snjóað í fjöll undangenginn hálfan mánuð. Dregið hefur úr ferðamanna- straumi síðan kólnaði í veðri. Yfir 50 menn voru handtekn- ir, er blökkumenn efndu til kröfugöngu í New York nú í vikunni. ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN FERÐIZT í VOLKSWA3EN Vinnuvdtendur ú fundi Myndin sýnir fomienn og tryggingar, og afskipti ríkisins fu'ltrúa vinnuveitendasamtaka af kjarasamningum. Fundir hafa Norðurlanda á fundi í Hótel staðið síðan á mánudag og lýk- Sögu í morgun. — í morgun ur í dag. í gær fóm fulltrúarnir ræddu þeir m.a. um almanna- í stutt ferðalag út úr bænum. (Ljósm. Vísis B. G.) Eftirspil sumardans- vestanlands Mandy Tveir lögregluþjónar staðar- ins skámst fljótt f Ieikinn og hugðust stiOla til friðar. En ekki létu dansmenn sér segjast við orð varða friðarins. Klómðu þeir annan, eftir frásögn sjón- arvotts, en spörkuðu i hinn, svo : þeir urðu brátt óvígir. Hreppstjóri hugðist þá sker- ast í leikinn, er hann sá hvemig hinir minna tignu valdsmenn þorpsins voru Ieiknir. En hann hafði ekki erindi sem erfiði. Honum var hótað áverkum sver um, ef hann hreyfði sig og fuku köpuryrðin f hans garð. Mátti hreppstjórinn við það una, þar sem við ofurefli liðs var að etja. Er frá Ieið færðist nokkur ró yfir omstuvöllinn. Ekki vildi þó móðurinn auðveldlega renna af aðalbardagamönnunum og var síðar um nóttina sóttur læknir plássins til þess að sprauta þá til róunar. En það kom fyrir ekki. Læknavísindin megnuðu lítt að sefa omstumóðinn og vom nokkrar róstur fram eftir nóttu. Suðureyri á laugardag. Fyrir nokkrum dögum var haldin dansskemmtun á Suður- eyri við Súgandafjörð. Eftir dansinn gengu menn undir bert loft. Var þá ölvíma á mörgum mönnum og segir ekki frekar af því, en upp hófust hin mestu slagsmál — og það við hús hreppstjórans á staðnuni. sgelifiðfi .rrtimtibii -iliim Óiftl^rúíiJB -múlinu Mandy Rice-Davies kom tvisvar á sýningu á teikningum Ward læknis, en á henni eru 145 myndir, sem seljast eiga upp í kostnað við vörn hans ,og eru í skránni taldar 18.000 stp. virði. Á sýning- unrri var mynd af Mandy, verð 400 gfneur. Mandy var í góðu skapi, „drakk af stút í fyrra skiptið, en úr glasi hið síðara." — Daily Ex- press segir, að hún hafi veifað flöskunni og sagt: „Nú veit ég hvernig Liz Taylor er innanbrjósts". Blaðið birtir sem viðbót frá lista-gagnrýnanda sínum, að teikningar Wards séu ágætar. Nýtt vitni er komið til sögunn- ar í málinu gegn Ward lækni. Vitnið, 21 árs gömul stúlka að nafni Vickie Barrett, ber vitni nú í vikunni að beiðni saksóknara. . Á þessa stúlku var minnzt í upp- hafi réttarhaldanna. Var Ward tal- inn hafa boðið henni f íbúð sína til þess að hitta karlmenn og hafi hún farið þangað 2—3 sinnum í viku. Christine Keeler þótti standa sig vel, er verjandi Wards spurði hana margs og reyndi að hrekja fram- burð hennar, en hún lýsti allan framburð sinn fyrr og síðar sann- an, en ásakanir verjanda ósannar með öllu og sumar „tóma vitleysu".

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.